Tölvumál - 01.01.2019, Page 22

Tölvumál - 01.01.2019, Page 22
UTmessan 2019 UTmessan 2019 sem haldin var í Hörpu 8. og 9. febrúar var að margra mati ein sú besta frá upphafi. Ýmsar nýjungar litu dagsins ljós svo sem „Útum allan bæ“ (e. Off- venue) viðburðir 2. – 11. febrúar. Þá var opið hús hjá skólum og fyrirtækjum tengdum UTmessunni. Tæknifyrirtækin opnuðu uppá gátt og buðu fólki á kynningar og námskeið af ýmsu tagi. Mæting á viðburðina var framar vonum og verður svipað fyrirkomulag á næstu UTmessu. Í tilefni af því að í ár voru 50 ár síðan fyrsti maðurinn steig á tunglið var áberandi geimþema á UTmessunni. Ákveðið var að flytja inn risatungl, listaverkið „Museum of the Moon“, sem skrýddi Hörpu og vakti það mikla athygli allra sem mættu á UTmessuna auk þeirra sem áttu leið um húsið dagana fyrir UTmessu. Einnig var leikið með glerhjúp Hörpu á föstudagskvöldinu þar sem nokkur af stjörnumerkjunum voru teiknuð upp af listahópnum TinyMassive fyrir UTmessuna. Föstudaginn 8. febrúar var hinn hefðbundni ráðstefnudagur fyrir tölvu- og tæknifólk. Gestir voru um 1.100 og var uppselt á ráðstefnuna mörgum dögum fyrr. Allir ráðstefnusalir Hörpu voru nýttir og var boðið uppá tíu þemalínur með um 50 fyrirlesurum. Ráðstefnugestir gátu því valið sér fyrirlestra að vild og margir nefndu að þeir hefðu viljað vera á fleiri en einum fyrirlestri í einu. Þar sem allir fyrirlestrarnir eru teknir upp og birtir á YouTube rás Ský eftir UTmessu geta gestir alltaf horft á þá fyrirlestra sem þeir misstu af þegar þeim hentar. Í lok ráðstefnudagsins voru Upplýsinga- tækniverðlaun Ský veitt í tíunda sinn af forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni. Sýningarsvæði UTmessunnar var að venju þéttbókað en þó fór vel um alla. Flestöll fyrir- tækin leggja mikinn metnað í að hafa básana nýtískulega og áhuga verða og mikið af skemmti- legum þautum og tækni sem gestir fá að prófa í básunum. Fyrir framan Eldborg var boðið uppá ýmislegt skemmtilegt svo sem golfhermi og risaeðlur, PacMan og raf íþróttir. Laugardaginn 9. febrúar var opið fyrir almenning og mættu amk. 12 þúsund manns í Hörpu þann dag. Hönnunar keppni HÍ var haldin í Silfurbergi, háskólarnir og Tækni skólinn sýndu skemmtileg nemenda verkefni og vakti fyrirlestur íslensk ættaða geimfarans Bjarna Tryggvasonar í Eldborg almenna athygli ásamt innlendum fyrirlestrum um geiminn. Að UTmessunni 2019 stóðu Ský, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík ásamt dyggum stuðningi Origo, Opinna kerfa, Deloitte og Sensa. Þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra framlag.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.