Tölvumál - 01.01.2017, Page 13
13
benda á vefsíðuna nomoreransom.org, sem er samstarfsverkefni ýmissa
löggæslustofnana víða um heim, s.s. Europol og fyrirtækja í tækni
iðnaðinum. Á vefsíðunni er að finna fróðleik um gagnagíslatökubúnað en
einnig eru þar tól til að losa gögn úr gíslingu ýmissa afbrigða af
gagnagíslatökubúnaði.
Hafa ber í huga að það að borga lausnargjald þarf ekki endilega að hafa
í för með sér að gögnin endurheimtist. Í sumum tilfellum hafa þeir sem
greitt hafa lausnargjald ekki fengið gögnin sín á nýjan leik.
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Fyrirtæki þurfa vissulega að gæta þess að tækniinnviðir lágmarki hættuna
á því að veiðipóstar og annar ruslpóstur berist starfsmönnum. Það eitt
og sér dugar þó ekki, því gæði veiðipósta hafa aukist og vel gerðir póstar
geta sloppið í gegnum slíkar síur.
Vírusvarnir þurfa að sjálfsögðu að vera til staðar og uppfærðar. Nýir
vírusar líta dagsins ljós á hverjum degi þannig að hættan er samt til staðar.
Auðvitað þarf að gæta að afritatöku gagna og uppfærslum á hugbúnaði
til að lágmarka hættuna á að í upplýsingakerfi fyrirtækisins séu þekktir
veikleikar, svo sem veikleikar í gamalli útgáfu af stýrikerfi.
Lengi mætti halda áfram að telja upp ýmis tæki og tól sem nauðsynleg
eru í netvörnum og öruggum rekstri upplýsingakerfa. Þó að fyrirtæki sé
með alla tækniinnviði eins og best verður á kosið er hættan samt sem
áður til staðar, því vefveiðar eru nýttar til að ráðast á veikasta hlekkinn í
tölvuöryggi, þ. e. okkur mannfólkið. Því er mikilvægt að fyrirtæki og
stofnanir fræði starfsfólk um hætturnar, hvernig á að koma auga á þær
og hvernig á að varast þær.Mikilvægt er að vandað sé til verka við
upplýsingagjöf um hættur sem að okkur steðja á internetinu því dæmin
sanna að afleiðingar innbrota í tölvukerfi fyrirtækja geta verið mjög
alvarlegar.
GETUM VIÐ GERT OKKUR
SJÁLF GREINDARI?
Tæknin er stór partur af lífi okkar í dag og mun vera það í framtíðinni.
Tækninni fer sífellt fram og ný tækni lítur dagsins ljós á hverjum degi. Það
er kostir og gallar við alla þessa tækni en hún er óumflýjanleg. Fólk hefur
verið að þróa aðferðir sem gera tölvum kleift að skynja og skilja umhverfið
sitt og taka rökréttar ákvarðanir í sambandi við það. Gervigreind í dag er
kannski ekki komið eins langt og sumar kvikmyndir láta í veðri vaka, en
hún er út um allt í kringum okkur þótt við tökum kannski ekki eftir því.
Í gervigreind er gjarnan notast við tauganet (e. neural network) þar sem
vélin kennir sér sjálf og lærir af mistökum og er það helst notaða
gervigreindar reikniritið í dag. Þekkingarkerfi (e. rule based systems) eru
einnig notuð í gervigreind og er þá forritað frá grunni þar sem forritari
skráir sjálfur inn þær reglur sem vélin á að nota og þekkja.
Watson er nafn á tölvu sem var þróuð af fyrirtækinu IBM. Tölvan notar
tauganet til að læra en er einnig með ákveðið þekkingarkerfi sem hún
notar við reikninga og staðreyndir. Þekkingarkerfi Watson er því sífellt að
stækka og verður greindari með hverjum deginum. Í fyrstu var Watson
bara tölva sem vann bestu taflspilara í tafli en var síðan þróuð í að vinna
allra bestu spilara í Jeopardy! Watson sigraði í Jeopardy! í viðureign gegn
fyrrum sigurvegurum, Brad Rutter og Ken Jennings, fyrir um sex árum
og hefur síðan verið í stöðugri þróun.
