Morgunblaðið - 22.12.2020, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
30 ára Ingþór ólst
upp í Reykjavík en býr
núna á Stokkseyri.
Hann er menntaður
kjötiðnaðarmaður frá
Menntaskólanum í
Kópavogi og vinnur
núna hjá Sláturfélagi
Suðurlands. Helstu áhugamál Ingþórs
eru kraftlyftingar, en hann æfir hjá
Ungmennafélagi Stokkseyrar.
Maki: Margrét Andersdóttir, f. 1989,
hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum í
Fossvogi.
Barn: Drengur, f. 2020.
Foreldrar: Guðný Hólm Birgisdóttir, f.
1958, býr í Reykjavík, og Zophonías
Már Jónsson, f. 1959, vélstjóri á
Stokkseyri.
Ingþór
Zophoníasson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú leitar eftir öðruvísi skemmtun í
dag. Líf þitt mun örugglega breytast til
batnaðar á einhvern hátt.
20. apríl - 20. maí
Naut Margar hugsanir eru ekki sannar og
þú þarft ekki að trúa þeim. Farðu vel yfir
öll smáatriði og leitaðu að smugum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Yfirvegað sjálfsöryggi þitt er
segull á þá manneskju sem þú vilt hafa
næst þér. Hafðu stjórn á tilfinningum þín-
um þótt eitthvað verði til að róta upp í
þeim.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur unnið þér hylli vegna
verka þinna og allar líkur eru á því að þér
bjóðist gull og grænir skógar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Yfirboðari þinn eða foreldri virðist
gera of mikar væntingar til þín í dag.
Sýndu því lipurð og ljúfmennsku.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er ástæðulaust að fyllast sekt-
arkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í
þínu valdi að breyta. Njóttu ferskleikans til
hins ýtrasta og uppgötvaðu þér áður
óþekkta hluti.
23. sept. - 22. okt.
Vog Persóna þín er staðföst og er áköf í
því að sannfæra aðra um ágæti hugmynda
þinna. Gerðu það sem þú getur og reyndu
að hafa ekki áhyggjur af öðru.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert það sem þú segir. En
öllu gamni fylgir nokkur alvara svo þú
skalt ekki horfa fram hjá afleiðingum
gjörða þinna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú getir verið sveigj-
anlegur þýðir það ekki að þú eigir að láta
stjórnast af tilfinningum annarra. Gefðu
öðrum færi á að vega og meta það sem þú
segir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það liggur vel fyrir þér að gera
einhvers konar umbætur eða sinna við-
gerðum í vinnunni í dag. Njóttu þess að
leika þér og vinna að listsköpun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að standast
freistingar í dag. Gerðu hvaðeina sem þú
getur til þess að víkka sjóndeildarhringinn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur verið að velta fyrir þér
ákveðnum hlutum og nú er komið að því
að láta til skarar skríða. Tvöfaldaðu heppn-
ina með því að gera varaáætlun.
G
uðmundur H. Guðjóns-
son fæddist 22. desem-
ber 1940 á Kjörvogi í
Árneshreppi í Stranda-
sýslu og fékk almenna
skólagöngu í Finnbogastaðarskóla
til 1954 en árið 1956 fór hann til
Reykjavíkur. Hann var alltaf tón-
elskur og sextán ára hóf hann nám í
Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar og
Tónlistarskóla Reykjavíkur og nam
um leið sögu, stærðfræði, íslensku,
ensku og þýsku í Námsflokkum
Reykjavíkur.
Um haustið 1961 fór hann til
Þýskalands í Musikschule der Evg.
Luht. Landeskirche í Hannover og
lærði þar kirkjutónlist til ársins
1966, fyrir utan sjö mánaði veturinn
1963-4 þegar hann var organisti
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Eftir dvölina í Þýskalandi fór hann
um haustið til Patreksfjarðar, sem
organisti og kennari í tónlist við
grunnskólann þar og sinnti auk
þess almennri kennslu að hluta.
Næsta vetur, 1967-68, fór hann til
Bretlands og lærði við The Royal
School of Church Music í London,
Surry, sem eru aðalstöðvar Ensku
Biskupakirkjunnar í kirkjutónlist.
