Morgunblaðið - 11.11.2020, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020
Síðan má ekki gleyma starfi sem
Stefán Ómar hefur sinnt í 47 ár og
er honum afar kært. „Ég hef verið
trúr og sannur jólasveinn í öll þessi
ár og hef farið á leikskóla bæði í
Hafnarfirði og Reykjavík. Ég legg
mikið upp úr því að gera þetta vel
og finnst mikilvægt að færa réttan
boðskap og anda jólanna til
barnanna. Ég byrjaði í þessu aðeins
12-13 ára, og var þá í jólasveinabún-
ingi að spila á harmonikku. Þetta er
án efa skemmtilegasta vinnan.“
Fjölskylda
Eiginkona Stefáns er Hanna
María Ólafsdóttir, f. 31.1. 1963,
bankastarfsmaður. Foreldrar henn-
ar eru Ólafur G. Vigfússon, f. 15.10.
1937 og Auðlín Hanna Hannes-
dóttir, f. 10.11. 1940, búsett í Hafn-
arfirði. Áður var Stefán giftur Ingv-
eldi Thorarensen, f. 25.11. 1958,
bókmenntafræðingi.
Börn Stefáns eru 1) Sóley, f.
20.10. 1986, tónlistarkona gift Héðni
Finnssyni myndlistarmanni; 2)
Eiríkur Rafn, f. 7.2. 1988, tónlistar-
maður, í sambúð með Ingibjörgu
Rúnarsdóttur, nema í meistaranámi
í talmeinafræði; 3) Jakob Fannar, f.
14.9. 1995, meistaranemi í klínískri
sálfræði við HR, í sambúð með Ás-
dísi Höllu Einarsdóttur, meistara-
nema í hagnýtri atferlisgreiningu
við HR; 4) Agnar Freyr, f. 11.12.
1996, nemi í grafískri hönnun við
Royal Academy of Art í Den Haag
og 5) Ólafía Mjöll Hönnudóttir, f.
1.4. 1982, húsmóðir.
Barnabörnin eru orðin þrjú:
Aníta Líf Nielsen, Benedikt Snær
Hauksson og Úlfhildur Héðins-
dóttir.
Systkini Stefáns eru Kristjana, f.
13.5. 1951 og María, f. 24.10. 1954.
Báðar systurnar eru búsettar í
Hafnarfirði.
Foreldrar Stefáns eru Jakob Sig-
marsson, f. 25.2. 1928, d. 7.4. 1996,
lögregluvarðstjóri í Hafnarfirði, og
Sóley Marvinsdóttir, f. 24.6. 1933, d.
20.8. 2012, starfaði við aðhlynningu
á Sólvangi í Hafnarfirði.
Stefán Ómar
Jakobsson
Sesselja Stefánsdóttir
vinnuk. á Kollsstöðum og Keldhólum á Völlum, S-Múl.
Magnús „skáld“ Sigurðsson
lausamaður á Egilsstöðum
á Völlum, S-Múlasýslu
Stefanía Magnúsdóttir
húsfreyja í Enni og Sandfelli á Höfðaströnd, Skag.
Marvin Þorleifsson
bóndi í Enni og Sandfelli á Höfðaströnd, Skag.
Sóley Magnea Marvinsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Steinvör Margrét Ingólfsdóttir
húsm. á Hrauni, Unadal, Skag.
Þorleifur Pálsson
bóndi á Hrauni, Unadal. Skagafirði
Jakobína Petrea Jóhannsdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki
Guðmundur Kristjánsson
bóndi í Svínavallakoti, Unadal, Skag. Sá
fylgjur manna og dýra. Sjómaður góður.
Kristjana Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja, Hofsósi
Sigmar Þorleifsson
bóndi og útg. maður, Hofsósi
Steinvör Margrét Ingólfsdóttir
húsmóðir á Hrauni, Unadal, Skag.
Þorleifur Pálsson
bóndi á Hrauni, Unadal, Skagafirði
Úr frændgarði Stefáns Ómars Jakobssonar
Jakob Sigmarsson
lögregluvarðstjóri Hafnarfirði
„ISS, ÞETTA ER EKKERT. TRÚÐU MÉR, ÞÚ
MYNDIR VITA HVORT ÞÚ ÆTTIR Í RAUN
VIÐ DRYKKJUVANDAMÁL AÐ STRÍÐA.”
„ÞÚ ERT AÐ HORFA Á UPPRENNANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRA „PALLA-PÍTSU”.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að minnast á þig í
bloggfærslum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HAMINGJAN FELST Í ÞVÍ AÐ
HAFA KÖTT Á HEIMILINU
HRIFS
ÞAÐ ER, HAMINGJA
KATTARINS
ÉG HEF ALDREI HAFT
SVONA MIKIÐ FYRIR
JAFN LITLU!
… OG FÆRÐU MÉR
SALTHNETUR!
KANNSKI ER
KOMINN TÍMI
TIL AÐ BREYTA
TIL!
ÞÚ SEGIR SATT! TAKTU ÞESSAR
NÆSTUM ÓBRJÓTANLEGU
PISTASÍUHNETUR…
Ég kaus að kalla þetta Vísna-horn „Ljóðin hans pabba“,
sem er heiti þeirrar bókar sem hér
er um fjallað. Undirtitillinn er
„Ljóð og vísur eftir Eðvarð Sturlu-
son frá Súgandafirði.“ Þetta er
falleg bók og fer vel í hendi eins og
höfundur á skilið, – átthagaskáld
eins og þau gerast best:
Oft leitar hugur til átthaga heim,
það alveg er sama hvert ferðast um
geim
því rígfastar standa þar rætur í jörð
sem rekja má vestur í Súgandafjörð.
Þegar ég fór að fletta bókinni
varð strax fyrir mér þessi staka:
Árin líða, aldir renna,
eftir stendur minning skýr.
Þá er gott að grípa penna
og geta skrásett ævintýr.
Og það gerir Eðvarð svo sann-
arlega, hann grípur pennann við öll
möguleg og ómöguleg tækifæri og
skrifar hjá sér. Hann yrkir um
landið og miðin, fjölskylduna, sveit-
ungana og það sem þeir hafa fyrir
stafni. Oft í léttum dúr. Árið 1993
barst erindi til hreppsnefndar
vegna slæmra fjallskila:
Um Lalla var töluvert talað
og um tapaða féð hans er malað.
Það kom ekkert af fjalli
hjá aumingja kalli
því illa var rollunum smalað.
Eðvarð er góður framsóknar-
maður og orti þegar Steingrímur
Hermannsson kom til Suðureyrar:
Steingrímur kom til að kanna
kjarnann í sínum her.
En fylgi framsóknarmanna
fjölgar nú óðum hér.
Á kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins 1994 sat Eðvarð beint á
móti Guðmundi Inga Kristjánssyni.
Eðvarð kastaði þá fram þessari
vísu:
Hendurnar titrandi tifa
en traust er hugsun og sterk.
Er skáldið ennþá að skrifa
skapandi listaverk?
Guðmundur Ingi svaraði að
bragði:
Skáldverk ekki skrifast hér,
skáld þó inni megi sitja.
Ég er að festa í minni mér
mál sem hinir eru að flytja.
Eftir að Eðvarð hætti að vinna
aldurs vegna leiddist honum að-
gerðarleysið og fór í frystihúsið til
að leggja á og stála fyrir konurnar:
Þó allar kerlingar elski mig heitt
er ekkert við því að gera.
Ég stála svo geti þær breddunum beitt
við að búta fiskinn og skera.
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Ljóðin hans pabba