Við manneskjurnar erum svipuð og Watson, lærum grunnupplýsingar á
okkar fyrstu 18 árum og eftir það sérhæfum við okkur í einhverju sviði.
Watson er einmitt að sérhæfa sig á ákveðnu sviði, hann er að hjálpa
heilbrigðisþjónustunni við að greina sjúklinga og fara yfir ýmsar
læknisritgerðir til að finna lausn á flóknum vandamálum.
En hvað ef Watson hefði annan tilgang? Hvað ef hann gæti búið til aðra
tölvu greindari en sig? Hvað ef sú tölva myndi síðan gera aðra tölvu
snjallari en sig og hún myndi gera það sama þar til við myndum enda á
hafa tæknisprengju (e. Intelligence explosion). Framúrskarandi tækni (e.
technological singularity) er hugtak yfir þróun tækninnar og þann
tímapunkt í sögunni þegar gervigreind (e. artificial intelligence) endar með
að vera greindari en maðurinn. Þá myndu greind vélmenni taka yfir
heiminum. Í gamla daga var þetta einungis kenning sem John Von
Neumann birti árið 1950. Nú eru menn farnir að halda að þetta gæti gerst
og sumir vilja reyna að koma í veg fyrir þetta. Elon Musk, forstjóri Tesla
og SpaceX, er virkilega að spá í spilin og hefur fjárfest í mörgum fyrirtækjum
sem eru að vinna að þróun gervigreindar, til að fylgjast vel með þróuninni
sjálfur.
Margir rithöfundar hafa skrifað bækur um hvernig lífið væri ef „Singularity“
myndi gerast en meðal þeirra frægustu eru „The Singularity is Near“ eftir
Ray Kurzweil og „Singularity Sky“, skáldsaga eftir Charles Stross. Sú fyrri
fjallar um spár Kurzweil um framtíðina og hvernig tölvur munu hafa tekið
yfir heiminn um árið 2045. „Singularity Sky“ fjallar um lífið eftir að vélar
hafa tekið yfir heiminn (e. postsingularity) og fékk Charles Stross hin
virtu Hugo verðlaunin fyrir bókina.
En hvað ef í stað þess að gera vélmenni sem eru snjallari en við þá gerum
við okkur sjálf greindari? Maður að nafni Bryan Johnson stofnaði fyrirtækið
Braintree árið 2007 og seldi það sex árum seinna til eBay fyrir 800 milljón
dollara. Bryan notaði 100 miljónir af þeim peningum til að byrja nýtt
fyrirtæki að nafni Kernel. Kernel er að skoða möguleikann á því að tengja
ígræðanleg tæki (e. implantable device) við heila mannsins. Slík tæki
myndu vera geymsla á minni sem hægt væri að nota sem vitneskja
manneskjunnar. Einnig á tækið að tengjast við gervigreind sem gæti gert
einstaklingnum lífið létt. Gervigreindin myndi sjá um alla stærðfræði
útreikninga og vinnslu á meðan heilinn þyrfti bara að sjá um tilfinningar
og list. Rannsóknir á taugakerfinu (e. neuroscience) eru samt ekki komnar
nógu langt að við getum almennilega vitað hvað er að gerast í heilanum.
Ýmis fyrirtæki eru að vinna á þessu sviði þar á meðal Neuralink þar sem
Elon Musk er forstjóri. Ef þessi verkefni takast þá værum við ekki bara
að þróa gervigreindina heldur væri um að ræða þróun mannkynsgreindar
(e. human intelligence).
HEIMILDIR:
https://en.wikipedia.org/wiki/Bryan_Johnson_(entrepreneur) https://www.
inverse.com/article/13630whathasibmwatsonbeenuptosince
winningjeopardy5yearsago https://en.wikipedia.org/wiki/Watson_
(computer) https://en.wikipedia.org/wiki/Technological_singularity
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=264
Arnar Jóhannsson, nemandi við Háskólann í Reykjavík