Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
✝ Róbert TraustiÁrnason fædd-
ist í Reykjavík 24.
apríl 1951. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans hinn
23. október 2020.
Foreldrar hans
voru Anna Áslaug
Guðmundsdóttir, f.
10. maí 1924, d.
20. júlí 1982, og
Árni Guðmunds-
son, f. 18. júlí 1919, d. 13. febr-
úar 1991. Hálfsystur Róberts
eru Guðrún Hansen, Anna Mar-
grét Árnadóttir og Sigríður
Ólöf Árnadóttir.
Róbert kvæntist 6. ágúst
1977 eftirlifandi eiginkonu
sinni, Klöru Hilmarsdóttur guð-
fræðingi, f. 5. nóvember 1948.
Foreldrar hennar voru Val-
gerður Bjarnadóttir, f. 4. jan-
úar 1926, d. 8. apríl 2008, og
Hilmar Ólafur Sigurðsson, f.
26. nóvember 1924, d. 30. maí
2003. Synir Klöru eru Kristján
Þórðarson, f. 1969, kvæntur
Soffíu Rúnu Jensdóttur, f.
1973, og Hilmar Þórðarson, f.
utanríkisráðuneytinu og sinnti
ýmsum verkefnum bæði hér
heima og erlendis. Hann var
skipaður sendiherra árið 1990,
var skrifstofustjóri varnar-
málaskrifstofu 1990-1994 og
ráðuneytisstjóri 1994-1995. Ár-
ið 1996 var Róbert Trausti
skipaður sendiherra Íslands í
Danmörku og gegndi því starfi
til ársins 1999 þegar hann tók
við embætti forsetaritara. Ró-
bert lét af því starfi í mars árið
2000 þegar hann varð forstjóri
Keflavíkurverktaka. Eftir að
hann lauk störfum hjá Kefla-
víkurverktökum árið 2003
starfaði hann m.a. hjá Sam-
tökum atvinnulífsins sem sér-
legur erindreki í Brussel og
hér heima. Róberti Trausta var
sýndur margvíslegur sómi á
starfsferli sínum, var t.d.
sæmdur stórkrossi Danne-
brogsorðunnar árið 1996.
Útför Róberts Trausta fer
fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í dag, 9. nóvember
2020, klukkan 13. Vegna að-
stæðna í þjóðfélaginu og fjölda-
takmarkana verða aðeins nán-
ustu aðstandendur viðstaddir
en streymt verður frá athöfn-
inni á https://youtu.be/
n02ywvuDFjw/
Einnig má nálgast virkan
hlekk á: https://www.mbl.is/
andlat/
1971, kvæntur
Rannveigu Jó-
hannsdóttur, f.
1972. Börn Hilm-
ars og Rannveigar
eru Klara Rún og
Baldur Freyr.
Dóttir Klöru Rún-
ar og Friðriks
Þórs Hjálm-
arssonar er Embla
Rós.
Róbert Trausti
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1973
og BA-prófi frá félagsvís-
indadeild Háskóla Íslands árið
1979. Hann stundaði fram-
haldsnám við Queen’s Univers-
ity í Kingston í Kanada og lauk
þaðan MA-prófi í stjórn-
málafræði árið 1981. Með námi
sínu vann Róbert Trausti ýmis
störf, var m.a. þulur hjá Rík-
isútvarpinu um skeið. Eftir að
hann lauk námi í Kanada var
hann ráðinn til starfa hjá Atl-
antshafsbandalaginu og starf-
aði sem upplýsingafulltrúi þess
í Brussel í Belgíu 1981-86. Þá
hóf Róbert Trausti störf hjá
Það er með sársauka í hjarta
og söknuði sem ég kveð æskuvin
minn, vin til meira en sextíu ára.
Við ólumst upp í Hlíðahverfinu
og kynntumst strax í barnaskóla.
Á þessum árum eyddum við
flestum stundum saman, jafnvel
eftir að ég flutti í annað hverfi.
Síðar, eins og gengur og gerist,
taka við skyldur fjölskyldulífsins
og amstur samfara framhalds-
námi og síðar atvinnu. Þá urðu
samverustundirnar strjálar, en
afar náin og góð vinátta okkar
entist fram á hans hinsta dag.
