Morgunblaðið - 22.12.2020, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Aðalfundur Jarðefnaiðnaðar ehf verður
haldinn kl. 09.00 þriðjudaginn 29. desember
á skrifstofu félagsins, Nesbraut 1,
Þorlákshöfn.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum.
Stjórn Jarðefnaiðnaðar ehf.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
St. 10 - 26
Verð 5.990
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
St.10-24 - Verð 12500,-
netverslun gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bílar
Mitsubishi Outlander Hybrid
hækkar um áramót vegna
lagabreytinga. Nældu þér í nýan
2020 bíl á betra verði 5.690.000,-
Til sýnis á staðnum í nokkrum litum
með og án króks.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
✝ Ómar Magn-ússon Waage
fæddist í Reykjavík
25. október 1952.
Hann ólst að mestu
upp í Ásgarðinum.
Ómar lést á sjúkra-
húsinu á Akureyri
12. desember 2020.
Foreldrar Ómars
voru Jóhanna
Sveinsdóttir fædd 1.
september 1915, dá-
in 11. október 1986, og Magnús
Guðmundsson Waage fæddur 5.
ágúst 1916, dáin 21. apríl 1977.
Systkini Ómars voru Ólafur,
fæddur 7. september 1939, dáinn
6. desember 1986, Guðmundur,
fæddur 17. nóvember 1940, dáinn
26. nóvember 2011,
Árni Már, fæddur
21. janúar 1942, dá-
inn 6. júlí 2001,
Ragnheiður Þórunn,
fædd 29. október
1943, Edda Hulda,
fædd 14. febrúar
1946, dáin 23. janúar
2015, Inga Anna
fædd 14. nóvember
1955, Sigurlaug Jón-
ína, fædd 16. nóvem-
ber 1958, sonur Jóhönnu, og hálf-
bróðir Ómars, Jón Konráð,
fæddur 30. desember 1933, dáinn
24. október 1995.
Ómar kvæntist Birnu Halldórs-
dóttur, fæddri 24. október 1943,
þau skildu. Þau eignuðust saman
tvö börn: Sylvíu Ernu fædda 27.
febrúar 1974, maki Sigvaldi Búi
Þórarinsson, fæddur 2. agúst
1971, þau skildu. Börn Sigríður
Birna Sigvaldadóttir, fædd 11.
júní 1994, sambýlismaður Daníel
Þór Midgley fæddur 8. júlí 1988.
Barn þeirra Karítas, fædd 9. des-
ember 2020, Bjarni Ólafur,
fæddur 18. júlí 2003. Geir, fædd-
ur 6. febrúar 1975.
Ómar eignaðist soninn Hólm-
ar 18. mars 1988.
Ómar fluttist til Akureyrar
1993 og var í sambúð með Stein-
unni Ferdinandsdóttur, fæddri
27. febrúar 1950. Hennar synir
eru Valdemar Viðarsson, fædd-
ur 1. nóvember 1972, maki Mar-
grét Magnúsdóttir, fædd 30. júlí
1977, börn þeirra Elvar Ferdin-
and, 31. ágúst 2006, og Katrín
Erna, 25. maí 2015. Áður átti
Valdemar dótturina Sunnu,
fædda 11. mars 1997, dána 9.
desember 2017. Andri Geir
fæddur 10. apríl 1979, maki
Harpa Ýr Hilmarsdóttir, fædd
19. janúar 1990, þeirra dætur
Una Steinunn, 7. nóvember 2013,
og Bríet Svava, 2. ágúst 2016.
Ómar gekk í Breiðagerðisskóla
og Réttarholtsskóla. Ómar vann
ýmis störf í Reykjavík, hjá Skelj-
ungi og Olís. Á Akureyrir starf-
aði Ómar hjá Nóa Siríus, Birni
málara og síðustu 9 starfsárin í
Byko. Ómar lék með Víkingi
ásamt því að vera mikill Liver-
pool-aðdáandi.
Útför Ómars fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 22. desem-
ber 2020, klukkan 13.30. Vegna
aðstæðna í samfélaginu verða
aðeins hans nánasta fjölskylda
og vinir viðstaddir.
Streymt verður frá athöfninni
á facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju. Stytt slóð á
streymið:
https://tinyurl.com/yybfk6f4/.
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/.
Elsku Liverpool aðdáandi
og vinur. Nú ertu farinn í
ferðalagið langa eftir hetju-
lega baráttu. Við erum búnir
að þekkjast í 27 ár frá því þú
kynntist mömmu. Ég var hjá
ykkur fyrstu árin í Furulund-
inum. Stuðið var aldrei langt
undan og hafðir þú mikinn
áhuga á tónlist og fótbolta.
Hjálpsamur varstu. Við bræð-
ur fengum oft þig og pensilinn
lánaðan. Ég þakka þér öll árin.
Harpa og stelpurnar senda
stórt knús.
Andri Geir.
Elsku Ómar. Þá er þrautum
þínum lokið. Fabry-sjúkdómur-
inn lagði þig að velli og hjartað
gaf sig eftir hetjulega baráttu.
