Morgunblaðið - 11.11.2020, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það var líttskrafað umþað í Evrópu
þegar upplýst var
vestra að Demó-
krataflokkur skaut
andstæðingum sín-
um langt aftur fyrir sig í fjár-
austri í kosningum. Allir helstu
ríkisbubbar Bandaríkjanna
flykkjast um demókrata. En
það skrítna var hversu lítið þeir
höfðu upp úr krafsinu, í báðum
þingdeildum, og sérstaklega í
ríkisþingum þar sem yfirgengi-
legu fé var eytt til að tryggja að
demókratar fengju forræði þess
hvernig kjördæmamörk vegna
fulltrúadeildar yrðu dregin til
næstu 10 ára. Þeir töpuðu meira
að segja í baráttu um ríkis-
stjóra. Eingöngu í forsetakosn-
ingum náðu þeir að koma Biden
upp úr kjallaranum með
minnsta mun atkvæða. Það er
óneitanlega mjög sérkennilegt.
Margir telja að Biden hafi
haft sigur með örfáum atkvæð-
um í þeim tíu kjördæmum þar
sem mest var undir og lutu sér-
stakri aðgerðaáætlun kosninga-
stjórnar hans, og ólíklegt að
Biden sjálfur hafi fylgst með
því. Þar er reyndar ekki lokið
að telja öll atkvæði, en Joe Bid-
en er hættur að leggja áherslu á
að „öll atkvæði skuli talin“.
Hinir og þessir hafa verið
fengnir til að fagna úrslitunum,
en gamla og viðurkennda að-
ferðin er sú þar vestra að for-
setaefni gefst formlega upp fyr-
ir hinu og þar með sé allri
baráttu lokið. Sé annar fram-
bjóðandi ófáanlegur til að játa
sig sigraðan eða hafi aftur-
kallað það þá ljúka dómstólar
málinu. Engin önnur leið er
fær.
Trump forseti hefur ekki gef-
ist upp formlega og er for-
dæmdur fyrir það og engin
stóryrði spöruð. Í frægum
kosningum knúði Al Gore fram-
bjóðandi, þá varaforseti Banda-
ríkjanna, á um að talið væri
áfram í Flórída í 35 daga(!) eftir
kjördag, en Gore hafði mánuði
fyrr gefist formlega upp fyrir
andstæðingi sínum, George W.
Bush. Aldrei hafði heyrst að
slíka uppgjafaryfirlýsingu
mætti afturkalla. Allan þennan
mánuð tísti enginn leiðtogi í
Evrópu athugasemd við þetta
einstæða hringl né hitt að talið
væri áfram í Flórída í sérvöld-
um kjördeildum og örfá at-
kvæði náðust upp úr krafsi á
hverjum degi! Það tókst á einni
nóttu að telja nærri 99% at-
kvæða í Flórída, en Al Gore hélt
áfram að telja í 35 daga þetta
rúma eina prósent þar til
Hæstarétti Bandaríkjanna of-
bauð misnotkunin. Nú telur
kosningastjórn Trumps forseta
sig hafa öflugar sannanir um
misnotkun og svindl í þessum
10 ríkjum sem lutu sérstakri
hernaðaráætlun demókrata en
þar fór fram skipu-
lögð aðgerð tengd
söfnun atkvæða í
póstkosningum.
Fáir mótmæla því
að í póstkosning-
unum er margföld
hætta á misnotkun miðað við
aðra þætti kosninganna. Utan-
kjörfundarkosning er lítil að
umfangi og talin tiltölulega
örugg og jafnvel í Bandaríkj-
unum. Öðru máli gegnir um
póstkosningar. Á þeim vill
kosningastjórn Trumps fá eðli-
lega athugun. Bandaríska kerf-
ið gengur út frá því að þeir sem
halda slíku fram og vísa í stað-
reyndir eigi rétt á slíkri skoðun.
Það eru margir kostir í fram-
haldinu. Sá fyrsti getur hæg-
lega byggst á rökstuddri niður-
stöðu að forsetinn og hans
menn taki ósigrum illa. Hillary,
fyrrverandi forsetaefni, lýsti
því yfir opinberlega að þótt
„fjölmiðlar“ tilkynntu ósigur
Bidens mætti hann alls ekki
samþykkja slíkt. Halda yrði
baráttu áfram óháð því. Það
liggur reyndar þegar fyrir að
allmargir kjósendur hafi kosið
að handan og reyndar komið at-
kvæðum sínum í póst löngu eft-
ir andlát sitt og þau verið talin.
En viðbrögðin eru þau að það
tiltæki hafi ekki haft áhrif. Það
sama var um tugi þúsunda sem
varaforsetaefnið Lyndon John-
son lét kjósa til öryggis í nóv-
ember 1960. Raunin var þá að
fylgi hinna lifandi hefði dugað í
Texas. Nú mætti benda á að
báðir frambjóðendur væru vel
við aldur og því færi ekki illa á
því að aukning yrði á kjós-
endum sem kvöddu jarðneska
tilveru næstu ár þar á undan en
vildu styðja sínar kynslóðir nú.
