Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 14

Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ístjórnarsátt-mála rík-isstjórn- arinnar sagði að fjármagns- tekjuskattur yrði hækkaður í 22%, úr 20%, í upphafi kjör- tímabils „í því markmiði að gera skattkerfið réttlátara óháð uppruna tekna. Sam- hliða verður skattstofn fjár- magnstekjuskatts tekinn til endurskoðunar.“ Staðið var við skattahækkunarhluta þessarar yfirlýsingar en hitt, sem átti að gerast samhliða, hefur beðið síðan. Nú hefur fjármálaráðherra kynnt að úr því verði bætt og er það fagnaðarefni. Mikilvægt er að ríkisstjórnir standi við yfirlýsingar sínar og fyrir- heit gagnvart fólki og fyrir- tækjum í landinu enda gera þessir aðilar ráð fyrir því, jafnvel þó að stundum verði misbrestur á eða tafir á efnd- um. Í þessu tilfelli eins og öðrum gildir þó að betra er seint en aldrei. Mikið betra. Í því frumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu og lýtur að breytingu á lögum um tekjuskatt og fjármagns- tekjuskatt er ákvæði þar sem kveðið er á um að þeir sem selji sumarhús sem þeir hafi átt í fimm ár hið minnsta, geti selt þau án þess að skatt- skylda myndist, líkt og um íbúðarhúsnæði væri að ræða, með ákveðnum skilyrðum um stærðarmörk. Um leið slepp- ur fólk við skerðingu á tekju- tengdum bótum úr almanna- tryggingum þegar sumarhús er selt. Þetta er mikið hags- munamál, einkum fyrir fjölda eldra fólks sem átt hefur sumarhús lengi en vill nú eða beinlínis þarf að selja það vegna breyttra aðstæðna. Hingað til hefur það lent í skattgreiðslum og skerð- ingum en með þessari laga- breytingu hverfur sú skatt- skylda og verður það að teljast réttlætismál, töluvert jafnvel, eins og sést af því að í greinargerð með frumvarp- inu segir að ríkið muni vegna þessa missa tekjur á bilinu 600-700 milljónir króna á ári. Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að frítekju- mark vaxtatekna tvöfaldist, fari úr 150.000 krónum í 300.000 krónur og að það nái einnig til arðstekna og sölu- hagnaðar skráðra félaga. Þetta skiptir einnig máli, léttir skattgreiðslur almenn- ings auk þess að stuðla að fjárfestingum. Í grein í Morgunblaðinu á laugardag benti fjármálaráðherra á að með þessu yrði „auðveldara að ávaxta sparifé með fjölbreyttari hætti og á sama tíma er stuðlað að mikilvægri við- spyrnu fyrir efnahagslífið. Með þátttöku almennings á markaði fá íslensk fyrirtæki vind í seglin og geta ráðið og haldið starfsfólki. Ávinning- urinn er allra.“ Í greinargerð frumvarps- ins segir að áætlað sé að tekjur ríkissjóðs minnki ár- lega um 770 milljónir króna við þessa breytingu. Með áhrifum af öðrum breyt- ingum sem lagðar eru til í þessu frumvarpi segir í greinargerðinni að gert sé ráð fyrir því að heild- arlækkun tekna ríkissjóðs verði um 1,5-1,8 milljarðar króna á ári. Þessi lækkun er kærkomin en hana verður vitaskuld að skoða með hliðsjón af áhrif- um þeirrar hækkunar fjár- magnstekjuskattsins sem gerð var í upphafi kjör- tímabils. Í því frumvarpi sem lagt var fram fyrir þremur árum og hækkaði skattinn úr 20% í 22% kom fram að áhrif- in af hækkuninni á tekjur ríkissjóðs væru áætluð 1,6 milljarðar króna árið 2018 en 2,6 milljarðar króna árlega eftir það. Þegar horft er til þessara talna er ljóst að þær breyt- ingar sem nú eru lagðar til, þó að jákvæðar séu, duga ekki til að vega upp þau nei- kvæðu áhrif sem skatta- hækkunin árið 2017 hafði á skattgreiðendur. Þetta þarf ekki að koma á óvart. Skatt- greiðendur draga yfirleitt stutta stráið í samskiptum sínum við hið opinbera, sveit- arfélögin ekki síður en ríkið. Umsvif hins opinbera hafa tilhneigingu til að fara vax- andi, þar með talinn fjöldi opinberra starfa og skatt- byrðin að sjálfsögðu sömu- leiðis. Lækkun skatta geng- ur almennt hægt fyrir sig og kemur oftast í smáum skref- um ef hún næst fram á annað borð, en skattahækkanir lúta öðrum lögmálum. Þær eru gjarnan framkvæmdar án tafar og án nauðsynlegs hófs. Um leið og þessu skrefi er fagnað skiptir máli að hafa þetta í huga. Það ætti þingið að gera þegar það fjallar um málið. Það er svigrúm til að ganga enn lengra. Ríkið hyggst lækka skatta, en skatt- greiðendur eiga meira inni} Skref í rétta átt Þ ú sérð auglýsingu um drauma- starfið þitt í blaðinu. Starfið sem þú ert búin að búa þig undir í mörg ár. Staða dómara við Landsrétt! Þú sækir um og ert alveg viss um að þú verðir metin hæfust í starfið því þú þekk- ir til allra sem gætu sótt um og engin af þeim uppfyllir hæfniskröfur á sama hátt og þú. Allt gengur vel þangað til þú kemst að því að einn af umsækjendunum er þegar dómari við Lands- rétt. Skrítið, hugsar þú. Af hverju er einhver sem er þegar með dómarastöðu að sækja um starf- ið? Þú áttar þig fljótlega á því að viðkomandi dómari er mun hæfari en þú, aðallega út af reynslu sinni af dómarastörfum við Landsrétt, og niðurstaðan er því fyrirsjáanleg. Dómarinn fær „nýju“ stöðuna. En þá losnar önnur staða, þessi sem dómarinn fór úr til þess að fara í „nýju“ stöðuna? Eða hvað? Er þetta ekki bara sama staðan sem er laus þegar allt kemur til alls? Það eina sem kom út úr síðasta umsóknarferli var að það var enginn hæfari en sitjandi dómari. Draumastarfið er samt enn laust og þú sækir aftur um, en hvað gerist þá. Annar sitjandi dómari sækir um og aftur eru niðurstöð- urnar fyrirsjáanlegar. Og svo framvegis. Við þekkjum öll Landsréttarmálið. Fjórir dómarar voru skipaðir með geðþótta. Dómsmálaráðherra gat ekki rök- stutt að þeir fjórir dómarar hefðu verið hæfastir til þess að gegna þeirri stöðu. Þrátt fyrir þetta tóku dómararnir stöð- unum og unnu sér inn reynslu sem landsréttardómarar. Sú reynsla gerði þá síðan hæfari en umsækj- endur í nýjar stöður við Landsrétt síðar. Við skulum leggja þennan farsa til hliðar, að sitjandi dómarar sækist eftir því að setjast í auða stólinn til þess að hljóta einhvers konar lögfræðilega réttlætingu á ólöglegu skipuninni sem þeir fengu. Ef skipun þeirra var ólögleg þá er reynsla þeirra einnig ólöglega fengin. Þetta er hvítþvottur sem enginn á að falla fyr- ir. Ef dómararnir hefðu strax sagt af sér og komið sem umsækjendur um nýjar stöður án ólöglegar reynslu, þá væri þetta ekki vanda- mál. Vandamálið snýst nú um dómgreind. Hér er um að ræða dómara sem leggja sjálfir mat á eigið hæfi. Þessir dómarar vita að skipun þeirra var ólögleg en sitja samt sem fastast. Óbreyttir borgarar þurfa svo að mæta fyrir þessa dómara og treysta á dómgreind þessara dómara til þess að leysa mál sín. Þremur dómaranna finnst í fína lagi að fá smá hvítþvott en einn er enn í leyfi. Kannski af því að það er ekki búið að finna nægilega vel lyktandi hvítþvott enda var sá dómari metinn síst hæfur af þeim sem skipt var út, það tekur líklega aðeins lengri tíma að gera hann nægilega hæfan til þess að vera örugglega hæfari en allir aðrir umsækjendur. Eiga almennir borgarar ekki að geta treyst því að fólkið með bestu dómgreindina sitji í dómarasætinu? Hæfasta fólkið? bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Tveggja stóla tal Höfundur er þingmaður Pírata STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen félagi. Þannig að það er mjög mik- ilvægt að kortleggja mjög nákvæmlega hversu algengt þetta er og hversu mikil byrði þetta er á sam- félagið,“ segir Arnar. Fyrri rannsóknir á faraldsfræði langvinns nýrnasjúkdóms hafa bent til þess að heildaralgengi sjúkdóms- ins sé á bilinu 10 – 16%. Algengið fer hækkandi með vaxandi aldri. Arnar segir að það sé vafasamt að skil- greina væga skerðingu á nýrna- starfsemi sem langvinnan nýrna- sjúkdóm hjá eldra fólki. „Vegna þess að það verður ákveðin hnignun í nýrnastarfsem- inni með hækkandi aldri. Það sem fyrri rannsóknir hafa heldur ekki tekið tillit til er að til þess að stað- festa að um langvinnan nýrna- sjúkdóm sé að ræða þá verður þú að staðfesta að það sé sannarlega um að ræða langvinnt ástand. Þú verður að vera með skerðingu á nýrna- starfsemi í þrjá mánuði eða lengur,“ segir Arnar og heldur áfram: „Til þess þarftu að minnsta kosti tvær mælingar. Fyrri rann- sóknir hafa bara notað eina mæl- ingu. Við vildum sem sagt meta al- gengi langvinns nýrnasjúkdóms með því að taka tillit til annars vegar ald- urstengdrar hnignunar á nýrum og líka að maður taki tillit til þess að það sé um langvinnt ástand að ræða, að það séu að minnsta kosti til tvær mælingar fyrir hvern einstakling með þriggja mánaða millibili.