Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 32
eftir staðbundnum reglum heilbrigð- isyfirvalda. Hér í Kaliforníu býst ég ekki við að yfirvöld muni leyfa áhorf- endur þar til í fyrsta lagi næsta sum- ar. Yfirvöld í sumum suðurríkjunum munu hins vegar sjálfsagt leyfa áhorfendur strax í upphafi, en emb- ættisfólk í mörgum þeirra ríkja hef- ur talið á undanförnum mánuðum að útbreiðsla veirunnar sé eins og fluga sem hægt sé að dangla í til að losa sig við. Vegna riðlunar á venjulegum tímapunktum deildarinnar, höfðu framkvæmdastjórar liðanna mun minni tíma að gera samninga við leikmenn og eiga við önnur lið um leikmannaskipti. Það var því anna- samur tími hjá þeim, en flest lið eru nú komin með þann hóp sem þau ætla sér að reiða sig á. Mörg lið tilkölluð í Austurdeild Að venju er það Vesturdeildin þar sem bestu liðin keppa. Aðeins einu sinni á síðustu 21 leiktímabilum hef- ur liðunum í Austurdeildinni tekist að vinna meirihluta leikjanna gegn liðunum vestanmegin. Keppnin austan megin gæti hins vegar orðið meira spennandi þar sem fleiri lið eru talin geta unnið úrslitakeppnina þeim megin. Ef við lítum á stöðuna nú í upphafi tímabils, er ljóst að um sex lið munu berjast um sigurinn í Austurdeild. Miami Heat mun verða mjög sig- urstranglegt, en liðið kemur að mestu óbreytt til leiks frá síðasta keppnistímabili eftir sigur í úr- slitakeppni Austurdeildar. Slíkt er ávallt tvíeggja þegar helstu kepp- endur hafa gert breytingar til að styrkja sinn leikmannahóp. Milwaukee Bucks gerði langtíma- samning við Giannis Anteto- kounmpo eftir að hann hafði unnið kosninguna um leikmann ársins síð- ustu tvö árin, en nú er kominn tími fyrir liðið að fylgja því eftir í úr- slitakeppninni. Brooklyn Nets eru stóra spurn- ingarmerkið. Kevin Durant virðist hafa náð sér vel eftir langvarandi meiðsl, ef marka má leik hans und- anfarið í upphitunarleikjunum. Kyr- ie Irving verður eflaust annasamur í stigaskorun, en það verður gaman að sjá hvernig að nýi þjálfarinn – Steve Nash – nái að blanda leik hjá þessum tveimur stórstjörnum. Stigaskorun verður ekki vandamál fyrir liðið, en spurningin er hvort það dugi eftir því sem lengra gengur á keppnistímabilinu. Boston Celtics, Philadelphia 76ers og Toronto Raptors munu einnig blanda sér í toppbaráttuna, en á þeim bæjum virðist sem eitthvað vanti á og held ég að þegar í harð- bakkann slær í úrslitakeppninni muni einhver veikleiki koma í veg fyrir sigur hjá þessum liðum. Meistararnir til alls líklegir Rétt eins og á síðasta keppn- istímabili, virðist svo sem að Los Angeles liðin muni verða sigur- stranglegust í Vesturdeildinni. Meistaralið Lakers hafði vart haft tíma til að pússa meistarastyttuna áður en haldið var inn í æfingabúð- irnar fyrir komandi keppnistímabil. Lakers kemur nokkuð breytt til leiks nú eftir þessa stuttu hvíld. Framkvæmdastjóri liðsins, Rob Pel- inka, ákvað að losa sig við þá Rajon Rondo, JaVale McGee og Danny Green, og í staðinn nappaði hann í leikstjórnandann Dennis Schroder og Wes Matthews frá Oklahoma City, auk þess að semja við Marc Gasol hjá Toronto og Montrezl Har- rell hjá LA Clippers. Pelinka líkaði þó við kjarnann í meistaraliðinu og hann fór í það verkefni að fá LeBron James að framlengja samningi sín- um við