Morgunblaðið - 11.11.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Pandora
26.990 kr.
Ullarfóðraðir
kuldaskór fást
hjá okkur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta hafa verið mjög undarlegir
tímar. Það hefur eiginlega verið jóla-
vertíð hjá okkur síðan í apríl,“ segir
Hlíðar Þór Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Heimilistækja.
Mikil sala hefur verið hjá versl-
unum með raftæki, húsgögn, heim-
ilistæki og byggingarvörur að und-
anförnu og sér ekki fyrir endann þar
á. Samkomu- og ferðatakmarkanir
vegna kórónuveirunnar hafa gert
það að verkum að fólk ver meiri tíma
heima hjá sér en áður. Fyrir vikið
hafa margir ákveðið að endurnýja
ýmislegt heima fyrir.
Tölvulistinn er rekinn undir hatti
Heimilistækja og segir Hlíðar að í
vor hafi verið mikil sala á tölvubúnaði
enda þurftu margir að koma sér upp
vinnuaðstöðu heima. Þetta hafi svo
aukist aftur með samkomutakmörk-
unum í haust. Í Heimilistækjum hef-
ur sala sömuleiðis aukist afar mikið.
„Þetta er vissulega lúxusvandamál
en það hefur verið gríðarlegt álag á
starfsfólki okkar. Í vor var sérstak-
lega áberandi sala á sjónvarps-
tækjum og heimabíóum. Það tengd-
ist kannski kvöldunum með Helga
Björns, ég skal ekki segja. Svo hefur
þetta dreifst yfir flesta vöruflokka.
Fólk virðist vera mikið að endurnýja
heima fyrir, til dæmis eldhús og
þvottahús.“
Aðspurður segir Hlíðar að sölu-
aukningin hjá fyrirtækinu nemi tug-
um prósenta miðað við sama tíma í
fyrra. „Það er alveg ljóst að árið 2020
er orðið stærsta ár í sögu fyrir-
tækisins og þó eru stærstu vikurnar
eftir. Þetta er búið að vera með ólík-
indum. Við gerum okkur þó vel grein
fyrir því að ef menn endurnýja mikið
núna mun draga úr endurnýjunar-
þörfinni á næsta ári. Alveg eins og
þegar við fórum á HM í fótbolta
2018. Þá seldist mikið af sjónvörpum
í júní en mun minna í júlí og ágúst.“
Meiri áhersla á heimilið en áður
Sigurður Brynjar Pálsson, for-
stjóri Byko, segir í samtali við Morg-
unblaðið að einstaklingsmarkaður
hafi drifið þetta ár áfram hjá fyrir-
tækinu. „Það er augljóst að hér og
annars staðar í heiminum er fólk í
hreiðurgerð. Það er að átta sig á því
að íverustaður þess skiptir meira
máli en hann gerði áður. Við finnum
fyrir því að fólk er að breyta og bæta
– og fegra – heimili sín. Þetta er árs-
tíðatengt. Í vor var mikið keypt af
málningu og gólfefnum og í sumar og
fram á haust ýmislegt fyrir garðinn.
Sala á pallaefni var til dæmis 80-90%
meiri en í fyrra. Núna finnum við svo
að jólaverslunin fer fyrr af stað en
áður, fólk byrjar fyrr að skreyta.
Fyrir utan þetta hefur verið mikið
um viðhald hjá einstaklingum, þak,
gluggar og hurðir svo dæmi séu tek-
in. Þar munar mikið um Allir vinna-
átakið.“
Sífellt meiri sala á vefnum
Egill Fannar Reynisson, einn eig-
enda Húsgagnahallarinnar, Dorma
og Betra baks, segir að kauphegðun
fólks hafi breyst mikið að undan-
förnu og sífellt meiri sala fari fram á
vefnum. Fjölgað hafi verið í vefteymi
fyrirtækisins en þrátt fyrir það hafi
verið mikið álag á starfsfólk í versl-
ununum og eigi það hrós skilið fyrir
frammistöðuna á erfiðum tímum.