Róbert Trausti sinnti fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum enda
með eindæmum traustur, orð-
heldinn og heiðarlegur í alla
staði, víðlesinn og vel að sér.
Hann var vinur sem gott var að
leita til með sín vandamál og til
að þiggja góð ráð frá. Það traust
og æðruleysi sem einkenndi allt
hans líf og margir nutu hjálpaði
honum að takast á við sín erfiðu
veikindi.
Í þessu sambandi hvarflaði að
mér ljóðið „Invictus“ eftir enska
skáldið William Ernest Henley,
en lokaerindi þess er eftirfar-
andi:
It matters not how strait the gate,
How charged with punishments the
scroll,
I am the master of my fate:
I am the captain of my soul.
Sem má útleggja í lauslegri ís-
lenskun:
Það skiptir engu hvernig þrengir að,
hve lífshlaupið er markað þjáningu.
Ég er húsbóndi örlaga minna:
Ég er við stjórnvöl sálar minnar.
Að standa óhagganlegur og á
föstum fótum einkenndi Róbert
Trausta. Guð blessi minningu
þína kæri vinur og ég færi Klöru
og fjölskyldu hennar dýpstu
samúðarkveðjur.
Finnbogi Rútur Þormóðsson.
Stundum ráða tilviljanir því
hvernig vinátta verður til í mann-
heimum. Eflaust er hægt að týna
sér í að reyna að útskýra af
hverju hún endist lengi milli
manna og hvað ræður því að vin-
áttubönd treystast. Róbert
Trausti var margræð persóna og
kom oft á óvart með hugmyndum
sínum, gerðum og skoðunum.
Fyrir margt löngu hafði hann
samband við mig sem embætt-
ismaður úr utaníkisráðuneytinu.
Ég hafði stundum lagt þar, eða
annars staðar í stjórnkerfinu, til
lið við að kynna erlendum gest-
um eitt og annað og Róbert hafði
handa mér verkefni. Þau urðu
fleiri og dagskráin hverju sinni
býsna djarfleg því hann hafði
frumlega og ferska sýn á hvað
fengi gestina til þess að muna vel
og lengi upplifunina af Íslandi.
Oftar en ekki réð einfaldleikinn
og djarfur húmor sem var hress-
andi og laus við tilgerð. Við gát-
um eytt saman stundum af og til í
fjölda ára, þó með þeim hléum
sem urðu vegna ólíkra og fjöl-
þættra verkefna okkar beggja,
og utanlandsdvala Róberts og
Klöru sem hafði kynnst Maríu,
mínum maka, á vinnustað.
Við Róbert deildum ekki skoð-
unum á mörgum þáttum stjórn-
mála og efnahagsmála en fund-
um engu að síður einn og annan
samhljóm eftir því sem árin liðu;
samhljóm frammi fyrir hinum
mannlega þætti tilverunnar og
áhuga á þýskri og miðevrópskri
menningu, þægilegri útivist,
sagnfræði og bókum svo sumt sé
nefnt. Ferskleiki Róberts, fróð-
leikur hans og margþættur per-
sónuleiki varð ávallt til þess að
gleðjast mátti þegar til stóð að
hittast og það gátu orðið langir
viðburðir. Glampinn í augum vin-
ar míns fölnaði ekki með árunum
en veikindi hans tóku mikið á
hann og allt í einu áttum við að-
eins samskipti í gegnum síma og
netið. Mikil eftirsjá er að Róberti
Trausta og sár söknuður. Ég
sendi Klöru, ásamt fjölskyldu og
vinum hans, innilegar samúðar-
kveðjur.
Ari Trausti Guðmundsson.
Við kynntumst eftir vistaskipti
í kalda stríðinu; hann fór frá Atl-
antshafsbandalaginu til starfa í
utanríkisþjónustunni, en ég tók
við stöðu hans hjá bandalaginu.
Veganestið frá Brussel batt okk-
ur æ síðan órjúfanlegum bönd-
um.
Róbert Trausti var sterkur
persónuleiki, skarpgreindur, víð-
lesinn og vel máli farinn, spaug-
samur og orðheppinn, en það var
eiginleiki sem reynst gat honum
tvíeggjað sverð. Hann var sjálf-
stæður í skoðunum og óútreikna-
legur, þrautseigur og lét ógjarn-
an hlut sinn, þótt vinir hans vissu
að undir sjálfsöruggu yfirborðinu
leyndist næm sál og tilfinninga-
rík.