Lakers um tvö ár, Kyle Kuzma um þrjú ár, og loks Anthony Davis að skrifa undir nýjan fimm ára samning. Þessi kjarni mun því leika saman næstu þrjú árin hjá Lakers. „Við viljum reyna að halda áfram þeim dampi sem við náðum í kúlunni í Orlando, en reyna að bæta okkur enn með þessa nýju leikmenn,“ sagði James eftir síðasta æfingaleik liðs- ins í síðustu viku. „Bæði ég og Lak- ers höfum ávallt verið miðdepillinn sem andstæðingarnir vilja skjóta niður og það mun bara aukast núna þegar við erum meistarar. Við verð- um að skilja að í hverjum leik eru allir á eftir okkur, þannig að það verður nóg fyrir okkur að eiga við út tímabilið.“ Með þessum ákvörðunum Lakers hefur Pelinka nú styrkt stöðu meist- aranna með því að yngja leik- mannahópinn og skapa þann stöð- ugleika sem meistaralið þurfa til að geta varið titilinn. Aðdáendur Lakers ættu einnig að veita tvítugum Talen nokkrum Hor- ton-Turner athygli. Hann lék með varaliði Lakers á síðasta tímabili eft- ir að hafa komið úr háskólabolt- anum, en í æfingaleikjum liðsins hef- ur hann farið hamförum og halda flestir innanbúðarmenn Lakers að hann muni leika stórt hlutverk af varamannabekknum á tímabilinu. Nágrannar Clippers verða eitt stórt spurningamerki eftir að þjálf- arinn Doc Rivers ákvað að gefast upp á núverandi leikmannahópi liðs- ins eftir hrunið gegn Denver Nug- gets í átta liða úrslitunum í kúlunni í september. Tyronn Lue hefur tekið við þjálfarastöðunni og binda margir miklar vonir við hann í þessu starfi. Vandamálið sem hann stendur þó frammi fyrir er að ef eitthvað er, hefur leikmannahópurinn veikst og ekki er séð að stórstjörnurnar Kawhi Leonard og Paul George séu það tvíeyki sem geti stýrt liði til sig- urs í úrslitakeppninni. Hvað gera Denver og Dallas? Denver Nuggets komst í loka- rimmu Vesturdeildar í úrslitakeppn- inni í kúlunni, en rakst þar á hrað- lest Los Angeles Lakers. Í þeirri keppni kom hins vegar í ljós að hægt væri fyrir Nuggets að reiða sig á Serban Nikola Jokic í miðherjastöð- unni. Hann var frábær í sóknar- leiknum og leikstjórnandinn Jamal Murray blómstraði í stigaskor- uninni. Hann er augljóslega ein af stórstjörnum deildarinnar. Liðið kemur reyndar nokkuð breytt til leiks þetta leiktímabil, þannig tím- inn leiðir í ljós hvort þær breytingar muni koma því til góða. Dallas Mavericks gerir sér vonir um að vera í baráttunni um toppinn í Vesturdeildinni, en þar á bæ var einnig nokkuð um leikmannaskipti frá síðasta tímabili. Liðið styrkti varnarleik sinn, en spurningar- merkið við liðið verður hvort mið- herjinn Kristaps Prozingis nái að jafna sig eftir enn einn hnéupp- skurðinn. Luca Doncic mun áfram verða aðalmaðurinn hjá liðinu, en haldið er að ef hann nær að endur- taka leik sinn frá síðasta tímabili, muni hann verða leikmaður ársins í deildinni. Önnur lið verða tilkölluð í sterkri Vesturdeildinni, en hvorki Golden State, Utah, Portland, né Houston verða nægilega góð til að geta veitt þessum fjórum toppliðum verulega keppni. Houston hefur gersamlega hrunið og eru flestir á þeim bæ orðn- ir þreyttir á leikaraskap James Harden, en hann gæti fengið ósk sína uppfyllta um að fara frá liðinu. Verður Lakers-hraðlest- in óstöðvandi í vetur?  