Tölvumál - 01.01.2019, Qupperneq 3
3
EFNISYFIRLIT
VILTU GANGA Í SKÝ?
Skýrslutæknifélag Íslands, í daglegu tali nefnt Ský, er félag einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana á sviði upplýsingatækni. Ský er rekið án hagnaðar
markmiða og starfa tveir starfsmenn hjá félaginu.
Aðild er öllum heimil og bjóðum við ungt fólk í tölvugeiranum sérstaklega
velkomið.
Starfsemi félagsins er aðallega fólgin í, auk útgáfu Tölvumála, að halda
fundi og ráðstefnur um sérhæfð efni og nýjungar í upplýsingatækni.
Félagið á og heldur UTmessuna sem er einn stærsti viðburður í
tölvugeiranum á Íslandi. Einnig hefur félagið veitt Upplýsingatækniverðlaunin
(UTverðlaunin) árlega frá 2010. Ský sér um að halda Bebras tölvu
áskoruninia árlega í skólum landsins en það er alþjóðlegt verkefni sem
hvetur krakka til að nota hugsunarhátt forritunar við lausn á skemmtilegum
verkefnum. Félagið stóð að ritun og samantekt á „Sögu tölvuvæðingar
á Íslandi 19642014“ og er hún á vef Ský auk þess sem sagan kom út
í bókarformi í apríl 2018. Ýmis önnur starfsemi tengd tölvu og tækn
igeiranum fer fram hjá Ský enda félagið óháð öllum.
Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra sem starfa við eða hafa
áhuga á upplýsingatækni.
Hlutverk Ský er að bjóða uppá fjölbreytta og metnaðarfulla viðburði í
formi fræðslufunda og ráðstefna um upplýsingatækni og hlúa að því
öfluga þekkingar og tengslaneti sem myndast hefur innan félagsins og
veita þannig félagsmönnum sínum virðisauka og vegsemd.
MARKMIÐ SKÝ ERU:
• að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að
skynsamlegri notkun hennar
• að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli
félagsmanna
• að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í upplýsingatækni
• að stuðla að góðu siðferði við notkun upplýsingatækni
• að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýsingatækni
INNAN SKÝ FJÖLMARGIR FAGHÓPAR OG GETUR FÓLK
SKRÁÐ SIG Í ÞÁ SEM HENTA:
• Faghópur um vefstjórnun
• Faghópur um rafræna opinbera þjónustu
• Faghópur um öryggismál
• Faghópur um fjarskiptamál
• Faghópur um hugbúnaðargerð
• Faghópur um rekstur tölvukerfa
• Faghópur um menntun, fræðslu og fræðistörf í UT
• Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu
• Faghópur um hagnýtingu gagna
• Öldungadeild, ætlaður þeim sem hafa starfað lengur en 25 ár í
UT geiranum
ÁVINNINGUR AF FÉLAGSAÐILD:
• Lægri ráðstefnugjöld á ráðstefnur félagsins fyrir félagsmenn
• Áskrift að Tölvumálum, fagtímariti með efni tengdu tölvunotkun
og upplýsingatækni
• Leið að faghópastarfi innan félagsins
• Hafi félagsmenn áhuga á að stofna faghóp eða tengslanet myndi
félagið aðstoða við það
• Félagsmönnum er gefið tækifæri til að starfa í/með
undirbúningsnefndum ráðstefna og funda félagsins
• Tengslanet, fræðsla, tengslanet, fræðsla, tengslanet ...
NÁNARI UPPLÝSINGAR ER AÐ FINNA Á WWW.SKY.IS
OG HJÁ SKRIFSTOFU SKÝ.
2 Ritstjórnarpistill
Dr. Ásrún Matthíasdóttir, lektor og ritstjóri Tölvumála
3 Viltu ganga í Ský?
4 Framtíðin er okkar!
Viðtal við Ragnheiði H. Magnúsdóttur, forstöðumann
Framkvæmda hjá Veitum og handhafi UT-verðlauna Ský
6 Framtíðir og fjórða iðnbyltingin. Framlag framtíðarfræða
Karl Friðriksson, stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands og
forstöðumaður hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
7 Bebras áskorun 2019
8 Geymdar eða gleymdar minningar
Bjargey Gígja Gísladóttir, framhaldsskólakennari / prentsmiður
9 Heimurinn forritaður með fjórðu iðnbyltingunni
Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
10 Ný og betri störf í fjórðu iðnbyltingunni
Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson, sérfræðingur hjá Aton.jl
12 Fjórða iðnbyltingin – Robocalypse eða tækifæri?
Eva M. Kristjánsdóttir, Helena Pálsdóttir, Stella Thors, sérfræðingar á
áhættustýringu upplýsingakerfa hjá KPMG
14 Það er dýrkeypt að gera ekki neitt?
Tryggvi Þorsteinsson, sölustjóri hýsingar og rekstrar hjá Opnum kerfum
15 Var – er – verður
Lára Stefánsdóttir, skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga
18 Hvert stefnir bankaheimurinn?
Hermann Snorrason, sérfræðingur á Fyrirtækjasviði Landsbankans
19 Tækifæri og áhættur fjórðu iðnbyltingarinnar
Jón Kristinn Ragnarson, betrumbætari
20 Gervigreind á mannamáli
Brynjólfur Borgar Jónsson, stofnandi Data Lab Ísland
21 Nýr faghópur Ský um hagnýtingu gagna
Kristín Jónsdóttir, Sigrún Sverrisdóttir og Berglind Pálsdóttir
22 UTmessan 2019
24 Framtíðin í lófa þínum
Ásta Gísladóttir og Katrín Guðmundsdóttir nemendur við Háskólann í
Reykjavík
26 Snjallari matvælaframleiðsla með skýjalausnum og snjallara viðhaldi.
Gagnabylting í matvælaiðnaði
Birgitta Strange, vöruþróunarstjóri IoT hjá Marel
28 „Ef við kennum í dag eins og við kenndum í gær, þá rænum við
börnunum morgundeginum“ John Dewey
Dr. Ásrún Matthíasdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík
29 Lögmæti einstaklingsmiðaðra auglýsinga
Tómas Kristjánsson, nemandi við Háskólann á Bifröst
30 Vélmennin taka yfir
Jón Skírnir Ágústsson, rannsóknarstjóri, Halla Helgadóttir, rannsóknarstjóri
og Eysteinn Finnsson, rannsóknarverkfræðingur
31 Straumurinn og stafræn opinber þjónusta
Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, verkefnastjóri hjá verkefnastofu um Stafrænt
Ísland
33 Máltækniáætlun í Háskólanum í Reykjavík
Hrafn Loftsson og Jón Guðnason, dósentar við Háskólann í Reykjavík
34 Handrit framtíðar samfélagsins
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms –
Miðstöðvar um máltækni
35 Upplýsingatækniverðlaun Ský 2019
36 Síðan síðast...
38 Eyður
40 Stjórn Ský og faghópar
42 Fréttir af starfsemi Ský
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský