Morgunblaðið - 22.12.2020, Page 27

Morgunblaðið - 22.12.2020, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 11. nóvember 1945. Hún lést þann 16. desember 2020 á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold í Garðabæ. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Jónasson fjallabílstjóri frá Múla í Línakradal, f. 1909, d. 1985, og Stefanía Eðvarðsdóttir húsmóðir frá Helgavatni í Vatnsdal, f. 1910, d. 1985. Systkini Kristínar eru Gunn- ar, f. 1938, d. 2018, og Signý, f. 1942. Sjötta september 1969 giftist Kristín eftirlifandi eiginmanni sínum, William Þór Dison, f. 6.6. arssyni, f. 16.10. 1976, þau eru búsett í Garðabæ. Stefanía á tvær dætur, Snædísi Líf, f. 05.07. 2000, og Elísa, f. 05.12. 2007, sonur Óskars er Eiríkur Þór, f. 03.11. 1999. Kristín og William bjuggu alla sína búskapartíð í Víðilundi 1, Garðabæ. Kristín útskrifaðist frá Fóstruskóla Íslands 1966. Hún starfaði á ýmsum leikskólum í Reykjavík, einnig við heyrn- armælingar barna hjá Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur. Hún sat í félagsmálaráði Garðabæjar og vann á Leikskólanum Bæj- arbóli í Garðabæ en frá 1980 starfaði hún hjá fjölskyldu- fyrirtækinu Guðmundi Jónas- syni ehf. Útför Kristínar fer fram í Garðakirkju 22. desember 2020 klukkan 13. Streymt verður frá athöfn- inni á Facebook; Útför – Kristín Guðmundsdóttir. Stytt slóð: https://tinyurl.com/ybt8gc75 Virkan hlekk á slóð má finna á:https://www.mbl.is/andlat 1944. William er sonur Þórunnar Ingimarsdóttur, f. 1921, d. 2018, og William Earl Dison, f. 1924, d. 1985, Kristín og Willi- am eignuðust þrjú börn, 1) Eðvarð Þór Williamsson, f. 1.2. 1970, í sambúð með Sigurbjörgu Sig- urðardóttur, f. 30.11. 1971, þau eru búsett í Kópavogi. Börn þeirra eru Willi- am Þór, f.20.03. 1999, Hrannar Þór, f. 29.01. 2003, og Nökkvi Þór, f. 29.01. 2003. 2) Gunnar Örn Williamsson, f. 12.1. 1974, Gunnar lést af slysförum 28. apríl 1995. 3) Stefanía Sif Willi- amsdóttir, f. 26.07. 1975, í sam- búð með Óskari Þór Gunn- Frænka mín Kristín er fallin frá. Þau ófáu skipti sem ég kom niður eftir í GJ kíkti ég yfirleitt upp á skrifstofu sem var ævin- týraheimur fyrir litlu mig, allt svo spennandi. Yfirleitt varst þú þar og tókst á móti okkur með hlýju brosi. Ég hef enga trú á öðru en að mikil gleði og kátína hafi brotist út þegar þú steigst upp í Gull- vagninn og hittir aðra fjölskyldu- meðlimi sem eru þér kærir. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku Willi, Eddi, Stefanía og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi góðir vættir fylgja ykkur um ókomna tíð. Auður Ösp og fjölskylda á Siglufirði. Tendraðu lítið skátaljós láttu það lýsa þér, láttu það efla andans eld og allt sem göfugt er. Þá verður litla ljósið þitt, ljómandi stjarna skær, lýsir lýð, alla tíð nær og fjær. (Hrefna Tynes) Enn er höggvið skarð í vina- hópinn, hún Kristín okkar er far- in heim, eins og við skátarnir segjum, þegar félagi kveður þessa jarðvist. Þessi hugsun að fara heim er góð tilfinning, heima getum við hvílst, ef við erum leið, þreytt eða þjáð, þá er gott að komast heim. Í Skátaheimilinu við