Tölvumál - 01.01.2017, Side 2

Tölvumál - 01.01.2017, Side 2
RITSTJÓRNARPISTILL Dr. Ásrún Matthíasdóttir, ritstjóri Tölvumála Ógnir dagsins í dag og lausnir til framtíðar er þema Tölvumála í ár og er margar áhugaverðar greinar að finna í blaðinu. Fjallað er um gagnagrunna, Internet of things, nýjar persónu­ verndarreglur, tölvuinnbrot og samstarf lögreglu og einkageirans svo eitthvað sé nefnt, en einnig annað efni eins og gervigreind, sannlíki og staðalímyndir. Það er hægt að hegða sér óæskilega á netinu á ýmsan hátt hvort sem við erum að tala t.d. um tölvuinnbrot, stuld á persónueinkennum eða neteinelti. Sífellt er verið að vinna að betri vörnum og vinnuferlum, en það er alveg sama hvað tæknin og hugbúnaðurinn er fullkominn, notandinn kemur alltaf inn sem áhættuþáttur, s.s. þegar kemur að dreifingu á efni og aðgengi. Mannlegi þátturinn skiptir miklu máli þegar við tökumst á við ógnir og lausnir. Við notum snjalltæki mikið í dag og teystum orðið á þau næstum því í blindni. Stór hluti af lífi margra, sérstaklega yngra fólks, fer fram með þessum tækjum. Við treystum á þessi tæki til að ná okkur í upplýsingar og hafa samskipti en einnig til að geyma fyrir okkur gögn. Tengt þessu langar mig að segja frá ungum manni sem var nýlega með foreldrum sínum í erlendri stórborg. Fjölskyldan hafði leigt íbúð og var nýkomin á staðinn. Um kvöldið voru þau í góðra vina hópi en foreldrarnir ákváðu að fara fyrr heim og ætlaði hann að fylgja á eftir í leigubíl. Mamman sendi honum heimilisfangið í símann og tveim tímum seinna fengu þau skilboð um að hann væri á leiðinni. Síðan leið og beið, ekki kom hann og voru þau orðin ansi áhyggjufull þegar nær klukkutími var liðinn. Hann svaraði ekki síma, ekki skilaboðum eða tölvupósti. Systir hans var vakin heima á Íslandi til að senda skilaboð í gegnum öpp sem foreldrarnir nota ekki en ekkert gerðist, hann svaraði ekki en samt virtist síminn nettengdur. Það geta örugglega margir getið sér til um þær hugsanir sem fóru um huga þeirra á þessum tíma. Tveimur tímum seinna fann pabbinn unga manninn á gangi um hverfið í leit að húsinu. En hvað hafði gerst? Um leið og hann sendi skilaboðin um að hann væri að stíga inn í leigubíl missti hann símann og skjáborðið brotnaði alveg í mask. Hann gat ekkert gert, engu svarað, ekkert skoðað, náði ekki í neitt í símanum og gat ekki látið vita af sér. Hann fann því ekki heimilisfangið sem hann hafði fengið í SMSi og átti líka í tölvupósti. Enga aðstoð var að hafa hjá leigubílstjórum eða á opnum veitingastöðum, enginn vildi hringja fyrir hann eða lána honum síma (sem er efni í annan pistil). Eina sem hann gat gert var að láta keyra sig að íslenska sendiráðinu sem hann vissi að var í nágrenni íbúðarinnar og ganga af stað í þeirri von að finna húsið. Þarna hefði verið betra að hafa heimilisfangið skrifað á miða. „It is only when they go wrong that machines remind you how powerful they are“ Clive James Tímaritið Tölvumál Fagtímarit um upplýsingatækni. Tölvumál hafa verið gefin út frá árinu 1976 af Skýrslutæknifélaginu. Prentvinnsla Litlaprent ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Ásrún Matthíasdóttir Aðrir í ritstjórn Ágúst Valgeirsson Sigurjón Ólafsson Eyjólfur Ingi Ásgeirsson Atli Týr Ægisson Skýrslutæknifélag Íslands Ský, er félag einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Starfsmenn Ský Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Hildur Rut Halblaub Stjórn Ský Guðjón Karl Arnarson, formaður Snæbjörn Ingi Ingólfsson Theódór R. Gíslason Birna Íris Jónsdóttir Kristján Ólafsson María Ingimundardóttir Díana Dögg Víglundsdóttir Aðsetur Engjateigi 9 105 Reykjavík Sími: 553 2460 www.sky.is | sky@sky.is Óheimilt er að afrita á nokkurn hátt efni blaðsins að hluta eða í heild nema með leyfi viðkomandi greinahöfunda og ritstjórnar. Blaðið er gefið út í 1.200 eintökum. Áskrift er innifalin í félagsaðild að Ský. Pökkun blaðsins fer fram í vinnustofunni Ás. Prentvinnsla Litlaprent ehf. Tölvumál eru skráð vörumerki hjá Einkaleyfastofu og eru í eigu Skýrslutæknifélags Íslands. Öll notkun og vísun í vörumerkin er óheimil án sérstaks leyfis eiganda.Í því felst m.a. réttur sem settur er í vörumerkjalögum (sjá lög m vörumerki nr. 45/1997 með síðari breytingum) gefur eiganda vörumerkis einkarétt á að nota merkið hér á landi og getur hann þá bannað öðrum að nota í atvinnustarfsemi merki sem eru eins eða lík vörumerki hans. Nánari uppl: http://www.els.is/merki/ vorumerki/ 2

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.