Morgunblaðið - 07.12.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
ERT ÞÚ Í BYGGINGARHUGLEIÐINGUM?
VIÐ FRAMLEIÐUM EINNIG
Smáhýsi
Gestahús
Parhús
Raðhús
Sérbýlishús
Módula
Þaksperrur
Sökkla
www.huseining.is
sala@huseining.is
s: 686-8680
Verð frá 113.400 kr. pr/m²
Einbýlishús
Húseining býður upp á einstök og falleg einingarhús
sem hönnuð og framleidd eru á Íslandi fyrir íslenskar
aðstæður.
Sumarhús
Verð frá 135.800 kr. pr/m²
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Talsverður gangur er kominn nú
þegar í verslun fyrir jólin, fyrr en
kaupmenn bjuggust við. Engar al-
gildar skýringar eru á þessu, en
kaupmenn benda á að vegna gild-
andi samkomutakmarkana hafi fólk
ef til vill rýmri tíma en áður. Noti
því svigrúmið þessa dagana og ljúki
við þau innkaup sem hægt sé.
Sprenging kortér fyrir jól sé ólík-
leg.
Baka og njóta samveru
„Það hefur verið talsvert líf í öll-
um viðskiptum hjá okkur síðustu
vikur,“ segir Gunnar Egill Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri verslunar-
sviðs Samkaupa. „Jólabaksturinn er
greinilega hafinn á mörgum heim-
ilum; hveiti, sykur, egg og smjörlíki
seljast nú sem aldrei fyrr. Á sama
tíma fer minna út af tilbúnum kök-
um svo tilhneigingin er greinilega
sú að fjölskyldur njóta samverunnar
með því að baka í eldhúsinu heima.
Sala á gjafavörum hefur einnig ver-
ið talsverð, svo sem bókum, en í ár
eru Samkaup með um 350 titla í
boði. Útgefendur eru fyrir þessi jól
einfaldlega með góðar bækur sem
seljast vel af því þær ná til lesenda,“
segir Gunnar Egill.
Mikil og vaxandi umsvif hafa ver-
ið í netverslun Samkaupa, sem efld
var til muna þegar samkomutak-
markanir komu til fyrr á þessu ári.
Þær leiddu til þess að færri fara nú
en áður í hefðbundnar búðir, en
nærri lætur að innkaup yfir netið
vegi þar upp á móti. „Þetta eru
verslunarhættir sem landinn tileink-
aði sér fyrir alvöru á fáeinum dög-
um í fyrstu bylgju Covid síðastliðið
vor. Þessi viðskiptamáti er alveg
tvímælalaust kominn til að vera.“
Nóvember viðlíka stór
og jólamánuðurinn
„Jólasalan hefst nú talsvert fyrr
en var fyrr á árum,“ segir Gestur
Hjaltason framkvæmdastjóri Elko.
Sú breyting hafi orðið á markaðnum
að nóvember sé orðinn viðlíka stór í
öllum viðskiptum og sjálfur jóla-
mánuðurinn. Þarna ræður miklu, að
sögn Gests, að nú er á Íslandi keyrt
stíft á sölu og markaðssetningu fyr-
ir Svartan föstudag síðast í nóv-
ember og Netmánudaginn sem nú
var 30. nóvember, en var í byrjun
desember í fyrra. Fyrir vikið hafi
sala nú allra fyrstu dagana desem-
ber verið ögn minni en á sama tíma
í fyrra, en muni svo fljótlega jafnast
út.
„Svo eru líka enn samkomutak-
markanir í verslunum sem hamla
sölunni sem hefur sín áhrif. Net-
verslun bætir það að verulegu leyti.
Ég býst við um það bil 5% sölu-
aukningu í ár miðað við jólaverslun í
fyrra,“ segir Gestur Hjaltason. Fyr-
ir komandi jól segir hann PS5-
leikjatölvuna vera vinsæla, hún selj-
ist alltaf upp og langir biðlistar séu
eftir slíkum tækjum. Símar, sjón-
vörp og þráðlaus heyrnartól séu vin-
sælar jólagjafir. Þá renni ýmiss
konar raftæki til matargerðar jafn-
an út, rétt eins og heitar lummur.
