Morgunblaðið - 11.11.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.11.2020, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020 Undirritaður hefur stundum látið hafa eftir sér, að skýrsla COWI og Mannvits „Félagshagfræðileg greining Borgarlínu“ sé æfingaverkefni sem sennilega var birt fyrir mistök. Ekki minnkaði sú trú við lestur greinar hagfræðinga sömu fyrirtækja í Morg- unblaðinu 6. nóvember sl. þar sem reynt var að bera brigður á mál- flutning Ragnars Árnasonar pró- fessor emeritus í sama blaði nokkru áður. Það tókst illa. Fargjöld Í greininni segir: „Útgjöld „nýrra notenda“ þ.e. þeirra sem byrja að ferðast á áhrifasvæðinu vegna tilkomu Borgarlínunnar eru […] talin til samfélagslegs ábata.“ Þetta mun vera samkvæmt leið- beiningum ESB en það er síður en svo að þær séu eða eigi að vera einhver guðspjöll hér á landi. Að telja útgjöld nýrra notenda til samfélags- legs ábata, getur ver- ið sæmileg nálgun þegar um er að ræða fólk sem annars geng- ur eða hjólar, en býsna vafasöm þegar um er að ræða þá sem ferðast í eigin bíl en hrekjast upp í Borg- arlínu m.a. vegna þeirra umferðartafa sem tilkoma hennar veldur. Hinar evr- ópsku reglur eru enda samdar fyr- ir samfélög þar sem reiðhjóla- notkun er mun almennari en hér og í þann hóp, segir reynslan, sækir ný samgöngutækni eins og Borgarlínan mikið af nýjum við- skiptavinum. Auk þess virðist um tvítalningu að ræða, því sparaður tími bílistanna hefur þegar verið færður til tekna að því er séð verður. Svo má auðvitað spyrja, ef far- gjöld þessara nýju viðskiptavina strætó, sem flestir voru bílistar eru þjóðhagslegar tekjur, eru þá ekki bílastæðagjöldin sem þeir borga ekki lengur þjóðhagslegt tap? Lokavirði framkvæmda Í annan stað segir í greininni: „Lokavirði mannvirkisins endur- speglar hagrænt virði þess í lok greiningartímans m.a. í formi nú- virts ábata umfram tíma greining- arinnar.“ Bak við þetta orðalag liggur mikil fræðimennska, en endar þar. Það hagræna virði sem hér um ræðir helgast af notagildi þeirra mannvirkja sem byggð voru en hefur ekkert að gera með upp- haflegan byggingarkostnað. Samt leyfa skýrsluhöfundar sér að setja 10% byggingarkostnaðar sem tekjur í lok athugunartímans. Þetta er út í hött. Þetta kann að ganga þar sem það er til siðs að bjóða vegaframkvæmdir út sem einkaframkvæmd og verktakinn tekur að sér rekstur vegarins, innheimtir vegtolla og semur um að fá greiddan hluta stofnkostn- aðar í lok samningstímans. Slík athugun segir aðeins að verkefnið sé tækt í einkaframkvæmd en segir ekkert um hvort það sé samfélagslega besta verkefnið sem völ er á að fara í eða hvort yfir höfuð eigi að fara í það. Það er nefnilega hægt að byggja þó nokkur umferðarmann- virki sem hafa margfalt meiri arð- semi en Borgarlína en eru marg- falt ódýrari. Jafnvel ódýrari en þeir nýju glæsivagnar sem Borg- arlínu eru ætlaðir og þeirra er hvergi getið í skýrslunni. Ný tækni Í nýju umferðarlíkani sem allir fagna eru reiknaðar þær tafir sem verða vegna þess hvað Borgarlína þrengir mikið að annarri umferð með sér akreinum og forgangi á ljósum. Jafnframt er áætlað hve tafirnar hrekja marga úr einka- bílnum yfir í þann forgangshóp sem farþegar Borgarlínu eru orðnir. Hlutur Borgarlínu vex þá úr 4% ferða upp í 4,8% á höf- uðborgarsvæðinu. Þetta er sett inn í félagsfræðilega greiningu og reiknuð arðsemi. Þetta er líka ný tækni sem allir fagna. Þessari nýju tækni er ætlað það hlutverk að finna hagkvæmustu lausn á vandamálum umferðar en ekki það að fegra eina ákveðna lausn, sem virðist megin tilgangur skýrslunnar „Félagshagfræðileg greining Borgarlínu“. Lokaorð