Morgunblaðið - 11.11.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 266. tölublað 108. árgangur
SIGUR MYNDI
LYFTA UNG-
VERJUM UPP
DULMAGN-
AÐ TÓNMÁL
SCHUBERTS
FJÖLMENNUR
MARKHÓPUR
FERÐALANGA
NÝR DISKUR EDDU 32 VIÐSKIPTAMOGGINN ANDSTÆÐINGAR 31
Zoom-þreytu farið að gæta
Framhaldsskólanemar sýna mikla seiglu og dugnað þrátt fyrir ástandið að sögn
námsráðgjafa Ekki eru komnar fram vísbendingar um aukið brotthvarf úr námi
hafa þurft að taka þátt í frá heim-
ilum sínum, að sögn Heimis Har-
aldssonar, námsráðgjafa við
Menntaskólann á Akureyri.
Fríður Reynisdóttir, námsráð-
gjafi við MH, telur að yfirstandandi
önn sé mun erfiðari og flóknari en
síðastliðið vor. Hún segir að mun
erfiðara sé að stunda nám í fjarnámi
en í dagskóla. Nemendurnir séu í
mörgum fögum, skóladagurinn verði
mjög langur og engin skil séu í raun
á milli skóla og heimilis. „Að sjálf-
sögðu höfum við áhyggjur af krökk-
unum en þau eru samt ótrúlega
seig,“ segir Hildur Halla Gylfadótt-
ir, námsráðgjafi við Menntaskólann
við Sund. „Þetta er mörgum þeirra
erfitt. Bæði þau og forráðamenn
þeirra eru dugleg að hafa samband
og við erum öll að gera okkar besta,
starfsmenn skólans og nemendur.“
Of snemmt er að segja til um
hvort brotthvarf úr skólum muni
aukast á næstunni en enn eru þó fá-
ar vísbendingar um aukið brott-
hvarf.
Elísabet Vala Guðmundsdóttir,
námsráðgjafi við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti, segir að komið hafi
ánægjulega á óvart í samtölum
námsráðgjafa við alla nýnema skól-
ans hvað mörgum þeirra gangi vel
þrátt fyrir þessar námsaðstæður.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þrátt fyrir erfiðar námsaðstæður og
aukið álag sýna nemendur fram-
haldsskóla mikla seiglu og dugnað í
náminu að sögn námsráðgjafa við
nokkra framhaldsskóla, sem rætt
var við í gær. Fjarkennslan hefur
gengið ágætlega í haust en farið er
að bera á zoom-þreytu meðal nem-
enda eftir alla fjarfundina sem þeir MSýna seiglu við erfiðar … »6
Segja má að það hafi verið fámennt en góðmennt í miðborginni þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins var þar á ferðinni um eftirmiðdaginn í gær.
Kalt var í veðri og hráslagalegt, enda liðið á haustið. Hitinn er þó enn
réttum megin við frostmark, en spáð er frosti um helgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fámennt en góðmennt á haustdegi í miðborginni
Ekki hefur fengist nægt fjármagn í
mörg ár til að endurnýja og halda við
girðingum á milli sauðfjárveiki-
varnarhólfa. Staðan er nú þannig að
engin sauðfjárveikivarnargirðing er
fjárheld alla leið. Ákveðið hefur verið
að ráðast í endurskoðun á mála-
flokknum í heild.
Endurnýjum og viðhald girðinga á
milli varnarhólfa sauðfjárveikivarna
er á forræði atvinnuvegaráðuneyt-
isins. Það veitir fé til Matvælastofn-
unar sem forgangsraðar verkefnum.
Girðingar eru dýrar og þær 45 millj-
ónir sem til ráðstöfunar eru duga
skammt, sérstaklega þegar verkefnið
hefur lengi verið vanfjármagnað. Er
nú svo komið, að sögn Sigrúnar
Bjarnadóttur dýralæknis hjá Mat-
vælastofnun, að engin manngerð
varnarlína er fjárheld alla leið.
Beitir sér fyrir endurskoðun
Samstaða er um að endurskoða
þurfi málaflokkinn í heild, svo sem
kostnað við endurnýjun og viðhald
varnarlína, aðgerðir gegn riðu og for-
varnir og hefur landbúnaðarráðherra
lýst því yfir að hann vilji beita sér fyr-
ir endurskoðuninni. »10
Línurnar
ekki fjár-
heldar
Endurskoðun á
sjúkdómavörnum
Morgunblaðið/Eggert
Kind Fé kemst víða yfir varnarlínur
vegna sauðfjársjúkdóma.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Aðeins nokkra daga tók að selja all-
ar íbúðirnar í nýju fjölbýlishúsi í
Hafnarfirði.
Nánar tiltekið í Brenniskarði 1
en þar eru 22 íbúðir. Það er fyrsta
stóra fjölbýlishúsið sem kemur í
sölu í Skarðshlíð sem er nýtt hverfi
austur af Vallahverfinu.
Aron Freyr Eiríksson, löggiltur
fasteignasali hjá Ási fasteignasölu,
segir takmarkað framboð af ný-
byggingum í Hafnarfirði eiga þátt í
miklum áhuga á húsinu. Þá hafi
vaxtalækkanir örvað söluna.
„Það var sama hvaða íbúð það
var. Þær seldust allar,“ segir hann.
Keðjuverkun af sölu sérbýlis
Lægri vextir hafa víðar aukið
sölu en allar þakíbúðirnar eru seld-
ar í nýjasta áfanga Hlíðarenda.
Hannes Steindórsson, eigandi
fasteignasölunnar Lindar, segir
samanlagt söluverð þakíbúðanna á
annan milljarð króna. Íbúðirnar
kosti allt að 140 milljónir króna.
Það eigi þátt í sölunni að vaxta-
lækkanir hafi örvað sölu á sérbýli.
Með því fái seljendur sérbýlis eigið
fé til að kaupa dýrari íbúðir.
»ViðskiptaMogginn
Ljósmynd/Eignamyndir.is
Í Skarðshlíð Íbúðirnar í þessu húsi seldust eins og heitar lummur.
Seljast hratt í miðri kórónukreppu
Fimm daga tók að selja nýja blokk
Ásókn í þakíbúðir á Hlíðarenda
Mikil sala hef-
ur verið að
undanförnu
hjá verslunum
með raftæki,
húsgögn, heim-
ilistæki og
bygging-
arvörur. Er
þetta meðal
annars rakið
til þess að sótt-
varnaaðgerðir hafi leitt til þess
að fólk verji nú meiri tíma heima
hjá sér en áður og því hafi skap-
ast þörf á að endurnýja ýmsa
hluti.
Þeir kaupmenn sem Morgun-
blaðið ræddi við segja að salan
hafi aukist mikið síðustu mánuði
og að jólavertíðin hafi komið
snemma í ár. »2
Raftæki og húsgögn
rokseljast í kófinu
Raftæki eru vinsæl
söluvara í ár.