Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 18
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Notkun farsíma jókstverulega á fyrri helm-ingi þessa árs. Póst- ogfjarskiptastofnun hefur nú birt skýrslu sína með töl- fræðilegum upplýsingum um fjar- skiptamarkaðinn hér á landi, sem nær yfir fjarskipti, netnotkun og hlutdeild fjarskiptafyrirtækjanna á fyrstu sex mánuðum ársins og ná gögnin því yfir notkunina í fyrstu fylgju kórónuveirufaraldursins og endurspegla að einhverju leyti áhrif samkomutakmarkana. Þar má m.a. sjá að fjöldi mín- útna úr farsímum á fyrstu sex mánuðum ársins var 577 milljónir á tímabilinu en var á fyrri hluta síðasta árs 462 milljónir. Aukn- ingin milli ára er því um 21%, sem er töluvert umfram aukningu fyrri ára. Gögnin mun meira notuð í símum en í spjaldtölvum Ennfremur kemur þar fram að gagnamagn á farsímaneti færist enn í aukana og eykst milli ára um 54,4%. Bent er á í skýringum á þessu að gagnamagn á farsímanet- inu hefur aukist mikið á undan- förnum árum með innleiðingu á 4G. „Í farsímanetum er hlutfalls- lega meira gagnamagn notað í sím- um en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum,“ segir í umfjöllun Póst- og fjarskiptastofnunar. Ljósleiðaratengingar hafa aukist mikið og voru komnar í 66% allra internettenginga á landinu um mitt þetta ár. Hefur gagna- magn um fastanet fjarskiptakerfis landsmanna einnig aukist umtals- vert. Gagnamagn á fastaneti á fyrri hluta yfirstandandi árs var alls 286.233 terabæti (TB) en var á fyrri hluta ársins á undan 215.505 TB og jókst því gagnamagn um tæp 33% á milli ára samkvæmt upplýsingum Póst- og fjarskipta- stofnunar. Markaðshlutdeild lítið breyst Markaðshlutdeild stóru fjar- skiptafyrirtækjanna, Símans, Nova og Vodafone, í áskriftum að tal- og netþjónustu í farsímakerfinu breyttist nær ekkert á milli ára. Hlutdeild Símans var 36,7% af far- símaáskriftum á fyrri hluta ársins, hlutdeild Nova var 32,9% og hlut- deild Vodafone 26,8%. Hlutur ann- arra jókst úr 2,7% í fyrra í 3,5% í ár. Auknar tekjur af gagna- flutningum og netþjónustu Heildarfjöldi farsímaáskrifta á landinu öllu var 473.120 á fyrri hluta ársins, sem er nánast óbreyttur fjöldi frá því í fyrra. Fram kemur í umfjöllun Póst- og fjarskiptastofnunar um fjar- skiptamarkaðinn að velta á mark- aðinum á fyrri hluta ársins var svipuð og árið á undan. Tekjur fé- laganna af heimasíma og farsíma fóru lækkandi en aftur á móti hafa tekjur af gagnaflutningum og int- ernetþjónustu ásamt tekjum af fastaneti farið hækkandi. „Fjár- festing á fjarskiptamarkaði er að- allega í fastaneti, m.a. vegna lagn- ingar ljósleiðara, og í farsíma- rekstri.“ Gagnamagn í farsím- um jókst um 54,4% Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Allir með síma Alls voru 473.120 farsímaáskriftir á landinu á fyrri hluta ársins og virðast hafa náð hámarki því það er nánast sami fjöldi og í fyrra. Farsímanotkun og gagnamagn Gagnamagn á farsímaneti fyrstu 6 mán. 2010-2020, þúsundir TB 40 35 30 25 20 15 10 5 0 Tal og gögn Gögn eingöngu 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun 37 þús. Farsímanotkun fyrstu 6 mán. 2020 eftir fyrirtækjum Síminn 215 Nova 190 Vodafone 126 Aðrir 27 39% 34% 23% 41% 59% Milljónir mínútna Alls 558 milljón mínútur 