Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020 Í Morgunblaðinu 21. október 2020 birtist grein sem höfund- urinn Erlingur Hans- son nefnir „Stað- reyndir og Stalín“. Grein Erlings er rituð sem eins konar and- svar við grein eftir mig, sem birtist í sama blaði 17. október. Hann byrjar á að leið- rétta leiðinlega innsláttarvillu í grein minni varðandi flokksþing Kommúnistaflokks Sovétríkjanna í febrúar 1956 sem í grein minni er sagt vera hið 10. í röðinni en á að vera hið 20. Rétt er þetta hjá Er- lingi. Þrenn málaferli voru háð fyrir Hæstarétti Sovétríkjanna á árunum 1936-38. „Hann [Ólafur] trúir því að þau hafi verið réttlát og dóms- úrskurðir þeirra réttir.“ Orðrétt haft eftir Erlingi. Og hann bætir við: „Rannsóknir margra heiðarlegra og vandaðra sagnfræðinga hafa ótví- rætt leitt í ljós að þetta voru sýnd- arréttarhöld og saklaust fólk var þvingað til að játa á sig ótrúlegustu sakir.“ Engan af þessum mörgu heiðar- legu og vönduðu sagnfræðingum nefnir Erlingur með nafni og enginn þeirra var viðstaddur réttarhöldin og fróðlegt væri að vita hvernig þeir gátu úr fjarlægð leitt í ljós að sak- laust fólk hafi verið þvingað til að játa á sig ótrúlegustu sakir. Svo vill til að lögfræðingar, blaðamenn og sendiherrar erlendra ríkja voru við- staddir málaferlin og töldu játningar fanganna sannar, jafnvel þótt þær vektu furðu þeirra. Bandaríski sendiherrann í Moskvu á tímum réttarhaldanna, sem sjálfur var lög- fræðingur, Joseph E. Davies, fylgd- ist með þeim frá degi til dags með aðstoð túlks og lýsti því yfir að Vis- inski, ríkissaksóknari Sovétríkj- anna, hefði stjórnað landráðarétt- arhöldunum á þann veg að það vann virðingu hans og aðdáun sem lögfræðings. Davies sagði: „Ég talaði við flesta ef ekki alla sendi- herrana hér og allir nema einn voru þeirrar skoðunar að málaferlin hefðu tvímælalaust sannað tilveru pólitísks samsæris til að steypa ríkisstjórninni.“ Bandaríski fréttarit- arinn Walter Duranty, sem var við- staddur réttarhöldin, ritar þá í bók sinni „Kreml og fólkið“: „Málið lá ljóst fyrir. Saksækjendur höfðu safnað öllum gögnum og lært að þekkja óvinina heima og erlendis. Allur efi var nú á burt.“ Að lokum nefni ég til eina Íslend- inginn sem var viðstaddur málaferl- in, þau síðustu af þrennum, yfir Bukharin-hópnum í mars 1938. Þessi maður, Halldór Laxness, var í einu og öllu sammála þeim sem ég hef hér nefnt. Um skoðanir hans á málaferlunum má lesa í bók hans Gerska ævintýrinu sem út kom 1938, önnur útgáfa 1983. Ég trúi vitnisburði þeirra manna sem ég hef hér nefnt mun betur en sagnfræð- ingunum hans Erlings þótt heiðar- legir og vandaðir væru. Margt furðulegt kemur fram í grein Erlings, til dæmis þetta: „Lenín gerði m.a. þá tillögu hinn 7. nóvember 1917 að Trotskí yrði í for- sæti stjórnar landsins eftir að bolsé- vikar tóku völdin.“ Ja, hérna! Trotskí hljóp úr herbúðum mensé- vika yfir til bolsévika þremur mán- uðum fyrir nóvemberbyltinguna, þ.e. þegar ljóst var orðið að mensé- vikar voru að missa fótanna. Hann skipti um flokk til þess að geta náð fótfestu í hagkvæmri vígstöðu. Len- ín nauðaþekkti Trotskí og hans póli- tísku fortíð. Það er auðvitað þvætt- ingur að óumdeildur leiðtogi rússnesku byltingarinnar hafi ætlað að fela nýgræðingi í flokknum for- ystu byltingarinnar 7. nóvember 1917. Þeir sem ætla að gera lygina að bandamanni sínum verða að ljúga trúlega. Álíka sannleikur er: „Ólafur lætur liggja að því að rétt hafi verið að myrða Trotskí árið 1940 vegna þess að milli Leníns og Trotskís var ósamkomulag fyrir 1917.“ Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann en láttu það svona í veðrinu vaka þú vitir að hann hafi unnið til saka. (Páll J. Árdal) Erlingur heldur sig við fullyrð- ingar trotskíista á morðinu í Mexíkó. „Trotski var myrtur í Mexíkó af flugumanni Stalíns,“ ritar Erlingur. Mikill var máttur Stalíns. Hann gat látið myrða mann í 8.000 kílómetra fjarlægð og mikil var tryggð flugu- mannsins við Stalín að hann skyldi leggja á sig nærri 20 ára fangels- isvist til þess að þóknast honum. Og Erlingur veit nákvæmlega hvað morðinginn átti að segja mexí- kósku lögreglunni um ástæður morðsins: „Eftir að hann var látinn laus árið 1960 fór hann til Moskvu.“ Ekki þó í faðm Stalíns til þess að taka út laun fyrir vel unnin störf, enda lést Stalín árið 1953. Nei, æðst- ráðandi til sjós og lands í Rússlandi árið 1960 var Nikita Krústsjov, aðdáandi Stalíns allt til 1956. Sjálfur óttaðist morðinginn hefnd trotskí- ista en þeir voru öflugir víða um lönd og kunnu vel til verka eftir náið samstarf við fasista í seinni heims- styrjöldinni. Lokaorðum Erlings í greininni um að ég sé til í að afneita gyðinga- morðum nasista hirði ég ekki um að svara enda segja þau meira um hann en mig. Staðreyndirnar hans Erlings Eftir Ólaf Þ. Jónsson Ólafur Þ. Jónsson »Ég trúi vitnisburði þeirra manna sem ég hef hér nefnt mun betur en sagnfræðing- unum hans Erlings þótt heiðarlegir og vandaðir væru. Höfundur er skipasmiður. Póstþjónusta er að stórum hluta sam- félagsþjónusta en al- þjónustuskyldan setur þau skilyrði að lands- menn allir fái sam- bærilega þjónustu á sambærilegu verði. Það kostar peninga og eftir að bréfamagnið fór að falla hætti al- þjónustan að vera sjálfbær. Ríkið, sem hefur þá skyldu að reka alþjónustuna, lagði ekkert til og gerir ekki enn. Þar með er það borin von að fyrirtækið Íslandspóstur geti skilað hagnaði og í reynd dæmt til hallareksturs sama hvað mörgum væri sagt upp og hversu mikið væri gripið til hag- ræðingar. Að mínu viti er stjórn fyrir- tækisins á algjörum villigötum með að leggja þá línu að beita krísu- stjórnunaraðferðum við rekstur póstþjónustu. Skyldurnar eru margar og miklar og ekki hægt að hlaupa frá þeim með þeim aðferð- um sem við höfum séð undanfarið rúmt ár. Að selja dótturfyrirtæki sem sum hver skiluðu hagnaði, hætta dreifingu á fjölpósti á mik- ilvægum svæðum með tilheyrandi tekjumissi, hætta útgáfu frímerkja sem hafa borið hróður póstþjónust- unnar víða um heim, hætta sölu á ýmiss konar vöruflokkum í póst- afgreiðslum og að lokum segja upp áratuga starfsreynslu og henda út úr fyrirtækinu því dýrmætasta sem hvert fyrirtæki á; mannauðnum. Þetta eru mistök. Eftir stendur fyrirtæki fátækara en áður og enn er staðan að fyrir- tækið er rekið með tapi. Krísu- stjórnunaraðferðir eiga sannarlega ekki við í þjónustufyrirtæki sem hefur ríkar skyldur við landsmenn. Vonandi tekst að vinda ofan af því tjóni sem þegar er orðið. Til að svo geti orðið þarf að gera þjónustu- samning um fjár- mögnun og fram- kvæmd