Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16 11
UMFJÖLLUN
við svo með þessar grunnstoðir sem
áður féllu undir dómsmálaráðuneytið
og mér finnst að til lengri tíma litið sé
heppilegra að hafa meiri aðgreiningu.
Þetta eru umfangsmikil mál en
þjóðfélagið verður að vera tilbúið
til að fjárfesta í grunnstoðum. Ef við
ætlum að reka hérna gott samfélag
þá skipta þær ofboðslega miklu máli
og það skiptir einnig máli að þær fái
svolítið að vera í friði.
Frumvarp um millidómstig
tilbúið
Þú nefndir mál á döfinni og ert þá
væntanlega að vísa í millidómstigið.
Hvar stendur það núna?
Millidómstigið er eitt af þeim málum
sem er tekið fram í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarflokkanna. Nú erum við að
sjá til lands og frumvarpið er tilbúið.
Þetta er stórt og mikilvægt framfaramál
sem er gott fyrir réttarkerfið í landinu.
Ég bind miklar vonir við að vel
takist til og vona einnig að það náist
samkomulag á þinginu. Þetta er mál
sem horfir langt inn í framtíðina.
Gagnrýni hefur verið sett fram um
frumvarpið og m.a. hefur LMFÍ skilað
inn umsögn ásamt fleirum. Hefur
verið tekið tillit til þeirra athugasemda
sem þar komu fram?
Við höfum tekið tillit til þeirra
athugasemda sem okkur þótti vera til
bóta. Við unnum frumvarpið í upphafi
með mjög góðri nefnd undir forystu
Kristínar Edwald hæstaréttarlögmanns.
Okkur fannst síðan mikilvægt, til að
framganga málsins yrði sem best, að
hafa samráð við ýmsa aðila og það
gekk vel. Nú er frumvarpið komið á
það stig að Alþingi og allsherjarnefnd
tekur það til meðhöndlunar á næstu
dögum. Ég er mjög spennt fyrir þessu
máli og hlakka til að fá að tala fyrir
því á Alþingi. Ég myndi svo gjarnan
vilja skilja við þetta ráðuneyti með
millidómstigið frágengið.
Ef lagasetningin gengur í gegn,
hvenær tekur millidómstigið við?
Frumvörpin miða við 1. janúar 2018.
Það þarf að gefa rúman tíma fyrir
undirbúning og ég legg því ekki
áherslu á tiltekinn dag.
Erum við að tala um gildistöku á 100
ára afmæli Hæstaréttar árið 2020?
Nei, það er ekki svo langt að bíða.
En árið 2018 verður mjög gott ár og
mér fyndist gaman ef við Íslendingar
gætum unnið að einhverju góðu
framfaramáli, á hundrað ára afmæli
fullveldisins.
Reyndi á alla innviði eftir
hrun
Síðustu ár hefur dómskerfið verið
fjársvelt og margir telja að meira
fjármagn þurfi að koma inn í allt
kerfið. Hvað segir þú um það?
Við erum auðvitað að koma úr mjög
erfiðu tímabili þar sem reyndi verulega
á alla innviði í landinu og ekki síst á
þessar grunnstoðir sem þurfa að vera
í lagi. Við höfum verið að bæta í og
ég veit að menn taka eftir því sem
þegar hefur verið gert. Nú þegar hafa
verið tekin stór skref með stofnun
embættis héraðssaksóknara en þar
með lauk ákveðinni vinnu er varðar
sakamálalöggjöfina sem var samþykkt
á Alþingi árið 2010. Skilningur
fjárveitingavaldsins var mjög góður
hvað þetta varðar og við erum mjög
ánægð með það.
Erum við að sigla lygnan sjó á ný?
Það er að birta til og ég held að við
sjálf höfum ekki gert okkur grein
fyrir því hve miklum árangri íslenska
þjóðin hefur náð eftir þetta mikla
efnahagshrun. En það reynir hins
vegar á agann og mér finnst það hafa
verið erfiðast fyrir þjóðarsálina. Við
höfum oft komið okkur í vandræði,
í bjartsýni og agaleysi. Við erum ung
þjóð og högum okkur oft í samræmi
við það, erum ungæðisleg en það er
líka hluti af sjarmanum.
Mikilvægi minnihluta Alþingis
Nú ert þú ráðherra sem situr ekki á
Alþingi. Eiga ráðherrar kannski ekki
að vera þingmenn?
Margar tillögur hafa komið fram
í þinginu í gegnum tíðina um að
ráðherrar eigi ekki að sitja á Alþingi.
Hugsunin hefur þá verið sú að eftir að
ríkisstjórn tekur við og hefur valið sér
ráðherra þá hætti þeir þingmennsku.
Sjónarmið um þetta hafa verið þvert
á flokka og línur. Ég hef verið þeirrar
skoðunar að menn megi ekki gleyma
mikilvægi minnihluta á Alþingi. Það
má leiða að því líkum að þeir sem
veljast til ráðherrasetu séu reyndir
þingmenn og forystumenn sem eiga
gott með allt „debat“ í þinginu. Ef að
mikil ágreiningsmál eru uppi í þinginu,
Andri Árnason hrl.
Edda Andradóttir hrl., LL.M.
Finnur Magnússon hdl., LL.M.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Simon David Knight
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hrl., LL.M.
Borgartúni 26
IS 105 Reykjavík
+354 580 4400
www.juris.is
Andri Árnason hrl.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Páll Ásgrímsson hdl., LL.M.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Stefán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hdl., LL.M.
Borgartúni 26
IS 105 Reykjavík
+354 580 4400
www.juris.is
Andri Árnason hrl.
Halldór Jónsson hrl.
Lárus L. Blöndal hrl.
Páll Ásgrí sson hdl., LL.M.
Sigurbjörn Magnússon hrl.
St fán A. Svensson hrl., LL.M.
Vífill Harðarson hdl., LL.M.