NBA-deildin fer af stað í kvöld  Keppnin flutt úr kúlunni í Flórída í heimahallir liðanna  Áhorfendur í sumum ríkjum en tóm hús í öðrum AFP Gríma LeBron James fylgist með í æfingaleik um helgina en viðbúið er að engir áhorfendur verði á heimaleikjum LA Lakers fram eftir vetri. NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Keppnistímabilið í NBA-deildinni í körfuknattleik hefst í kvöld eftir stutt hlé frá endalokum síðasta leik- tímabils, og halda flestir sérfræð- ingar að Los Angeles Lakers muni verja titilinn. Eftir lok síðasta keppnistímabils í byrjun október, var ljóst að stétta- félag NBA-leikmanna var ekki á því að hefja keppnina á þessu leik- tímabili í „kúlu“ eins og gert var í haust í Flórída vegna kórónufarald- urins. Leikmenn voru tilbúnir að fórna fjölskyldutíma og þægindum til að klára síðasta keppnistímabil, en einangrunin í kúlunni reyndist mörgum andlega erfið. Af þeim sök- um ákváðu forráðamenn deild- arinnar að keppnin nú myndi verða í heimahöllum liðanna, með viðeig- andi reglum um hegðun tengda far- aldrinum, rétt eins og gerst hefur í öðrum atvinnudeildum víðs vegar um heiminn. Flestir leikmenn vildu hefja keppni sem fyrst Getið var á í þessum pistlum eftir lok síðasta keppnistímabils, að nú- verandi leiktímabil myndi sjálfsagt hefjast um áramótin. Það virtist besta ágiskunin ef leikmenn ætluðu sér að fá greidd næstum full laun og að hægt væri að klára keppnina fyrir Ólympíuleikana í Japan í endann á júlí. Leikmenn þeirra liða sem lengst komust í úrslitakeppninni kvörtuðu reyndar í samfélags- miðlum um hversu stutta hvíld þeir myndu fá ef keppnin hæfist fyrir áramót og lögðu þeir til að fresta byrjun þessa keppnistímabils til seinni hluta janúar. Sú ósk rakst hins vegar á eina af mikilvægustu stoðum á hugs- unarhætti NBA-leikmanna. Eitt af því sem leikmenn hugsa mikið um er hversu háar tekjur þeir geta fengið á sínum leikferli – skiljanlegt þar sem ekkert er gefið varðandi heilsu þeirra. Virðing meðal leikmanna byggir oft á því hversu há laun þeir hafa, þannig að óskin um lengri hvíld átti ávallt á brattann að sækja hjá meirihluta leikmanna. Þar að auki hafði slatti af liðum ekki leikið síðan í mars eða ágúst. Eigendur og leik- menn þeirra liða voru ákafir í að hefja leik sem fyrst, en leikmenn fá greidd laun á grundvelli fjölda þeirra leikja sem þeir spila, ef ómeiddir. Eftir fundarhöld stéttarfélagsins í byrjun nóvember var ljóst að óskin um lengri hvíld fyrir komandi leik- tímabil yrði ekki að raunveruleika. Of margir leikmenn biðu æstir eftir því að geta hafið keppni sem fyrst og í lokin var ákveðið að hefja keppnina 22. desember, sem sagt í kvöld. Breytingar á fyrirkomulagi Frekari fundarhöld leiddu til þess að ákveðið var að leika 72 deildaleiki í stað 82, og að stefnt væri á að klára keppnina í byrjun júlí. Deildin skipu- lagði síðan leikina á fyrri hlutanum fram til byrjun mars, en mun á þeim tímamótum tilkynna skipulagningu leikja á seinni hlutanum. Liðin munu hafa mismunandi reglur um hvort – og þá hversu margir – áhorfendum muni verða hleypt í hallirnar, en liðin munu fara 32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020 England Burnley – Wolves..................................... 