Þú áttir ekki veraldlegan auð en
fullt af ást, hlýju og umhyggju.
Ferðalögin ótöldu innanlands
sem utan eru mjög minnisstæð.
Þetta voru okkar bestu sam-
verustundir. Nú ertu kominn í
langt ferðalag. Þakka þér fyrir
allt og allt elsku Ómar.
Í minningum mínum ég lifa mun á,
þó mun ég sakna að fá ei þitt hrós.
Samt eins og ég skynji hrós þér frá,
er ég tendra við mynd þína ljós.
Þrautum þínum nú lokið er,
þú býrð nú á heimili nýju.
Þú taka munt þar á móti mér,
með þinni einstöku ást og hlýju.
(Heiða Jóns)
Þín
Steinunn (Steina stuð).
Ómar Magnússon
Waage
Mágur minn, Jó-
hann Þórður Guð-
mundsson, lést fyrir
aldur fram í apríl
2020. Hann var góð-
ur maður og duglegur að eðlisfari
og ég er þakklátur að hafa fengið
að kynnast honum. Mig langar
því að minnast hans í nokkrum
orðum.
Jói og Pálína systir mín giftust
árið 1972. Ári síðar flutti ég til
Jóhann Þórður
Guðmundsson
✝ Jóhann ÞórðurGuðmundsson
fæddist 13. apríl
1952. Hann lést 5.
apríl 2020.
Útförin fór fram
12. júní 2020.
borgarinnar og var
þá svo heppinn að
þau hjónin buðu
mér herbergi á sínu
heimili. Jói var
húsasmiður eins og
faðir hans og þeir
hjálpuðu mér með
vinnu við smíðar
líka.
Jói vildi búa vel
að fjölskyldu sinni
og þau hjónin
byggðu saman hús í Bakkaseli.
Þar hjálpuðust allir að við að
koma því upp og ég fékk að búa
hjá þeim þar til mér tókst að festa
kaup á íbúð í Dalseli, nálægt
þeim.
Ógleymanlegar eru ferðir sem
ég fór með honum og fleirum úr
fjölskyldunni, bæði í Land-
mannalaugar og Laugaveginn,
milli Landmannalauga og Þórs-
merkur. Ekki var síður skemmti-
leg hestaferð um Arnarvatns-
heiði með honum og sonunum,
þar sem við veiddum fisk og gist-
um í skála. Það var heilmikill afli
sem við komum með heim. Annað
eftirminnilegt úr þeirri ferð er að
Jói útbjó ketilkaffi, sem ég hafði
aldrei drukkið áður.
Honum var alltaf hugað um að
hugsa um fjölskylduna og bað
mig einu sinni að kenna sér að úr-
beina læri, þá ætlaði hann að
gera veislu fyrir fjölskylduna.
Það var auðsótt mál.
Það er margs að minnast eftir
langa viðkynningu. Ein stund er
eftirminnileg. Þá fékk Amelía-
,föðursystir mín okkur Jóa til að
skipta um glugga hjá sér. Hún
bauð okkur inn í stofu í mat og
þar var stóll sem búið var að
breiða yfir því að við Amelía höfð-
um tekið allt stoffið úr honum og
það átti að bólstra hann að nýju.
Jói sá stólinn og spurði: „Hvað
kom fyrir þennan stól, komust
rottur í hann?“ „Já,“ sagði
Amelía. „Risastórar rottur,“ og
átti þá við okkur tvö. Jói hló mik-
ið að þessu.
Jói missti heilsuna allt of
snemma og varð að hætta að
vinna við smíðar. Þau systir mín
skildu síðar þegar börnin voru
uppkomin, en við héldum alltaf
sambandi og milli okkar var æv-
inlega gott. Við hittumst jafnan á
gamlárskvöld hjá Guðmundi syni
þeirra. Það verður öðruvísi nú.
Það var sárt að kveðja hann
þegar hann lést í vor. Hann var
góður maður og hans er saknað.
Ég votta börnum hans, Sigurði,
Guðmundi, Ólöfu Dómhildi, móð-
ur þeirra Pálínu og Þórunni, sam-
býliskonu hans, innilega samúð.
Hvíl í friði.
Þinn mágur,
Jón Geirharðsson.
✝ Erlendur varfæddur á Sand-
haugum í Bárð-
ardal 6. febrúar
1948, elsta barn
Sigurðar Eiríks-
sonar bónda og
Steinunnar Kjart-
ansdóttur hús-
freyju, frá Mið-
hvammi í Aðaldal.
Hann lést 4. nóv-
ember 2020. Yngri
systkini hans eru: 1) Áshildur, f.
15. júní 1952, var gift Konráð
Ottóssyni, synir þeirra eru Sig-
urður Steinar, Ingvar Már, Óli
Sigdór og Leifur Helgi. Núver-
andi sambýlismaður Áshildar er
Ólafur Olgeirsson. 2) Eiríkur, f.
1. júní 1956, giftur Kristbjörgu
Marinósdóttur, f. 6. apríl 1957.
