Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Lyfjastofnun
Evrópu sam-
þykkti gær að
veita bóluefni
Pfizer-BioNTech
markaðsleyfi.
Bólusetning mun
hefjast víðsvegar
um Evrópu á
næstu dögum.
Upphaflega stóð til að stofnunin
tæki ákvörðun um leyfisveitingu
milli jóla og nýárs en henni var
flýtt. Bólusetning með bóluefninu
frá Pfizer er þegar hafin í Banda-
ríkjunum og Bretlandi.
Ekkert bendir til þess að bóluefn-
ið veiti ekki vörn gegn nýjum stofni
sem hefur látið á sér kræla í Bret-
landi og er talinn meira smitandi.
Pfizer BioNTech fær
markaðsleyfi ESB
EVRÓPA
ESB hefur sam-
þykkt bóluefnið.
Tveir karlmenn
voru í gær fundn-
ir sekir um mann-
dráp og mansal
eftir að 39 víet-
namskir innflytj-
endur fundust
látnir í flutn-
ingabíl á Eng-
landi á síðasta
ári. Í bílnum voru
lík fólks sem
kafnaði í óbærilegum hita í flutn-
ingagámi bílsins. Tveir aðrir karl-
menn voru einnig fundnir sekir um
aðild að málinu en þeir höfðu áður
játað brot sín. Refsing mannanna
verður ákveðin í janúar.
Fundnir sekir um
39 manndráp
BRETLAND
39 fundust látin í
flutningabílnum.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Hvert landið á fætur öðru tilkynnir
nú lokanir, bannar flug eða stöðvar
aðrar samgöngur frá Bretlandi í
kjölfar þess að greint var frá nýjum
stofni af kórónuveirunni sem talinn
er vera meira smitandi en aðrir
stofnar. Bretar hafa fært viðbún-
aðarstig í London og víðar upp á
fjórða stig og segja útbreiðslu nýja
stofnsins komna úr böndunum.
Hong Kong, fyrrverandi nýlenda
Breta, hefur bannað allt flug frá
Bretlandi frá og með miðnætti og
lengt sóttkví þeirra sem hafa komið
til landsins frá Bretlandi. Frakk-
land hefur stöðvað allar ferðir frá
Bretlandi í tvo sólarhringa, þar á
meðal frakt um vegi, með flugi og
lestum. Bannið kemur á versta tíma
þar sem allt kapp er lagt á að koma
vörum yfir landamæri með óvissuna
um brexit hangandi yfir útflytjend-
um.
Þýskaland hefur einnig stöðvað
flug frá Bretlandi til og með 31.
desember.
Eitt tilfelli í Hollandi
Allt farþegaflug frá Bretlandi
hefur verið bannað til Hollands til
áramóta. Eitt tilfelli af nýja stofn-
inum hefur greinst í Hollandi. Flug-
ferðir frá Bretlandi til Írlands voru
bannaðar á miðnætti í minnst tvo
sólarhringa en Írland og Bretland
deila 499 km landamærum. Þá hef-
ur flug til Ítalíu einnig verið stöðvað
og innganga í landið verið bönnuð
hafi einstaklingur dvalið í Bretlandi
síðastliðna 14 sólarhringa. Einn hef-
ur greinst með nýjan stofn veir-
unnar á Ítalíu.
Fleiri Evrópulönd hafa gripið til
ráðstafana vegna veirustofnsins.
Spánn, Portúgal og Belgía hafa
stöðvað flug frá Bretlandi, það hef-
ur Finnland einnig gert í tvær vikur
sem og Sviss þar til ákvörðun verð-
ur tekin um annað. Eistland, Lett-
land og Litháen og Króatía hafa
stöðvað flug næstu tvo sólarhring-
ana. Búlgaría hefur stöðvað flug til
áramóta og Rúmenía í tvær vikur
frá gærdeginum.
Justin Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, tísti að fólk sem kemur frá
Bretlandi ætti von á skimun og öðr-
um ráðstöfunum.
Loka einnig á Danmörku
Tyrkir hafa aflýst flugi frá Bret-
landi, Danmörku, Hollandi og Suð-
ur-Afríku og heilbrigðisráðherra
Írans hefur fyrirskipað að flugferð-
um frá Bretlandi verði aflýst í tvær
vikur.
Erlendum ríkisborgurum sem
koma frá Bretlandi, Danmörku og
Suður-Afríku til Ísraels hefur verið
bannaður aðgangur. Önnur lönd
sem gripið hafa til takmarkana eru
Sádi-Arabía, Kúveit, El Salvador,
Argentína, Síle og Marokkó.
Skella í lás á Bretland
Fraktbann í Frakklandi kemur sér illa stuttu fyrir útgöngu Breta úr ESB
Sum lönd loka einnig á Danmörku, þar hafa níu tilfelli af nýjum stofni greinst
AFP
Lokun Fraktflutningabílar raða sér upp á lokuðum vegi vegna lokana Evrópulanda á fraktflutninga frá Bretlandi.
EÐILEGA HÁTGL ÍÐ
Opið til 22 í kvöld
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is