Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 16
16 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16
UMFJÖLLUN
Helmingur með yfir 700
þúsund krónur á mánuði
Fulltrúar voru spurðir út í heildar
mánaðarlaun og fengust svör hjá
124 einstaklingum. Þar kemur fram
að 18% (23 af 124) fulltrúa eru með
yfir 900 þúsund krónur, 4% (5 af 124)
með 801900 þúsund krónur og 30%
(37 af 124) eru með laun á bilinu 701
800 þúsund krónur. Þá eru 19% (24 af
124) með 601700 þúsund krónur og
21% (26 af 124) með á bilinu 501600
þúsund krónur. Helmingur fulltrúa eru
því með laun yfir 700 þúsund krónum
á mánuði.
Starfsaldur og laun
Talsverð fylgni er á milli starfsaldurs
og launa hjá fulltrúum. Í hópi þeirra
sem eru með innan við þriggja ára
starfsaldur hefur rúmur helmingur (26
af 51) 600 þúsund krónur eða meira í
laun á mánuði og af þeim hafa 6% (3
af 51) yfir 900 þúsund krónur. Í hópi
þeirra fulltrúa sem eru með 35 ára
starfsaldur eru 81% (30 af 37) með yfir
600 þúsund krónur í mánaðarlaun og
11% eru með yfir 900 þúsund krónur.
Helmingur (11 af 22) fulltrúa sem eru
með 610 ára starfsreynslu eru með
laun yfir 800 þúsund krónur og 58%
(7 af 12) þeirra sem eru með meira en
11 ára starfsreynslu eru með laun yfir
900 þúsund krónur á mánuði.
Konur með lægri laun
Að gefnum þeim forsendum að
meðallaun þeirra sem eru milli 301
400 þúsund krónur í mánaðarlaun séu
350 þúsund krónur o.s.frv. þá kemur
í ljós að karlar eru með að meðaltali
737 þúsund krónur í mánaðarlaun á
meðan konur eru með 677 þúsund
krónur og er kynbudninn launamunur
því 60 þúsund krónur eða 8%. Þess
má geta að í síðustu launakönnun
VR árið 2015 mældist kynbundinn
launamunur 9,9% í heildina en meðal
8% kynbundinn launamunur
hjá fulltrúum með hdl. réttindi
LAUNAMUNUR MILLI KARLA og kvenna í starfi fulltrúa á lögmannsstofum er 8% en karlar eru að
meðaltali með 60 þúsund króna hærri mánaðarlaun en konur. Þessi munur verður ekki skýrður með
því að konur vinni færri stundir en karlar og heldur ekki með því að karlar hafi lengri starfsreynslu.
Lögmannablaðið gerði könnun meðal fulltrúa á lögmannsstofum dagana 9.-23. febrúar sl. Í þessu
tölublaði verða laun fulltrúa til umfjöllunar en síðar munu aðrir þættir könnunarinnar verða birtir.1
1Könnunin var send til allra lögmanna sem skráðir eru sem fulltrúar á lögmannsstofum, alls 226 manns. Könnunin nær hins vegar
ekki til þeirra löglærðu starfsmanna sem ekki eru með lögmannsréttindi. Svarhlutfall í könnuninni var 61%.
Mánaðarlaun fulltrúa Starfsaldur og laun