Skýrslan fjallar aðeins um einn möguleika, það er fjórar fram- kvæmdir Borgarlínu sem allar eru samtengdar. Kostnaður vegna nýrra glæsivagna Borgarlínu er skilinn eftir. Það að flagga þessari einu framkvæmd sem hagkvæmri án þess að bera saman við hag- kvæmni annarra kosta sem völ er á flokkast ekki undir góða upplýs- ingagjöf heldur trúboð. Auk þess eru skildar eftir þær fram- kvæmdir Borgarlínu sem að öllum líkum ná ekki nálægt því sömu arðgjöf og þessar fjórar. Það að birta þessa skýrslu og gefa með því í skyn að öll Borgarlína í heild sinni sé svo hagkvæm er ann- aðhvort blekking eða mistök. Borgarlínuhagfræðin Eftir Elías Elíasson » Það að flagga þessari einu framkvæmd sem hagkvæmri án þess að bera saman við hag- kvæmni annarra kosta sem völ er á flokkast ekki undir góða upplýs- ingagjöf heldur trúboð. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Að loknum alþing- iskosningum 2007 settist Kristján L. Möller í stól sam- gönguráðherra og gaf fögur loforð um vega- framkvæmdir á 11 stöðum úti á landi. Loforðin frá þessum fyrrverandi lands- byggðarþingmanni um arðbæran og hindrunarlausan heils- ársveg yfir Öxi tók þáverandi sveit- arstjórn Djúpavogs góð og gild, án þess að trygging fengist fyrir því á hvaða tímapunkti þessi framkvæmd yrði boðin út. Enn berast engar fréttir af því hvort þessi vegur sé í sjónmáli, eftir að Alþingi samþykkti tillögu Arnbjargar Sveinsdóttur um að flýta undirbúningsrannsóknum á jarðgangagerð undir Fjarðarheiði vegna hafnaraðstöðunnar fyrir Norrænu, sem Seyðfirðingar vilja ekki missa. Loforðin um heils- ársveg yfir Öxi gefa stuðningsmönnum Ax- arvegar lausan taum- inn og langþráð tæki- færi til að reka hornin í samgöngumál Breið- dælinga, með kröfunni um lokun Breiðdals- heiðar, sem er ekki á forræði sveitarstjórnar Djúpavogs. Veikleiki margra þingmanna Norðaust- urkjördæmis lýsir sér best í því að þeir halda sig eingöngu að ósönn- um fullyrðingum til að láta skína í vígtennurnar gagnvart Breiðdæl- ingum. Vetrarmánuðina 2015 og ’16 varð ástandið víða um land svo slæmt, að óhjákvæmilegt var að loka vegunum á Öxi og Breiðdals- heiði vegna illviðris og meira en sex metra snjódýptar, til að forðast kostnaðinn við samfelldan snjó- mokstur, þegar skilaboðin frá Vegagerðinni og fjárveitingavaldinu voru hingað og ekki lengra. Sjálf- gefið er það ekki að íslenska ríkið geti endalaust hrist fram úr erm- inni stórar fjárhæðir fyrir þessum snjómokstri í meira en 500 metra hæð án þess að ráðist verði um leið á vinnandi fjölskyldur með stór- auknum álögum, sem heimilin í landinu þola illa. Tímabært er að allir þingmenn Norðausturkjördæmis geri hreint fyrir sínum dyrum og flytji hið snarasta þingsályktunartillögu um að framkvæmdum við nýjan veg og tvíbreiða brú milli Egilsstaða og Fellabæjar verði flýtt. Viðunandi lausn á samgöngumálum Austfirð- inga snýst um að allir heimamenn búsettir norðan Fagradals fái betra aðgengi að sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað, sem þarf öruggari veg- tengingu við Egilsstaðaflugvöll. Án Mjóafjarðarganga er það útilokað ef Fjarðarheiðargöng verða tekin á undan. Stigið verður stórt skref aftur á bak ef þingmenn Norðausturkjör- dæmis telja það góða lausn að bjóða út nýjan Axarveg í stað þess ákveða fyrst tvíbreiðar brýr á suð- urfjörðunum, Mið-Austurlandi og norðan Fagradals, sem hafa alltof lengi setið á hakanum og þola enga bið. Á gömlu brúnni milli Fella- bæjar og Egilsstaða nálgast álagið af þungaflutningunum ystu þol- mörk, sem þýðir að ákvörðun um að ráðast í vinnu við nýja Lag- arfljótsbrú þolir enga bið. Engin