Fjölbreyttur ferill Róberts
Trausta ber þess vitni að hann
hræddist ekki umskipti, en sótt-
ist eftir að takast á við ný og
krefjandi viðfangsefni. Hann
hafði alla tíð brennandi áhuga á
heimsmálum og nutu margir vina
hans og samstarfsmanna góðs af
því gnægtahorni upplýsinga sem
hann jafnan bjó að.
Frægur maður hefur sagt að
það líf sé langt sem vel sé lifað.
Róbert Trausti er látinn fyrir
aldur fram, en hans verður lengi
minnst sem óvenjulegs atorku-
og atgervismanns.
Ég kveð minn gamla samherja
með söknuði og votta Klöru og
sonunum einlæga samúð.
Gunnar Pálsson.
Fallinn er frá fyrir aldur fram,
Róbert Trausti Árnason, vinur
frá námsárum í Háskóla Íslands.
Áhugi okkar á stjórnmálum dró
okkur báða að Vöku, félagi lýð-
ræðissinnaðra stúdenta. Hann
íhald eins og ég. Þar var gaman,
alltaf líf og fjör í félagsheimili
okkar í Hótel Vík við Hallæris-
planið og góðan málstað að verja,
frelsið, gegn alræðinu, sem stóð
grátt fyrir járnum yfir hinum
frjálsa heimi okkar, m.a. yfir
þvera Evrópu og átti sér banda-
menn m.a. í Háskólanum. Flestir
vissu hver Róbert Trausti var á
þessum árum, ekki síst þegar
hann hóf upp kunnuglega raust
sína, hann las nefnilega fréttir í
útvarpi allra landsmanna með
skólanum: „Fréttirnar segir Ró-
bert T. Árnason …“ Hann var
víðlesinn, fastur fyrir í skoðun-
um, glaðvær, en hafði yfir sér
valdsmannslegan og virðulegan
blæ. Ekki að furða að hann hæf-
ist til æðstu metorða á þeim vett-
vangi sem hann starfaði lengst á,
við utanríkismálin, varð sendi-
herra og ráðuneytisstjóri, svo
fátt eitt sé nefnt. Síðar varð hann
forsetaritari, forstjóri verktaka-
fyrirtækis og fréttastjóri. Leiðir
okkar lágu aftur saman, löngu
seinna, þegar hann var kominn á
ráðgjafagaleiðuna eins og ég og
sinnti þá rekstarráðgjafarstörf-
um hjá okkur, Ráðgjöfum í
Garðastræti. Þar á bæ héldum
við um árabil ærlega veislu,
seinni part desember, og buðum
vinum okkar og viðskiptamönn-
um upp á hressingu. Á ég
skemmtilega minningu af því að
sjá þá tvo vini mína frá Vökuár-
unum, Róbert Trausta og sr.
Geir Waage, spjalla um landsins
gagn og nauðsynjar. Þótti fleir-
um en mér gaman að sjá og
heyra þessa spekinga bera sam-
an bækur. Tel mig nú ekki minni
mann af því að hafa haft Róbert
Trausta sem varaformann í
Vökustjórn minni á árunum
1978-79, með því skemmtilega
fólki, Sigga Hekt., Ingu Arnar.,
Sigga Sig., Hreini Lofts., og Auð-
uni Svavari. Bara góðar minning-
ar.
Fjölskyldu hans og vinum
óska ég Guðs blessunar.
Tryggvi Agnarsson.
Róbert Trausti Árnason, fyrr-
verandi sendiherra, kom til
starfa í utanríkisráðuneytinu ár-
ið 1986. Róbert Trausti hafði öðl-
ast dýrmæta reynslu á fimm ára
starfsferli í höfuðstöðvum NATO
í byrjun áttunda áratugarins. Sú
reynsla skipaði honum á bekk
með helstu sérfræðingum þjóð-
arinnar í varnar- og öryggismál-
um. Eftir tvö ár í utanríkisráðu-
neytinu tók hann við embætti
varafastafulltrúa hjá fastanefnd
Íslands hjá NATO. Í kjölfarið tók
hann svo við stjórn varnarmála-
skrifstofu ráðuneytisins. Þar
kom djúp þekking hans á mála-
flokknum sér einstaklega vel.