Egill segir að sala hafi aukist mik-
ið síðustu mánuði. „Fólk hefur verið
að endurnýja allt sem snýr að stofum
og svefnherbergjum. Það er engin
vara undanþegin en mest eru þetta
rúm, sófar og stólar. Fasteignasala
hefur verið gríðarleg í ár og við finn-
um alltaf fyrir því þegar fast-
eignamarkaðurinn er lifandi. Það
hefur líka sett sín lóð á vogarskál-
arnar.“
Aðspurður segir hann að sölu-
aukning í ár nemi tugum prósenta.
Ekki er þó gert ráð fyrir að þetta
ástand sé varanlegt í áætlunum. „Við
þekkjum það í íslensku efnahagslífi
að hlutirnir geta breyst fljótt.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annir Algengt er að fólk þurfi að bíða í röð fyrir utan stórverslanir enda mega aðeins tíu fara inn í einu.
Tugprósenta söluaukning
hjá mörgum verslunum
Margir í hreiðurgerð Jólin koma snemma þetta árið
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að fregnir af lélegum aðbúnaði
og vanrækslu á vistheimilinu Arn-
arholti á Kjalarnesi fyrir um hálfri
öld „nísti í hjart-
að“. Málið verði
án efa tekið fyrir í
borgarstjórn.
Velferðarráð
borgarinnar
hyggst ræða mál-
ið í dag.
Sagði Dagur
við mbl.is í gær
að fréttirnar
minntu á að það
þyrfti að vera
vakandi fyrir aðbúnaði allra og að
tryggt væri að komið væri fram við
fólk af virðingu og í samræmi við
mannréttindi.
Fréttastofa RÚV greindi frá því í
gærkvöldi að vistmenn sem dvöldu
þar til ársins 1971 hefðu mátt sæta
ómannúðlegri meðferð. Voru þeir
meðal annars settir í einangrun í
litlum fangaklefa og látnir vera þar
vikum saman, eftir því sem fram
kemur í tæplega 50 ára gömlum
vitnaleiðslum yfir starfsfólki Arnar-
holts.
Var neitað um mat og læst úti
Arnarholt var fyrst opnað árið
1945 og var rekið af Reykjavíkur-
borg til 1. september 1971. Í vitna-
leiðslum yfir starfsmönnunum 24 er
því meðal annars lýst hvernig vist-
mönnum var refsað með því að vera
neitað um mat. Þá virðist þeim einn-
ig hafa verið refsað með því að vera
læstir úti hvernig sem viðraði. Al-
gengast virðist hafa verið að heim-
ilismönnum væri refsað með því að
vera settir í steinsteyptan einangr-
unarklefa með litlum glugga sem bú-
ið var að setja rimla fyrir.
Alvarlegustu atvikin sem greint
var frá í vitnaleiðslunum varða þó
andlát heimilismanna sem virðast
hafa verið nokkuð tíð á þessum tíma.
Heiða Björg Hilmisdóttir, formað-
ur velferðarráðs Reykjavíkurborg-
ar, sagði við mbl.is í gær að ráðið
hygðist kanna strax í dag hver að-
koma borgarinnar var að málinu.
„Mér finnst þetta hljóma mjög al-
varlegt og það er mikilvægt að skoða
þetta og læra af. Það er hörmulegt
ef borgin hefur tengst svona máli á
sínum tíma,“ segir Heiða.
Taka málið til
skoðunar í dag
Lýstu illri meðferð á vistmönnum
Dagur B.
Eggertsson
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Brynjar Níelsson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins, telur alvarleg-
ar aðfinnslur í nýrri skýrslu fjöl-
miðlanefndar um Ríkisútvarpið gefa
tilefni til allsherjarendurskoðunar á
Rúv. og hlutverki þess. Þingið geti
ekki leitt hjá sér endurteknar
athugasemdir eftirlitsstofnana og
skattyfirvalda, það sé skylda þess að
skakka leikinn.
„Þessi málefni Ríkisútvarpsins
kalla á viðbrögð í þinginu, þykir mér.
Þau verða örugglega rædd á þing-
flokksfundi hjá okkur á morgun
[miðvikudag] til þess að ákveða hvort
menn ætli að gera eitthvað í þessu.