skynsemi er í því að uppbyggðum vegi í 530 m hæð á snjóþungu og illviðrasömu svæði um Öxi sé troðið fram fyrir brýnustu samgöngu- mannvirkin sem rjúfa alla vetr- areinangrun Fjarðabyggðar og suð- urfjarðanna við Egilsstaðaflugvöll. Allir þingmenn Norðausturkjör- dæmis skulu kynna sér rétta for- gangsröðun á öllum þessum verk- efnum. Fyrir löngu hefði verið ráðist í þau ef fyrrverandi þing- mönnum Norðurlands eystra og vestra hefði aldrei tekist að reka hornin í samgöngumál Austfirðinga. Í stað þess að leggja meiri áherslu á styttingu vegalengda og öruggari vegtengingu við Fjórðungssjúkra- húsið í Neskaupstað vill sveitar- stjórn Djúpavogs frekar ögra Breiðdælingum með kröfunni um lokun Breiðdalsheiðar undir póli- tísku yfirskini, sem stuðningsmenn Axarvegar taka fram yfir þrenn jarðgöng á Mið-Austurlandi. Dag- lega aukast líkurnar á því að lof- orðin frá 2007 um nýjan Axarveg verði svikin eftir að ákveðið var að ráðast í tilraunaboranir á ganga- gerð undir Fjarðarheiði, sem eru tímafrekar. Næstu tvo áratugina stendur Vegagerðin frammi fyrir því að þurfa að ákveða hvaða samgöngu- mannvirki verði efst á blaði. Ódýr- ara er að fækka fjallvegum sem Vegagerðin treystir illa í 500-600 m hæð á snjóþungum og illviðrasöm- um svæðum þegar fjárveitinga- valdið forðast kostnaðinn við sam- felldan snjómokstur eins og heitan eld. Stundum er óhjákvæmilegt og sársaukafullt að svíkja fögur loforð. Látum Hvalnes- og Þvottárskriður víkja fyrir Lónsheiðargöngum. Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Viðunandi lausn á samgöngumálum Austfirðinga snýst um að allir heimamenn bú- settir norðan Fagradals fái betra aðgengi að sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað. Höfundur er farandverkamaður. Ögrun við Breiðdælinga Við lifum í síbreyti- legum heimi. Seinna síldarævintýri lauk fyrir hálfri öld þar sem miðin voru hreinlega ryksuguð upp. Í stað þess að bíða endalaust eftir því að síldin dúkk- aði aftur upp sneri fólk sér að öðru. Lengi vel var samt lífið saltfiskur hvað sem tautaði og raulaði. Tækninýjungar hafa svo orðið til þess að útvegur og vinnsla vega ekki eins þungt í atvinnulífi landsmanna og áður og breytt þann- ig ástandinu. Álafoss framleiddi alullargólfteppi með ágætis árangri þar til allir heimtuðu parket og flísar og þá lagði sú starfsemi upp laupana en fólk fann sér önnur viðfangsefni. Skó- deild Sambandsins gafst upp í sam- keppni við erlenda framleiðslu og dó drottni sínum en um svipað leyti um- breyttist eitt þekktasta vörumerki Finnlands, Nokia, úr gúmmítúttum í farsíma sem í dag hafa gríðarlega markaðshlutdeild á heimsvísu. Allt er breytingum háð og víst er að ástand hverju sinni mótast af þeim að- stæðum sem skapast, hvort sem þær eru ut- anaðkomandi eða við sköpum þær sjálf. Eftir að stuttbuxnastrákar (og -stelpur) í fjár- málageiranum spiluðu rassinn úr buxunum, ekki bara sínum eigin buxum heldur líka alls almennings og skildu hann þannig eftir nán- ast berrassaðan úti í kuldanum, tóku stjórnvöld þá ákvörðun að gefa skotleyfi á almenn- ing og smærri fyrirtæki. Stjórnvöld beittu völdum sínum beinlínis til að aðstoða þá sem komið höfðu öllu í rúst við að sparka í liggjandi fórn- arlömb sín þannig að hinir fyrr- nefndu gætu hirt fyrirtækin og fast- eignir af hinum síðarnefndu fyrir ekki neitt. Þá hefði bara verið ágætt ef stjórnvöld hefðu látið þetta í friði og leyft málum að ganga sinn veg í kerfi sem var í gildi þá. Í kjölfar hrunsins var verðgildi gjaldmiðilsins svo bágborið að aðstæður höfðu skapast til að laða hingað ferðamenn frá útlöndum jafnt efnaða sem þá sem lítið