Snorra- braut var alltaf mikið um að vera og við hópuðum okkur saman eft- ir aldri. Kristín var heldur yngri en við, en fylgdi systur sinni Sig- nýju inn í eldri hópinn og var þá Kristín litla eins og hún var oft kölluð í hópnum og við sem eldri vorum þóttumst vera heldur lífs- reyndari og fylgdumst vel með litla skátanum okkar. Kristín gat verið í hvaða hópi sem var bæði eldri og yngri, með sinni glað- værð, fallegu framkomu og ynd- islega brosinu. Allir vildu eiga Kristínu að vini. Hún var, eins og við oft nefndum hana, litla dísin í skóginum, sem létti allra lund. Kristín var mikið náttúrubarn og ferðaðist mikið. Við fórum saman hjónin í útilegur og ferða- lög, oft voru börnin með líka og geyma þessar ferðir ógleyman- legar minningar. Einnig hittumst við til skiptis heima hjá hvert öðru, borðuðum saman, sungum skátasöngvana og aðra söngva, sem minnti okkur á gamla tíma í Skátaheimilinu. Þessar samveru- stundir eru fjársjóður, sem möl og ryð fær ekki grandað. Þar sem skátar koma saman er alltaf mikið sungið og það má segja, að Kristín hafi sungið eða raulað fram á síðasta dag. Henni fannst gott að fara í hjólastóla- ferðalag um Ísafold, hjúkrunar- heimilið, þar sem hún bjó síðustu árin og þá voru rauluð skátalög, leikskólalög eða dægurlög allt eftir því, hvað henni líkaði best hverju sinni og fjölskyldan sá um að alltaf væri einhver tónlist í gangi í íbúðinni. Við geymum góðar minningar og endurlifum þær aftur og aftur. Við gömlu vinirnir í skátahópn- um færum William Þór, Eðvarð Þór, Stefaníu Sif, fjölskyldum þeirra, svo og Signýju og Jóni okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Erna, Sævar, Sigurveig, Pálmar, Helga og Hilmar. Elskuleg móðursystir mín hún Kristín er fallin frá. Hún var yndisleg kona sem átti stóran þátt í uppeldi mínu enda þær systur mjög nánar. Þannig fékk ég til dæmis að nota píanóið í Víðilundi þegar ég hóf píanónám áður en við eignuðumst sjálf slíkt. Kristín var tónelsk og hafði mikla þolinmæði fyrir glamrinu sem ég bauð henni upp á og var ávallt reiðubúin til að leiðbeina mér. Síðar þegar ég var fluttur utan var oft slegið upp veislu í Víðilundi þegar ég kom heim og var þar ekki í kot vísað enda Kristín mikill matgæðingur og kokkur fram í fingurgóma. Einn- ig komu þær systur ósjaldan við hjá mér í Þýskalandi þegar ferðast var um Evrópu í vinnu- ferðum. Ef vel hittist á var jafn- vel hægt að skella sér á skíði og eru minningar um mörg skíða- ferðalög þegar ég hugsa til baka. Hvort sem var í Ölpunum, í Klettafjöllum eða hér innan- lands, alltaf var frábært að ferðast með Kristínu í skíðaferð- um enda margreyndur farar- stjóri í slíkum ferðum. Kristín var mikilvægur hlekk- ur í samstarfi þeirra systkina í rekstri fjölskyldufyrirtækisins, ákaflega vel liðin hvort sem var af samstarfsfólki eða viðskipta- vinum enda var hún mannglögg og hafði gaman af samskiptum við fólk. Aldrei bar skugga á samstarf þeirra systra og hef ég í gegnum árin gjarnan verið spurður um þær báðar í einu þegar samferðafólk úr ferðaþjón- ustunni vildi vitja um þær enda njóta þær mikillar virðingar í greininni eftir