Morgunblaðið - 22.12.2020, Side 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
kórnum. Við höfum flutt með sin-
fóníuhljómsveit fjórar messur eftir
Joseph Haydn, bæði í Eyjum og
uppi á landi.“
Guðmundur settist í helgan stein
árið 2011 eftir rúmlega fjörutíu ára
starf sem leiðandi tónlistarmaður í
Vestmannaeyjum. Hann segir að
allur sá tími hafi verið honum afar
ánægjulegur og Eyjamenn séu
manngerðir sem hafi passað honum
vel. „Þeir taka sig ekki of hátíðlega
og eru vinir vina sinna. Ég vil
þakka öllum samferðina og vonast
til að eiga enn nokkur góð ár þeirra
á meðal.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Dagný
Pétursdóttir, áður Ubonwan Pa-
raksa, f. 20.3. 1949 í Taílandi, vann í
eldhúsi Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
Börn Guðmundar og Dagnýjar
eru 1) Ágúst Herbert, f. 26.8. 1967,
kvæntur Guðrúnu Gísladóttur og
þau eiga börnin Ásgerði Jönu, f.
1.12. 1996; Júlíus Orra, f. 1.9. 2001
og Berglindi, f. 23.9. 2009 og búa á
Akureyri. 2) Rósa, f. 11.3. 1979,
maki Moonli Singha, búa í Los
Angeles í Bandaríkjunum. 3) Védís,
f. 24.5. 1982, vinnur í Ráðhúsi
Reykjavíkur, maki Hreggviður
Vopni Hauksson. Börn Védísar eru
Elíana Ísis Árnadóttir og Haukur
Hafliði Vopnason. Þau búa í Hafn-
arfirði.
Systkini Guðmundar eru Alda, f.
14.9. 1933, d. ; Magnús, f. 27.6.
1936, d. 24.2. 2000; Elsabet Guð-
finna, f. 15.12. 1937; Sólveig Jóna, f.
17.7. 1939, d. ; Guðmundur Hafliði,
f. 22.12. 1940; Guðrún Magnea, f.
26.9. 1942; Haukur, f. 20.8. 1944;
Fríða, f. 11.3. 1946; Jörundur Finn-
bogi, f. 12.6. 1948, d. 4.8. 1999;
Kristín, f. 9.6. 1950; Daníel, f. 30.6.
1952, og Þuríður Helga, f. 25.12.
1953.
Foreldrar Guðmundar eru hjónin
Guðjón Magnússon, f. 28.6. 1908, d.
25.1. 1993, trésmiður og bóndi, og
Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir, f.
2.4. 1916, d. 14.12. 2005, húsfreyja.
Þau bjuggu lengst af á Kjörvogi í
Árneshreppi, en síðar í Reykjavík.
Guðmundur H.
Guðjónsson
Rósa Solveig Daníelsdóttir
húsfreyja á Krossnesi
Benjamín Jóhannesson
bóndi á Krossnesi, hákarlaveiði-
maður og bátasmiður á Ísafirði
Solveig Stefanía Benjamínsdóttir
húsfreyja á Seljanesi, Árnessókn í Strandasýslu
Jón Guðmundsson
bóndi á Seljanesi, Árnessókn í Strandasýslu
Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Kjörvogi,
Árneshreppi í Strandasýslu
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Eyri, Árnessókn í Strand.
Guðmundur Arngrímsson
bóndi á Eyri, Árnessókn í Strandasýslu
Guðrún Guðmundsdóttir
ráðskona á Felli, Árnessókn í Strand.
Jón Pétursson
bóndi á Felli og í Stóru-Ávík,
Árneshreppi í Strandasýslu
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Kjörvogi, Árneshreppi í Strandasýslu
Magnús Guðmundsson
bóndi á Kjörvogi, Árneshreppi í Strandasýslu
Guðfinna Jörundsdóttir
húsfreyja á Finnbogastöðum í Strand.
Guðmundur Magnússon
bóndi á Finnbogastöðum í Strandasýslu
Úr frændgarði Guðmundar H. Guðjónssonar
Guðjón Magnússon
trésmiður og bóndi á Kjörvogi,
Árneshreppi í Strandasýslu
„HÚN MUN NEITA ÖLLU SAMAN EN ÉG ER
MEÐ LÍMHEILA.”
„TAKTU AF ÞÉR BINDIÐ OG HNEPPTU FRÁ
EFSTU TÖLUNNI Á SKYRTUNNI. ÞAÐ ERU
NÍU KONUR Í KVIÐDÓMNUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga mikla ást að
gefa.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
HÉR ER ODDI AÐ FÓRNA ALLRI
REISN TIL AÐ BETLA MAT
VÆL VIRKAR
ÞETTA?
VÆRI EKKI SKYNSAMLEGRA AÐ GRAFA EFTIR
GULLI Í GULLNÁMU EN AÐ RÁÐAST Á KASTALA TIL
AÐ NÁ Í ÞAÐ?
NEI, NÁMUGRÖFTUR
ER OF HÆTTULEGUR!
JAHÁ,
AULINN ÉG!
GÓÐUR, UMHYGGJU-SAMUR, FYNDINN, ÖRLÁTUR, HJARTAHLÝR, TILLITSSAMUR
Helgi R. Einarsson sendi póst ogsagði sig hafa dreymt draum:
„Breytt mataræði Grýlu og Leppa-
lúða (í ft.):
Við börnum ei lengur hún lítur
þótt leiðinleg séu, með kýtur.
Vegan er orðin
og því við borðin
ávaxtanna nú nýtur.
Nútíma Leppalúðar
líkast til eru trúðar.
Á þeirra borðum
er annað en forðum:
Innfluttar núðlur og snúðar.
Á dögunum birtist stakan „Fram-
tíðarsýn“ eftir Helga í Vísnahorni.
Hér er viðauki við hana:
Þarft er nú að þrauka,
þolinmæði er dáð,
árangurinn auka,
endastöð mun náð.
Veiran brátt mun víkja,
veldur seigla því,
auðnan aftur ríkja
okkar lífi í.
Aldrei skulum efast,
útlitið er gott,
senn mun veiran sefast,
snauta héðan brott.
Drottni sínum deyja,
það dæmalausa fól.
Þann bastarð munum beygja.
Bráðum koma jól.
Húnvetningurinn Einar Kol-
beinsson yrkir:
Lötra glaður lífsins veg
þó líkist stundum glópi.
Flesta daga finnst mér ég
í forréttindahópi.
Þá eru viðkvæði frá 17. öld:
Blindsker og boða
ber vel að sjá,
fær þar liggur leiðin við
í landið inn hjá.
Flaut með strengjum flærðar hestur
furðu margur á ægi;
þó var einn af öllum mestur
öldu jór á lægi.
Jón Gissurarson rifjar upp, að
þessi vísa hafi komið í lok hagyrð-
ingamóts á Laugum í Sælingsdal
fyrir áratugum, – Hólmfríður
Bjartmarsdóttir segist vel muna
eftir því móti. Svo mikið ortu menn
að vart var tími fyrir dans:
Allt er sviðið orðið hljótt
andans niður flúinn.
Nú er liðið langt á nótt
ljóðakliður búinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Breytt mataræði
Grýlu og Leppalúða