Morgunblaðið - 07.12.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.12.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þetta er þinn dagur svo þú skalt njóta hans eins og þú getur en mundu bara að hóf er best á hverjum hlut. Rómantíkin blómstrar. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú elskar fólk og fólk bregst vel við þeirri afslöppuðu athygli sem þú veitir því. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reyndu að halda í jákvæðnina jafnvel þegar á móti blæs. Að fyrirgefa virðist ýmist kjánalegt eða guðdómlegt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Stundum er nauðsynlegt að halda fólki í ákveðinni fjarlægð. Haltu sköpunargáfunni við með því að um- gangast þá sem kunna að meta hana. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er um að gera að leita eftir samstarfi við þá, sem þér finnast geta aukið við hugmyndir þínar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú mátt ekki láta deigan síga, heldur sækja fram af fullri djörfung til þess sem þú vilt. Einhver er að reyna að vera gleðispillir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki halda þínu til streitu í dag, hvort sem er gagnvart vini eða hópi fólks. Gættu þess að vera ekki of gagn- rýninn við fólk nema þú viljir endanlega losna við það. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það eftir þér að staldra við og njóta ávaxta erfiðis þíns. Um leið víkkarðu sjóndeildarhringinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stuðningsnetið þitt gerir sitt gagn þótt það sé lágstemmt núna. Ekki vera óþolinmóður því þitt tækifæri kem- ur fyrr en varir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einbeittu þér að verkefnum sem eru mikilvæg, þótt þau séu kannski ekki brýn. En þér finnst þú hvatvís og frjáls þegar þú hefur útbúið plan. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Haltu áfram andlegri leit þinni í framtíðinni. Hafðu allan fyrirvara á því fólki sem talar í hálfum setn- ingum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Kannski sérðu nýja tekjumögu- leika í dag. Kannski þarfnastu þess. Trú þín á sjálfa/n þig gerir þig jákvæða/n og sterka/n. ir að það hafi dregið úr því síðustu árin. „Allan minn starfsferil hef ég unnið að búinu á Mýrum 3, fyrst með foreldrum mínum en tek alfar- ið við búinu 1998. Árið 1990 byggði ég íbúðarhús að Mýrum 3 ásamt þáverandi konu minni, Inu Laursen, og sinnti verktakavinnu meðfram búskapnum. Samband Karls og Inu rann sitt skeið og hún fór til Dan- merkur. Árið 2004 var önnur kona að koma inn í líf Karls. „Valgerður var kaupfélagsstjóri á Hvamms- tanga og ég fór að gefa henni hýrt auga í kaupfélaginu. Við sátum saman fund í Kaupfélaginu um fjár- flutninga og eftir hann bauð ég henni í mat og rauðvín að ræða málin. Við byrjuðum saman 2004 og hún flutti að Mýrum til mín tveimur árum síðar. Hún hætti kaupfélags- K arl Guðmundsson fæddist á sjúkrahús- inu á Hvammstanga og ólst upp á Mýrum við leik og störf. „Bærinn Mýrar 3 var byggður úr hluta af Mýrarjörðinni, en móðir mín fæddist á Mýrum.“ Karl segir að minningarnar úr æskunni séu góðar og hann hafi alltaf unað sér vel í sveitinni og við sveitastörfin.“ Karl byrjaði í skóla átta ára á Laugabakka í Miðfirði. „Þá var ekið yfir Hrútafjarðarháls yfir Miðfjarð- ará og á Laugarbakka en þar var heimavist í kjallaranum í Ásbyrgi þar sem við vorum tíu daga í senn. Þannig var það fyrstu tvö árin en eftir það var ég í heimkeyrslu.“ Karl segir að það hafi verið fínt að vera í skólanum, en sterkasta minn- ingin sé samt frá árinu 1970 þegar krakkarnir komu út úr skólahúsinu og allt var kolbikasvart í kringum þau. Það hafði komið svo mikið öskufall um nóttina eftir að Hekla gaus og maður varð hálfskelkaður að sjá þetta og þetta situr í manni enn þá.“ Eftir grunnskólann vann Karl heima við búið og fór svo á Bænda- skólann á Hvanneyri veturinn 1978- 1979 og útskrifaðist þaðan sem bú- fræðingur. Karl var í ungmenna- félaginu Gretti og lék í leikritum í Ásbyrgi og víða um land og hafði gaman af því. „Eftir það vann ég við búið en fór svo að vinna hjá Ræktunarsam- bandi Vestur-Húnavatnssýslu og vann á jarðýtu og gerðist síðan verktaki.