Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 20

Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 20
jólagjöfina Gullbúðin er með Bankastræti 6 • Sími 551 8588 Snusdósir 6.900 56.900 44.900 27.500 26.900 82.900 65.300 63.000 84.500 5.900 14 kt 35.900 Demantar 84.900 5.500 mantur 8.500 De 2 Demantar 63.900 Demantar 69.900 8.900 15.500 5.900 19.900 TAILS skartgripirogur.is 4.900 11.400 8.900 20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 Árið 2004 stofnuðu nokkur fyrirtæki og einstaklingar sjálfs- eignarstofnunina Akureyri í öndvegi (AÖ) í þeim tilgangi að koma góðu til veg- ar við uppbyggingu miðbæjarins. Ekki datt mér í hug þá að sextán árum síðar væri enn nauðsynlegt að stinga niður penna um þetta málefni nema þá kannski til að fagna uppbyggingu glæsilegs mið- bæjar sem risið hefði upp í sam- ræmi við einróma samþykkt bæj- arstjórnar árið 2014. En því miður eru slík fagnaðarlæti ótímabær því ekkert hefur gerst síðan utan það eitt að nú á miðri jólaföstu kynnti bæjarstjórn breytingatillögur sín- ar á skipulagi sem aldrei hefur komist í framkvæmd. Ekki var tal- in ástæða til að hafa samband við bæjarbúa um þessar breytingar fyrirfram en þær einasta kynntar fullmótaðar. Eftir að hafa skoðað þær tel ég nauðsynlegt að rifja upp aðdraganda málsins og nokkr- ar sögulegar staðreyndir enda sýnist mér bæjarfulltrúum ekkert veita af því. Íbúaþing mótaði meginlínur Í upphafi kostaði AÖ miklum fjármunum til við vandað íbúaþing þar sem reynt var með almennri umræðu að laða fram það sem bæjarbúar vildu leggja áherslu á við endurnýjun miðbæjarins. Þing- ið var fjölmennt og þátttakendur mjög virkir. Þarna var mótuð stefna sem í meg- inatriðum snerist um: Að nýjar götur austan Skipagötu og bygg- ingar við þær sneru austur-vestur til að mynda skjól gegn ríkjandi vindáttum. Með því sáu þátttak- endur jafnframt að unnt væri að koma óskum þeirra um greiðar leiðir frá mið- bænum til sjávar í framkvæmd. Enn fremur var rík áhersla lögð á að þessar nýju byggingar yrðu lág- reistar og tækju sem mest mið af þeim byggingum sem fyrir eru í miðbænum. Þetta var svo það veganesti sem AÖ lagði fram til viðmiðunar þegar efnt var til al- þjóðlegrar samkeppni meðal arki- tekta um tillögur um uppbyggingu miðbæjarins. Alls bárust 152 vand- aðar tillögur sem AÖ gaf bænum til þess að hafa til hliðsjónar við endanlega útfærslu. Ein tillagan var valin best af sérstakri dóm- nefnd og hún höfð til viðmiðunar þegar stýrihópur mótaði tillögur að miðbæ árið 2010 sem síðan voru lagðar fram til umsagnar bæj- arbúa. Skemmst er frá að segja að töluverð andstaða var meðal þeirra um einn þátt tillagnanna – gerð síkis upp að Skipagötu. Þar með var málið komið í sjálfheldu og lítið gerðist. Þá tóku tveir for- ingjar í bæjarstjórn – Logi Ein- arsson og Oddur Helgi Hall- dórsson – málið upp með sínu fólki og leituðu lausna sem flestir gætu sætt sig við. Þetta tókst og að lok- um var niðurstaðan samþykkt samhljóða í bæjarstjórn árið 2014 sem deiliskipulag miðbæjarins. Þetta frumkvæði þeirra Loga og Odds Helga er að mínum dómi eitt ágætasta verk sem unnið hefur verið í bæjarstjórn Akureyrar hin síðari ár og glæsileg arfleifð þeirra félaga. Nú er hins vegar að henni vegið og það jafnvel af þeirra eigin félögum til þess eins að þjóna lund annarra. Farsæl niðurstaða hunsuð Um nokkurt skeið hafa sjálfstæðismenn í bæjarstjórn þrá- stagast á að allt of dýrt sé að færa Glerárgötuna, frá Kaupvangs- stræti til Strandgötu, um nokkra metra til austurs enda þótt það sé