Í Illinois var lítill vafi á að
Daley borgarstjóri í Síkakó,
„sterki maður“ demókrata,
hefði troðið nægjanlega mörg-
um réttum atkvæðum ofan í
kjörkassa hjá sér og þau ráðið
úrslitum.
Málflytjendur forsetans
segjast opinberlega hafa slá-
andi sönnunargögn um víðtækt
svindl sem ráðið hefði úrslitum
nú. Slíkar yfirlýsingar þekkjast
í byrjun skylminga fyrir dóm-
stólum og hafa lítið sönnunar-
gildi. En þær skal þó skoða.
Hinar ógeðfelldu pantanir á
yfirlýsingum frá erlendum póli-
tíkusum, sem hafa engar upp-
lýsingar um málið, hafa svipað
gildi. Á meðan Gore knúði fram
eilífðartalningu forðum lét
Bush yngri, með uppgjafar-
yfirlýsingu Gores í vasanum,
ekki eftir sér að panta stuðn-
ingsyfirlýsingar óviðkomandi.
Svo sannarlega má vona að á
daginn komi að svindl í kosning-
unum hafi verið með minnsta
móti svo að ætla megi að það
hafi ekki ráðið úrslitum. En
jafnvel Trump á rétt á því að fá
úr því skorið.
Báðar fylkingar í
bandarískum stjórn-
málum hljóta að
eiga jafnan rétt}
Anda skal rólega
Í
stað þess að fara á busaball í nýja
menntaskólanum aðstoðaðir þú for-
eldra þína við að setja upp forrit til að
fara á fjarfund í vinnunni. Í stað þess
að fara á ballið hittir þú vinina á Zoom
þar sem þið spjölluðuð um allt það helsta. Í stað
þess að fara á æfingu daginn eftir fórstu út að
skokka í einrúmi. Þú hefur ekki mátt knúsa
ömmu en gafst þér samt tíma til að kenna henni
að nota FaceTime til að tala við vini og ætt-
ingja, þannig að hún fengi að minnsta kosti að
sjá framan í þau. Í stað þess að sitja í skólanum
og njóta félagsskapar vina þinna hefur þú klór-
að þig í gegnum lærdóminn heima.
Þér er eflaust búið að leiðast, þykja þetta allt
ósanngjarnt og skrýtið – en hefur þó reynt að
gera það besta úr aðstæðum. Foreldrar þínir
eru meira og minna heima að vinna, það heyrir
til undantekninga að þú hittir vini og kunn-
ingja, það er búið að slá af öll íþróttamót, stóra systir
missti af útskriftarferðinni í vor og litli bróðir gat ekki
haldið almennilega fermingarveislu.
Það var búið að segja þér að þessi ár væru þau
skemmtilegustu, að á þessum árum myndir þú kynnast
fullt af nýju fólki, eignast vini fyrir lífstíð, að þú gætir verið
í námi, íþróttum, vinnu og félagsstarfi en þess í stað ertu
að mestu heima og hittir gömlu (en góðu) vinina í gegnum
símann.
Þú þarft að setja upp grímu til að fara í búðina, hefur
aldrei þvegið þér jafn oft um hendurnar og ert
með spritt í vasanum. Þú hefur lagt mikið á þig
til að fylgja sóttvarnareglum til að koma í veg
fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirunnar sem
við þekktum ekki í upphafi árs. Þess á milli
heyrir þú og lest neikvæðar fréttir um að það
sé komin kreppa, þú veist ekkert hvenær þú
getur ferðast á ný og allir dagdraumar um
framtíðina virðast fjarlægir. Þú veist ekki hve-
nær þessu ástandi lýkur en þú vonar að því
ljúki fljótlega. Þú getur ekki beðið eftir því að
lífið færist aftur í eðlilegt horf.
Þú þarft þó að muna að þú ert klár og mátt
því ekki hætta að hugsa um framtíðina. Sam-
félagið mun þurfa á kröftum þínum að halda og
þú ert að öðlast reynslu sem mun nýtast þér
alla ævi. Hún er ekki skemmtileg þessi
reynsla, en hún mun auðvelda þér að komast
yfir aðrar hindranir sem lífið færir þér. Það
skiptir þig og vini þína gífurlega miklu máli að gefast ekki
upp og halda áfram að horfa til framtíðar. Leyfðu þér að
hlakka til – hvers sem er!
Þú ert allt unga fólkið sem er að upplifa skrýtna tíma
sem enginn gat séð fyrir. Jú, vissulega erum við öll saman
í þessu en það má sérstaklega minnast þeirra fórna sem
þú ert að færa á meðan þetta ástand varir. Takk fyrir að
standa í þessu með okkur.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Hey þú, takk!
Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sjö lóðir á höfuðborgarsvæð-inu eru nú til skoðunar semmöguleg staðsetning mið-stöðvar fyrir alla helstu
„viðbragðsaðila“ landsins. Þar á
meðal er lóð við Kleppsspítala í
Reykjavík.