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 Margt afþví semfólk met- ur hvað mest er um leið það brot- hættasta í eigu þess. Það gildir um margt annað en það sem auðveldast er að meta til fjár. Allt hitt, svo sem traust, vinátta, ást, við- urkenning, velvild, staða í hóp eða jafnvel í samfélag- inu öllu, getur laskast á augabragði og verður illa bætt. Sama gildir um æruna. Þeir sem tapa einhverju af þessu líku, sem ekki festir auðveldlega hönd á, vildu sennilega oft skipta út áþreifanlegri verðmætum fyrir þessi. En slíkt er sjald- an í boði. Og forsjálir menn geta ekki tryggt sig fyrir þeim missi, enda yrði verð- matið snúið og fæstir yrðu nokkru bættari við slíkt smyrsl í sárið. Æran er þessarar gerðar. Löngum mátti fletta lög- unum og sjá að löggjafinn ætlaðist til þess að æra manna skyldi varin í þeim tilvikum sem lesa mátti úr lagatextum. Dómstólar fundu síðar út, þótt fyrir því væri ekki lagabókstafur, að þeir sem hefðu kosið sér vettvang sem kallaði á opin- bera umræðu skyldu eiga lakari vörn fyrir æru sína en aðrir. Hefðu menn t.d. kosið sér að starfa í umboði al- mennings þá skyldi það þýða að æru þeirra mætti sverta verr en hinna sem ekki störfuðu í lýðræðislegu um- boði. Mörgum hefði þótt sennilegra að ástæða væri til að slá skildi um þá sem um hríð vildu ganga erinda almennings með þessum hætti. Allnokkru síðar var þessi veruleiki, sem engin sett lög stóðu þó til, víkk- aður út á þann veg, að tæki almenningur, þ.e. þeir sem ekki voru beinlínis í kjörn- um erindum, meiri þátt í opinberri umræðu en aðrir, þá skyldi æra þeirra verða minna metin en hinna og það þótt þeir hefðu gætt vel- sæmis í hvívetna gagnvart öðrum. Nú mætti hugsa sér að sá sem yrði fyrir ærumeið- ingum, eftir að hafa sjálfur veist að viðkomandi með briglsyrðum, teldist eiga lakari málstað en ella. Sá skilningur er þekktur af þeim gömlu bókum sem við metum mest. En hitt gengur varla upp að dómarar geti án heimildar frá löggjafanum „sett lög“ um að sá sem tekur þátt í opinberri umræðu, en fer þó ekki offari, skyldi þess vegna sitja óbættur undir meiðingum annarra. Lög gerðu vissulega ráð fyrir því að kjörnir fulltrú- ar á Alþingi yrðu ekki lög- sóttir fyrir ummæli sín á þingi nema meirihluti þingsins (eða þingdeildar) samþykkti slíkt. Fyrir þeirri lágmarksvernd lágu margvísleg rök, enda gætu utanaðkomandi aðilar, sem t.d. hefðu mikla fjárhags- lega burði, beitt sér í um- ræðu með óeðlilegum hætti. Ýmsar leiðir voru þó færar til að tryggja að ekki yrði um ofvernd að ræða. Þann- ig var sterkur leikur að skora á þingmann að end- urtaka orð sín utan þings svo hægt væri að ná til hans. Slík dæmi eru til og um leið um það að ásakaðir þingmenn hafi skorað á aðra þingmenn að létta af sér allri vernd. En ekkert sérstakt réttlætir eða mælir með því að þeir sem taka þátt í opinberri umræðu án þess að hafa formlegt erindi skuli hafa veikari stöðu en aðrir gagnvart ærumeið- ingum. Nú er rétt að hafa í huga að æruatlaga verður ekki endilega bætt með dómsáfelli þess sem hafði hana í frammi eða með miskabótum fyrir þann sem fyrir varð. Óskammfeilnir menn, sem teknir voru í rúminu í slíkum málum, gortuðu gjarnan yfir lágum miskabótum og hlökkuðu yfir því hveru lágt dóm- stólar virtu æru þess sem þeir höfðu meitt. Þeir not- uðu sem sagt dómsnið- urstöðuna til þess að vega í sama knérunn. Stóryrði og gaspur sem beinist að einstaklingum gerir fæstum nokkuð til og það er ekki markmið laga um æruvernd að reyna að kenna sóðum lágmarks- kurteisi og fátítt er að menn sem fyrir slíku verða eltist við það. Þeir sem fylgjast enn með umræðu á svo kölluðum samfélags- miðlum furða sig mjög á þeim ósköpum. Eina refs- ingin við þau fól sem þar þykjast hetjur er sú að koma hvergi nærri þeim og vilja sem fæst af þeim vita. Það verður aldrei nægjanleg heimild fyrir því að gera eitt- hvað sem vafasamt er að menn geti} Síðan lögunum fyrst var flett … Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ F regnir af skriðuföllum á Seyð- isfirði eru sláandi. Þær sýna að við sem byggjum okkar góða land þurfum ávallt að vera á varðbergi gagnvart náttúruöfl- unum. Fyrir mér rifjar þetta upp erfiðar minn- ingar frá því í lok ágúst 1988. Þá féllu mikl- ar aurskriður yfir Ólafsfjörð þar sem ég bjó á þessum tíma og hafði gert frá fæðingu. Aðra eins úrhellisrigningu og helltist yfir okkur á þessum tíma hef ég aldrei upplifað hvorki fyrr né síðar. Lækir breyttust í ár. Niðurföll í bænum höfðu ekki undan eða stífluðust. Gruggugur vatnselgur lá yfir göt- um og lóðum og flæddi inn í kjallara og inn á jarðhæðir húsa. Sums staðar var allt að 40 senti- metra vatnselgur sem flæddi um göturnar. Þetta var ógnvænlegt ástand. Mikið vatn safnaðist upp í hlíðunum fyrir ofan bæinn en þar eru stallar svipað og á Seyðisfirði. Gróður- þekjan gaf sig og jarðvegurinn fór af stað. Litlar skrið- ur fóru að falla í dreifbýlinu í grennd við bæinn. Ein þeirra hreif með sér bíl með hjónum og þremur börn- um og bar hann fram af Múlavegi um fjörutíu metra niður hlíðina. Sem betur fer komust þau öll ómeidd frá þessu en bíllinn var ónýtur. Vegir og götur tóku að grafast í sundur. Flugvellinum var lokað. Almanna- varnanefnd sat á fundi þegar stóra skriðan fór af stað úr fjallinu fyrir ofan bæinn. Hún lenti á nokkrum af efstu húsunum í hlíðinni og hreif með sér bíla. Fólk slapp undan með naumindum. Enn jók á flóðið í bænum og svo féll önnur stór skriða á íbúðarhúsa- hverfi. Margar minni aurskriður féllu einnig í grennd við bæinn. Mikið af laxi drapst í fiskeldisstöðinni rétt innan við bæinn. Allt virtist annaðhvort á floti á Ólafsfirði eða það var þakið leðju sem hafði ruðst ofan úr fjallinu. Mikill einhugur var um björg- unarstörf en þó kom aldrei til álita að rýma bæinn eða hluta hans. Líklega hefði slíkt verið gert í dag því frá þessum tíma höfum við öll upplifað sársaukafulla reynslu af völdum snjóflóða og aurskriða. Allt rifjast þetta upp og vekur hjá mér sterkar til- finningar þegar ég fylgist með sláandi fréttum frá Eskifirði og Seyðisfirði. Eigin reynsla hefur kennt mér að ekkert getur undirbúið mann fyrir það að standa al- gjörlega magnvana gagnvart óútreiknanlegum krafti náttúruaflanna. Ég hygg að enginn geti fyllilega sett sig í spor þeirra sem lenda í slíkum hamförum. Ég sendi öllum kærleiks- og baráttukveðjur. Stöndum saman og styðjum hvert annað. Öll él birtir upp um síðir. Kæru landsmenn. Ég sendi ykkur öllum hugheilar hátíðarkveðjur. Inga Sæland Pistill Hamfarir enn á ný Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.