Morgunblaðið - 22.12.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 22.12.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 Sveitarstjórnir þeirra fimm sveitar- félaga á Suðurlandi sem verið hafa í könnunarviðræðum um samein- ingu í eitt sveitarfélag hafa allar samþykkt samhljóða að ganga til formlegra viðræðna um samein- ingu. Miðað er við að tillaga um sameiningu verði lögð fyrir íbúana á næsta ári. Að viðræðunum standa Skaft- árhreppur, Mýrdalshreppur, Rang- árþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur. Tillaga verkefnishóps „Sveitar- félagsins Suðurlands“ var tekin fyr- ir á fundum sveitarstjórnanna nú í desember, síðast í Mýrdalshreppi. Hún var alls staðar samþykkt og jafnframt var ákveðið að sömu fulltrúar muni vinna að málinu á næsta stigi. Viðræðurnar hefjast í byrjun nýs árs. Sveitarstjórnirnar lýsa því yfir í bókunum sínum að ekki verði nýtt heimild í sveitarstjórnarlögum um að þótt íbúar eins sveitarfélags hafni sameiningu geti hin samein- ast að uppfylltum öðrum skilyrðum. Í því felst að ef íbúar eins sveitar- félags fella tillöguna gangi hin fjög- ur ekki til sameiningar án nýrrar atkvæðagreiðslu. helgi@mbl.is Formlegar viðræður um sameiningu á Suðurlandi Kuldaskór Verð 22.995 Stærðir 36-47 Vatnsheldir Innbyggðir broddar í sóla SMÁRALIND www.skornir.is Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Ten Points Pandora 32.990 kr. Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. Enzymedica býður uppá öflugustu meltingarensímin á markaðnum einungis eitt hylki með máltíð getur öllu breytt. Meltingarónot, uppþemba, vanlíðan, röskun á svefni og húðvandamál eru algengir fylgifiskar þegar gert er vel við sig í mat og drykk. ■ Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans. ■ Betri melting, meiri orka, betri líðan! ■ 100% vegan hylki. ■ Digest Basic hentar fyrir börn Gleðilega meltingu Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að dagana þrjá þar á undan hefðu 33 greinst með kórónuveiruna hér innanlands. Af þeim voru tólf utan sóttkvíar. Þeir sem greindust smitaðir tengdust vinahópum og gekk vel að rekja flest smitanna. Lítið þarf til að afturkippur komi í faraldurinn, að því er kom fram á fundinum. Vísbendingar eru um að faraldurinn sé á uppleið. Tölur næstu daga munu skera úr um það. Fólk er hvatt til að halda sig heima, hugsa hvert um annað og tryggja hvert öðru gleðileg jól. Á Landspítalanum voru í gær fimm sjúklingar með virkt Co- vid-19-smit og 29 sem höfðu lokið einangrun. Þar af voru tveir á gjör- gæslu, einn var í öndunarvél og hinn hafði lokið einangrun. Í þriðju bylgju faraldursins hafa 17 látist á Landspítalanum en alls hafa 28 lát- ist hér innanlands vegna sjúkdóms- ins. Í gær voru 134 sjúklingar í eft- irliti Covid-19-göngudeildar og þar af voru 35 börn. Víðir Reynisson yfirlögreglu- þjónn er aftur kominn til starfa og var á upplýsingafundinum í gær. Hann sagði hug sinn hafa verið hjá Austfirðingum og sérstaklega Seyð- firðingum undanfarna daga. Mikil mildi væri og raunar ótrúlegt að enginn skuli hafa látist eða slasast alvarlega í aurskriðunum. Hann sagði að mikið tjón hefði orðið á eignum og innviðum og ekki væru öll kurl komin til grafar í þeim efn- um. Alma Möller tók undir orð Víðis og sendi Seyðfirðingum og Austfirð- ingum hlýjar baráttukveðjur. Smitin tengd vinahópum  Vísbendingar eru um að kórónu- veirufaraldurinn geti verið á uppleið Ljósmynd/Almannavarnir Upplýsingafundurinn Víðir mætti. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra heimilar að opnað verði á staðnám í framhaldsskólum að nýju. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar og gildir til 28. febrúar nk. Hún tekur mið af minnisblaði sótt- varnalæknis en þar kemur fram að tillögur hans séu settar fram með þeim fyrirvara að ástand faraldurs- ins verði ekki verra við upphaf nýrrar annar en nú er. Í samhengi við litaflokkað viðvör- unarkerfi fyrir skólastarf er ráð- gert að skólastarf hefjist á appelsínugulum, að því er fram kemur í tilkynningu. 30 saman í rými Heimilt verður að hafa samtals 30 nemendur og starfsmenn saman í rými í framhaldsskólum. Blöndun nemenda milli hópa er heimil. Sé ekki unnt að tryggja tveggja metra reglu ber nemendum og starfsfólki að nota grímu. Sömu reglur gilda um lýðskóla, ungmennahús og framhaldsfræðslu. „Þetta er frábært skref og ég fagna því að framhaldsskólanemar muni geta snúið aftur í skólabygg- ingar og stundað sitt nám í meiri nálægð og samfélagi hvert við ann- að. Ég treysti skólasamfélaginu til þess að vinna innan þessarar til- slökunar – sem er kærkomin á öll- um skólastigum. Við munum sem fyrr gæta vel að sóttvörnum og hafa allan vara á; þetta er sam- vinnuverkefni okkar allra og við fylgjumst vitanlega vel með stöð- unni og þróun mála,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra um málið. Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er bent á að á þessum tímapunkti hafi náðst sæmilega góð tök á faraldrinum en þó séu vísbendingar síðustu daga um að hann gæti verið á uppleið. Ljóst sé að staða faraldursins kunni að verða önnur við upphaf nýs skólatímabils í janúar sem geti kallað á endurskoðun á reglugerð- inni. Framhaldsskólar geta hafið staðnám

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.