Ég mun leggja það til,“ segir Brynj-
ar við Morgunblaðið. „Hinn kostur-
inn er sá að láta það allt óátalið og
gera ekki neitt,
en þá værum við
ekki að gegna
skyldu okkar.
Ríkisútvarpið
hefur beðið með
að laga það, sem
það átti að vera
búið að laga, og er
í þokkabót með
algera sniðgöngu
í þessum verk-
takabransa sínum. Við hljótum að
taka það upp. Eða ætla menn bara að
láta það líðast af því enginn þorir að
segja neitt við Rúv. af ótta við að
vera sakaður um árásir og hatur?“
Verk fyrir ríkisendurskoðanda
Brynjar segir fulla ástæðu til að
ríkisendurskoðandi líti á þessi mál,
en það þurfi líka að gera í þinginu.
„Ríkisendurskoðandi hefur áður
tekið Ríkisútvarpið til skoðunar og
skilaði svartri skýrslu um það fyrir
ári. En það eru bersýnilega mun
fleiri atriði varðandi þennan rekstur
sem þarf að skoða. Það breytir engu í
mínum huga að stofnunin sé hluta-
félag, þetta eru allt skattpeningar.“
Gerviverktöku hjá Ríkisútvarpinu
segir Brynjar svo annað mál, sem
oftsinnis hafi verið fundið að, bæði á
rekstrarforsendum og skattalegum,
en skattyfirvöld hafa oft þurft að
gera athugasemdir við slíkt, sem sé
grafalvarlegt mál. „Á því verður að
taka, enn og aftur.“ Ekki bæti úr
skák þegar Ríkisútvarpið reyni að
fela þá slóð, þegar spurst er fyrir um
stöðu ætlaðra verktaka.
„Það hlýtur að fara að verða tíma-
bært að fara í alvöruskoðun á mál-
efnum Ríkisútvarpsins í þinginu,“
segir Brynjar. „Til þess renna millj-
arðar og aftur milljarðar af skattfé
almennings, reksturinn og löghlýðn-
in eins og þau eru, og við bætist að
það er skaðræðisgripur á fjölmiðla-
markaði.
Verðum að bregðast við
Við verðum að bregðast við þess-
um endurteknu brotum, eilífum
hallarekstri, svartri skýrslu ríkis-
endurskoðanda og nú þessu. Það er
af nógu þar að taka, sem við verðum
að fara yfir af fullri alvöru. En þegar
svo mikið er aðfinnsluvert, fer jafn-
vel á svig við lög, og gerist aftur og
aftur, þá hlýtur að vera komin
ástæða til allsherjarendurskoðunar
á þessu batteríi. Og ekki bara endur-
skoðunar, heldur endurskipulagn-
ingar á hlutverki Ríkisútvarpsins og
rekstri. Það er skylda okkar.“
Vill endurskipuleggja Rúv.
Brynjar Níelsson segir ástæðu til allsherjarendurskoðunar á Ríkisútvarpinu
Ný skýrsla enn eitt tilefnið Verður rætt í þingflokki sjálfstæðismanna í dag
Brynjar
Níelsson
Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir
dómsmálaráð-
herra segir það
vera í algjörum
forgangi að af-
létta heimsókn-
arbanni aðstand-
enda fanga eins
fljótt og öruggt
er. Sagði Áslaug
í samtali við
mbl.is í gær að allt væri gert til að
tryggja öryggi og velferð fanga í
kórónuveirufaraldrinum, og benti
hún á að smit innan fangelsanna
gæti ógnað öryggi fanga með mjög
alvarlegum hætti. „Það er auðvitað
mjög íþyngjandi að þurfa að vera
lokaður alveg inni í sínum klefa í
einangrun eða sóttkví og í rauninni
mun meira íþyngjandi en fangelsis-
vistin ætti að vera,“ sagði Áslaug.
„Heimsóknartakmarkanir eru
auðvitað íþyngjandi og það er mik-
ilvægt að þeim sé aflétt um leið og
það er hægt,“ sagði ráðherra meðal
annars. liljahrund@mbl.is
Afnám heimsóknar-
banns í forgangi
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir