Morgunblaðið - 07.12.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Rúnar Kárason, leikmaður Ribe-
Esbjerg, hefur verið valinn leik-
maður nóvembermánaðar í dönsku
úrvalsdeildinni í handknattleik.
Rúnar skoraði 23 mörk í þremur
leikjum í mánuðinum, auk þess að
gefa níu stoðsendingar fyrir sam-
herja sína. Ribe-Esbjerg er í 12.
sæti af 14 liðum í deildinni með 9
stig eftir 15 leiki. Þrátt fyrir að lið-
inu hafi ekki gengið nægilega vel á
tímabilinu hefur Rúnar spilað afar
vel. Rúnar er í 3.-4. sæti yfir marka-
hæstu leikmenn deildarinnar með
77 mörk
Rúnar leikmað-
ur mánaðarins
Morgunblaðið/Hari
Flug Rúnar Kárason er á miklu
flugi í dönsku úrvalsdeildinni.
Noregur gerði sér lítið fyrir og
vann 42:23-sigur á Þýskalandi á
Evrópumóti kvenna í handbolta í
Danmörku á laugardag. Noregur
er með fullt hús stiga í D-riðli eftir
tvær umferðir. Nora Mørk fór á
kostum hjá norska liðinu og skoraði
12 mörk. Camilla Herrem bætti við
sjö. Xenia Smits og Emily Bolk
skoruðu fjögur hvor fyrir Þýska-
land. Þórir Hergeirsson þjálfar
norska liðið.
Noregur mætir Rúmeníu í loka-
leik liðsins í riðlinum í kvöld klukk-
an 19:30.
Stýrði Noregi til
stórsigurs
Ljósmynd/EHF
Öflug Nora Mørk skoraði 12 mörk
fyrir norska liðið í stórsigri.
ÍTALÍA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnukonan Guðný Árnadóttir
skrifaði undir tveggja og hálfs árs
samning við ítalska stórliðið AC Mil-
an um helgina.
Guðný, sem er tvítug að árum,
kemur til félagsins frá Val þar sem
hún hefur leikið frá árinu 2019 en hún
varð Íslandsmeistari með liðinu sum-
arið 2019.
Miðvörðurinn hefur verið einn
besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna
undanfarin ár, en þegar hún var sex
ára gömul þurftu foreldrar hennar
hálfpartinn að múta henni til þess að
mæta á fyrstu knattspyrnuæfing-
arnar á Hornafirði.
Hún hefur blómstrað í íþróttinni
síðan og á að baki 83 leiki í efstu deild
með FH og Val þar sem hún hefur
skorað sex mörk.
„Ég er fyrst og fremst ánægð að
vera búin að skrifa undir hjá AC Mil-
an og það er gott að vera búin að
koma þessu frá,“ sagði Guðný í sam-
tali við Morgunblaðið en kvennalið
AC Milan var stofnað í júlí 2018.
„Mér leist virkilega vel á þá upp-
byggingu sem átt hefur sér stað hjá
félaginu að undanförnu. Deildin er
alltaf að stækka og hlutirnir hafa
gerst ansi hratt á Ítalíu síðustu ár.
Mér fannst þetta vera gott skref fyrir
mig á þessum tímapunkti þar sem ég
er sjálf að stíga mín fyrstu skref á at-
vinnumannaferlinum og ég held að
það muni henta mér vel að spila í
þessari deild.
Ég var mjög hrifin af hugmyndum
þjálfarans Maurizio Ganz um það
sem hann vill gera með liðið og hvern-
ig hann sér hlutina fyrir sér í kom-
andi framtíð. Ég ræddi líka við Berg-
lindi Björgu [Þorvaldsdóttur] um
tíma hennar hjá félaginu og hún hafði
ekkert nema gott um þetta að segja.
Ég vissi því að hverju ég gekk þegar
ég skrifað undir,“ bætti Guðný við.
Fær reynslu í Napólí
Guðný mun leika með Napólí í
ítölsku A-deildinni á láni á keppn-
istímabilinu og snúa aftur til AC Mil-
an í maí á næsta ári.
„Planið var alltaf að ég myndi fara
til Napólí um leið og ég væri búin að
skrifa undir í Mílanó. Það eru níu um-
ferðir búnar á tímabilinu og allt liðið
hefur verið að spila mjög vel. Varn-
arleikurinn hefur verið mjög þéttur
og liðið hefur aðeins fengið á sig fjög-
ur mörk til þessa, fæst allra liða. Það
er því lítið tilefni fyrir þjálfarann að
fara að hreyfa mikið við liðinu á með-
an hlutirnir hafa gengið svona vel.
