Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 20
jólagjöfina
Gullbúðin er með
Bankastræti 6 • Sími 551 8588
Snusdósir 6.900
56.900 44.900 27.500 26.900 82.900 65.300 63.000 84.500
5.900
14 kt
35.900
Demantar
84.900
5.500
mantur
8.500
De
2
Demantar
63.900
Demantar
69.900
8.900
15.500
5.900
19.900 TAILS
skartgripirogur.is
4.900
11.400
8.900
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Árið 2004 stofnuðu
nokkur fyrirtæki og
einstaklingar sjálfs-
eignarstofnunina
Akureyri í öndvegi
(AÖ) í þeim tilgangi
að koma góðu til veg-
ar við uppbyggingu
miðbæjarins. Ekki
datt mér í hug þá að
sextán árum síðar
væri enn nauðsynlegt
að stinga niður penna um þetta
málefni nema þá kannski til að
fagna uppbyggingu glæsilegs mið-
bæjar sem risið hefði upp í sam-
ræmi við einróma samþykkt bæj-
arstjórnar árið 2014. En því miður
eru slík fagnaðarlæti ótímabær því
ekkert hefur gerst síðan utan það
eitt að nú á miðri jólaföstu kynnti
bæjarstjórn breytingatillögur sín-
ar á skipulagi sem aldrei hefur
komist í framkvæmd. Ekki var tal-
in ástæða til að hafa samband við
bæjarbúa um þessar breytingar
fyrirfram en þær einasta kynntar
fullmótaðar. Eftir að hafa skoðað
þær tel ég nauðsynlegt að rifja
upp aðdraganda málsins og nokkr-
ar sögulegar staðreyndir enda
sýnist mér bæjarfulltrúum ekkert
veita af því.
Íbúaþing mótaði meginlínur
Í upphafi kostaði AÖ miklum
fjármunum til við vandað íbúaþing
þar sem reynt var með almennri
umræðu að laða fram það sem
bæjarbúar vildu leggja áherslu á
við endurnýjun miðbæjarins. Þing-
ið var fjölmennt og þátttakendur
mjög virkir. Þarna var mótuð
stefna sem í meg-
inatriðum snerist um:
Að nýjar götur austan
Skipagötu og bygg-
ingar við þær sneru
austur-vestur til að
mynda skjól gegn
ríkjandi vindáttum.
Með því sáu þátttak-
endur jafnframt að
unnt væri að koma
óskum þeirra um
greiðar leiðir frá mið-
bænum til sjávar í
framkvæmd. Enn
fremur var rík áhersla lögð á að
þessar nýju byggingar yrðu lág-
reistar og tækju sem mest mið af
þeim byggingum sem fyrir eru í
miðbænum. Þetta var svo það
veganesti sem AÖ lagði fram til
viðmiðunar þegar efnt var til al-
þjóðlegrar samkeppni meðal arki-
tekta um tillögur um uppbyggingu
miðbæjarins. Alls bárust 152 vand-
aðar tillögur sem AÖ gaf bænum
til þess að hafa til hliðsjónar við
endanlega útfærslu. Ein tillagan
var valin best af sérstakri dóm-
nefnd og hún höfð til viðmiðunar
þegar stýrihópur mótaði tillögur
að miðbæ árið 2010 sem síðan voru
lagðar fram til umsagnar bæj-
arbúa. Skemmst er frá að segja að
töluverð andstaða var meðal
þeirra um einn þátt tillagnanna –
gerð síkis upp að Skipagötu. Þar
með var málið komið í sjálfheldu
og lítið gerðist. Þá tóku tveir for-
ingjar í bæjarstjórn – Logi Ein-
arsson og Oddur Helgi Hall-
dórsson – málið upp með sínu fólki
og leituðu lausna sem flestir gætu
sætt sig við. Þetta tókst og að lok-
um var niðurstaðan samþykkt
samhljóða í bæjarstjórn árið 2014
sem deiliskipulag miðbæjarins.
Þetta frumkvæði þeirra Loga og
Odds Helga er að mínum dómi eitt
ágætasta verk sem unnið hefur
verið í bæjarstjórn Akureyrar hin
síðari ár og glæsileg arfleifð þeirra
félaga. Nú er hins vegar að henni
vegið og það jafnvel af þeirra eigin
félögum til þess eins að þjóna lund
annarra.