Ekki sprenging kortér fyrir jól
Góður skriður er kominn á jólaverslun Landinn bakar heima og kaupir sykur og hveiti Góðar
bækur eru í boði Sjónvörp, símar og eldhústækin seljast vel í Elko Búist er við söluaukningu
Gunnar Egill
Sigurðsson
Gestur
Hjaltason
Ágætt veður var á landinu í gær
og leiðir greiðar. Þegar komið er
fram í desembermánuð er mik-
ilvægt að nýta vel hverja þá stund
sem birtu nýtur. Í eftirmiðdaginn
breytist veröldin svo í blóðrautt
sólarlag, eins og sjá mátti á vest-
urhimni í gær í þann mund sem
áætlunarbíllinn frá Akureyri
renndi inn á Húsavík. Tvær vikur
eru í dag uns daginn fer aftur að
lengja og eru flest mannanna börn
orðin, að ætla verður, óþreyjufull
eftir þeim umsnúningi.
Ágætt veður og stillt var fyrir á
Norðurlandi gær eins og víðast
annars staðar á landinu. Veður
verður á þeim nótum allra næstu
dagana og því fín skilyrði til þess
að fara í gönguferðir.
Þegar kemur svo fram í miðja
vikuna fer að hlýna með slyddu og
rigningu svo snjó á láglendi mun
yfirleitt taka upp. Að baki er því
grimmur frostakafli, með nærri 10
stiga gaddi í efri byggðum Reykja-
víkur, að viðbættri vindkælingu
sem bætti um betur. Almennt þyk-
ir ástandið í afstaðinni kuldatíð
ekki hafa orðið jafn alvarlegt og
varað var við, en talsverður við-
búnaður var hjá hitaveitum og
öðrum ef í óefni færi sem ekki
varð. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Blóðrauð
sól en væta
í kortunum
Tugir sveitarfélaga og félagasam-
taka um allt land hafa sótt um
starfsleyfi fyrir brennur um áramót
og á þrettándanum til viðkomandi
heilbrigðiseftirlits. Enn er allt á
huldu hvort brennur verða heim-
ilaðar. Það ræðst af því hvaða reglur
verða í gildi og túlkun yfirvalda.
Heilbrigðiseftirlit viðkomandi um-
dæma gefa út starfsleyfi fyrir
brennur. Áður en til þess kemur
þarf umsókn að hafa verið auglýst í
fjórar vikur. Tugir slíkra auglýsinga
frá sveitarfélögum og félagasam-
tökum um allt land eru nú í kynn-
ingu og rennur frestur til at-
hugasemda vegna áramótabrenna í
flestum tilvikum út fyrir jól. Þar á
meðal eru tíu áramótabrennur sem
Reykjavíkurborg hefur sótt um.
Í núverandi reglugerð um sam-
komutakmarkanir segir að ekki sé
heimilt að veita tímabundið leyfi fyr-
ir skemmtunum, þar með töldum
brennum, sem ætla megi að dragi að
sér hóp fólks eftir klukkan 21. Í vik-
unni verður reglugerðin endur-
skoðuð og enginn veit hvaða reglur
verða í gildi um áramót, hvað þá á
þrettándanum. Aðgerðastjórn á
Austurlandi hefur beint því til sveit-
arfélaga þar að vera ekki með
brennur þessi áramótin. Jón Viðar
Matthíasson, slökkviliðsstjóri og
framkvæmdastjóri almannavarna á
höfuðborgarsvæðinu, hyggst funda
með fulltrúum heilbrigðiseftirlita á
höfuðborgarsvæðinu í dag til að taka
stöðuna og samræma verklag.
helgi@mbl.is
Óvíst hvort brennur
verða heimilaðar
Sótt um tugi áramótabrenna