Það hentar því vel að ég fari til Na-
pólí og klári tímabilið þar. Það er ým-
islegt sem ég þarf að koma mér inn í,
eins og tungumálið sem dæmi. Fót-
boltinn hérna er öðruvísi en fótbolt-
inn heima á Íslandi og þetta er því
frábært tækifæri til þess að öðlast
reynslu. Ég vonast auðvitað til þess
að fá spiltíma með liðinu en ég geri
mér líka grein fyrir því að ég er ekki
að fara að labba beint inn í byrj-
unarliðið.“
Napólí hefur ekki gengið sem
skyldi það sem af er tímabils en liðið
er með 1 stig í tólfta og neðsta sæti
deildarinnar eftir fyrstu níu umferð-
irnar.
„Ég horfði á leik liðsins gegn Ju-
ventus um helgina og þær voru miklu
betri í fyrri hálfleik. Þær komust yfir
en Juventus voru sterkari undir rest-
ina og unnu 2:1-sigur. Það er samt
hellingur spunnið í þetta Napólí-lið
þótt staða þeirra í deildinni sé erfið.
Þær spila taktískan fótbolta sem mér
líst mjög vel á en úrslitin hafa ekki
verið að detta með þeim sem gerist
oft þegar lið byrja að ströggla aðeins.
Það er mikilvægur leikur um
næstu helgi gegn Hellas Verona og sá
leikur gæti skipt sköpum í baráttunni
um sæti í deildinni. Það væri því mjög
gaman að fá tækifæri í þeim leik en
það er að sjálfsögðu undir þjálf-
aranum komið.“
Stefnir á stöðugleika
Guðný er nýkomin aftur til Napólí
eftir að hafa tekið þátt í lokaleikjum
íslenska kvennalandsliðsins gegn Sló-
vakíu og Ungverjalandi í und-
ankeppni EM.
„Ég hef í raun ekki fengið mikinn
tíma til að koma mér eitthvað sér-
staklega fyrir. Ég fór fyrst til Mílanó,
svo til Napólí, svo í landsliðsverkefni
og er nú komin aftur til Napólí. Það
er allt lokað hérna nema mat-
vörðubúðir og apótek þannig að það
er lítið hægt að gera. Ítalirnir eru að
vonast til þess að geta opnað ein-
hverjar verslanir á næstu dögum en
eins og staðan er í dag er bara grímu-
skylda hér og hálfgert útgöngubann í
gildi.
Ég er búin að vera að mæta á æf-
ingar á hverjum degi sem er alveg
smá viðbrigði frá því sem maður er
vanur heima, það er að segja að geta
bara einbeitt sér að fótboltanum. Ég
hef lítið getað skoðað borgina en það
kemur vonandi með tíð og tíma.“
Kvennalandsliðið tryggði sér sæti í
lokakeppni EM á dögunum eftir sig-
ur gegn Ungverjalandi í Búdapest og
vonast Guðný til þess að vera í hópn-
um sem fer til Englands sumarið
2022.
„Framtíðarplanið hefur alltaf verið
að gera sig gildandi í landsliðinu og fá
hlutverk í liðinu. Ég var samt sem áð-
ur ekki að skrifa undir hjá AC Milan
til þess að reyna að auka möguleika
mína með landsliðinu. Ég þarf að
spila vel með mínu félagsliði, ef ég vil
gera mig gildandi í landsliðinu, og
þegar allt kemur til alls snýst þetta
fyrst og fremst um að standa sig vel á
knattspyrnuvellinum.
Það eru tvö ár í lokamótið og ef ég
ætla mér að vera í hópnum sem fer á
lokamótið þarf ég að ná upp stöð-
ugleika á Ítalíu. Kannski hentar það
mér ágætlega að fá eitt auka ár til
þess að koma mér inn í hlutina hérna,
með EM til hliðsjónar.“
Þá vonast miðvörðurinn til þess að
komast heim til Íslands yfir hátíð-
irnar eftir annasamar vikur.
„Eitt af mínum markmiðum var að
komast í atvinnumennsku, það tókst,
og nú taka bara við önnur og stærri
markmið. Eftir næstu helgi kemur
rúmlega mánaðar hlé og ég vonast til
þess að komast heim yfir jólin. Ég
þarf að taka í kringum þrjú flug frá
Napólí til Íslands og þetta verður
eitthvert púsluspil en það verður gott
að geta eytt jólunum á Íslandi eftir
viðburðaríkar síðustu vikur.“
Frá Sindra á Hornafirði
til stórliðs AC Milan
Guðný Árnadóttir skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning á Ítalíu
Morgunblaðið/Eggert
Vörn Guðný Árnadóttir lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Ísland gegn Noregi í vináttulandsleik í janúar 2018.
