Morgunblaðið - 22.12.2020, Blaðsíða 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2020
Barnahrollvekjan Norn-irnar er byggð á sígildrisögu Roalds Dahl umdreng sem verður fyrir
því óláni að lokast inni á ársþingi
sem nornir halda á Englandi en
þeim er sérlega illa við börn, eins
og drengurinn fær að kynnast þeg-
ar honum er breytt í mús. Með að-
stoð ömmu sinnar tekst honum að
koma í veg fyrir að nornirnar
breyti öllum börnum í mýs. Í bók-
inni er sögusviðið England en í
þessari nýju kvikmynd er það
Bandaríkin á sjöunda áratugnum
og drengurinn, Charlie, og amma
hans eru svört. Hollywood er sem
betur fer farin að vakna til vitund-
ar um hversu hvít sú verksmiðja er
oftast nær.
Charlie missir foreldra sína í bíl-
slysi og flytur til ömmu sinnar sem
veit allt um nornir eftir að hafa
kynnst þeim á barnsaldri. Í inn-
kaupaferð reynir ein slík að ginna
Charlie með sælgæti en verður fyr-
ir truflun og lætur sig hverfa.
Charlie segir ömmu sinni frá þessu
og lýsir norninni vel fyrir henni.
Amma gamla áttar sig strax á því
að þar fer norn og til að koma
drengnum í öruggt skjól ákveður
hún að dvelja á hóteli við sjávarsíð-
una. Fer ekki betur en svo að hóp-
ur dulbúinna norna mætir skömmu
síðar á hótelið og þykist ætla að
halda þar barnaverndarþing. Norn-
irnar læsa sig inni í fundarsal, taka
af sér hárkollur, hanska og skó og
sýna sitt rétta og afskræmda útlit.
Charlie er í felum undir fundarpalli
og verður vitni að þessum hryll-
ingi. Aðalnornin, leikin af Anne
Hathaway, þefar hann fljótlega
uppi og breytir honum í mús með
þartilgerðri töframixtúru. Charlie
leggur á flótta með tveimur börn-
um sem einnig hefur verið breytt í
mýs og með aðstoð ömmu sinnar
tekst þeim að koma aðalnorninni
fyrir kattarnef og breyta hinum
nornunum í rottur.
Hræðilegur hreimur
Hinn mistæki leikstjóri Robert
Zemeckis er við stjórnvölinn og
kvikmyndin er því miður ekki ein
af hans bestu. Zemeckis á nokkrar
sígildar að baki, m.a. Back to the
Future þríleikinn og Forrest Gump
en líka nokkrar heldur lélegar.
Kvikmynd hans um nornirnar er
fínasta skemmtun fyrir börn, það
verður ekki af henni tekið, og fer
svo sem ágætlega af stað ef undan
er skilinn furðulegur innálestur
Chris Rock sem er svo ýktur að
maður heyrir varla hvað hann er
að segja. Rock er ekki rétti leik-
arinn þegar kemur að því að tala
inn á barnamyndir, hans sterka
hlið er gamanleikur og uppistand
og hann virðist pikkfastur í grín-
stillingunni. Octavia Spencer leikur
ömmuna og er hún að vanda
sjarmerandi og Jahzir Bruno
stendur sig líka vel í hlutverki
Charlie. Það sama verður ekki sagt
um Anne Hathaway sem leikur
aðalnornina og er með einhvern
þann asnalegasta hreim sem heyrst
hefur hin seinni ár. Í honum má
meðal annars greina sænska kokk-
inn í Prúðuleikurunum og hinn vit-
granna Clouseau rannsóknarlög-
reglumann úr Bleika pardusnum
og engu líkara en þeim hafi verið
hrært saman við skrumskælda út-
gáfu af Rússa eða Þjóðverja. Fyrir
vikið er Hathaway illskiljanleg og
undarlegt að Zemeckis hafi látið
það óátalið. Aðrir leikarar eru þó
ágætir og Stanley Tucci fer þar
fremstur sem hótelstjóri.