forsenda aukningar bygginga- magns þar fyrir vestan um heila 5.000 fermetra eins og núgildandi skipulag gerir ráð fyrir. Sam- kvæmt viðurkenndum útreikn- ingum munu þau aukaútgjöld sem af tilfærslunni leiða skila samsvar- andi tekjum til baka á nokkrum árum vegna gatnagerðar- og fast- eignagjalda á umræddu svæði. Fyrr en varir verður þessi viðbót, vegna færslu götunnar og mjókk- unar í eina akrein til beggja átta, tekjustofn fyrir bæjarsjóð í ára- tugi en ekki bara útgjöld eins og ranglega hefur verið haldið fram. Eftir því sem næst verður komist er einmitt þessi þráhyggja sjálfstæðismanna og undanláts- semi annarra við hana megin- ástæða þess að bæjarstjórn lætur sig hafa að leggja til að umbylta gildandi skipulagi fyrir vestan Glerárgötuna, klessa öllu saman og hækka húsin um allt að tvær hæðir. Með því er gengið í ber- högg við vilja íbúaþingsins auk þess sem afrakstri farsæls starfs Loga og Odds Helga er gefið langt nef. Tekið skal fram að þessi þjónkun við sjálfstæðismenn kom til áður en allir fóru undir eina sæng í bæjarstjórninni í haust enda taldi ég strax að þær póli- tísku bólfarir sættu litlum tíð- indum. Þetta hefur lengi verið svona – ótrúlegasta fólk bugtar sig fyrir sjálfstæðismönnum hér í bæ og telur höfuðnauðsyn að sam- þykki þeirra liggi fyrir í sérhverju sem gert er – jafnvel þótt það sé í minnihluta. Þöglir bæjarfulltrúar Nú er sem sagt stefnt að því að fækka gönguleiðum frá gamla mið- bænum til sjávar, gera syðri hluta Skipagötunnar að mikilli aksturs- leið suður-norður og hækka húsin um allt að tvær hæðir. Í stað þess að þrengja Glerárgötuna í eina ak- rein frá Torfunefi og norður að Strandgötu á nú að gera það að- eins á nokkrum metrum sitt hvor- um megin við göngustíginn vestan Hofs. Verða bílar þar í fjórum fylkingum beggja vegna við sem þýðir að gangandi fólk hefur þá mengandi og hljóðandi ofan í sér. Gæfulegra væri að fylgja gildandi skipulagi og þrengja götuna norð- ar og sunnar þannig að bílar hægi þar á sér og fari síðan hægt í gegnum þetta hjarta miðbæjarins en hrúgist ekki saman á litlum bletti. Fullyrða má að allar þessar ráð- stafanir sem hafa verið kynntar eru í andstöðu við óskir íbúaþings- ins og því lítil ástæða til að fagna þeim. Ekki ætti að vera til of mik- ils mælst að fá fram smá rökstuðn- ing fyrir þessum ósköpum frá bæj- arfulltrúum sem hingað til hafa ekkert, nákvæmlega ekki neitt, tjáð sig um þessi mál opinberlega og alls ekki velt upp rökum með eða á móti við bæjarbúa. Þess í stað halda þeir öllu þétt að sér eins og um einkamál sé að ræða. Sjá enga ástæðu til að skiptast á skoðunum við bæjarbúa um mál- efnið áður en ákvarðanir eru tekn- ar – öfugt við það sem gert var á íbúaþinginu sæla. Stóra spurningin Nú standa bæjarbúar sem sagt frammi fyrir því að vilji þeirra og félaganna Loga og Odds Helga um uppbyggingu miðbæjarins hefur verið veginn og léttvægur fundinn af bæjarstjórn. Ef ég þekki Ak- ureyringa rétt kæmi mér á óvart ef þeir gera ekki alvarlegar at- hugasemdir við þessi ólýðræð- islegu vinnubrögð og óviðunandi niðurstöðu. Enn stendur eftir spurningin: Hvers vegna þessi ógæfulega vegferð án sýnilegs til- efnis? Eftir Ragnar Sverrisson » Þetta hefur lengi verið svona – ótrú- legasta fólk bugtar sig fyrir sjálfstæðismönn- um hér í bæ og telur höfuðnauðsyn að sam- þykki þeirra liggi fyrir í sérhverju sem gert er – jafnvel þótt það sé í minnihluta.Ragnar Sverrisson Höfundur er kaupmaður. raggijmj@simnet.is Hvers vegna?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.