Morgunblaðið - 22.12.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir barning í rysjóttri tíð síðustu
vikur var ráðgert að hefja löndun úr
Sólbergi ÓF 1, frystiskipi Ramma
hf., á Siglufirði árdegis í dag. Að
baki er metár hjá skipstjórunum,
Sigþóri Kjartanssyni og Trausta
Kristinssyni, og áhöfnum þeirra á
þessum stærsta togara Íslendinga
þar sem allur afli er fullunninn og
frystur um borð.
Afli ársins fór yfir 14 þúsund
tonn af bolfiski upp úr sjó, nokkuð
sem íslenskt skip hefur tæpast gert
áður, og er aflinn um 500 tonnum
meiri en í fyrra. Aflaverðmæti ársins
er um 5,7 milljarðar. Úthaldsdagar á
árinu eru 323 og framundan er kær-
komið jólafrí.
Flúðu undan veðri
Sólbergið var við bryggju í
Krossanesi þegar rætt var við Sig-
þór Kjartansson í gærmorgun. Síð-
asti túr ársins byrjaði að morgni 20.
nóvember og aflinn var rúmlega
þúsund tonn af slægðum fiski að
verðmæti um 470 milljónir.
„Þetta gekk bara nokkuð vel í
þessum síðasta túr ársins þrátt fyrir
erfitt veður á köflum,“ segir Sigþór
skipstjóri. „Við þurftum oft að flýja
undan veðri og Vestfjarðamið hafa
nánast verið lokuð í tvær vikur. Við
vorum þess vegna hérna fyrir norð-
an og norðaustan land, en hefðum
frekar viljað vera fyrir vestan. Þar
er hagstæðari slóð fyrir okkur sem
erum að hugsa um blandaðan afla,
en ekki bara þorsk.“ Aðspurður seg-
ir Sigþór að þeir hafi séð loðnu í fisk-
inum, en þó ekki í miklum mæli.
Sólbergið sækir á hefðbundin
togaramið við landið, en hefur síð-
ustu ár farið í tvo túra í Barents-
hafið, einn í norska lögsögu í febrúar
og annan í rússneska að sumri til.
Sigþór reiknar með að vera í fríi í
janúar, en fara svo í túr í Barents-
hafið.
Þarf að hafa fyrir þessu
Um aflabrögð segir Sigþór að
ástæðulaust sé að kvarta en fisk-
urinn sé ekki eins auðveiðanlegur og
fyrir 5-10 árum. „Ég held að það sé
almennt skoðun skipstjórnarmanna
að það þurfi að hafa fyrir þessu.
Þetta er ekki eins og fyrir nokkrum
árum þegar menn fóru bara og sóttu
fiskinn og þurftu að passa sig á að fá
ekki of stór hol.
Undanfarið hefur stór floti ver-
ið fyrir norðan land að leita að fiski.
Ef einhver finnur eitthvað safnast
mörg skip í hnapp og elta þá torfu
þangað til hún er búin eða fiskurinn
kemst undan. Hrotan stendur ekki
lengi og þá þarf að byrja að leita upp
á nýtt. Austfjarðamiðin hafa verið
sérlega treg síðustu vikur og Vest-
fjarðamiðin strembin vegna veðurs,“
segir Sigþór.
Brugðist við óskum kaupenda
Sólbergið kom nýtt til landsins í
maí 2017, en skipið var smíðað í
Tyrklandi. Það er tæplega 80 metra
langt, 15,4 metrar á breidd og 3.720
brúttólestir. 34-35 eru í áhöfn Sól-
bergs hverju sinni. Aflinn er fullunn-
inn um borð og segir Sigþór að
nokkrum sinnum í túr komi breytt
áætlun frá sölustjóra Ramma í sam-
ræmi við óskir kaupenda, hvort sem
það varði hnakka, flök eða bita og þá
sé brugðist við því. Allur fiskurinn
sé nýttur og segir Sigþór að verð-
mæti lýsis og mjöls sé á milli 20-30
milljónir eftir hvern túr.
Góðan árangur í veiðum og
vinnslu þakkar Sigþór góðum afla-
heimildum, samhentum og sterkum
mannskap og öflugu skipi. „Þetta er
feiknamikið og gott skip og mikill
munur að vera á svona skipi heldur
en gamla Mánaberginu, þó það hafi
verið gott skip. Sólbergið fer miklu
betur með mann í erfiðum veðrum,
er öflugra á allan hátt og aðbúnaður
mannskapsins er mjög góður,“ segir
Sigþór.
Skimað vegna kórónuveiki
Í vor og fyrir tvær síðustu veiði-
ferðir hafa allir skipverjar á Sól-
berginu verið skimaðir vegna kór-
ónuveikinnar. Ævinlega hafa allir
verið neikvæðir en eftir nokkra daga
á sjó í síðasta túr hafi farið að bera á
einhverjum einkennum.
Þá var skipið að veiðum úti fyrir
Vestfjörðum og var ákveðið að sigla
til Reykjavíkur í sýnatöku. Niður-
staðan var að um venjulega haust-
flensu eða kvefpest hefði verið að
ræða en ekki kórónuveikina og segir
Sigþór að mönnum hafi verið létt
þegar sú niðurstaða lá fyrir.
Metár Sólbergsins og
afli yfir 14 þúsund tonn
Í vinnslunni Fiskurinn er unninn í samræmi við óskir kaupenda, hásetarnir
Þorgeir Örn Sigurbjörnsson og Björgvin Pálsson kunna handtökin.
Aflaverðmætið 5,7 milljarðar Rysjótt tíð síðustu vikur
Ljósmyndir/Hjalti Gunnarsson
Metár Sigþór Kjartansson skipstjóri og Einar Númason fyrsti stýrimaður afslappaðir í brú Sólbergsins.
Áður en haldið var í síðasta túr ársins var Sigþór skipstjóri búinn að
skreyta húsið sitt að utan. „Ég fór að tilmælum um að lýsa upp tímanlega
og byrjaði að setja upp seríur utanhúss um miðjan nóvember.
Konan sér hins vegar um innanhússarkitektúrinn og ég á frekar von á
að búið verði að pakka inn jólagjöfunum þegar ég kem heim og gera
mestallt tilbúið fyrir jólin. Það er venjulega þannig hjá okkur sem róum
þessa desembertúra að maður kemur heim í höllina klára,“ segir Sigþór,
en hann býr á Akureyri ásamt Sigríði Jóhannsdóttur, konu sinni.
„Kemur heim í höllina klára“
JÓLAUNDIRBÚNINGUR
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær,
Selfoss og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum – Egilsstöðum
• Kram – Stykkishólmi
• Fok – Borgarnesi
• Versl. Kristall – Neskaupsstað
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf