Tölvumál - 01.01.2018, Blaðsíða 4

Tölvumál - 01.01.2018, Blaðsíða 4
4 Liðin er sú tíð þegar hugbúnaður var einungis notaður af sérfræðingum sem höfðu tækifæri til að fara í gegnum þjálfun til að nota hann. Í dag er langflestur notendahugbúnaður sem við búum til settur beint í hendur á notendum án nokkurra formála eða kynningar. Í dag alast líka flestir á Íslandi upp við hátækni frá blautu barnsbeini og eru ófeimnir við að nýta sér hana. En það þýðir líka að notendur eru hættir að sætta sig við hvað sem er. Krafa dagsins er því ekki bara að hugbúnaður virki, þ.e. geti skilað þeim árangri sem hann er skrifaður fyrir. Hann verður líka að vera skilvirkur, notendavænn og helst ánægjulegur. Hvernig eigum við, sem erum alin upp í reikniritum, klasaritum og samstæðuprófunum, eiginlega að snúa okkur í því að gera upplifun notenda ánægjulega? Sem betur fer þurfum við ekki að finna upp hjólið. Hönnun hefur um árabil þróað aðferðir við að skilja hvernig hægt er að búa til hluti sem uppfylla ýtrustu kröfur notenda. Þessum aðferðum hefur verið safnað saman undir hugtakinu hönnunarhugsun (design thinking). Meginreglur hönnunarhugsunar eru að: • Skilja notendur, hegðun þeirra, hvata og þarfir • Búa til lausnir sem eru mikils virði fyrir notendur • Vera alltaf tilbúin til að skilja betur Þessar meginreglur eru studdar af hönnunarferli og aðferðum sem auðvelt er að fella inn í hugbúnaðarþróun. Í grunninn er galdurinn einfaldur: Þegar við búum til hugbúnað fyrir fólk þá leitum við til þess beint eftir upplýsingum. Það fer síðan eftir því hvar við erum stödd í ferlinu hvernig við nálgumst fólk og nýtum þá innsýn sem við fáum. Við erum sem sagt tilbúin að læra og skilja betur allt ferlið (sem getur þýtt að við þurfum stundum að endurskoða fyrri ákvarðanir). Hönnunarferillinn er í tveimur fösum, allt frá því að einhver sér mögulega viðskiptalegan ávinning þar til búið er að skilgreina lausn. Allt áður en sjálf hugbúnaðargerðin hefst. Sama grunnhugsun heldur síðan áfram inn í hugbúnaðargerðina; við leitum til notenda og notum innsýnina til að bæta hugbúnaðinn. BÚUM TIL TÆKNI SEM ER MIKILS VIRÐI Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarstjóri Fyrri tígullinn í mynd 1 lýsir því hvernig við nálgumst það að taka grófa hugmynd um viðskiptalegan ávinning og skilgreina hana í tækifæri fyrir fyrirtækið, byggða á þörfum viðskiptavina. Sá síðari lýsir því hvernig við skilgreinum viðeigandi lausn sem uppfyllir þarfir viðskiptavina og nýtir tækifærið. Það er ekki tilviljun að hér eru notaðir tíglar til að sýna þessa ólíku fasa, áherslan hér er á að í hvorum fasa fyrir sig leyfum við okkur að hugsa vítt, afla gagna, skoða málin frá ólíkum sjónarhól áður en við fókusum á það sem við ætlum okkur að vinna að. SKILJA NOTENDUR, HEGÐUN ÞEIRRA, HVATA OG ÞARFIR Um leið og við sjáum mögulegt viðskiptatækifæri sem við getum nálgast, hættir okkur mjög mikið til að hlaupa af stað og byrja strax að leysa það. Sú nálgun er áhættusöm því að oft er ekki ljóst í hverju tækifærið felst fyrr en við leyfum okkur að stíga aðeins til baka og skoða hvað er í raun að gerast. Það er dýrt að leysa vitlaust vandamál. Í allri hugbúnaðarþróun er það fyrst og fremst þróunarhópurinn sem hefur áhrif á það nákvæmlega hvaða vandamál er leyst og hvaða nálgun er notuð og án nánari upplýsinga getur verið erfitt fyrir hvaða teymi sem er að setja sig í spor mjög ólíkra markhópa, t.d. aldraðra eða sérfræðinga á sviðum sem það þekkir ekki til á. Hérna er því lögð áhersla á að leita beint til markhópanna sem við höldum að tækifærið nái til og ræða við þá um þeirra viðhorf til þessa tækifæris. Nokkuð algengt er að fyrirtæki eigi tiltækar megindlegar (quantitative) upplýsingar um viðskiptavini sína. Slíkar upplýsingar segja þó bara hálfa söguna. Ef við sjáum á sölutölum að ákveðinn markhópur hefur ekki nýtt sér einhverja þjónustu þá segir það ekkert um af hverju hópurinn hefur ekki nýtt sér hana. Hefur hann ekki aðgengi að henni, vissi hann ekki af henni, er hún ekki mikilvæg fyrir hann, reyndi hann en gafst upp…? Svona spurningum er einungis hægt að svara með því að spyrja markhópinn og svörin móta lausnina beint. Þegar búið er að safna upplýsingum um hvernig tækifærið birtist markhópnum sjálfum er mikilvægt að samþætta upplýsingarnar þannig að þær nýtist til að þróa lausnina og miðla upplýsingunum til allra sem að þróuninni koma.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.