2:1  Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Chelsea – West Ham................................ 3:0 Staðan: Liverpool 14 9 4 1 36:19 31 Leicester 14 9 0 5 26:17 27 Manch.Utd 13 8 2 3 28:21 26 Everton 14 8 2 4 25:19 26 Chelsea 14 7 4 3 29:14 25 Tottenham 14 7 4 3 25:14 25 Southampton 14 7 3 4 25:19 24 Manch.City 13 6 5 2 19:12 23 Aston Villa 12 7 1 4 24:13 22 West Ham 14 6 3 5 21:19 21 Wolves 14 6 2 6 14:19 20 Newcastle 13 5 3 5 17:22 18 Crystal Palace 14 5 3 6 19:25 18 Leeds 14 5 2 7 24:30 17 Arsenal 14 4 2 8 12:18 14 Burnley 13 3 4 6 8:19 13 Brighton 14 2 6 6 16:22 12 Fulham 14 2 4 8 13:23 10 WBA 14 1 4 9 10:29 7 Sheffield Utd 14 0 2 12 8:25 2 Danmörk Midtjylland – Nordsjælland ................... 3:1  Mikael Anderson kom inn á sem vara- maður á 75. mínútu hjá Midtjylland. Staðan: Midtjylland 13 8 3 2 23:14 27 Brøndby 13 9 0 4 26:19 27 AGF 13 7 3 3 26:16 24 Randers 13 7 1 5 21:12 22 SønderjyskE 13 6 3 4 21:17 21 København 13 6 2 5 22:21 20 AaB 13 5 4 4 15:18 19 Nordsjælland 13 4 4 5 22:19 16 OB 13 4 4 5 18:20 16 Vejle 13 4 3 6 18:24 15 Horsens 13 1 3 9 10:24 6 Lyngby 13 0 4 9 12:30 4  Deildin er komin í vetrarfrí til 2. febrúar. Holland B-deild: Jong PSV – Almere City......................... 1:2  Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á sem varamaður á 24. mínútu hjá PSV. Jong Ajax – Telstar ................................. 1:2  Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í leikmannahópi Ajax.  Svíþjóð Kristianstad – Alingsås ...................... 31:27  Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði sjö mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein- arsson þrjú.  Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark fyrir Alingsås. Redbergslid – Guif .............................. 31:27  Daníel Freyr Ágústsson varði 10 skot í marki Guif. Lugi – Skövde ...................................... 26:21  Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði ekki fyrir Skövde. Staða efstu liða: Malmö 27, Ystad IF 25, Alingsås 23, Skövde 21, Lugi 21, Kristianstad 20, Säve- hof 20, IFK Ystad 17. Sviss Kadetten – Suhr Aarau ...................... 31:24  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar lið Kadett- en Schaffhausen sem er í fjórða sæti af tíu liðum í deildinni.   Knattspyrnusamband Íslands hefur birt drög að deildabikar kvenna og karla, Lengjubikarnum, fyrir árið 2021. Áætlað er að keppni hjá bæði körlum og konum hefjist föstudag- inn 12. febrúar, hafi yfirvöld leyft keppni á þeim tíma. Í A-deild karla leika sem fyrr þau 24 lið sem eru í tveimur efstu deild- unum og eru riðlarnir þannig: 1. riðill: Valur, KA, HK, Grinda- vík, Afturelding, Víkingur Ó. 2. riðill: FH, KR, Víkingur R., Fram, Þór, Kórdrengir. 3. riðill: Stjarnan, ÍA, Keflavík, Grótta, Vestri, Selfoss. 4. riðill: Breiðablik, Fylkir, Leiknir R., Fjölnir, ÍBV, Þróttur R. Breytingar verða á fyrirkomu- laginu í kvennaflokki en í stað sex liða leika nú tólf lið í tveimur riðl- um í A-deild. Í B-deild leika átta lið í stað sex liða og í C-deild eru tveir riðlar í stað þriggja. Riðlarnir í A-deild kvenna eru þannig skipaðir: 1. riðill: Valur, Selfoss, Þróttur R., ÍBV, Keflavík, KR. 2. riðill: Breiðablik, Fylkir, Stjarnan, Þór/KA, Tindastóll, FH. Dregið í riðla í deildabikar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.