Tölvumál - 01.01.2017, Side 46
46
Vetrarstarfið er nú komið af stað
af fullum krafti og sjá Arnheiður
Guðmundsdóttir og Hildur Rut
Halblaub um alla þræði starf sem
innar. Mörg járn eru í eldinum að
venju og því nóg af verkefnum
framundan hjá Ský.
Þar sem félagið verður 50 ára í apríl 2018 ákvað stjórn Ský að fara í
stefnumótunarvinnu og skerpa á starfseminni til framtíðar og verður
niðurstaða þeirrar vinnu kynnt síðar í vetur. Stefnt er að því að halda upp
á afmælið og fagna í leiðinni útkomu bókar um tölvuvæðingu á Íslandi
19642014 en söguna er nú þegar hægt að skoða á vefsvæðinu sky.is
og óskum við enn og aftur eftir myndum til að skreyta bókina. Myndirnar
þurfa að vera í góðri upplausn og leyfi höfundar að fylgja með. Ákveðið
var að taka saman söguna þar sem 50 ár voru liðin frá því að fyrsta alvöru
tölvan kom til landsins. Reynt er að stikla á stóru um það sem gerðist á
þessum árum og er sögunni skipt í fimm 10 ára tímabil. Ekki er ætlunin
að telja upp öll verkefni, fyrirtæki eða aðila sem komu að verkinu en hins
vegar erum við að safna saman lista yfir þau fyrirtæki sem tengjast
tölvugeiranum á þessum árum ásamt 23 setningum um fyrirtækið og
setjum á vefinn. Allar fyrirspurnir, myndir og annað má senda á sky@sky.
is.
Ýmis önnur verkefni eru í gangi hjá félaginu fyrir utan að halda viðburði.
Tímaritið Tölvumál hefur verið gefið út frá árinu 1976, árlega á prenti en
vikulega er birt ný grein í Vefútgáfu Tölvumála á forsíðu www.sky.is. Þar
geta allir sent inn greinar og pistla en þeir mega vera um hvaða efni sem
er tengdu tölvu eða tæknimálum. Árlega veitir félagið Upplýsinga
tækniverðlaun Ský og á aðalfundum félagsins eru heiðursfélagar tilnefndir
þegar tilefni er til.
Helstu verkefni innanlands eru að halda fróðlega viðburði fyrir félagsmenn
og aðra í tengslaneti Ský og eru 23 fræðsluviðburðir í hverjum mánuði
yfir vetrartímann. Stærsti viðburðurinn er eins og áður UTmessan sem
félagið setti af stað 2011 þar sem vöntun var á stórum óháðum tölvu og
tækniviðburði sem felur í sér metnaðarfulla ráðstefnu og sýningu á helstu
tækni og nýjungum sem fyrirtæki landsins tengdum tölvugeiranum vinna
við. Megintilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á hve mikil gróska
er í tölvu og tæknigeiranum með það markmið að hvetja ungt fólk til að
velja sér tæknigreinar sem framtíðar starf. UTmessan hefur vakið athygli
erlendis þar sem öll Evrópulönd glíma við sama vanda en mikil vöntun
er á tölvufólki um allan heim í nánustu framtíð.
Óhætt er að segja að UTmessunni hafi verið tekið vel frá upphafi og nú
er svo komið að erlendir fyrirlesar sýna frumkvæði að því að senda inn
tillögur að fyrirlestrum, erlendir gestir farnir að mæta til landsins á
UTmessuna og síðast en ekki síst eru erlend fyrirtæki farin að sækjast
eftir að vera á sýningarsvæðinu. Það er kærkomin viðbót við gífurlega
góðann og jákvæðan stuðning allra þeirra flottu íslensku fyrirtækja og
skóla sem taka þátt í UTmessunni og erum við löngu komin að þeim
tímamótum að Harpa okkar glæsilega ráðstefnuhús hefur ekki nóg pláss
til að taka á móti öllum þeim sem vilja vera á sýningarsvæði UTmessunnar
en erfitt er að finna aðra aðstöðu þar sem ráðstefnusalir og sýningarsvæði
eru á sama stað. Við leitumst við að reyna að koma öllum fyrir en því
miður hefur selst upp bæði á ráðstefnuna og sýningarsvæðið löngu fyrir
UTmessu.
