Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 13
UMFJÖLLUN
áherslurnar þá verði fyrst og fremst að
halda áfram umbótastarfi í löggjöfinni
með varfærnum en skynsamlegum
hætti og ég efast um að við munum
koma með byltingakenndari mál á
slíkum vetri en þau sem við höfum
þegar rætt um.
Það á ekki að stimpla fólk út
Nú ert þú í krabbameinsmeðferð,
er erfitt að samræma erilsamt starf
innanríkisráðherra og veikindi?
Þetta snýst mikið um forgangsröðun
en ég hef gert ákveðnar breytingar
á minni vinnu sem felst í því að ég
hef dregið úr félagslega þættinum,
en venjulega vil ég helst alltaf hafa
fólk í kringum mig. Þetta hef ég gert
bæði af því að það fylgir því álag að
vera innan um fólk og svo er maður
í meiri sýkingarhættu. Ég nýt þess
að vera heppin með samstarfsfólk
hér í ráðuneytinu og hef mjög góðan
stuðning í því sem ég er að gera hjá
mínum kollegum. Ég einbeiti mér að
þessum stóru málum sem við viljum
koma í gegn og ég hef ekki orðið vör
við það að fram að þessu hafi þessi
alvarlegi sjúkdómur komið niður á
mínum störfum.
Það er mikilvægt fyrir fólk sem
er að glíma við sjúkdóma að það fái
áfram að vera hluti af þjóðfélaginu
eins og það hefur þrek til. Það á að
gera fólki kleift að vinna, ef það hefur
til þess þrek og vilja, og ekki stimpla
það út.
Veikindum sem þessum fylgir því
að maður verður var við dauðleikann
og hættir að hafa svo miklar áhyggjur.
Hlutir hafa lag á því að leysast og ég
hugsa mikið til Birtíngs hans Voltaire
þessa dagana. Og það skiptir máli
fyrir stjórnmálamenn að tileinka sér
æðruleysi. Ég lít á stjórnmálastarfið
sem tímabil en örlög manns eru ekki
alltaf alveg í manns hendi.
Að lokum, ætlar þú að bjóða þig fram
við næstu alþingiskosningar?
Já það ætla ég að gera. Maður veit
svosem aldrei hvað verður í fram
tíðinni en eins og staðan er núna þá
er það ásetningur minn. Svo verður
bara koma í ljós hvað kjósendur segja.
ÞS og EI
ÞÚ ÁTT GOTT SKILIÐ
• 1/3 í séreign sem þú getur tekið út 60 ára
• Val um 6 ávöxtunarleiðir
• Eingöngu sjóðfélagar í stjórn
• Besti lífeyrissjóður í Evrópu í löndum
með færri en milljón íbúa samkvæmt
fagtímaritinu IPE
Veldu Almenna lífeyrissjóðinn