Tölvumál - 01.01.2019, Page 25
25
LÍFHAKKARINN - HÁLFUR MAÐUR, HÁLFUR
VÉL
Það getur verið gagnlegt að bera tækniþróun saman við líffræðilega
þróun þar sem í báðum tilfellum um er um breytingu á milli kynslóða að
ræða. Líffræðilegir eiginleikar breytast fyrir tilstilli náttúruvals á meðan þau
sem beita tækninni búa til æ flóknar útgáfur á einfaldari frumgerðum.
Lífverur þurfa að fjölga sér til að lifa af og á svipaðan hátt þurfa tækn-
inýjungar að ná að þróast til að lifa af samkeppni og auknar kröfur. Nú
þegar er fólk að nota ýmsar leiðir til að endurbæta eða breyta líkömum
sínum með ígræðslum og ísetningum (e. insertables). Þetta er sérstaklega
áberandi þegar litið er á hina hversdagslegu notkun á lykkjum og hormóna-
prikum, rörum í eyru ungbarna og heyrnatækjaígræðslum. Ígræðslu tækin
er enn á byrjunarstigi og þeir einstaklingar sem ríða fyrst á vaðið og
tileinka sér tæknina eru gjarnan kallaði lífhakkarar – eða Biohackers [10].
Margir listamenn hafa brugðið sér í hlutverk lífhakkara með því að
umbreyta útliti sínu á nafni listarinnar þannig að skilin á milli mennskunnar
og tækninnar þurrkast út. Einn slíkur er Stelarc, ástralskur listamaður
ættaður frá Kýpur, sem er þekktastur fyrir verk sitt „Eyra á armi“. Verk
fólst í því að hann lét græða vinstra eyra (ekki sitt eigið) á vinstri handlegg
sinn með virkum míkrófón inni í. Míkrófóninn þurfti því miður að fjarlægja
sökum sýkingar en listamaður er með áform um að koma honum aftur
fyrir og tengja þráðlaust við netið [11].
Annar listamaður sem hefur gert tilraunir með mörk tækni og mannslíkama
er Lans King. Hann notast við hugmyndina „Hinn nýi heimur“ (The New
Real) og segir að nútíma tækniframfarir séu að skapa „yfirheim“ þar sem
fólk eigi erfitt með að greina á milli hins raunverulega heims og
sýndarveruleika. Nýjasta verk hans, „This is my body(of work)“ fólst í því
að hann ferðaðist til Svíþjóðar og lét græða NFC örflögu í sig af Jowan
Österlund hjá Biohax International. Örflagan hafði verið kóðuð með
ákveðnu vistfangi grunnkeðju (blockchain address) og skráð hjá Codex
Registry. Þessi örflaga veitir aðgang að öllum hans verkum, bæði þeim
sem hann hefur gert og þeim sem hann mun gera. Örflagan er einnig til
sölu ásamt öllum þeim verkum sem listamaðurinn hefur skapað og mun
skapa á ævi sinni [12].
HIN HLIÐIN
Eins og staðan er í dag þætti eflaust flestum að skyldaðar örflöguígræðslur
væru ofbeldisfull afskipti af lífi einstaklingsins. Þar vegur eftirlitsþátturinn
þungt. Við erum alla jafnan undir stanslausu eftirliti, bæði úti á götu og
á netinu. Tilhugsunin um enn meiri eftirgrennslan gengur nærri mann-
eskjunni og hugmyndum hennar um einkalíf. Þetta á sérstaklega við
þegar örflögur eru annars vegar. Tæknin til að fylgjast með fólk í gegnum
örflögur er ekki enn til (sú tækni sem er t.d. notuð við að fylgjast með
ferðum gæludýra er takmörkuð og orkufrek) en óttinn er engu að síður
til staðar enda slík tækni vinsæl í hasar – og vísindaskáldskaparmyndum.
Staðreyndin er að nú er aðeins hægt að lesa af örflögunum af stuttu færi
en hver veit hverju tæknin mun skila í framtíðinni.
Það er mun raunverulegri hætta að einhvers konar vírussýking berist í
örflöguna eða að hún sé hreinlega hökkuð. Fyrst hægt er að forrita
ígræðslur fyrir ákveðin verkefni er ekki jafn góður möguleiki að aðrir geti
komist í tæri við hana og gert slíkt hið sama? Árið 2010 tókst vísinda-
manninum Mark Gasson að sýkja sína eigin ígræðslu með vírus og láta
hana smita annað tæki [2].
ANDSTÆÐINGAR
Andstaðan við örflögu ígræðslur kemur úr ýmsum áttum. Þar ber mest
á trúarofstækisfólki og þeim sem aðhyllast samsæriskenningar. Þessir
hópar mótmæla á mjög ólíkum forsendum en hafa þó báðir leitað til
Biblíunnar eftir staðfestingu á vantrú sinni. Þar stendur:
Og dýrið lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa
og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín og kemur
því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið,
nafn dýrsins, eða tölu nafns þess. Opinberun Jóhannesar 13:16-
17 [13].