Guðný Árnadóttir
» Fæddist 4. ágúst 2000.
» Uppalin hjá Sindra á Horna-
firði en gekk til liðs við FH árið
2013.
» Gekk til liðs við Val eftir
tímabilið 2018 og varð Íslands-
meistari með liðinu árið 2019.
» Á að baki 8 A-landsleiki og
48 landsleiki fyrir yngri lands-
lið Íslands.
England
Burnley – Everton....................................1:1
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í
leikmannahópi Burnley.
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem
varamaður á 81. mínútu hjá Everton.
Tottenham – Arsenal ...............................2:0
Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann
á bekknum hjá Arsenal.
Manchester City – Fulham ......................2:0
West Ham – Manchester United.............1:3
Chelsea – Leeds ........................................3:1
WBA – Crystal Palace ..............................1:5
Sheffield United – Leicester ....................1:2
Liverpool – Wolves ...................................4:0
Staðan:
Tottenham 11 7 3 1 23:9 24
Liverpool 11 7 3 1 26:17 24
Chelsea 11 6 4 1 25:11 22
Leicester 11 7 0 4 21:15 21
Manch.Utd 10 6 1 3 19:17 19
Manch.City 10 5 3 2 17:11 18
West Ham 11 5 2 4 18:14 17
Southampton 10 5 2 3 19:16 17
Everton 11 5 2 4 20:18 17
Wolves 11 5 2 4 11:15 17
Crystal Palace 11 5 1 5 17:16 16
Aston Villa 9 5 0 4 20:13 15
Newcastle 10 4 2 4 12:15 14
Leeds 11 4 2 5 16:20 14
Arsenal 11 4 1 6 10:14 13
Brighton 10 2 4 4 14:16 10
Fulham 11 2 1 8 11:21 7
Burnley 10 1 3 6 5:18 6
WBA 11 1 3 7 8:23 6
Sheffield Utd 11 0 1 10 5:18 1
B-deild:
Millwall – Derby .......................................0:1
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 76. mínútu hjá Millwall.
C-deild:
Fleetwood – Blackpool ............................0:1
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Blackpool.
Noregur
Bodö/Glimt – Stabæk ..............................5:2
Alfons Sampsted lék allan leikinn hjá
Bodö/Glimt.
Brann – Sarpsborg...................................1:1
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn hjá
Brann.
Strömgodset – Haugesund......................2:2
Valdimar Þór Ingimundarson spilaði
fyrstu 71 mínútuna hjá Strömsgodset og
Ari Leifsson kom inn á sem varamaður á
71. mínútu.
Sandefjord – Viking.................................2:2
Viðar Ari Jónsson kom inn á sem vara-
maður á 66. mínútu hjá Sandefjord og Emil
Pálsson á 81. mínútu.
Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik-
inn með Viking en Axel Óskar Andrésson
var allan tímann á bekknum.
Molde – Aalesund .....................................2:1
Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Aalesund.
Vålerenga – Arna-Björnar......................4:0
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga, skoraði og varð norsk-
ur meistari.
B-deild:
HamKam – Lilleström .............................1:1
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék allan tím-
ann hjá Lilleström og skoraði. Arnór
Smárason og Björn Bergmann Sigurðar-
son voru ekki í leikmannahópnum.
Svíþjóð
Malmö – Östersund ..................................4:0
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn
hjá Malmö.
Norrköping – Helsingborg .....................3:4
Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan
með Norrköping og lagði upp mark.
Frakkland
Le Havre – Lyon .......................................1:3
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna
Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn
með Le Havre.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 70
mínúturnar með Lyon.
Ítalía
Inter Mílanó – Bologna............................3:1
Andri Fannar Baldursson var allan tím-
ann á varamannabekk Bologna.
C-deild:
Ravenna – Padova....................................1:3
Emil Hallfreðsson kom inn á sem vara-
maður á 72. mínútu hjá Padova
Danmörk
Vejle – Midtjylland ...................................0:2
Mikael Anderson lék fyrstu 89 mínút-
urnar með Midtjylland.
B-deild:
Fremad Amager – Viborg.......................1:1
Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan leik-
inn með Viborg.
Pólland
Jagiellonia – Warta Poznan ....................4:3
Böðvar Böðvarsson kom inn á sem vara-
maður á 63. mínútu hjá Jagiellonia.
Grikkland
PAOK – Asteras Tripolis.........................2:0
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með
PAOK.
Rússland
CSKA Moskva – Khimki ..........................2:2
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn hjá CSKA Moskvu og Arnór Sig-
urðarson var allan tímann á bekknum.
KNATTSPYRNA