Hann leiddi vinnu sem fólst í að
styrkja tengsl varnarliðsins og
Íslendinga. Viðskiptum var í
auknum mæli beint til íslenskra
fyrirtækja auk þess sem áratuga
gamlar landamerkjaþrætur
vegna varnarsvæðanna voru að
mestu leiddar til lykta undir
stjórn Róberts. Þarna naut rögg-
semi hans sín vel og skilaði hon-
um í stól ráðuneytisstjóra. Úr því
embætti lá leiðin til Kaupmanna-
hafnar þar sem hann var sendi-
herra uns hann tók við embætti
forsetaritara árið 1999.
Ég kynntist Róberti Trausta
eftir að hann gekk til liðs við
Samtök atvinnulífisins, þar
fylgdist hann meðal annars með
þróun nýrrar Evrópulöggjafar
og var tengiliður við evrópsk
systursamtök. Róbert, sem var
sannkallaður sagnameistari,
sagði mér eitt sinn sögu af við-
skiptum sínum við Carrington lá-
varð, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra NATO, en leiðir þeirra
lágu saman í Brussel þegar störf-
uðu báðir hjá NATO. Lávarður-
inn, sem var gæddur hinni al-
kunnu bresku kímnigáfu, átti
fund með Róberti sem var ekki
klæddur að hans skapi þann dag-
inn. Róbert orðaði þetta þannig
að lávarðurinn hefði gjóað til
hans augunum af og til meðan á
fundinum stóð og greinilega
„ekkert litist á útganginn á mér“.
Þegar fundinum var lokið og Ró-
bert var á leið út af skrifstofu lá-
varðarins sagði sá stundarhátt:
„Robert!“ Róbert sneri sér við og
hélt þá lávarðurinn áfram sposk-
ur á svip: „Going fishing, are
we?“
Öllum þeim störfum sem Ró-
bert Trausti gegndi fyrir hönd
utanríkisráðuneytisins sinnti
hann af trúmennsku og faglegri
yfirsýn. Hann var vel látinn af
öðru starfsfólki utan-
ríkisþjónustunnar enda góður og
skemmtilegur félagi. Hann var
glöggur greinandi í alþjóðamál-
um og óspar á að gauka að koll-
egunum hér í ráðuneytinu
glöggri sýn sinni á þau, einnig
eftir að hann lét af störfum.
Hann var vel lesinn, hnyttinn og
með leiftrandi frásagnargáfu
sem eru eiginleikar sem nýtast
vel í milliríkjasamskiptum. Ró-
bert Trausti þótti koma til dyr-
anna eins og hann var klæddur,
hann var hreinskilinn en sann-
gjarn, stóð fast á sínu en sveigj-
anlegur þegar á þurfti að halda,
og naut einatt þessara eiginleika
í starfi sínu við hagsmunavörslu
Íslands gagnvart öðrum ríkjum.
Um leið og við minnumst Ró-
berts Trausta með hlýju sendi ég
Klöru, eftirlifandi eiginkonu
hans, fjölskyldu hans og nánustu
aðstandendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Martin Eyjólfsson.
Við kynntumst eftir vistskipti í
kalda stríðinu; hann fór frá Atl-
antshafsbandalaginu til starfa í
utanríkisþjónustunni, en ég tók
við stöðu hans hjá bandalaginu.
Vegarnestið frá Brussel batt
okkur æ síðan órjúfanlegum
böndum.
Róbert Trausti var sterkur
persónuleiki, skarpgreindur, víð-
lesinn og vel máli farinn, spaug-
samur og orðheppinn, en það var
eiginleiki sem reynst gat honum
tvíeggjað sverð. Hann var sjálf-
stæður í skoðunum og óútreikn-
anlegur, þrautseigur og lét
ógjarnan hlut sinn, þótt vinir
hans vissu að undir sjálfsöruggu
yfirborðinu leyndist næm sál og
tilfinningarík.