alþjónustu, útgáfu frímerkja og að lokum hætta að hlaupa eftir kröfum um að falla frá samkeppni eins og gert hefur ver- ið. Væntanlega til að hugnast samtökum í atvinnulífinu, sem hafa agnúast út í Íslands- póst árum saman með tilheyrandi ásökunum um svindl og svínarí. Ef það á að vera reyndin, er þá leiðin að breyta Íslandspósti í ríkisfyr- irtæki og setja á fjárlög? Ég segi nei. Pólitíkin hefur brugðist; tómlæti, áhugaleysi og skilningsleysi á rekstri póstþjónustu hefur leitt fyrirtækið í blindgötu. Það er henn- ar að vinda ofan af því sem orðið er, móta stefnu til framtíðar og tryggja að allir landsmenn fái þá þjónustu á því verði sem alþjón- ustuskyldan krefst og tryggi að það sé gert á sanngjörnu verði og greitt verði fyrir þá þjónustu. Ég hef von um að þetta sé að breytast. Markaðsstarf og sókn í annarri þjónustu er síðan rós í hnappagatið og sýnir að póstþjónustan á Íslandi er klár í framtíðina. Á það má ekki setja hömlur. Póstþjónustan og krísustjórnun Eftir Jón Inga Cæsarsson »Ríkið, sem hefur þá skyldu að reka al- þjónustuna, lagði ekkert til og gerir ekki enn. Þar með er það borin von að Íslandspóstur geti skilað hagnaði. Jón Ingi Cæsarsson Höfundur er formaður Póstmannafélags Íslands. jonc@simnet.is Sorg er ekki sjúk- dómur heldur einn af þáttum heilbrigðs lífs. Sorg er sársauki sem verður þegar við miss- um einhvern sem er okkur mikilvægur og við elskum. Dauði, skilnaðir, ósætti, tengslarof og vinslit valda sorg. Ástin er meginþáttur heil- brigðs lífs. Allir vilja elska en enginn syrgja. Ef við vilj- um losna við sorg og söknuð ættum við að sleppa því að elska. Þau syrgja ekki sem hafa aldrei elskað. En sorg er jafn eðlilegur þáttur lífsins og ástin. Sorg er gjald elsk- unnar. Sorg er skuggi ástarinnar. Enginn verður fullsáttur við missi en sorgarvinnan leiðir oftast til að fólk lærir að lifa við missinn. Syrgjandi kemst á það stig að geta líka notið gleði á ný þrátt fyrir að lífið hafi breyst. Yfirþyrmandi verkefni syrgjenda er að læra ný hlutverk og finna sér jafnvel nýjan tilgang. Sorgarþróun er gjarn- an lýst sem mynstri sem kallað er sorg- arferli. Fyrsta skrefið er áfall. Hið annað er einhvers konar aðlög- un að missinum. Þriðja skrefið varðar að taka þátt í lífinu að nýju. Sorgarferli er því ekki aðeins áfall heldur vegferð með litríkum tilfinn- ingasveiflum. Sterkar tilfinningarnar eru eðlileg viðbrögð heilbrigðs fólks í hræðilegum að- stæðum. Þegar fólk missir verða flestir dofnir af högginu. Sumir festast í afneitun. Áfallið getur verið svo mikið að fólk verður sem lamað af drunga áður en bataferlið hefst. Að syrgja er ekki sjúklegt heldur fremur merki um að tilfinningar eru heilbrigðar en ekki búnar að jafna sig á áfallinu. Tilfinningadoði sem einkennir fyrstu daga og vikur missis er kæling sálar. Stundum tekur langan tíma að þíða sálar- frostið. Vegna dofans kemst fólk oft í gegnum útfarartíma án þess að bugast. Þegar kulda leysir svo, eins og í náttúrunni á vorin, verður flóð í sálinni. Það er jafnan tímabil mikils sársauka. Þá hellist yfir syrgjendur raunveruleiki missis. Margir upplifa að vera illa áttaðir og einmana. Söknuður er langlífur. Læknar tíminn sárin? Nei, tíminn læknar ekkert. Eins og líkamleg sár þarfn- ast sálarsárin hreinsunar og umönnunar. Það hjálpar að tala um látna ástvini okkar, skrifa niður minningar um þau, skoða myndir af þeim, minnast viðburða og líka skondinna, áhrifa þeirra á okkur, rifja upp það sem þau kenndu okk- ur og gerðu fyrir okkur eða það sem þau gerðu ekki fyrir okkur og er okkur sárt. Að tala um heilsu- missi, skilnað, vinslit og áföll er erfitt en mikilvægt. Tilgangurinn er að hreinsa sárin. Hver hafði mest áhrif á þig og gerði þig að þeirri manneskju sem þú ert? Var það móðir eða faðir, afi eða amma, maki eða börn? Dragðu upp í huganum myndir af fólki og aðstæðum sem hafa haft áhrif. Dagar minninga eru dagar lífs. Sorgin – skuggi ástarinnar Eftir Sigurð Árna Þórðarson » Þau syrgja ekki sem hafa aldrei elskað. En sorg er jafn eðlilegur þáttur lífsins og ástin. Sigurður Árni Þórðarson Höfundur er Hallgrímskirkjuprestur. s@hallgrimskirkja.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Ýmsar spurningar um mjög forvitnileg efni eru þess eðlis að maður kinokar sér við að bera þær upp; sum- ar beinast jafnvel að málavöxtum þar sem fæstir hafa getað vænst svara af skyn- samlegu viti. Af þess- um sökum hafa þó nokkrar myndir al- gengra og bráðnauðsynlegra sagn- orða í tungu okkar legið lítt notaðar. Ég held áfram að hlera tungutak fjórðubekkinganna í Smáíbúða- hverfinu, sófistanna, sem sitja tím- unum saman í sófanum og eiga sí- felld orðaskipti sín á milli og við hina og aðra samherja eða andstæð- inga í orrahríðum dagsins á ljósvak- anum. Fólkorrustur eru tíðar, hetjur falla en rísa óðar upp aftur; hér eru í gangi þau tilverustig, sem þótt hefðu eðlileg með einherjum í Valhöll á sinni tíð. Enda kemur þar sögunni í einni hleruninni að ég heyri einherja í sófanum spyrja annan úti í ljósvakanum þessarar blátt áfram spurningar: „Hvernig dóstu?“ Fullkomlega rétt orðuð spurning hvernig sem á málið er lit- ið, en samt ekki sú orðmynd sem maður getur í fljótu bragði séð sig hafa þörf fyrir dagsdaglega, nema þá í tilvikum eins og þegar Ari heit- inn Jósefsson tók í olnbogann á Braga Kristjónssyni á miðilsfund- inum hjá Hafsteini miðli, eins og frá var sagt í Morgunblaðinu núna 24. október. Þó fyllir þetta litla tilvik um óvenju- lega notkun sagn- arinnar „að deyja“ nokkurri bjartsýni þann, sem var í holti sófistanna heyrandi nær. Þarna ræður varla ferðinni sú regla, að svo læri börnin málið sem það sé fyrir þeim haft – nær væri kannski að segja að svo læri börn- in að laga tunguna að eigin þörfum og eftir tímanna takti eins og umhverfið gefur þeim kost á. Það sýnist því fullkomlega rök- rétt að velta því fyrir sér hvort menntamálaráðuneytið ætti ekki, í lofsverðum aðgerðum sínum til við- halds og eflingar íslenskri tungu, að taka upp öflugt samstarf við fyrir- tæki á borð við CCP. Þau fyrirtæki eru meðal annars hinir stóru áhrifa- valdar í mótun frásagnarlistar og málvitundar barna samtímans á þýðingarmestu árum málþroskans, og frásagnarháttur þeirra flestum börnum líklega tíðum nákomnari en bókmálið. Eftir Hinrik Bjarnason Hinrik Bjarnason »Um samskipti barna sín á milli og við um- hverfið og hvatning til menntamálaráðuneyt- isins að gefnu tilefni. Höfundur er eftirlaunaþegi eftir tæplega 50 ára starf að æskulýðsmálum og fjölmiðlun. „Hvernig dóstu?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.