Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 10
10 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16
UMFJÖLLUN
ÓLÖF NORDAL INNANRÍKIS RÁÐHERRA
tók við annasömu embætti innanríkis-
ráðherra 4. desember 2014. Mörg
mikilvæg verkefni, sem eru á hennar
borði þessa dagana, snúa að dóms-
og réttarkerfinu og má þar til dæmis
nefna frumvarp um millidómstig. Þyrí
Steingrímsdóttir ritstjóri Lögmanna-
blaðsins ræddi við Ólöfu og byrjaði á
því að spyrja hana um gamla dóms-
málaráðuneytið.
Meiri aðgreining heppilegri
Á borði innanríkisráðuneytis eru
málefni sem heyrðu áður undir dóms
málaráðuneytið. Margir sjá eftir
því ráðuneyti og telja að málefni
tengd dóms og réttarkerfinu fái ekki
nægilegt rými í sameinuðu ráðuneyti.
Er þetta réttmæt gagnrýni?
Ég var ekki hlynnt þessum breyt ingum
þegar þær voru gerðar í þinginu á
sínum tíma og hef þá skoðun að
sjálfstætt dómsmálaráðuneyti sé skyn
samlegt. Ég vil samt ekki ganga svo
langt að segja að þessi málaflokkur
sé á einhverjum hrakhólum hér í
ráðuneytinu. Þvert á móti þá eru
umfangsmikil mál á döfinni sem
snúa að dómsmálum. Hins vegar eru
verkefnin sem innanríkisráðuneytið
fæst við ósamkynja, ef svo má
segja, og það hefur að vissu leyti
áhrif á störf ráðherra. Til dæmis er
samgönguhlutinn gríðarlega fjár frekur
og svo er fjöldi verkefna varðandi
ferðaiðnaðinn, svo ekki sé talað um
útlendingamálin. Á sama tíma erum
Viðtal við Ólöfu Nordal innanríkisráðherra:
Vil gjarnan skilja við þetta ráðuneyti
með millidómstigið frágengið
Ljósmynd: Ernir Eyjólfsson