“ Í umræddri rannsókn rannsök- uðu Arnar og samstarfsfólk hans tvær milljónir kreatínínmælinga sem voru gerðar á árunum 2008 – 2016 hjá fullorðnum Íslendingum. Þá náðu þau í upplýsingar um aldur, kyn, allar skráðar sjúkdómsgrein- ingar viðkomandi og fleira. Út frá gögnunum gátu þau svo metið al- gengi langvinns nýrnasjúkdóms á tímabilinu. Þá kom í ljós að aldurs- staðlað algengi, þ.e. algengi þar sem leiðrétt er fyrir mismunandi aldurs- dreifingu í mismunandi þýðum, var ekki nema 6%. „Þetta sýnir að ef þú staðfestir að sannarlega sé um langvinnt ástand sé að ræða með tveimur mæl- ingum þá er algengið sennilega mun lægra heldur en fyrri rannsóknir hafa sýnt. Við tókum þá líka tillit til þess að um aldurstengda hnignun væri að ræða og þá var algengið enn þá lægra eða 3,6%,“ segir Arnar. Með rannsókninni staðfestu rannsakendur að fyrri rannsóknir hafi ofmetið algengið, að sögn Arn- ars. „Næstu rannsóknir þurfa líka að taka tillit til þess að um langvinnt ástand sé að ræða. Fleiri rannsóknir þurfa þá líka að taka með í reikning- inn aldurstengda breytingu, hvert algengið er þá. Það virðist skipta gríðarlega miklu máli hvernig þú skilgreinir þetta.“ Rannsóknin var einn liður í doktorsverkefni Arnars um sjúk- dóminn. Næst sér hann fyrir sér að meta nýgengi og áhættuþætti og að lokum afdrif þeirra sem eru með langvinnan nýrnasjúkdóm. Algengi langvinns sjúkdóms ofmetið Morgunblaðið/Árni Sæberg Bráðamóttaka Arnar segir að það virðist skipta gríðarlega miklu máli hvernig langvinnur nýrnasjúkdómur sé skilgreindur í rannsóknum. BAKSVIÐ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ný íslensk rannsókn á al-gengi langvinns nýrna-sjúkdóms er sögð tíma-mótarannsókn sem gæti átt eftir að kollvarpa núverandi skil- greiningu á sjúkdómnum. Tvær milljónir kreatínínmælinga úr full- orðnum Íslendingum voru greindar í rannsókninni. Rannsóknin var birt í vísindaritinu Kidney International. Á meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós er að algengi langvinns nýrnasjúkdóms hefur verið ofmetið í fyrri rannsóknum þar sem ekki hef- ur verið staðfest að um viðvarandi skerðingu á nýrnastarfsemi sé að ræða og að ekki hafi verið tekið nægjanlegt tillit til aldurstengdra breytinga á nýrnastarfsemi. Því hef- ur samfélagsleg byrði sjúkdómsins verið ofmetin. Langvinnur nýrnasjúkdómur er regnhlífarhugtak yfir marg- víslega langvinna nýrnasjúkdóma og einkennist af skerðingu á nýrna- starfsemi eða öðrum teiknum um nýrnaskemmdir í þrjá mánuði eða lengur. „Þegar við metum nýrna- starfsemi metum við það út frá því sem kallast gaukulsíunarhraði. Í nýrunum eru gauklar sem sía blóðið og búa til þvag. Við reynum að áætla hversu vel nýrun gera þetta. Til þess mælum við efni í blóði sem heitir kreatínín og út frá því þá reiknum við þennan gaukulsíunarhraða og þá getum við séð hvernig starfsemi nýrnanna er, hvort hún sé skert eða eðlileg,“ útskýrir Arnar Jan Jóns- son, læknir og doktorsnemi við Há- skóla Íslands. Hann fór fyrir rann- sókninni undir handleiðslu Ólafs Skúla Indriðasonar nýrnalæknis og Runólfs Pálssonar, nýrnalæknis og prófessors. Mikilvæg kortlagning Langvinnur nýrnasjúkdómur getur leitt til lokastigs nýrnabilunar sem getur þýtt að fólk þurfi á blóð- skilunarmeðferð að halda. Hún er bæði íþyngjandi fyrir þann sem á henni þarf að halda og kostn- aðarsöm fyrir samfélagið. „Þetta er líka mjög stór áhættu- þáttur fyrir hjarta- og æðasjúkdóma sem er náttúrulega ein af algeng- ustu dánarorsökum í okkar sam-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.