Morgunblaðið - 07.12.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 07.12.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Flæðarmálið við Gróttu með sínu fjöl- breytta lífríki, í fjarska Snæfellsjökull á sífelldu undanhaldi og fjallahringur sem birta og veðrátta gefa sífellt nýj- an svip. Í þessu umhverfi verður starfsemi og aðalsýning Náttúru- minjasafns Íslands sem á dögunum var ákveðið að vera skuli á Seltjarn- arnesi. Nærri Nesstofu, utarlega á Nesinu, er 1.360 fermetra bygging sem þar hefur staðið fokheld frá 2007 og var upphaflega hönnuð og reist fyrir lækningaminjasafn. Áform um slíkt fóru út um þúfur og því þurfti að finna húsinu hlutverk við hæfi, sem nú er fundið. Nánd við náttúru, friðlýst svæði og menningarminjar „Staðsetningin er mjög eftirsókn- arverð fyrir náttúrufræðisafn,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands. Á Nesinu verði starfsemi í nánd við náttúru, friðlýst svæði og merkar menning- arminjar, en þó innan seilingar frá þjónustukjarna og þéttbýli höfuð- borgarsvæðis. Nálægð við náttúruna, fjöruna, hafið og Bakkatjörn býður einnig upp á ómælda möguleika til útikennslu á vegum safnsins. „Safnhúsið sjálft er glæsilegt mannvirki og mun stórbæta öll svið starfseminnar. Það má segja að ný- mælin felist í byltingu á aðstöðu til að sinna helstu grunnþáttum starfsem- innar; söfnun, rannsóknum, skrán- ingu, varðveislu og miðlun sem er þungamiðjan. Það er einnig kostur að framkvæmdir við að laga húsið að þörfum Náttúruminjasafnsins eiga ekki að taka nema um tvö ár og þang- að eigum við að geta flutt á fyrri hluta árs 2023,“ segir Hilmar. Efnistök sýningarinnar liggja ekki fyrir en Hilmar telur sennilegt að hafið og lífríki þess verði þar áherslu- mál. Tiltekur þar umfjöllun um fjör- una og sjávarlífríkið, þar með talið loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir lífríki og strandmenn- ingu. Í því sambandi sé meðal annars verið að spá í sjóbúr og lifandi sjáv- arverur, þörunga, smádýr og fiska. „Annað þema gæti tengst Nesstofu og tengslum milli náttúrufræða og læknavísinda. Þriðja áhugaverða þemað er sambúð manns og náttúru, en svæðið hefur verið mikið rann- sakað og þarna eru mjög athygl- isverðar forn- og mannvistarleifar, sumar hverjar að því er virðist frá því fyrir eiginlegt landnám.“ Nauðsynlegt er, að mati Hilmars, að uppi sé sýning þar sem brugðið sé ljósi með vandaðri og áhugaverðri miðlun á stórbrotna og gjöfula nátt- úru landsins. Náttúrulæsi skortir „Miðlunin hefur það að markmiði að efla skilning okkar á undrum, furð- um og gangverki náttúrunnar og gera okkur betur í stakk búin að njóta nátt- úrunnar og umgangast hana á sjálf- bæran hátt. Þetta er sérstaklega mik- ilvægt nú á tímum hnattrænna umhverfisbreytinga. Við höfum nú þegar dæmi um ósjálfbæra umgengni við náttúruna hér á landi og þá eru vísbendingar, meðal annars í PISA- könnunum, um ónógt náttúrulæsi meðal grunnskólanema,“ segir Hilm- ar og bætir við að í þessu efni hafi Náttúruminjasafn Íslands, sem rann- sókna- og fræðslustofnun, skyldum að gegna. Auk miðlunarstarfs sé sinnt verkefnum á sviði skráningar og varð- veislu og rannsóknir stundaðar eink- um