Líkindi „merki dýrsins“ við örflöguna eru reyndar furðu mikil þar sem fólk
er nú þegar farið að geta stundað fjármálaviðskipti með ígræðslunum
sínum og sumir eru með lítil ör á ígræðslusvæðinu. The Universal Life
Church Monestary er kirkja sem rekin er á netinu og aðhyllist allar
trúarkenningar. Fulltrúar hennar viðurkenna að nýrri tækni mæti gjarnan
ótti og efasemdir en velta jafnframt fyrir sér hvort að með því að fela hluta
af manneskjunni tölvu á vald sé hún að leggja líkama hennar í hættu,
sem og friðhelgi einkalífsins, og jafnvel sálina [14]. Nokkrar kristnar
bloggsíður hafa haldið því fram að kolanámumaður að nafni Beverly
Butcher hafi kært vinnuveitendur sína fyrir að skylda starfmenn sína til
að fá ígræðslur. Samkvæmt themonestary.org fékk Butcher yfir hálfa
milljón dali í skaðabætur en erfitt er að staðfesta þessa frásögn því
Google-leit skilar aðeins kristnum bloggsíðum. Eins virðist engar staðfestar
fregnir vera um skyldaðar ígræðslur þótt fyrirtæki séu byrjuð að notast
við valkvæðar ígræðslur í starfsmenn [15]. Kayla Heffernan hefur
rannsakað ígræðslur og segir hún að ástæður sem liggja að baki
valkvæðum ígræðslum séu margvíslegar. Meðal annars nefnir hún nýjar
aðferðir við hversdagslegar athafnir, líkt og að opna hurðir eða borga fyrir
kaffi með lófanum einum saman, spenningurinn sem fylgir því að gera
hluti á nýjan máta, þægindaaukanum sem fylgir því að finna alltaf lyklana
sína og fleira í þeim dúr [3]. Því þótt vissulega séu ýmis hættusvæði á
ígræðslubrautinni eru vegurinn fram undan það spennandi að líklegt er
að fólki muni halda áfram að feta sig eftir honum og óvíst hvort hann taki
nokkurn tíma enda.
HEIMILDASKRÁ
[1] K. J. Heffernan, F. Vetere, og S. Chang, „You Put What, Where?: Hobbyist
Use of Insertable Devices“, í Proceedings of the 2016 CHI Conference
on Human Factors in Computing Systems - CHI ’16, Santa Clara,
California, USA, 2016, bls. 1798–1809.
[2] A. Staff, „A practical guide to microchip implants“, Ars Technica, 01-03-
2018. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://arstechnica.com/
features/2018/01/a-practical-guideto-microchip-implants/. [Sótt: 17-
sep-2019].
[3] K. J. Heffernan, „Wearables are so 2015. Will insertable devices get
under your skin?“, Medium, 29-jún-2017.
[4] „Compulsory dog microchipping comes into effect“, 06-04-2016.
[Rafrænt]. Agengilegt á: https://www.gov.uk/government/news/
compulsory-dog-microchippingcomes-into-effect . [Sótt 22-09-2019].
[5] K. Warwick, I, Cyborg. London: Century, 1991.
[6] „Kevin Warwick | ‘I feel that we are all philosophers, and that those who
describe themselves as a „philosopher“ simply do not have a day job
to go to.’“ [Rafrænt]. Aðgengilegt á: http://www.kevinwarwick.com/.
[Sótt: 15-sep-2019].
[7] „Thousands Of Swedes Are Inserting Microchips Under Their Skin“,
NPR.org. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www.npr.
org/2018/10/22/658808705/thousands-ofswedes-are-inserting-
microchips-under-their-skin. [Sótt: 18-sep-2019].
[8] „Barcelona clubbers get chipped“, 29-sep-2004. Aðgengilegt á: http://
news.bbc.co.uk/2/hi/technology/3697940.stm?fbclid=IwAR2SPaidm
syhTgPIZduP_Ns5lB7l0uoYMsRlBKfKip4Ub7DKSvIrbvFs5U. [Sótt 20-
sep- [9] „Contraceptive microchip: could it revolutionize global birth
control?“ [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www.medicalnewstoday.
com/articles/279323.php. [Sótt: 12- sep-2019].
[10] „The 8 Coolest Biohacking Implants and Body Modifications“, Digital
Trends, 20- maí-2017. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www.
digitaltrends.com/cool-tech/coolestbiohacking-implants/. [Sótt: 12-
sep-2019].
[11] C. R. F.-10/11/2018 4 mins-BioArt, „Stelarc -- Making Art out of the
Human Body“, Labiotech.eu, 10-nóv-2018. [Rafrænt]. Aðgengilegt á:
https://labiotech.eu/bioart/stelarc-ear-art-human-body/. [Sótt: 12-apr-
2019]. 8
[12] „THIS IS MY BODY (OF WORK)“, Lans King. [Rafrænt]. Aðgengilegt á:
http://lansking.com/this-is-my-body-of-work. [Sótt: 12-sep-2019].
[13] Vefumsjón, „Opinberunarbók Jóhannesar 13. kafli“, Biblía 21. aldar
[14] U. L. C. Monastery, „Mark of the Beast: Are Microchips a Sign of the
End Times?“, Universal Life Church Monastery Blog, 07-sep-2017. .
[15] J. Kollewe, „Alarm over talks to implant UK employees with
microchips“, The Guardian, 11-nóv-2018. Aðgengilegt á: https://www.
theguardian.com/technology/2018/nov/11/alarm-over-talks-to-
implantuk-employees-with-microchips. [Sótt: 12-sep-2019]