Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 14

Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 22. desember 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.56 Sterlingspund 172.24 Kanadadalur 100.01 Dönsk króna 21.023 Norsk króna 14.871 Sænsk króna 15.433 Svissn. franki 144.22 Japanskt jen 1.2344 SDR 184.13 Evra 156.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.2773 Hrávöruverð Gull 1878.95 ($/únsa) Ál 2049.0 ($/tonn) LME Hráolía 51.43 ($/fatið) Brent Hún segir aðspurð að það hafi verið brött kúrfa að læra allt er snýr að markaðssetningu og viðskiptum á stuttum tíma, eftir langan feril í vís- indasamfélaginu, en mjög ánægjulegt engu að síður. TARAMAR-snyrtivörurnar hafa verið á íslenska markaðinum ein- göngu síðan 2015. Það gæti þó breyst á næsta ári. „Ísland er einskonar prufumarkaður fyrir okkur áður en við höldum út í heim. Í júlí síðastliðn- um fórum við að huga að markaðs- sókn til útlanda af fullri alvöru, og er- um til dæmis komin með samning við kínversku verslunarsíðuna Taobao. Við stefnum á að fara með vöruna til Suður-Kóreu, Japans og Taívans á næsta ári. Við erum að leita að fjár- festum í það verkefni.“ TARAMAR á nú einnig í sam- starfsviðræðum við mjög stóra aðila í Evrópu, þar á meðal eitt þekktasta tískuhús í heimi. „Það myndi byrja á rannsóknarsamstarfi, og síðan kæmu þeir meira og meira inn, eða keyptu félagið í heild sinni. Við erum með sterka milliliði okkur til aðstoðar sem þekkja mjög vel til í bransanum.“ Fjórfölduðu söluna TARAMAR er í dag, eftir að öll sala í Leifsstöð stöðvaðist vegna far- aldursins, nær eingöngu selt á netinu. „Við erum með 2.000 manna vildar- klúbb, og höfum fjórfaldað söluna á þessu ári í gegnum hann.“ Framleiðsla fer fram í Sandgerði í sama húsi og bæjarstjórnarskrifstof- urnar eru í. „Við fengum dálítið af peningum fyrir einu og hálfu ári og notuðum þá til að skala upp fram- leiðsluna. Við erum með mjög vand- aðar ítalskar vélar sem geta framleitt allt að 40 þúsund einingar á mánuði.“ Spurð nánar um fjármögnun fé- lagsins segir Guðrún að ýmsir minni fjárfestar hafi lagt félaginu lið. Þá hafi Eignarhaldsfélag Suðurnesja staðið við bakið á fyrirtækinu, auk Háskóla Íslands eins og fyrr sagði. Guðrún segir að staðan núna sé mjög spennandi. Hún finni fyrir mikl- um áhuga. „Ég finn að við erum að fara inn í gríðarlega hratt vaxtarferli. Ef svo færi að við seldum félagið í heild sinni þá þyrfti það að vera til einhvers með svipaða framtíðarsýn og við erum með. Við viljum helst að fyrirtækið verði áfram á Íslandi. Við teljum það jafnvel nauðsynlegt gæðanna vegna, til dæmis hvað varð- ar notkun á íslenska vatninu.“ Fimm starfsmenn eru hjá TARA- MAR en þeir voru ellefu áður en far- aldurinn fór af stað. „Um leið og nýtt fjármagn kemur inn munum við bæta við fólki.“ Hratt vaxtarferli framundan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Húðvörur TARAMAR-vörurnar fást á netinu, en einnig í Íslandsapóteki, Hagkaupum, Sápu og Lyfsalanum. Þróun » Byggjast á áratuga rann- sóknum og eru unnar úr þangi og lækningajurtum. » Viðræður um sölu til Evr- ópu, Suður-Kóreu, Taívans og Japans. » Taobao er í eigu kínverska verslunarrisans Alibaba og er samkvæmt Alexa 8. vinsælasta vefsíða í heimi. » Framleitt í Sandgerði.  