Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Ómar RÚV Fjölmiðlanefnd gerir at- hugasemdir í árlegu mati sínu. Í árlegri skýrslu sinni um starfsemi RÚV gerir fjölmiðlanefnd athuga- semd við að RÚV borgi verktökum innan vébanda stofnunarinnar verk- takagreiðslur en kalli það kaup af og meðframleiðslu með sjálfstæðum að- ilum ótengdum RÚV, sem stofnun- inni er skylt að verja 10% heildar- tekna sinna til. Þannig fer RÚV gegn þeim hluta þjónustusamningsins við mennta- og menningamálaráðherra er lýtur að samstarfi við sjálfstæða framleið- endur og kaupum á efni af þeim. Verktökum sem unnu að gerð þátta á borð Vikuna, Silfrið, Menninguna, Gettu betur og Landann var greitt fyrir með verktakagreiðslum sem eyrnamerktar voru óháðum og sjálf- stæðum framleiðendum. Sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins segir að tjónið sem íslenskur kvik- myndaiðnaður hafi orðið fyrir á samningstímanum hlaupi á hundruð- um milljóna. Hún segir alvarlegt að ekkert hafi verið að gert eftir að SI vakti athygli á málinu fyrir tveimur árum. »4 og 14 Tjónið hundruð milljóna  Koma sér hjá því að styðja við sjálfstæða framleiðendur M Á N U D A G U R 9. N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  264. tölublað  108. árgangur  KRÖFTUG TÆKIFÆRI FYRIR VESTAN UNDANÞÁGA TIL ÆFINGA ÆSKUSÖGUR FRÁ KAUP- MANNAHÖFN KVENNALANDSLIÐIÐ Á FERÐINNI 26 JÓN ÓSKAR SÓLNES 29VILL EFLA FLATEYRI 6 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrrverandi forstjóri heilbrigðis- stofnunar segir það bábilju að alltaf sé betra að sinna öldruðu fólki á heimilum þess í stað þess að það flytji á hjúkrunarheimili, ef vilji og heilsubrestur kalli á það. Þingmaður sem er jafnframt öldrunarlæknir hefur aftur á móti enga trú á því að næstu kynslóðir muni sætta sig við búsetu á stofnunum. „Þessi kenning er röng og þótt það geti átt við í þeim tilfellum þar sem fólk er tiltölulega hresst hafa ekki verið færðar fyrir því neinar sann- anir eða flutt fyrir því rök að það sé ódýrara að geyma fólk heima,“ segir Valbjörn Steingrímsson, fyrrverandi forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, um þá stefnu að veita öldruðum þjónustu heima til að draga úr þörf fyrir hjúkrunarheimili. Dýrt sé að reka heimili og lífeyrir standi ekki undir því. Það auki fá- tækt, einsemd og vanlíðan að þvinga fólk til þess. Heppilegra fyrir fólkið Ólafur Þór Gunnarsson, þingmað- ur og öldrunarlæknir, segir að bæta þurfi heimaþjónustu og heimahjúkr- un vegna þess að það fyrirkomulag muni fólk vilja í framtíðinni. Það verði hagkvæmara fyrir samfélagið og alveg örugglega heppilegra fyrir fólkið sem noti þjónustuna. „Eins og kerfið er uppbyggt núna er allt of mikil áhersla lögð á að fólk fari inn á hjúkrunarheimili þegar í mörgum tilvikum er hægt að mæta þörfum þess betur og með minni til- kostnaði með aukinni stuðningsþjón- ustu heima,“ segir Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra. Hún segir jafnframt að þótt mikill árang- ur náist á því sviði þurfi engu að síð- ur að fjölga hjúkrunarrýmum og að því sé unnið. Ekki best að hafa fólk heima  Fyrrverandi forstjóri telur bábilju að alltaf sé best að veita öldruðu fólki þjónustu á eigin heimilum  Þingmaður og öldrunarlæknir hefur ekki trú á að næstu kynslóðir sætti sig við að búa á stofnunum MRekstur hjúkrunar … »2, 10, 11 Þjónusta við aldraða » Ef draga á úr þörf fyrir hjúkrunarheimili þarf forvarnir, heilsueflingu og fyrirbyggjandi endurhæfingu. » Í ár hafa fjármunir til að efla heimahjúkrun verið auknir um 130 milljónir og 200 milljónum varið í heilsueflandi móttökur. Andrés Magnússon andres@mbl.is Joe Biden, forsetaefni Demókrata- flokksins, hafa borist heillaóskir hvaðanæva úr heiminum, eftir að ljóst þótti vera að hann hefði náð tilskildum fjölda kjörmanna í for- setakosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Þar á meðal voru Bor- is Johnson forsætisráðherra Breta og Angela Merkel Þýskalands- kanslari, auk herra Guðna Th. Jó- hannessonar forseta og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra Ís- lands. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki viðurkennt ósigur og tel- ur sig geta neytt lagalegra úrræða til að knýja fram endurtalningu eða endurmat á gildum atkvæðum. Lík- urnar á því þykja þó fara þverrandi og hermt er að ýmsir í innsta hring í Hvíta húsinu hvetji forsetann til þess að fara frá með sæmd og friði. George W. Bush, fyrrverandi for- seti og flokksbróðir Trumps, er meðal þeirra sem óskað hafa Biden og Kamölu Harris, varaforsetaefni hans, til hamingju, en Bush notaði tækifærið og hvatti Trump til þess að sætta sig við skýrar niðurstöður sanngjarnra kosninga. »13 Biden fær heillaóskir AFP Fagnað Joe Biden, forsetaefni demókrata, fagnar sigri í Delaware.  Skorað á Trump að fara með sæmd og friði Falleg birta hefur verið marga morgna og mörg kvöld að undanförnu. Ýmsir litir hafa sést á skýjum og norðurljósin verið með líflegasta móti. Hér fylgist fólk með ljósagangi úr Laugarnesi. Skrifstofu- og hótelturnar við Borgartún og nágrenni falla alveg í skuggann af töfrum náttúrunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Töfrar náttúrunnar  Yngvi Tómasson segir mega finna dæmi þess að íslenskar verslanir hafi fært sig alfarið yfir á netið og þannig sparað sér leigu á dýru versl- unarhúsnæði á eftirsóttum stöðum. Sá kippur sem varð í netverslun í kórónuveirufaraldrinum kom mörg- um fyrirtækjum í opna skjöldu. Sum höfðu ekki komið sér upp netversl- unum og önnur þurftu að taka vef- síður sínar í gegn og bæta þjónustu við viðskiptavini á netinu. Vönduð upplýsingagjöf skiptir miklu fyrir árangur netverslana og þurfa við- skiptavinir að vita að hverju þeir ganga hvað varðar sendingar- kostnað og vöruskil. »12 Vönduð upplýs- ingagjöf mikilvæg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.