Lært hjá þeim bestu
Árið 1970 fór hann á sumarnám-
skeið, „masterclass,“ í orgelleik til
Siena á Ítalíu þar sem meistari
Fernando Germani, organisti Pét-
urskirkjunnar í Róm, leiðbeindi
þátttakendum. Í október þetta
sama ár var hann mættur til Vest-
mannaeyja til að taka við stöðu org-
anista við Landakirkju og stöðu
skólastjóra Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja. Eftir áramótin 1972
fékk hann leyfi frá skóla og kirkju
til að fara aftur til Ítalíu, Rómar, í
áframhaldandi nám hjá Fernado
Germani í orgelleik. Germani tók
hann þá í einkakennslu heima hjá
sér. Þegar hið árlega sumarnám-
skeið hófst í Siena í júlí, mætti hann
aftur þangað og var þar þar til hann
hélt heim.
„Á leiðinni heim ákvað ég að
koma við á Ólympíuleikunum í
München, sem þá stóðu yfir, en var
stutt því þá gerðust hin hræðilegu
hryðjuverk gegn ísraelsku leik-
mönnunum, sem menn muna.“ Guð-
mundur fór til Danmerkur og sigldi
með Gullfossi heim, en það var síð-
asta ferð þess fræga farþegaskips.
„Allt þetta ferðalag frá Ítalíu er svo
sannarlega eftirminnilegt.“
Guðmundur segist hafa verið
heppinn að því leyti að sóknarnefnd
Landakirkju hafði skilning á því að
hann þyrfti að vera í faglegu sam-
bandi við starfssystkini sín, en í
Eyjum var hann einangraður í fag-
inu, skiljanlega.
„Mér var því gert kleift að sækja
námskeið í mínu fagi, sem kórstjóri
eða orgelleikari, og fékk greiddan
kostnað sem dugði fyrir tíu daga
uppihaldi og ferðakostnaði annað
eða þriðja hvert ár. Ég nýtti mér
það þegar aðstæður leyfðu og sótti
sumarnámskeið (masterclass) hjá
þekktustu orgelleikurum samtím-
ans, eins og Almut Rössler í Bre-
men og Reykjavík, André Pagenel í
París, Ton Koopman í Leipzig,
Marie Claire Alain í Saint Donat í
Frakklandi og mörgum fleiri.“
Einnig fékk Guðmundur leyfi frá
bæði kirkju og skóla til sjö mánaða
dvalar í Buckeburg í Þýskalandi ár-
ið 1991 til að hressa upp á kunn-
áttuna. Var hann þar með gömlum
skólafélaga frá Hannover, Edgar
Reuschel, sem var stórkantor í
þeirri borg. Þar nýtti hann einnig
tímann til að spila á tónleikum,
bæði einn og með öðrum, leysti
organista af í messum og útförum í
ýmsum kirkjum þar um slóðir og
sótti tónlistarnámskeið til Hann-
over.
Árlegir jólatónleikar
Guðmundur er organisti af lífi og
sál og hann hélt ótal tónleika í
Landakirkju, bæði sem einleikari á
orgel og sem kórstjóri kórs kirkj-
unnar. „Ég byrjaði að halda jóla-
tónleika í desember 1978 með Kór
Landakirkju og hafa þeir verið
haldnir árlega síðan. Á fyrstu tón-
leikunum sungu með kórnum þær
Svala Nielsen og Sigríður Ella
Magnúsdóttir og eftir það var alltaf
einhver nafntogaður einsöngvari
okkar Íslendinga sem söng með
Guðmundur H. Guðjónsson organisti og skólastjóri - 80 ára
1960 Hér er Guðmundur tvítugur með brennandi áhuga á tónlist.
Organisti af lífi og sál
Fjölskyldan Hér er Guðmundur með fjölskyldunni. Frá vinstri: Ágúst
Herbert, Guðrún Gísladóttir, Guðmundur, Dagný kona hans áður (Ubonwan
Paraksa), Rósa, Védís, Hreggviður Vopni og Moonli Singha.
30 ára Sara Björk ólst
upp á Norðurlandi en
býr núna í Reykjavík.
Hún er í doktorsnámi í
líf- og læknavísindum
við Tilraunastöð Há-
skóla Íslands í Meina-
fræði á Keldum. Hún er
að þróa ónæmismeðferð gegn sumarex-
emi í hestum. Hún hefur mikinn áhuga á
útivist, jóga, tónlist og hestamennsku.
Maki: Jónas Guðmannsson, f. 1983, raf-
virki.
Börn: Breki Snær, f. 2012, og Aron Darri, f.
2015.
Foreldrar: Þorbjörg Dóra Gunnarsdóttir, f.
1969, dönskukennari og Stefán Þór Páls-
son, f. 1971, vísindamaður hjá Íslenskri
erfðagreiningu.
Sara Björk
Stefánsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
VIÐSKIPTA
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