Morgunblaðið - 11.11.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 11.11.2020, Qupperneq 30
30 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020 Anton Sveinn McKee kom fjórði í bakkann í 100 metra bringusundi í atvinnumannadeildinni í sundi í Búdapest í Ungverjalandi í gær. Anton synti á tímanum 57,79 sek- úndum en fyrir rúmum tveimur vikum setti hann bæði Íslands- og Norðurlandamet í greininni á tím- anum 56,30 sekúndum. Anton keppir með liði Toronto Titans en þetta var síðasta keppni Antons áður en undanúrslitin hefj- ast 14. og 15. nóvember. Þar keppa átta lið og er Toronto eitt þeirra en tólf eru í deildinni. sport@mbl.is Undanúrslitin fram undan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ungverjaland Anton Sveinn McKee keppir fyrir Toronto Titans. Elías Már Ómarsson heldur áfram að gera það gott með Excelsior í hollensku b-deildinni í knattspyrnu og skoraði öll þrjú mörk liðsins í 3:0-sigri á TOP Oss á heimavelli í gærkvöld. Elías kom Excelsior á bragðið strax á 2. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Hann bætti við öðru marki á sjöundu mín- útu seinni hálfleiks og gulltryggði 3:0-sigur á 88. mínútu. Keflvíkingurinn hefur skorað 15 mörk í 12 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. sport@mbl.is Ljósmynd/Excelsior Þrenna Elías Már Ómarsson er sjóðandi heitur fyrir framan markið. Elíasi halda engin bönd LANDSLIÐIÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu ætlar sér sigur þegar liðið mætir Ungverjalandi í umspili um laust sæti á EM fimmtudaginn 12. nóvember á Puskás Aréna-vellinum í Búdapest í Ungverjalandi. Íslenska landsliðið kom saman á mánudaginn í Augsburg í Þýska- landi þar sem það hefur æft und- anfarna tvo daga en í dag heldur lið- ið svo til Búdapest þar sem leikurinn fer fram. Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason verður ekki með liðinu í Búdapest þar sem liðsfélagi hans hjá Svíþjóðarmeisturum Malmö greind- ist með kórónuveiruna á mánudag- inn en að honum undanskildum eru aðrir leikmenn íslenska liðsins full- frískir og klárir í slaginn. „Stemningin í hópnum er virki- lega góð enda alltaf gaman að vera í kringum landsliðið og strákana,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska liðsins, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það fer rosalega vel um okkur hérna í Augsburg. Hótelið og æf- ingasvæðið er algjörlega frábært. Við tókum fína æfingu í gær [fyrra- dag] og svo aftur í dag [gær]. Æfing- in í dag [gær] var lengri og ítarlegri þar sem að menn voru enn þá að skila sér til Þýskalands á mánudag- inn og hann fór því að mestu leyti í það, sem og endurheimt. Þetta eru ekki margir dagar sem við fáum í undirbúning fyrir þennan mikilvæga leik og því um að gera að nýta tímann sem best og það hefur tekist vel finnst mér. Við erum nú þegar búnir að fara yfir taktík og funda nokkrum sinnum þannig að þetta er allt á réttri leið,“ bætti Guð- laugur við en hann á að baki 20 A- landsleiki fyrir Ísland. Við öllu búnir Íslenska liðið á að mæta Dan- mörku á Parken í Kaupmannahöfn, 15. nóvember, og Englandi á Wem- bley í London, 18. nóvember, í Þjóðadeild UEFA en mikil óvissa ríkir um þessa leiki vegna kórónu- veirufaraldursins og ferðatakmark- ana vegna veirunnar. „Þessi umræða hefur ekki truflað okkur finnst mér og ég get ekki séð að þetta hafi einhver áhrif á hópinn. Svona er bara heimurinn sem við lif- um í í dag og maður er við öllu búinn einhvern veginn. Það getur allt gerst í dag en við erum mjög ein- beittir á leikinn á fimmtudaginn. Leikirnir gegn Danmörku og Englandi hafa ekki einu sinni komið til tals og við erum ekkert að pæla í þeim. Maður er orðinn vanur þessari umræðu sem er búin að vera í gangi í kringum þennan faraldur en að sama skapi er hún orðin virkilega þreytt líka. Þetta er hins vegar staðan í dag hjá langflestum í heiminum og það þýðir þess vegna ekki að velta sér of mikið upp úr því. Það sem gerist gerist en við erum alla vega í topp- málum í Þýskalandi þessa stund- ina.“ Stefnir í erfiðan leik Miðjumaðurinn er tilbúinn í slag- inn á fimmtudaginn en til stóð að 20. 