Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 24

Lögmannablaðið - 2016, Blaðsíða 24
24 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/16 Á LÉTTUM NÓTUM ÞAÐ VAR BJARTUR og fallegur föstu­ dagur 18. desember 2015 þegar hið árlega Jólasnapsmót LMFÍ í innan­ hússknattspyrnu fór fram. Að þessu sinni voru skráð til leiks fimm lið sem voru KF Þruman, Cato lögmenn, LOGOS, Lögmenn Árborg og loks Opus lögmenn. Liðin voru mis fjöl­ menn en áttu það þó sameiginlegt að öll voru þau skipuð karlkyns þátt­ takendum. Engin kona tók þátt að þessu sinni og lék grunur á að þær vildu frekar sækja Slippbarinn þennan dag. Sem fyrr var kappið ekki látið bera fegurðina ofurliði. Þannig sáust glæsileg tilþrif hjá hinum vöskum piltum og voru menn almennt á því að allir hefðu þeir örugglega verið mjög efnilegir hér áður fyrr. Ríkjandi meistarar, Cato lögmenn, hugðust selja sig dýrt. Það sama átti við um Opus lögmenn sem höfðu harma að hefna frá síðasta móti. Hjá LOGOS vantaði tvo máttarstólpa, þá Erlend Gíslason og Benedikt Árnason. Grunur lék á að þeir hefðu farið á Slippbarinn. Önnur lið voru meira með til þess að gleðja félagsmenn og áhorfendur. Leiknar voru tvær umferðir en liðin fóru misjafnlega af stað. Það kom fljótlega í ljós að Opus lögmenn ætluðu að leggja allt í sölurnar. Þannig var liðið með fullt hús stiga eftir fyrri umferð, eða 12 stig samtals. Í 2.­ 3. sæti eftir fyrstu umferð voru Cato lögmenn og KF Þruman með 5 stig hvort. Í seinni umferð hertu Opus menn tökin og höfðu að þessu sinni mikla yfirburði, unnu sjö leiki og gerðu eitt jafntefli. Lögmenn Árborg sýndu góða takta í seinni umferð og höluðu inn verðskulduð stig. Þá gáfust Cato menn ekki upp og áttu feikilega góðan endasprett sem dugði þó ekki til þar sem yfirburðir Opus voru miklir. LOGOS náði því takmarki að vera fyrir ofan fáliðaða KF Þrumu sem að þessu sinni rak lestina. Úrslitin urðu því sem hér segir: 1. sæti með 22 stig, Opus lögmenn. 2. sæti með 15 stig, Cato lögmenn. 3. sæti með 7 stig, Lögmenn Árborg. Það var samdóma álit þeirra sem tóku þátt að leikmenn hefðu almennt Jólasnapsmót LMFÍ í innanhússknattspyrnu árið 2015

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.