á sviði líffræðilegrar fjölbreytni, náttúrusögu fyrri tíma og mannvist- fræði. Einnig sinnir safnið marg- víslegu útgáfustarfi. Svipur náttúru sífellt nýr  Náttúruminjasafn Íslands verður flutt á Seltjarnarnes  Eftirsóknarverð staðsetning nærri Gróttu  Efla skilning okkar á undrum, furðum og gangverki Morgunblaðið/Sigurður Bogi Seltjarnarnes Náttúruminjasafnið verður í húsinu fremst á myndinni sem hefur staðið fokhelt í áraraðir. Aftar og til hægri er Nesstofa, bústaður fyrsta landlæknisins, reist á árunum 1761-1767 og er eitt elsta húsið á Íslandi. Fræðsla Betur í stakk búin að njóta náttúru og umgangast á sjálfbæran hátt, segir Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands. Á vegum Náttúruminjasafns Ís- lands er uppi í Perlunni sýningin Vatnið í náttúru Íslands. Sú var opnuð 1. desember 2018, dag- inn þegar þess var minnst að öld var frá því Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Sýningin hefur mælst mjög vel fyrir og er vin- sæl. Hefur fengið erlend hönn- unarverðlaun fyrir nýsköpun og margmiðlunartækni, verið til- nefnd til Íslensku safnaverð- launanna og þá var slegið að- sóknarmet á fyrsta heila starfsárinu, 2019, þegar nær 200 þúsund gestir heimsóttu sýninguna. Stærstur hluti þeirra voru erlendir ferðamenn en Íslendingar, einkum barna- fjölskyldur og skólabörn, töldu um 40 þúsund manns. Á sýningunni eru tækifæri til þess að upplifa, sjá og skynja hvernig vatnið er óendanleg uppspretta og undirstaða alls í lífríkinu. Þá er veðráttu og ýmsu sem henni tengist gerð góð skil. „Skólarnir hafa verið duglegir við að nýta sér þjónustu safn- kennaranna sem taka á móti hópum í skipulögðum heim- sóknum. Kennararnir hafa einn- ig boðið upp á fjölskyldu- viðburði um helgar, en okkar góða starf í Perlunni verður fyr- irmynd þess hvernig starfa skal á Nesinu, þegar að því kemur,“ segir Hilmar J. Malmquist. Fyrirmynd í Perlunni SÝNING UM VATNIÐ Safnkennsla Þúsundir barna kynn- ast lífríkinu á sýningunni um vatnið. Múrbrjótur Landssamtakanna Þroskahjálpar var afhentur á alþjóð- legum degi fatlaðs fólks 3. desember sl. Athöfnin fór fram í streymi frá Grand hóteli. Að þessu sinni fengu tveir aðilar viðurkenninguna; vef- tímaritið Flóra og Landssamband ungmennafélaga, LUF. Þroskahjálp hefur veitt við- urkenningu á þessum degi frá árinu 1993 og Múrbrjótinn frá 1999. Við- urkenningin er veitt þeim sem að mati samtakanna hafa brotið niður múra í réttindamálum og viðhorfum til fatlaðs fólks, þannig að það fái tækifæri til að vera fullgildir þátt- takendur í samfélaginu. Veftímaritið Flóra fær Múrbrjót- inn fyrir að skapa vettvang þar sem reynsluheimur fatlaðra kvenna fær umfjöllun og honum lyft í femínískri umræðu, eins og segir í tilkynningu. LUF fær viðurkenninguna vegna framlags í þágu margbreytileikans og jafnra tækifæra fyrir ungt fólk. Viku eftir stofnun ungmennaráðs Þroskahjálpar var því boðin aðild að LUF, svo dæmi sé tekið. Múrbrjótar Geir Finnsson og Tinna Isebarn frá LUF og Steinunn Ólína Haf- liðadóttir og Berglind Brá Jóhannsdóttir frá Flóru með viðurkenningarnar. Flóra og LUF fengu Múrbrjótinn í ár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.