Bæjarins besta - 07.06.1990, Blaðsíða 1
BÆJARIXS BESTA
23. TBL. (J 7. ÁRG - FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1990
ÁRG
FIMMTUDAGUR
1990
23
TBL
AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA
Skálavík um helcrina
Pöbbinn opinn föstudags-
kvöldkl. 2 300 - 0300.
Trubatorinn Siggi Björns.
Pöbbinn laugardagskvöld kl. 22-01
Dansleikur Sjómannadaginn
M 230 030 SKÁLAVIK
Bolungarvík S 7130
Hljóms. Magga Kjartans
ísafjörður:
Sjálfstætt framboð sam-
einast Sjálfstæðisflokknum
- skrifað var undir málefnasamkomulag í gær.
Haraldur L. Haraldsson verður áfram bæjarstjóri
FLJÓTT skipast veður í
pólitíkinni sem og á öðr-
um vígstöðvum. Seinni part
þriðjudags voru Alþýðu-
flokksmenn og Sjálfstæðis-
menn með tilbúninn mál-
efnasamning um meiri-
hlutasamstarf, sem bera átti
undir listana það kvöldið, en
hálfum sólarhring seinna er
búið að skrifa undir sam-
komulag um samruna Sjálf-
stæðs framboðs og Sjálf-
stæðisflokks.
í spjalli við blaðið seinni
part þriðjudag sagði Ólafur
Helgi Kjartansson oddviti D
listans m.a. að viðræður við
Alþýðuflokkinn um meiri-
hlutasamstarf hefðu gengið
vel og að málefnasamningur-
inn væri kominn á koppinn.
Ólafur sagði ennfremur að
fundur ætti að vera þá um
kvöldið með listunum þar
sem samningurinn yrði lagð-
ur fram og ef allt gengi að
óskum yrði hægt að skrifa
undir málefnasamninginn nú
fyrir helgina.
í gærmorgun (miðviku-
dag) bárust hins vegar þær
fréttir að Sjálfstætt framboð
og Sjálfstæðisflokkurinn
hefðu sameinast og búið væri
að skrifa undir samkomulag.
Samkvæmt samkomulaginu
verður Haraldur L. Haralds-
son áfram bæjarstjóri en
ekki bæjarfulltrúi en það var
einmitt aðalbaráttumál Sjálf-
stæðs framboðs að Haraldur
yrði pólitískur bæjarstjóri.
En hvað olli þessum skyndi-
legum breytingum. Pví svar-
ar Ólafur Helgi Kjartansson:
„Það sem breyttist var ein-
faldlega það að upp kom ný
staða hjá Sjálfstæðu fram-
boði. Sú breyting leiddi í ljós
að þeir voru tilbúnir að falla
frá kröfum sínum um sam-
vinnu og samþykktu sam-
runa þessara tveggja lista og
það er breyting sem við gát-
um sætt okkur við.“
En hverju svarar þú þeim
sögusögnum að Sjálfstœðis-
flokkurinn hafi verið að
blekkja kjósendur með þess-
um tveimur framboðum og
að allt hafi verið fyrirfram
ákveðið?
„Ég svara því neitandi.
Það var ekki verið að
blekkja kjósendur að neinu
leyti. Hins vegar þegar að
menn semja svona má líkja
því við þá aðstöðu sem kem-
ur upp þegar kjarasamningar
eru undirritaðir en þá lýsa
menn því yfir að aðgcrðir
hvors annars skuli gleymdar
en eins og menn vita að þá
beita menn ýmsum aðferð-
um í verkföllum.“
En nú fékkst þú ýmislegt í
framh. á bls. 2
Vestfirðir:
Sjómenn!
Til hamingju með daginn
SJÓMANNADAGURINN, hátíðisdagur íslenskra sjómanna er á sunnudaginn. Blaðið í dag er að sjálfssögðu
tileinkað þeim að hluta eins og undanfarin ár. Meðal annars er fróðlegt viðtal við Jón Ragnarsson, vélstjóra, einn
sexmenninganna sem björguðust af Svani ís 240, árið 1969.
BB óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn og vonar að hann verði þeim ánægjuleg
tilbreyting frá hversdagslífinu. Þessa skemmtilegu mynd hér að ofan tók Jón Árnason skipverji á Guðbjarti ÍS 16, af
Haffara frá Súðavík er hann var á veiðum í blíðskaparverðri fyrir stuttu.