000 stuðningsmenn Ungverja yrðu á leiknum í Búdapest en af því verður ekki eftir hertar sóttvarnareglur í Ungverjalandi. „Maður er orðinn vanur því að spila án áhorfenda og ég pældi því lítið í því að það yrðu einhverjir áhorfendur á leiknum. Það hefðu kannski orðið ákveðin viðbrigði að hafa allt í einu stuðningsmenn í stúkunni, sama hvort liðið þeir væru að styðja, en þetta er ekki eitthvað sem maður var sjálfur búinn að spá mikið í. Hvað varðar sjálfan mig þá und- irbý ég mig fyrir þennan leik eins og ég sé að fara að spila, á því leikur enginn vafi. Þetta verður erfiður leikur gegn Ungverjum og við þurf- um allir að eiga góðan leik ef við ætl- um okkur að ná í úrslit. Við þurfum að verjast eins og lið og sækja eins og lið. Ef við gerum hlutina upp á tíu á báðum endum vallarins þá vinnum við þennan leik og það er það eina sem ég er að hugsa um,“ bætti Guð- laugur við í samtali við Morgun- blaðið. Það eina sem kemst að er sigur Morgunblaðið/Eggert Skalli Guðlaugur Victor Pálsson hefur komið inn með miklum látum í ís- lenska karlalandsliðið og verið algjör lykilmaður í síðustu leikjum liðsins.  Guðlaugur Victor er klár í slaginn gegn Ungverjum á fimmtudaginn Holland B-deild: Excelsior – Oss......................................... 3:0  Elías Már Ómarsson skoraði þrennu og var tekinn af velli í uppbótartíma hjá Ex- celsior. Noregur Bikarkeppnin: Avaldsnes – Arna-Björnar ..................... 1:0  Hólmfríður Magnúsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Avaldsnes eftir 55 mínútur.  Avaldsnes er komið í undanúrslit keppn- innar.  Spánn Barcelona – Villa de Aranda.............. 39:22  Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Barcelona. Danmörk Bikarkeppni: Skjern – Skanderborg ........................ 38:25  Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Skjern. Ribe-Esbjerg – GOG ......................frl. 33:34  Rúnar Kárason og Gunnar Steinn Jóns- son skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Ribe- Esbjerg og Daníel Þór Ingason eitt.  Viktor Gísli Hallgrímsson varði átta skot í marki GOG.  Skjern og GOG eru komin áfram í undan- úrslit.   Eitt ogannað  Bandarísku leikmennirnir Murielle Tiernan, Jackie Altschuld og Amber Michel munu leika með Tindastóli í efstu deild kvenna í knattspyrnu á næsta ári. Tindastóll vann sér í sum- ar sæti í efstu deild á næsta ári, þær bandarísku áttu drjúgan hlut að máli. Feykir greindi frá því í gær að þær hefðu allar samið við félagið um að leika áfram með liðinu og verður þetta í fyrsta skipti sem liðið leikur í efstu deild í knattspyrnunni.  Hannes Jón Jónsson, þjálfari þýska handboltaliðsins Bietigheim, greindist á dögunum með kór- ónuveiruna og segir frá því í viðtali við netmiðilinn handbolti.is. Þar kemur fram að sjö leikmenn hjá Bie- tigheim hafi greinst með veiruna.  Tvö Íslendingalið tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum danska bikarsins í handknattleik. Skjern vann afar öruggan 38:25-sigur á Skanderborg. Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir Skjern. Í Esbjerg hafði GOG betur gegn Ribe- Esbjerg 34:33 í framlengdum spennuleik. Viktor Gísli Hall- grímsson varði átta skot í marki GOG en Rúnar Kárason og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Ribe-Esbjerg og Daníel Þór Ingason eitt.  Robert Skov, leikmaður danska landsliðsins í knattspyrnu, greindist með kórónuveiruna í gær og eru margir samherjar hans í landsliðinu sem og þjálfarateymið komið í sóttkví vegna þessa. Ísland mætir Danmörku í Þjóðadeildinni í Kaup- mannahöfn á sunnudag. Kasper Hjulmand landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans Morten Wieghorts eru komnir í einangrun sem og leikmennirnir Frederik Røn- now, Yussuf Poulsen, Rasmus Falk, Pione Sisto, Anders Dreyer, Erik Sviatchenko, Alexander Scholz og Martin Braithwaite. Hreyfing gæti verið að komast á þau mál sem snúa að framtíð þjóðar- leikvangsins fyrir knattspyrnu og frjálsar íþróttir í Laugardal. Mennta- og menningarmálaráðu- neytið sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að samþykkt hefði verið á ríkisstjórnarfundi að hefja viðræður við Reykjavíkurborg um framtíð þjóðarleikvangsins. Er þar reyndar einungis talað um knattspyrnu og líkast til er þá frjáls- um íþróttum ætluð önnur keppnis- aðstaða til framtíðar. „Viðræður við Reykjavíkurborg munu byggjast á valkostagreiningu breska ráðgjafarfyrirtækisins AFL, sem varð hlutskarpast í útboði sem efnt var til á evrópska efnahags- svæðinu snemma árs,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Í greiningunni er kostnaðar- og tekjumat fjögurra valkosta, auk við- skiptaáætlunar og mats á efnahags- legum þáttum. Laugardalsvöllurinn þarf á und- anþágum að halda svo hægt sé að spila þar í alþjóðlegri keppni. Viðræður að hefjast um þjóðarleikvang Morgunblaðið/Eggert Í Laugardal Framtíð leikvangsins verður mjög til umræðu á næstunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.