Fjölbreyttur ferill Róberts
Trausta ber þess vitni að hann
hræddist ekki umskipti, en sótt-
ist eftir að takast á við ný og
krefjandi viðfangsefni. Hann
hafði alla tíð brennandi áhuga á
heimsmálum og nutu margir vina
hans og samstarfsmanna góðs af
því gnægtarhorni upplýsinga
sem hann jafnan bjó að.
Frægur maður hefur sagt að
það líf sé langt sem vel sé lifað.
Róbert Trausti er látinn fyrir
aldur fram, en hans verður lengi
minnst sem óvenjulegs atorku-
og atgervismanns.
Ég kveð minn gamla samherja
með söknuði og votta Klöru og
sonunum einlæga samúð.
Gunnar Pálsson.
Róbert Trausti Árnason var
mætur maður og einstakur.
Hann bjó yfir víðtækri reynslu,
var víðlesinn og fróður. Yfirsýn
hans var mikil og hann var
glöggur á stefnur og strauma
jafnt hér á landi og erlendis. Í
störfum sínum fyrir utanríkis-
þjónustuna öðlaðist hann víð-
tæka reynslu og hann var víðles-
inn. Þetta tvennt gerði það að
verkum að hann gat allt fram í
andlátið greint stöðu heimsmál-
anna betur en flestir hérlendis.
Oftar en ekki sagði hann fyrir at-
burði sem síðar raungerðust. Það
var afar fróðlegt að eiga samtöl
við hann um framvindu mikil-
vægra mála bæði hér á landi og
víða um heim.
Ég kynntist Róbert Trausta
þegar hann tók við stöðu for-
stjóra Keflavíkurverktaka um
síðustu aldamót. Þá var ég fram-
kvæmdastjóri málningarverk-
smiðjunnar Hörpu hf. og hann
efndi til mikilla viðskipta við
fyrirtækið. Við höfðum ekki áður
kynnst jafn faglegum vinnu-
brögðum og hann stóð fyrir í
þeim viðskiptum, sem voru báð-
um fyrirtækjunum hagfelld. Allt
sem hann sagði stóð eins og staf-
ur á bók enda ávann hann sér
strax virðingu mína og starfs-
manna minna.
Róbert var hreinskilinn og
þorði að segja skoðanir sínar.
Sumir þoldu það illa en margir
litu á það sem mikinn kost og
mátu það við hann. Þeir sem
kynntust honum vel upplifðu hve
skemmtilegur hann var og fund-
vís á mikilvægar röksemdir og
óvænt sjónarhorn. Ég kunni vel
að meta húmor Róberts Trausta
sem gat stundum verið svo frum-
legur og óvæntur að mann rak í
rogastans.
Leiðir okkar lágu saman að
nýju þegar hann starfaði fyrir
Samtök iðnaðarins og Samtök at-
vinnulífsins í Brussel við marg-
háttaðan erindrekstur fyrir ís-
lenskt atvinnulíf en ég átti þá
sæti í stjórnum þessara samtaka.
Þar naut hann sín vel og afburða-
þekking hans á alþjóðamálum
kom að góðu gagni. Skrifstofu at-
vinnulífsins í Brussel var því mið-
ur lokað í árslok 2016 en sú
ákvörðun var að mínu mati van-
hugsuð og skaðleg. Allt starf Ró-
berts á þessum vettvangi var
faglegt og skilaði miklum ávinn-
ingi.
Róbert Trausti kvaddi þennan
heim allt of snemma, einungis 69
ára að aldri. Hann hafði átt við
alvarleg veikindi að stríða og
vissi í hvað stefndi. Ég mun
sakna þessa merkilega og góða
vinar. Jafnframt votta ég Klöru
og öllum aðstandendum hans
samúð mína.
Blessuð sé minning Róberts
Trausta Árnasonar.
Helgi Magnússon.