Ský er aðili að evrópsku samtökunum CEPIS en það er félag með öllum
tölvufélögum í Evrópu. Þar starfa nokkrir faghópar og höfum við verið
virk innan Women in ICT, Education in ICT og Ethics in ICT. Þar höfum
við lagt fram tillögur og verkefni sem Evrópusambandið hefur oftar en
ekki tekið áfram í sitt starf en öll þessi málefni eru heit í fleiri löndum en
hér á Íslandi. Forritun sem skyldufag í grunnskólum er t.d. eitt af því sem
öll löndin eru að berjast fyrir og því ekki séríslenskt að pressa á
menntayfirvöld með það.
Eitt af þeim verkefnum sem við tengjumst í gegnum CEPIS er að halda
í apríl ár hvert „Girls in ICT Day“ og höfum við verið þátttakendur í því á
Íslandi með Háskólanum í Reykjavík og fleiri aðilum síðustu ár. Þar er
einn eftirmiðdagur tekinn í að bjóða stelpum í ákveðnum árgangi að
mæta á stutt námskeið tengd tölvunarfræðum og svo fara þær í heimsókn
og leysa skemmtileg verkefni hjá tölvufyrirtækjum í Reykjavík. Dagurinn
í ár tókst vel og vonandi tókst að koma tölvugeiranum á blað hjá stelpunum
þegar að því kemur að þær velji sér framtíðarmenntun og starfsvettvang.
Síðustu 2 ár höfum við tekið þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir BEBRAS
„International Challenge on Informatics and Computational Thinking“
(bebras þýðir bifur, enska heitið beaver) en það miðar að því að árlega
keyra öll lönd í heiminum í eina viku verkefni þar sem krakkar á aldrinum
618 ára leysa þrautir á vef sem eru uppbyggðar eins og forritun, þ.e.
þrautir sem fá krakka til að hugsa eins og þau væru að forrita en þrautirnar
eru ekki forritun sem slík. Síðasta ár tóku 18 skólar á Íslandi þátt, 1875
nemendur og gaman að segja frá því að verkefnið tókst vel og stelpurnar
sem tóku þátt fleiri en strákarnir enda tölvugeirinn einn af þeim geirum
sem hentar báðum kynjum. Vikuna 6. – 10. nóvember verður BEBRAS
keyrt og geta allir skólar sem vilja skráð sig í gegnum www.bebras.is.
Félagið vinnur náið með ráðuneytum og fyrirtækjum landsins og er Ský
með fulltrúa í stjórn Persónuverndar skv. lögum en auk þess eru
félagsmenn oft kallaðir til verkefna svo sem vinnuhóp um landsumgjörð
og fleira í þeim dúr. Það er mikilvægt að halda fagmennsku félagsins
áfram enda er Ský óháð „nonprofit“ félag stofnað árið 1968 og hefur
síðan þá verið í forsvari og fararbroddi sem málsvari allra þeirra sem vinna
að eða hafa áhuga á tölvumálum. Langar mig að þakka sérstaklega þeim
sem taka þátt fyrir hönd félagsins í verkefnunum því oftar en ekki er um
ólaunað starf að ræða.
Að lokum er vert að nefna að stjórnir faghópa, orðanefnd og ritnefnd
vinna ötull starf sem heldur félaginu gangandi og mikill hugur í fólki. Allt
starf Ský er unnið undir dyggri stjórn félagsins en þar er úrvalslið sem er
mjög vel tengt í tölvugeirann og stútfullt af skemmtilegum hugmyndum
um félagsstarfið.
Hér sjáið þið mynd af þeim sem skipa stjórnina.
Ég hvet ykkur til að vera í sambandi ef eitthvað er og einnig að tengjast
Ský á Facebook, LinkedIn og Twitter í gegnum forsíðu sky.is og taka þátt
í umræðum þar. Sjáumst á viðburðum í vetur.
FRÉTTIR AF STARFSEMI SKÝ
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský
Stjórn Ský 2017-2018