“ Það þarf ekki að tala lengi við Karl til að heyra að hann er mikill véla- og bílakarl. „Fyrsta vélin mín var gömul MF-traktors- grafa sem ég eignaðist líklega árið 1981. Sama ár byrjaði ég að keyra lömb í sláturhúsið á Hvammstanga, fyrst á vörubíl sem faðir minn átti en svo eignaðist ég minn fyrsta bíl 1983 og er búinn að keyra lömb í slátur síðan eða í 39 ár.“ Karl keyrir út um allt land til að ná í lömb og hefur kynnst mörgum í gegnum það starf. Síðan hefur hann flutt ýmislegt á vörubílum, eins og áburð og fóðurbæti, en seg- störfunum og sér núna um fjósið.“ Mikil breyting varð á Mýrum 3 árið 2006 þegar Karl og Valgerður ákváðu að byggja róbótafjós við gamla fjósið fyrir 70 kýr og kálfa- uppeldi. Þetta var fyrsta róbótafjós- ið í Vestur-Húnavatnssýslu. „Við vorum með 14 kýr áður og stækk- uðum upp í 60 svo þetta var ansi mikið átak. Maður er náttúrulega snarruglaður að gera þetta, en við bara létum vaða og sjáum ekki eftir því. Ég er ekki viss um að ég hefði nennt að vera með kýr mikið lengur ef við hefðum ekki gert þetta. Það er allt annað að vera með svona há- tæknifjós þar sem einn mjaltaþjónn mjólkar kýrnar.“ Karl hefur verið að byggja og bæta við búið frá því hann tók við og íbúðarhúsið hefur stækkað, ný votheyshlaða komið, ný véla- geymsla risið og síðan byggði hann í fyrra nýjan fjárkassa til að hafa yfir lömbunum á leiðina í slát- urhúsið. „Það sem heillar mig mest við búskapinn er að vera sjálfstæður, vera úti í náttúrunni og í samneyti við skepnurnar. Ég veit ekki hvern- ig maður færi að ef maður hefði ekki þessa vini sína og auðvitað þekki ég ekkert annað.“ Karl segir engan tíma gefast til hefðbundinna tómstunda, en þó hafi þau hjónin farið heilmikið í ferðalög erlendis og oftar en ekki hafa þau farið á vélasýningar og fundist það gaman. Í haust kom nýjasta vélin á bæinn, Massey Ferguson 7726, risavaxin vél sem Karl notar mest í snjómokstur, en hann hefur mokað snjó fyrir Vegagerðina og sveitarfé- lagið í fjölda ára. Fjölskylda Eiginkona Karls er Valgerður Kristjánsdóttir, f. 19.8. 1965, fjósa- kona og fjármálastjóri. Foreldrar hennar eru hjónin Steinunn Olga Ágústsdóttir, f. 27.7. 1935, bóksali og húsfreyja í Kaupangi í Öng- ulstaðahreppi, og Kristján Hann- esson, f. 16.4. 1928, d. 20.11. 2013, bóndi í Kaupangi. Fyrri kona Karls er Ina Laursen, f. 15.7. 1964, húsfreyja í Danmörku. Karl Guðmundsson bóndi á Mýrum 3 - 60 ára Fjölskyldan Hér eru Karl, dóttirin Olga Kristín og Valgerður á Selfossi að taka á móti nýjustu vélinni, Massey Ferguson 7726, síðasta haust. Best að vera sjálfstæður bóndi Nafnar Hér er Karl Guðmundsson föðurafi Karls yngri og alnafni. 30 ára Þorvarður ólst upp í Mos- fellsbæ. Hann er lög- fræðingur og starfar hjá skatta- og lög- fræðiráðgjöf Deloitte, en var áður lögmaður hjá Atlantik Legal Services. Helstu áhugamál Þorvarðar eru jaðartónlist, fjölskyldan, bækur og hjólabretti. Maki: Fabiola Prince, f. 1993, sagn- fræðingur og starfar hjá Menntasjóði námsmanna. Synir: Atlas Myrkvi, f. 2018, og Aron Mári, f. 2020. Foreldrar: Guðný Rósa Þorvarðardóttir, f. 1963, frkvstj. þjónustusviðs Heklu, og Ágúst Már Jónsson, f. 1960, heilsuþjálf- ari hjá Reykjalundi. Þorvarður Arnar Ágústsson Til hamingju með daginn Reykjavík Nökkvi Freyr Goðason fæddist 8. janúar 2020 kl. 22.33. Hann vó 3.950 g og var 53 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Goði Ómarsson og Sara Andrea Ólafsdóttir. Nýr borgari 30 ára Sólveig ólst upp á bænum Vatni í Skaga- firði en býr núna á Akureyri. Sólveig er sjúkraliði og einkaþjálf- ari. Helstu áhugamál Sólveigar eru líkams- rækt og samvera með fjölskyldunni. Maki: Máni Frímann Jökulsson, f. 1985, byggingafræðingur. Dætur: Selma Lárey, f. 2009, Guðrún María, f. 2011, og Matthildur Hrefna, f. 2018. Foreldrar: Guðrún H. Þorvaldsdóttir, f. 1961, Valgeir S. Þorvaldsson, f. 1960, bændur og forstöðumenn Vesturfara- setursins á Hofsósi. Þau búa á Vatni og reka ferðaþjónustu og Íslensku fána- saumastofuna á Hofsósi. Sólveig Erla Valgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.