Það var Róbert Trausti sem
réð mig til starfa hjá embætti
forseta fyrir ríflega tveimur ára-
tugum, sjálfur nýorðinn forseta-
ritari eftir farsælan og litríkan
feril hjá Atlantshafsbandalagi,
utanríkisþjónustu og á sendi-
herrastóli í Kaupmannahöfn. Ég
var nýgræðingur á þessum op-
inberu slóðum; hafði alið minn
starfsaldur við kennslu, bókaút-
gáfu og fræði. Og Róbert Trausti
var sannarlega ekki hefðbundinn
leiðsögumaður um lendur opin-
berrar stjórnsýslu og prótókolls
en hann nauðaþekkti þó alla
króka þar og kima og reyndist
mér hinn besti kennari. Við vor-
um ekki lengi samvistum á skrif-
stofu forseta því fáeinum mán-
uðum síðar var hann orðinn
forstjóri Keflavíkurverktaka. En
við urðum góðir vinir, héldum
sambandi og hittumst endrum og
sinnum; ekki síst þegar Róbert
blés til svonefnds karlaathvarfs á
heimili sínu, kallaði saman
nokkra vini til að gleðjast yfir
góðum mat og drykk, líflegum
frásögnum og gamanmálum. Þá
voru stundum sagðar sögur úr
kalda stríðinu sem við gátum
miðlað hvor af sínum sjónarhóli.
Róbert var einstaklega
skemmtilegur, hlýr og raungóð-
ur félagi og vinur, orðheppinn og
beinskeyttur í tali, stundum
hvatvís og kaldhæðinn, jafnan
fundvís á hið spaugilega í að-
stæðum og fari einstaklinga, lítið
gefinn fyrir hégóma og tildur og
minnugur uppruna þar sem ekki
var mulið undir hann. Hann hófst
til mennta sinna og mannvirð-
inga í krafti hæfileika og skar-
prar greindar en ekki með at-
beina ættarfylgju; móralskur
sveitapiltur var einkunn sem
honum var ekki illa við. Hann var
sjálfstæður sjálfstæðismaður,
aldrei innmúraður íhaldsmaður,
afar glöggur greinandi og
skyggn á strauma sinnar tíðar.
Tilveran er sannarlega grárri að
honum gengnum.
Við Margrét Þóra þökkum
fyrir samferð og vináttu að ferða-
lokum og sendum Klöru, sonum
hennar, tengdabörnum og öllum
afkomendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Örnólfur Thorsson.
Leiðir okkar Róberts Trausta
lágu fyrst saman sem starfs-
félagar í fastanefndinni hjá
NATO, á níunda áratug liðinnar
aldar. Hann kom til liðs í utanrík-
isþjónustunni 1986 frá ábyrgðar-
stöðu í alþjóðastarfsliði NATO,
sem hann var ráðinn í frá próf-
borði eftir mastersnám í Kanada.
Hann starfaði á upplýsingasviði
bandalagsins og var m.a. í fylgd
með Josef Luns, þáverandi aðal-
framkvæmdastjóra þess, á ferða-
lögum til höfuðborga aðildar-
ríkja.
Á þessum árum upplifðum við,
sem þarna störfuðum, þá hina
stórsögulega þróun, að kalda
stríðið tók að líða hjá, Berlínar-
múrinn féll og Þýskaland sam-
einaðist í einu ríki. Einn daginn
kallaði Manfred Wörner, aðal-
framkvæmdastjóri NATO, til
fundar til að kynna gest í opin-
berri heimsókn, sem engan hefði
órað fyrir að sjá á þeim slóðum.
Það var sjálfur utanríkisráðherra
Sovétríkjanna. En vonir sem
kviknuðu um að sú heimsókn
kynni að leiða til varanlegrar
setu mótherjanna austan megin
gengu ekki eftir. Og enn reynir á
að halda frið.
Raunsæismaðurinn Róbert
Trausti hafði þá sýn að taka yrði
því sem að höndum bæri í stöð-
ugri viðleitni um trygga, friðsam-
lega sambúð. Þannig hefur tekist
að halda frið í Evrópu í meira en
hálfa öld. Okkar látni vinur lagði
í sínu lífsstarfi, í utanríkisþjón-
ustunni og öðrum vettvangi, mik-
ið til þess að sá skilningur ríkti
einnig hér í smáþjóðinni með lyk-
ilstöðu.
Róbert Trausti hafði mikla,
árætnislausa kímnigáfu og þökk
sé ekki síður hans ágætu eftirlif-
andi eiginkonu, Klöru Hilmars-
dóttur, fyrir góðar stundir sam-
veru þegar gleði ríkti.
Far þú nú vel á Guðs vegum.
Einar Benediktsson
Róbert Trausti
Árnason