áratuga starf í þágu ferðaþjónustu á Íslandi. Það er stórt skarð höggvið í hópinn nú þegar Kristín er farin að vitja Gunnars Arnar. Kæru Willi, Eðvarð, Stefanía og fjöl- skyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Árni Gunnarsson. Kristín Guðmundsdóttir ✝ Bjarni Krist-jánsson fædd- ist 26. júlí 1946 í Reykjavík. Hann lést 13. desember 2020 á Landspít- alanum. Foreldrar hans voru hjónin séra Kristján Bjarna- son, sóknarprestur og bóndi á Reyni- völlum í Kjós, f. 1914, d. 1983, og Guðrúnar Guðmundsdóttur, f. 1916, d. 2008. Systkini Bjarna eru: Ás- laug, f. 1945, maki Jai Ramdin, Karl Magnús, f. 1948, maki Helga Einarsdóttir, Halldór, f. 1950, maki Guðrún St. Krist- insdóttir, Kristrún, f. 1952, maki Axel Snorrason, Valdi- mar, f. 1955, maki Brenda Phel- an, Guðmundur, f. 1957, maki Jónína B. Olsen, Sigurður, f. 1959, d. 2000, fyrrv. maki Hall- dóra Gísladóttir. Þegar Bjarni var eins árs fluttu foreldrar hans á Raufarhöfn þar sem fað- ir hans tók við starfi sókn- arprests. Árið 1950 flutti fjöl- skyldan að Reynivöllum í Kjós. Bjarni kvæntist Unni Jóns- dóttur frá Vestmannaeyjum þann 8. nóvember 1969. Börn þeirra eru: 1) Kristján fæddur 15.8. 1969. 2) Jón fæddur 20.12. 1971. 3) Runólfur fæddur 11.5. 1974, sambýliskona Þórunn Björk Jónsdóttir, fædd 21.7. 1971. Börn Runólfs með fyrrverandi eiginkonu Ágústu Friðfinnsdóttur eru: Inga Rún fædd 6.3. 2001, og Run- ólfur fæddur 8.7. 2002. 4) Guðrún, fædd 2.10. 1976. Börn Guðrúnar með fyrrverandi sambýlismanni Hauki Ólafssyni eru: Kristófer Logi fæddur 12.10. 2008, og Kolbrún Lind, fædd 6.4. 2012. 5) Ágúst, fædd- ur 23.3. 1984, maki Christina Miller, fædd 10.11. 1988. Bjarni og Unnur skildu 2002. Á yngri árum starfaði Bjarni við hin ýmsu störf. Fór m.a. á vertíð. Rak tamningastöð að Laxnesi í Mosfellsbæ með Jóhannesi Guð- mundssyni vini sínum. Vann á kjúklingabúinu á Reykjum og vann nokkur haust hjá Slát- urfélagi Suðurlands. Bjarni lauk búfræðiprófi frá Bænda- skólanum á Hvanneyri 1967 og hlaut þar Morgunblaðsskeifuna fyrir bestan árangur í hesta- tamningum. Vorið 1970 tók Bjarni ásamt Halldóri bróður sínum við búinu á Reynivöllum af foreldrum sínum. Árið 1975 fluttu Bjarni og Unnur að Þor- láksstöðum og hófu þar búskap. Þorláksstaðir höfðu þá verið í eyði í nokkur ár og húsa- og túnakostur ansi rýr, enda jörðin verið í eyði í nokkur ár. Strax var hafist handa við uppbygg- ingu staðarins. Byggt var fjós, hlaða og íbúðarhús á nokkrum árum, auk þess sem tún voru ræktuð og girðingar girtar og annað sem til þurfti. Þau ráku stórt kúabú að Þorláksstöðum til margra ára af miklum mynd- arskap. Bjarni var félagi í Hestamannafélaginu Herði í tugi ára. Keppti á yngri árum og lagði félaginu lið á ýmsan máta. Hann var um tíma í stjórn Veiðifélags Kjósarhrepps. Um 15 ára skeið var hann í sókn- arnefnd Reynivallakirkju og var jafnframt hringjari kirkj- unnar á þessum tíma. Bjarni söng í karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ til margra ára og um tíma með Karlakór Kjalnes- inga. Bjarni var mikill hesta- maður alveg frá blautu barns- beini. Hann tamdi, þjálfaði og stundaði