Markaðssókn til Asíu á næsta ári  Eiga í viðræðum við stórt alþjóðlegt tískuhús  Fjöldi verðlauna BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þegar blaðamaður hringdi í hjónin Guðrúnu Marteinsdóttur og Krist- berg Kristbergsson til að fræðast um velgengni TARAMAR-snyrtivaranna voru þau á fjarfundi með ísraelskum samstarfsaðilum þar sem rædd var markaðssókn inn í Asíu á næsta ári. Klukkutíma síðar gátum við Guð- rún ræðst betur við, en þau hjónin unnu nýverið til gull- og silfurverð- launa á Global Makeup Awards fyrir vörurnar sem þau framleiða. Þar báru þau sigurorð af hundruðum annarra húðvörumerkja. Varan var valin „Best Organic Beauty Brand“ og fékk fyrsta sæti fyrir næturkrem og útlit og hönn- un pakkninga og silfurviðurkenningar fyrir augnkrem og hreinsiolíu. Guðrún er prófessor í fiskifræði við Háskóla Íslands en Kristberg er pró- fessor í matvælafræði við sama skóla. Vörurnar byggjast á áratuga rann- sóknum hjónanna og eru unnar úr þangi og lækningajurtum. „Reyndar vorum við að fá ein verð- laun til viðbótar, hin bresku Baby and Toddlers Awards, þar sem barnavör- ur eru verðlaunaðar sérstaklega. Við fengum gull fyrir eina formúlu og silf- ur fyrir tvær,“ segir Guðrún. Hún seg- ir þessi verðlaun mjög mikilvæg því erfitt sé að markaðssetja barnavörur. Þar þurfi traustið að vera enn meira en gagnvart húðvörum fyrir fullorðna. „Það hefur verið mikil spurn eftir hreinum vörum eins og okkar fyrir börn. Þó að vörur séu auglýstar fyrir börn, þá eru í þeim allskonar rotvarn- ar-, stöðugleika- og sleipiefni sem eru ekki góð fyrir ungviðið. Við höfum þróað nýja leið til að búa til húðvörur án þessara aukaefna. Börnin geta meira að segja smjattað á efnunum á meðan verið er að skipta á þeim,“ seg- ir Guðrún og brosir, en bætir við að vörurnar séu samt ekki matvörur, þótt þær séu tæknilega ætar. Háskólinn er hluthafi Þau Guðrún og Kristberg starfa bæði við fyrirtækið, en eru enn í hlutastörfum fyrir HÍ sem er hlut- hafi í fyrirtækinu. „Þarna er háskól- inn að virka mjög rétt að mínu mati. Fyrstu árin geta verið þung fyrir sprota.“ Algengt er að sprotafyrirtæki séu stofnuð af ungu fólki, en þau Guðrún og Kristberg eru á sjötugsaldri. „Ég held að það mætti alveg aðstoða fleiri aldraða prófessora við að koma niðurstöðum sínum út í viðskiptalíf- ið,“ segir Guðrún og hlær. ● Hlutabréfamarkaðurinn hér á landi fór ekki varhluta af fréttum af útbreiðslu kórónuveirunnar í Evrópu og ákvörðun nokkurra Evrópuríkja um helgina að loka á flugumferð frá Bretlandi. Lengst af virtist sem öll félögin sem skráð eru á aðalmarkað myndu lækka í verði í við- skiptum dagsins en Arion banki og Skelj- ungur réttu úr kútnum áður en viðskipti voru hringd út. Mest lækkuðu bréf Eim- skips eða um 3,3% og þá lækkuðu bréf Icelandair um 3,1%. Á tímabili leiddi flugfélagið lækkun dagsins. Tryggingafélögin þrjú sem skráð eru í Kauphöll lækkuðu á bilinu 2-2,9% og fasteignafélögin þrjú um 1,4-2,2%. Úrvalsvísitalan lækkaði um tæpt 1% í viðskiptum gærdagsins. Dumbrauður dagur að mestu í Kauphöllinni ● Dagný Halldórsdóttir, stjórnarmaður og hluthafi í Skeljungi, hyggst ekki taka yfirtökutilboði sem hópur fjárfesta hef- ur gert öðrum hluthöfum í félaginu. Þetta kemur fram í greinargerð sem stjórn Skeljungs hefur gefið út í tengslum við tilboðið. Meðal tilboðsgjafa eru Jón Ásgeir Jó- hannesson stjórnarformaður og Þór- arinn Arnar Sævarsson meðstjórnandi. Stjórnarmennirnir Birna Ósk Einars- dóttir og Elín H. Jónsdóttir eiga ekki hluti í félaginu. Jón Ásgeir og Þórarinn rita ekki undir greinargerðina en þar segir að breyt- inga sé að vænta á starfsemi Skeljungs, nái fjárfestahópurinn yfirtökum á félag- inu. Segir að stjórnin geti ekki lagt sér- stakt mat á það hvort vænlegt sé fyrir einstaka hluthafa að taka tilboðinu eða ekki. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Stjórnarmaður tekur ekki yfirtökutilboði vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is SENDUM FRÍTT UMLANDALL T STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.