Börn þeirra eru: a) Erla Dröfn
Ragnarsdóttir, b) Sigurður Jón,
börn hans Jóhannes
Örn, Baltasar Ingi
og Júlía Steinunn
og c) Sævar Örn,
sambýliskona Sóley
Jóhannesdóttir.
Erlendur ólst
upp á Sandhaugum
með foreldrum og
systkinum og tók
virkan þátt í bú-
skapnum fram eftir
árum. Aðalstörf
hans á fullorðinsárum voru
akstur og vinnuvélastjórn á
Norðurlandi og í Borgarfirði.
Árið 2013 varð hann fyrir
heilsubresti og varð óvinnufær.
Eftir það dvaldi hann á hjúkrun-
arheimilinu Brákarhlíð í Borg-
arnesi og þar lést hann.
Útför hans var gerð í kyrrþey
frá Borgarneskirkju 16. nóv-
ember 2020.
Hann kom undir kvöld. Ösl-
aði ála Norðurár á eyrunum
neðan við Bólstaðargerði í
Blönduhlíð. Nokkur kveikja var
í ánni og stóð vatnið nokkuð
hátt á Lödunni. Þarna var
mættur til leiks Erlendur Sig-
urðsson ýtustjóri m.m. að
leggja okkur lið við vegagerð í
landi Uppsala og Silfrastaða í
Skagafirði. Ekki þekkti ég Er-
lend fyrr, en sameiginlegur
kunningi beggja, Jakob Jóns-
son frá Laxfossi, kom tengslum
á. Hann hafði kvatt sinn fyrri
vinnustað, Fiskeldisstöðina
Strönd í Hvalfirði, um morg-
uninn og var nú galvaskur
kominn að hefja störf. Þarna
hófst samstarf sem upphaflega
var ætlað að yrði aðeins nokkr-
ir mánuðir, en urðu þrír ára-
tugir að lyktum.
Erlendur gekk á ungum
aldri í Barnaskóla Bárðdæla og
síðar í Bændaskólann á Hólum.
Ungur maður vann hann ýmis
störf, heima og heiman. Hann
vann við jarðgöng Laxárvirkj-
unar og hafnargerð á Akureyri,
vann hjá RS Þorgeirsgarði um
árabil og á verkstæði Ingólfs í
Ystafelli, sem varð einn hans
bestu vina, og þar aflaði hann
sér þekkingar og færni í vél-
fræði á við meðal iðnskólanám.
En hugurinn leitaði lengra.
Hálfþrítugur réðst hann ýtu-
stjóri hjá RS Þverárþings í
Borgarfirði um þriggja ára
skeið. Sá rekstur hafði aðsetur
á Kaðalstöðum í Stafholtstung-
um. Þar bjó Erlendur þetta
tímabil og átti þar ætíð síðan
vinum að mæta hjá þeim systk-
inum Ástríði og Þorsteini. Að
loknum árunum þremur í
Borgarfirði flutti hann aftur
norður. Hafði þá eignast sjálf-
ur litla jarðýtu sem hann gerði
út í nokkur ár ásamt því að
sinna póstdreifingu um stóran
hluta Suður-Þingeyjarsýslu. Að
halda áætlun um sveitir Þing-
eyjarsýslu í vetrarveðrum út-
heimti vel útbúna bíla og
ódeigan bílstjóra. Þessar erfiðu
ferðir tóku sinn toll, og haustið
1988 fannst honum komið nóg.
Hann tók sig upp með föggur
sínar og settist að á Akranesi,
án þess þó að hafa þar að neinu
að hverfa. Úr varð að hann
réðst til Jónasar Guðmundsson-
ar á Bjarteyjarsandi sem véla-
maður og grjótmalari í lípar-
ítverksmiðjunni við
Bláskeggsá. Alltaf síðan leit
hann á Jónas sem sinn helsta
velgjörðarmann.
Skagfirska sumarið leið og
vegagerðinni lauk um haustið.
Margs konar verkefni féllu
áfram til og Erlendur tók þátt í
að leysa þau með okkur. Helsta
einkenni hans sem vélamanns
var að vinna gætilega og valda
ekki tjóni á neinu. Hann var
næmur á virkni véla og bíla og
var fljótur að bregðast við ef út
af bar.
Þegar við fyrir mörgum ár-
um tókum til við hressa upp á
gamlar dráttarvélar og önnur
landbúnaðartæki kom þekking,
reynsla og áhugi Erlendar á því
sviði að góðum notum, og varð
hann brátt vel kynntur í röðum
áhugamanna um gamlar vélar
og tæki. Margir leituðu til hans
með teknísk vandamál sem
hann oftar en ekki kunni lausn
á. Ýmis verkefni af því tagi
biðu hans vorið 2013, þegar
heilsa hans bilaði skyndilega.
Frá þeim tíma var heimili hans
í Brákarhlíð í Borgarnesi, þar
sem hann hlaut hina bestu
umönnun. Hann var fáorður um
örlög sín en bar þann harm í
hljóði. Röddin sterka er nú
hljóðnuð, en lifir í minni vina
og kunningja.
Haukur Júlíusson.
Erlendur
Sigurðsson