Framkvæmdasýsla ríkisins
auglýsti í lok júní í sumar eftir upp-
lýsingum um 30 þúsund fermetra
lóð eða húsnæði fyrir sameiginlega
aðstöðu löggæslu- og viðbragðsaðila
á höfuðborgarsvæðinu.
„Hér var um markaðskönnun
að ræða og beðið um upplýsingar
um lóðir innan tiltekins svæðis. Í
samræmi við lög um opinberar
framkvæmdir var fyrst gerð for-
athugun þar sem verkefnið var skil-
greint með aðkomu væntra notenda.
Að henni lokinni var farið í fyrr-
greinda markaðskönnun sem inn-
legg í frumathugun á málinu og bár-
ust upplýsingar um sjö staðsetn-
ingar frá átta aðilum. Frumathugun
er nú á lokastigi og verður frum-
athugunarskýrsla kynnt ráðherrum
í nóvember,“ segir Karl Pétur Jóns-
son, upplýsingafulltrúi Fram-
kvæmdasýslunnar, í skriflegu svari
til blaðsins.
Lóð á leið Sundabrautar?
Á síðasta fundi stjórnar Faxa-
flóahafna sf. var kynnt að nú stæðu
yfir viðræður við Framkvæmda-
sýslu ríkisins um lóð á milli Klepps
og Holtagarða undir mögulega
björgunarmistöð. Jafnframt að
Faxaflóhafnir myndu fara í við-
ræður við Landspítalann, eiganda
Klepps. Magnús Ásmundsson hafn-
arstjóri segir að ekkert sé fast í
hendi um staðsetningu og Fram-
kvæmdasýslan sé að skoða staðsetn-
ingar víðar en á svæði Faxaflóa-
hafna. „Málið var engu að síður
kynnt í stjórn þar sem samtalið er í
gangi.“
Svæðið sem um ræðir er á milli
Klepps og Holtagarða, ofan Sunda-
hafnar, eins og meðfylgjandi kort
sýnir. Í aðalskipulagi Reykjavíkur
2010-2030, sem samþykkt var í
borgarstjórn í nóvember 2013 og
staðfest var af Skipulagsstofnun í
byrjun árs 2014, er gert ráð fyrir því
að Sundabraut muni liggja milli
Kleppsspítala og Holtagarða. Þetta
er önnur tveggja leiða sem til greina
koma verði ákveðið að Sundabrautin
verði lögð á lágbrú yfir Kleppsvík.
Framkvæmdasýsla ríkisins hef-
ur undanfarið ár starfað með fjár-
mála- og dómsmálaráðuneyti að
hugmyndum um sameiginlegt hús-
næði fyrir alla helstu viðbragðsaðila
landsins, sagði í kynningu í sumar.
Þetta eru: Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu, Ríkislögreglustjóri,
Landhelgisgæslan, Slysavarna-
félagið Landsbjörg, Tollgæslan
(Skatturinn), Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins og Neyðarlínan 112.
Framkvæmdasýslan hafði í
nokkurn tíma unnið að ítarlegri for-
athugun verkefnisins. Einskorðaðist
hún í upphafi við að finna hentugt
húsnæði fyrir löggæsluaðila. Verk-
efnið var síðan stækkað og gert ráð
fyrir öllum viðbragðsaðilum á einum
stað. „Fyrr á þessu ári var aukinn
þungi settur í verkefnið, enda hefur
mikið mætt á viðbragðsaðilum það
sem af er árinu 2020 og þörfin fyrir
hentugt og nútímalegt húsnæði varð
ljós,“ sagði í kynningunni. Á ögur-
stundu sé mikill kostur að þeir aðilar
sem vernda líf og eignir landsmanna
séu staðsettir í sama húsnæðinu.
„Hagræðingin og ávinningurinn
er augljós og mikill. Með því að allir
verði undir einu þaki má ná fram
sparnaði en einnig gera þjónustu
markvissari og stytta viðbragðs-
tíma, með aukinni samvinnu ólíkra
aðila,“ sagði Guðrún Ingvarsdóttir,
forstjóri Framkvæmdasýslu rík-
isins, í viðtali við Morgunblaðið sl.
sumar. Flestar þessar stofnanir eru
nú að hluta til með aðsetur í björg-
unarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Hús-
næði þar þykir óhentugt, þrengsli
og skipulag hússins hafa valdið
óhagræði og staðið í vegi fyrir um-
bótum.
Morgunblaðið/Eggert
Björgun Á ögurstundu er mikill kostur að þeir aðilar sem vernda líf og eign-
ir landsmanna séu til húsa á sama stað, segir Framkvæmdasýslan.
Skoða sjö lóðir fyrir
björgunarmiðstöð
Allir helstu „viðbragðsaðilar“ landsins verði á einum stað
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
:
O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Sundahöfn
Sæ
braut
Kleppsspítali
Holtagarðar
Holtavegur
Möguleg
staðsetning
björgunar-
miðstöðvar