Farsæl niðurstaða hunsuð
Um nokkurt skeið hafa
sjálfstæðismenn í bæjarstjórn þrá-
stagast á að allt of dýrt sé að færa
Glerárgötuna, frá Kaupvangs-
stræti til Strandgötu, um nokkra
metra til austurs enda þótt það sé
forsenda aukningar bygginga-
magns þar fyrir vestan um heila
5.000 fermetra eins og núgildandi
skipulag gerir ráð fyrir. Sam-
kvæmt viðurkenndum útreikn-
ingum munu þau aukaútgjöld sem
af tilfærslunni leiða skila samsvar-
andi tekjum til baka á nokkrum
árum vegna gatnagerðar- og fast-
eignagjalda á umræddu svæði.
Fyrr en varir verður þessi viðbót,
vegna færslu götunnar og mjókk-
unar í eina akrein til beggja átta,
tekjustofn fyrir bæjarsjóð í ára-
tugi en ekki bara útgjöld eins og
ranglega hefur verið haldið fram.
Eftir því sem næst verður komist
er einmitt þessi þráhyggja
sjálfstæðismanna og undanláts-
semi annarra við hana megin-
ástæða þess að bæjarstjórn lætur
sig hafa að leggja til að umbylta
gildandi skipulagi fyrir vestan
Glerárgötuna, klessa öllu saman
og hækka húsin um allt að tvær
hæðir. Með því er gengið í ber-
högg við vilja íbúaþingsins auk
þess sem afrakstri farsæls starfs
Loga og Odds Helga er gefið langt
nef. Tekið skal fram að þessi
þjónkun við sjálfstæðismenn kom
til áður en allir fóru undir eina
sæng í bæjarstjórninni í haust
enda taldi ég strax að þær póli-
tísku bólfarir sættu litlum tíð-
indum. Þetta hefur lengi verið
svona – ótrúlegasta fólk bugtar sig
fyrir sjálfstæðismönnum hér í bæ
og telur höfuðnauðsyn að sam-
þykki þeirra liggi fyrir í sérhverju
sem gert er – jafnvel þótt það sé í
minnihluta.
Þöglir bæjarfulltrúar
Nú er sem sagt stefnt að því að
fækka gönguleiðum frá gamla mið-
bænum til sjávar, gera syðri hluta
Skipagötunnar að mikilli aksturs-
leið suður-norður og hækka húsin
um allt að tvær hæðir. Í stað þess
að þrengja Glerárgötuna í eina ak-
rein frá Torfunefi og norður að
Strandgötu á nú að gera það að-
eins á nokkrum metrum sitt hvor-
um megin við göngustíginn vestan
Hofs. Verða bílar þar í fjórum
fylkingum beggja vegna við sem
þýðir að gangandi fólk hefur þá
mengandi og hljóðandi ofan í sér.
Gæfulegra væri að fylgja gildandi
skipulagi og þrengja götuna norð-
ar og sunnar þannig að bílar hægi
þar á sér og fari síðan hægt í
gegnum þetta hjarta miðbæjarins
en hrúgist ekki saman á litlum
bletti.
Fullyrða má að allar þessar ráð-
stafanir sem hafa verið kynntar
eru í andstöðu við óskir íbúaþings-
ins og því lítil ástæða til að fagna
þeim. Ekki ætti að vera til of mik-
ils mælst að fá fram smá rökstuðn-
ing fyrir þessum ósköpum frá bæj-
arfulltrúum sem hingað til hafa
ekkert, nákvæmlega ekki neitt,
tjáð sig um þessi mál opinberlega
og alls ekki velt upp rökum með
eða á móti við bæjarbúa. Þess í
stað halda þeir öllu þétt að sér
eins og um einkamál sé að ræða.
Sjá enga ástæðu til að skiptast á
skoðunum við bæjarbúa um mál-
efnið áður en ákvarðanir eru tekn-
ar – öfugt við það sem gert var á
íbúaþinginu sæla.
Stóra spurningin
Nú standa bæjarbúar sem sagt
frammi fyrir því að vilji þeirra og
félaganna Loga og Odds Helga um
uppbyggingu miðbæjarins hefur
verið veginn og léttvægur fundinn
af bæjarstjórn. Ef ég þekki Ak-
ureyringa rétt kæmi mér á óvart
ef þeir gera ekki alvarlegar at-
hugasemdir við þessi ólýðræð-
islegu vinnubrögð og óviðunandi
niðurstöðu. Enn stendur eftir
spurningin: Hvers vegna þessi
ógæfulega vegferð án sýnilegs til-
efnis?
Eftir Ragnar
Sverrisson » Þetta hefur lengi
verið svona – ótrú-
legasta fólk bugtar sig
fyrir sjálfstæðismönn-
um hér í bæ og telur
höfuðnauðsyn að sam-
þykki þeirra liggi fyrir
í sérhverju sem gert
er – jafnvel þótt það sé
í minnihluta.Ragnar Sverrisson
Höfundur er kaupmaður.
raggijmj@simnet.is
Hvers vegna?