Eftir að börnum hefur verið
breytt í mýs fara tölvuteikningar
að verða fyrirferðarmeiri í mynd-
inni og nornirnar fá líka vænan
skammt af slíkum brellum og þá
einkum Hathaway sem er af-
skræmd hressilega, munnurinn
víkkaður nánast upp að eyrum og
ábyggilegt að það virkar hryllilega
á barnunga áhorfendur. Þó saknar
maður gömlu góðu gervanna frá
þeim tíma er fyrri myndin eftir
bókinni var gerð, árið 1990 og
Zemeckis ofnotar því miður tölvu-
tæknina þannig að stundum er
myndin frekar teiknimynd en leik-
in. Þrátt fyrir að hótelið sé hálffullt
af lífshættulegum nornum er
spennan einkennilega lítil og kunna
fyrrnefnd teiknimyndaráhrif að
spila þar inn í.
Mikilvægasta boðskap mynd-
arinnar er engu að síður komið vel
til skila en hann er sá að þiggja
ekki sælgæti af ókunnugum. Þeir
gætu nefnilega verið nornir í
dulargervi.
Hryllileg Anne Hathaway í hlutverki aðalnornarinnar í Nornunum sem gerð er eftir barnabók Roalds Dahl.
Zemeckis getur betur
Smárabíó, Sambíóin Álfabakka
og Kringlunni, Laugarásbíó og
Borgarbíó
Nornirnar/The Witches bbbnn
Leikstjórn: Robert Zemeckis. Handrit:
Robert Zemeckis, Guillermo del Toro og
Kenya Barris. Byggt á bók Roalds Dahl.
Aðalleikarar: Jahzir Bruno, Octavia
Spencer, Anne Hathaway og Stanley
Tucci. Bandaríkin, 2020. 106 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Sjónvarpsþáttaröðin Systrabönd
er tilnefnd til Nordisk Film- og
TV Fond-verðlaunanna sem af-
hent verða á kvikmyndahátíðinni
í Gautaborg á næsta ári og
keppir þar um besta handrit í
flokki dramasjónvarpsþáttaraða
frá Norðurlöndunum. Jóhann
Ævar Grímsson átti hugmyndina
að þáttaröðinni en auk hans
skrifuðu handritið Björg Magnús-
dóttir, Jóhanna Friðrika Sæ-
mundsdóttir og Silja Hauksdóttir
en Silja er auk þess leikstjóri
þáttanna.
Þáttaröðin er framleidd af
Sagafilm fyrir Sjónvarp Símans
og Viaplay á Norðurlöndum í
samstarfi við Sky Studios á Bret-
landi og Gautaborgarhátíðin er
umfangsmesta kvikmyndahátíðin
á Norðurlöndum og stendur yfir
frá 29. janúar til 8. febrúar 2021.
Meðal þáttaraða sem keppa við
Systrabönd er danska þáttaröðin
Ulven kommer, norska serían
Velkommen til Utmark sem Dag-
ur Kári Pétursson leikstýrir,
sænska syrpan Thin Blue Line og
finnska þáttaröðin Cargo, að því
er fram kemur í tilkynningu.
„Það er afskaplega ánægjulegt
að fá þessa tilnefningu nú þegar
verið er að taka lokaskrefin í
framleiðslunni. Vandað hefur
verið til verka á hverju stigi og
við hlökkum til að sjá viðbrögð
áhorfenda við þáttunum þegar
þeir verða teknir til sýningar
næstu páska,“ er þar haft eftir
Tinnu Proppé, framleiðanda þátt-
anna hjá Sagafilm. Systrabönd
verða sýnd í Sjónvarpi Símans
Premium um páskana á næsta ári
og fara þættirnir í kjölfarið í sýn-
ingar á Norðurlöndunum og í
heimsdreifingu á vegum NBC
Universal Global Distribution.
Tilnefnd til hand-
ritaverðlauna
Stýrir Silja Hauksdóttir er leikstjóri
þáttanna og einn handritshöfunda.
Morgunblaðið/Ásdís
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020