skildu eftir því allt í einu var orðið tiltölulega ódýrt að heim- sækja landið sem nánast enginn vissi deili á fyrr en fjármálasnilling- arnir kynntu það með þeim vafa- sama hætti sem raun varð í efna- hagshruninu. En eins var græðgin í ferða- mennskunni og síldveiðunum forð- um, sóknin var slík að helst átti að hreinsa miðin upp á einni nóttu. Fjárfest var í greininni með skuld- setningu langt upp fyrir rjáfur og nú er skattgreiðendum ætlað að skera úr snörunni þá sem fóru offari í við- leitni sinni til skjótfengins einka- gróða. Þá var í skjóli dapurs gengis krónunnar gert út á að hrúga ferða- mönnum til landsins en svo styrktist gengið og aftur varð tiltölulega dýrt að heimsækja Ísland. Ævintýramað- ur setti á laggirnar flugfélag sem bauð með fjárhagsstuðningi frá Isavia flug til og frá landinu á verði sem enginn gat keppt við enda fór það svo að það keyrði sig í þrot með tilheyrandi tjóni fyrir íslenska skatt- greiðendur án þess að nokkur axlaði ábyrgð. Hingað kom sá fjöldi ferðamanna sem náttúra okkar litla lands bar engan veginn en svo var komið þeg- ar halla fór undan að hæpið var að finna starfsmann í framlínu ferða- þjónustunnar sem skildi íslensku. Þótt Covid-ástandið hafi skapað það dapra ástand sem nú er í greininni er engum blöðum um það að fletta að farið var að draga verulega sam- an áður en það kom til. Og það er víða dapurt vegna Covid. En í kjöl- far Covid skapast aðstæður sem þarf að kljást við til framtíðar en það er ekkert útséð með að núverandi ástandi sé að ljúka. Á þá endalaust að ausa peningum skattgreiðenda í að halda fyrirtækjum í öndunarvél svo þau skrimti þar til aðstæður verði samar og áður án þess að nokkur hafi hugmynd um hvort eða hvenær slíkar aðstæður skapast? Í stað þess að stjórnvöld láti fyrir- tæki í friði til að veita þeim ráðrúm og hvata til að finna sér lífvænlegan farveg eða önnur verkefni í breytt- um aðstæðum er peningum mokað úr vösum skattgreiðenda, sem er einungis til þess að langflestir bíða bara eftir að aðstæður verði eins og þær voru áður, en enginn veit hvort það verður nokkurn tímann. Stærri fyrirtæki sem njóta að öllu jöfnu stærðarhagkvæmni lenda í breyttri stöðu vegna sóttvarna. Þá virðist þykja sjálfsagt að skattgreiðendur beri kostnað af því að einhverjir starfsmenn séu settir í skert starfs- hlutfall. Minnstu fyrirtækin líða svo fyrir þessar ráðstafanir þar sem þeir sem njóta úrræðanna nýta stuðning- inn jafnvel til samkeppnisforskots á einyrkjafyrirtækin. Svo verður mað- ur vitni að því að fólk sem sett hefur verið í skert starfshlutfall hafi komið sér upp aðstöðu heima hjá sér þar sem það vinnur með bótagreiðslum fyrir óuppgefnar tekjur. Formaður stjórnmálaflokks sem nú er í andstöðu hefur haft orð á því að ekki sé nóg að gert til að styðja við svona aðgerðir sem í raun gera ekki annað en að skapa nokkurs konar markaðsbrest. Sá stjórn- málaflokkur sem var við völd eftir hrun hafði þá forystu um að gefa út fyrrnefnt skotleyfi. Ef Covid hefði ekki komið til hefðu stjórnvöld þá ákveðið sérstakar stuðningsaðgerðir við garðaþjónustur og snjómokst- ursfyrirtæki ef léleg spretta um sumarið og snjóléttur vetur hefðu dunið yfir eins og þruma úr heið- skíru lofti? Hjá slíkum fyrirtækjum hefði orðið gríðarlegt tekjutap sök- um breyttra aðstæðna. Lök spretta og snjólétt? Eftir Örn Gunnlaugsson » Væru þá sérstakar stuðningsaðgerðir við garðaþjónustur og snjómokstursfyrirtæki ef léleg spretta yfir sumarið og snjóléttur vetur hefðu dunið yfir? Örn Gunnlaugsson Höfundur er fv. atvinnurekandi. orng05@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.