ræktun hrossa. Árið 2008 hætti Bjarni með kúabú- skap og vann alfarið við tamn- ingar eftir það. Hann flutti síð- an í Mosfellsbæinn nokkrum árum síðar. Hann féll af hest- baki á sumardaginn fyrsta 2019, þar sem hann slasaðist það illa að hann lamaðist að mestu. Útför Bjarna fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 22. des- ember 2020, klukkan 13. Jarð- sett verður sama dag í Reyni- vallakirkjugarði í Kjós. Vegna fjöldatakmarkana verður útför- in aðeins fyrir nánustu fjöl- skyldu. Streymi frá athöfninni má finna á slóðinni: https://youtu.be/H7w-t_YGlT8/. Virkan hlekk má einnig finna á: https://www.mbl.is/andlat/. Elsku besti pabbi minn. Þegar ég hugsa til baka í sveitina sem barn þá er alltaf það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég sat með þér í traktornum, þú alltaf syngjandi og ég gólandi að reyna að vera eins og pabbi. Ég hef ekki verið gömul þeg- ar þú tókst mig á hestbak með þér og oftar en ekki sofnaði ég slök í fanginu á þér og kom til baka einu stígvéli fátækari. Í fjósinu áttum við systkinin okkar verkefni og var mitt að gefa kálfunum og hjálpa við mjaltirnar og þú alltaf með út- varpið í botni stillt á einhvern karlakór og syngjandi hástöfum með. Annars var ég ekkert alltaf sátt við pabba minn. Ég var eina dóttirin af fimm systkinum og hundfúl að mega ekki keyra traktorinn, enda pabbi af gamla skólanum og þótti það nú óþarfi að heimasætan væri að keyra traktorinn, ég átti frekar að hjálpa mömmu í eldhúsinu eða taka til. Þú hefur kennt mér margt þótt ég hafi ekki áttað mig á því fyrr en nýlega. Í seinni tíð var ég búin að fjarlægjast þig mikið og eftir að hafa horft á margra ára baráttu þína við flöskuna kenndir þú mér að áfengi er eitthvað sem ég vil hafa sem minnst í mínu lífi. Margt sem ég elska sem ég hef frá þér. Leggjast í grasið og slaka eins og þú gerðir svo oft. Hlaupa upp um fjöll og firði, nema ég læt það vera að hlaupa á eftir kindum og hestum eins og þú gerðir í sveitinni. Það hefur allt sinn tilgang í lífinu, þó við skiljum það kannski ekki á þeim tímapunkti þá kannski gerum við það einn daginn. Ég held að tilgangur með slysi þínu hafi verið að þjappa fjölskyldunni meira saman og kenna okkur að vera jákvæð og knúsa hvert annað. Kenna okkur að vera þakklát fyrir það sem við höfum og njóta hvers dags. Í dag er ég þakklát fyrir að hafa svona sterkan mann eins og þig til að vernda mig og afa- börnin þín, sem þú varst svo stoltur af og spurðir alltaf um þegar ég kom í heimsókn. Þótt það sé erfitt að kveðja þá er ég þakklát fyrir að þú sért kominn í ró og kyrrð. Elska þig pabbi minn. Guðrún Bjarnadóttir. Á æskuárum okkar var Bjarni fljótt farinn að vinna við sveitastörfin hvort sem það var að vinna við heyskap, gefa fénu, moka flórinn, sinna hestunum og síðar öllum bústörfum. Þeg- ar tími gafst var brugðið á leik. Leikirnir voru ekki einfaldir, fljótt fórum við Bjarni að smíða vegi og brýr og vörubíla með öllum búnaði. Vissulega gerðum við líka margt af okkur. Hann var ekki gamall þegar hann fór að gera flóknustu við- gerðir á dráttarvélunum. Tína sundur dísilverk og setja þau saman án þess að hafa nokkrar leiðbeiningar. Faðir okkar presturinn var einnig iðnaðarmaður og kenndi okkar hvernig vinna skyldi að margs konar framkvæmdum. Allt límdist það inn í höfuð Bjarna enda varð hann ótrúlega laginn hvort sem það var við- gerð bíla, rafsuða, múrverk eða annað. Allt gerði hann eins og besti fagmaður. Flottasta fag- mennskan var tamning og reið- mennska. Við vorum alltaf bestu vinir enda stutt á milli okkar. Störf okkar einna í fjósinu var enda- laus skemmtun þar sem við komumst að því að ef annar fór að hugsa um eitthvað t.d. fólk í sveitinni fór hinn að ræða um það sama. Nokkru áður en faðir okkar lauk prestsskap og búsetu á Reynivöllum tóku Halldór og Bjarni við búskapnum. Halldór með féð en Bjarni með kýrnar. Við starfslok pabba fékk Bjarni Þorláksstaði, eyðibýli, á leigu hjá Reykjavíkurborg. Fyrst hafði hann búskapinn á Reyni- völlum, hinum megin við Laxá. Þau Unnur fluttu lítið hús úr út- hverfi Reykjavíkur á bæjar- hlaðið. Nú hófust ævintýralegar framkvæmdir. Fyrst var byggt stærðar fjós og hlaða. Unnið var nánast dag og nótt jafn- framt búskapnum hinum megin við ána. Þegar ekki fékkst að- stoð múraði Bjarni allt sem múra þurfti samhliða mörgum öðrum verkum við bygginguna. Samtímis hófst ræktun túna sem voru lítil og uppgróin. Ekk- ert smá verkefni. Úr urðu glæsileg og vel ræktuð tún. Svo þurfti að byggja stórt og mikið íbúðarhús. Meðfram öllu var sinnt hrossunum með tamningu og útreiðum. Síðar fékk Bjarni að kaupa jörðina af borginni. Þegar komið var glæsilegt og vel byggt og ræktað bú á Þor- láksstöðum hélt áfram sleitu- laust basl við fjármálastofnanir. Vextir voru háir og lítið svig- rúm varðandi lengd lána. Þegar allt hefði átt að vera komið í vel öruggan farveg hélt fjármála- baslið áfram. Oftar og oftar var reynt að slaka á með nafnanum. Þá fór margt að fara úr skorð- um. Hjónabandið leystist upp og annað fór að halla yfir um. Í öllu baslinu breytti Bjarni fjós- inu og hlöðunni í hesthús og reiðhöll. Vildi ekki gefast upp. Hestarnir, tamning og útreiðar, voru hans stærstu draumar. En áfram hallaði undan. Það var mikið áfall að missa jörðina. Ekki settist Bjarni í helgan stein. Þegar hann var fluttur í Mosfellsbæinn fékk hann hest- hús á leigu og hélt áfram tamn- ingum. Hans síðasta verk var að ríða út með hesta í tamningu er hann féll af baki og lamaðist. Við tók skelfilegur tími sem aftur sýndi styrk hans. Alltaf var gott að heimsækja hann og svara símtölum hans þar sem hann spurði alltaf sömu spurn- inganna. Hvað er að frétta úr Kjósinni af þessum og hinum. Hans líf var í Kjósinni og verð- ur það áfram. Hann verður lagður í hinstu hvílu við hlið vin- ar síns og mun vafalaust taka marga reiðtúra með honum hin- um megin. Blessuð sé minning góðs bróður og mágs. Karl Magnús Kristjánsson og Helga Einarsdóttir. Bjarni Kristjánsson Ástkær sonur minn og bróðir, ÚLFAR ÖRN HELGUSON, Nökkvavogi 44, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn 17. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Kristján Þorvaldsson Styrmir Bolli Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.