Tölvumál - 01.01.2019, Blaðsíða 25

Tölvumál - 01.01.2019, Blaðsíða 25
25 LÍFHAKKARINN - HÁLFUR MAÐUR, HÁLFUR VÉL Það getur verið gagnlegt að bera tækniþróun saman við líffræðilega þróun þar sem í báðum tilfellum um er um breytingu á milli kynslóða að ræða. Líffræðilegir eiginleikar breytast fyrir tilstilli náttúruvals á meðan þau sem beita tækninni búa til æ flóknar útgáfur á einfaldari frumgerðum. Lífverur þurfa að fjölga sér til að lifa af og á svipaðan hátt þurfa tækn- inýjungar að ná að þróast til að lifa af samkeppni og auknar kröfur. Nú þegar er fólk að nota ýmsar leiðir til að endurbæta eða breyta líkömum sínum með ígræðslum og ísetningum (e. insertables). Þetta er sérstaklega áberandi þegar litið er á hina hversdagslegu notkun á lykkjum og hormóna- prikum, rörum í eyru ungbarna og heyrnatækjaígræðslum. Ígræðslu tækin er enn á byrjunarstigi og þeir einstaklingar sem ríða fyrst á vaðið og tileinka sér tæknina eru gjarnan kallaði lífhakkarar – eða Biohackers [10]. Margir listamenn hafa brugðið sér í hlutverk lífhakkara með því að umbreyta útliti sínu á nafni listarinnar þannig að skilin á milli mennskunnar og tækninnar þurrkast út. Einn slíkur er Stelarc, ástralskur listamaður ættaður frá Kýpur, sem er þekktastur fyrir verk sitt „Eyra á armi“. Verk fólst í því að hann lét græða vinstra eyra (ekki sitt eigið) á vinstri handlegg sinn með virkum míkrófón inni í. Míkrófóninn þurfti því miður að fjarlægja sökum sýkingar en listamaður er með áform um að koma honum aftur fyrir og tengja þráðlaust við netið [11]. Annar listamaður sem hefur gert tilraunir með mörk tækni og mannslíkama er Lans King. Hann notast við hugmyndina „Hinn nýi heimur“ (The New Real) og segir að nútíma tækniframfarir séu að skapa „yfirheim“ þar sem fólk eigi erfitt með að greina á milli hins raunverulega heims og sýndarveruleika. Nýjasta verk hans, „This is my body(of work)“ fólst í því að hann ferðaðist til Svíþjóðar og lét græða NFC örflögu í sig af Jowan Österlund hjá Biohax International. Örflagan hafði verið kóðuð með ákveðnu vistfangi grunnkeðju (blockchain address) og skráð hjá Codex Registry. Þessi örflaga veitir aðgang að öllum hans verkum, bæði þeim sem hann hefur gert og þeim sem hann mun gera. Örflagan er einnig til sölu ásamt öllum þeim verkum sem listamaðurinn hefur skapað og mun skapa á ævi sinni [12]. HIN HLIÐIN Eins og staðan er í dag þætti eflaust flestum að skyldaðar örflöguígræðslur væru ofbeldisfull afskipti af lífi einstaklingsins. Þar vegur eftirlitsþátturinn þungt. Við erum alla jafnan undir stanslausu eftirliti, bæði úti á götu og á netinu. Tilhugsunin um enn meiri eftirgrennslan gengur nærri mann- eskjunni og hugmyndum hennar um einkalíf. Þetta á sérstaklega við þegar örflögur eru annars vegar. Tæknin til að fylgjast með fólk í gegnum örflögur er ekki enn til (sú tækni sem er t.d. notuð við að fylgjast með ferðum gæludýra er takmörkuð og orkufrek) en óttinn er engu að síður til staðar enda slík tækni vinsæl í hasar – og vísindaskáldskaparmyndum. Staðreyndin er að nú er aðeins hægt að lesa af örflögunum af stuttu færi en hver veit hverju tæknin mun skila í framtíðinni. Það er mun raunverulegri hætta að einhvers konar vírussýking berist í örflöguna eða að hún sé hreinlega hökkuð. Fyrst hægt er að forrita ígræðslur fyrir ákveðin verkefni er ekki jafn góður möguleiki að aðrir geti komist í tæri við hana og gert slíkt hið sama? Árið 2010 tókst vísinda- manninum Mark Gasson að sýkja sína eigin ígræðslu með vírus og láta hana smita annað tæki [2]. ANDSTÆÐINGAR Andstaðan við örflögu ígræðslur kemur úr ýmsum áttum. Þar ber mest á trúarofstækisfólki og þeim sem aðhyllast samsæriskenningar. Þessir hópar mótmæla á mjög ólíkum forsendum en hafa þó báðir leitað til Biblíunnar eftir staðfestingu á vantrú sinni. Þar stendur: Og dýrið lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín og kemur því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess. Opinberun Jóhannesar 13:16- 17 [13]. Líkindi „merki dýrsins“ við örflöguna eru reyndar furðu mikil þar sem fólk er nú þegar farið að geta stundað fjármálaviðskipti með ígræðslunum sínum og sumir eru með lítil ör á ígræðslusvæðinu. The Universal Life Church Monestary er kirkja sem rekin er á netinu og aðhyllist allar trúarkenningar. Fulltrúar hennar viðurkenna að nýrri tækni mæti gjarnan ótti og efasemdir en velta jafnframt fyrir sér hvort að með því að fela hluta af manneskjunni tölvu á vald sé hún að leggja líkama hennar í hættu, sem og friðhelgi einkalífsins, og jafnvel sálina [14]. Nokkrar kristnar bloggsíður hafa haldið því fram að kolanámumaður að nafni Beverly Butcher hafi kært vinnuveitendur sína fyrir að skylda starfmenn sína til að fá ígræðslur. Samkvæmt themonestary.org fékk Butcher yfir hálfa milljón dali í skaðabætur en erfitt er að staðfesta þessa frásögn því Google-leit skilar aðeins kristnum bloggsíðum. Eins virðist engar staðfestar fregnir vera um skyldaðar ígræðslur þótt fyrirtæki séu byrjuð að notast við valkvæðar ígræðslur í starfsmenn [15]. Kayla Heffernan hefur rannsakað ígræðslur og segir hún að ástæður sem liggja að baki valkvæðum ígræðslum séu margvíslegar. Meðal annars nefnir hún nýjar aðferðir við hversdagslegar athafnir, líkt og að opna hurðir eða borga fyrir kaffi með lófanum einum saman, spenningurinn sem fylgir því að gera hluti á nýjan máta, þægindaaukanum sem fylgir því að finna alltaf lyklana sína og fleira í þeim dúr [3]. Því þótt vissulega séu ýmis hættusvæði á ígræðslubrautinni eru vegurinn fram undan það spennandi að líklegt er að fólki muni halda áfram að feta sig eftir honum og óvíst hvort hann taki nokkurn tíma enda. HEIMILDASKRÁ [1] K. J. Heffernan, F. Vetere, og S. Chang, „You Put What, Where?: Hobbyist Use of Insertable Devices“, í Proceedings of the 2016 CHI Conference on Human Factors in Computing Systems - CHI ’16, Santa Clara, California, USA, 2016, bls. 1798–1809. [2] A. Staff, „A practical guide to microchip implants“, Ars Technica, 01-03- 2018. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://arstechnica.com/ features/2018/01/a-practical-guideto-microchip-implants/. [Sótt: 17- sep-2019]. [3] K. J. Heffernan, „Wearables are so 2015. Will insertable devices get under your skin?“, Medium, 29-jún-2017. [4] „Compulsory dog microchipping comes into effect“, 06-04-2016. [Rafrænt]. Agengilegt á: https://www.gov.uk/government/news/ compulsory-dog-microchippingcomes-into-effect . [Sótt 22-09-2019]. [5] K. Warwick, I, Cyborg. London: Century, 1991. [6] „Kevin Warwick | ‘I feel that we are all philosophers, and that those who describe themselves as a „philosopher“ simply do not have a day job to go to.’“ [Rafrænt]. Aðgengilegt á: http://www.kevinwarwick.com/. [Sótt: 15-sep-2019]. [7] „Thousands Of Swedes Are Inserting Microchips Under Their Skin“, NPR.org. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www.npr. org/2018/10/22/658808705/thousands-ofswedes-are-inserting- microchips-under-their-skin. [Sótt: 18-sep-2019]. [8] „Barcelona clubbers get chipped“, 29-sep-2004. Aðgengilegt á: http:// news.bbc.co.uk/2/hi/technology/3697940.stm?fbclid=IwAR2SPaidm syhTgPIZduP_Ns5lB7l0uoYMsRlBKfKip4Ub7DKSvIrbvFs5U. [Sótt 20- sep- [9] „Contraceptive microchip: could it revolutionize global birth control?“ [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www.medicalnewstoday. com/articles/279323.php. [Sótt: 12- sep-2019]. [10] „The 8 Coolest Biohacking Implants and Body Modifications“, Digital Trends, 20- maí-2017. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://www. digitaltrends.com/cool-tech/coolestbiohacking-implants/. [Sótt: 12- sep-2019]. [11] C. R. F.-10/11/2018 4 mins-BioArt, „Stelarc -- Making Art out of the Human Body“, Labiotech.eu, 10-nóv-2018. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: https://labiotech.eu/bioart/stelarc-ear-art-human-body/. [Sótt: 12-apr- 2019]. 8 [12] „THIS IS MY BODY (OF WORK)“, Lans King. [Rafrænt]. Aðgengilegt á: http://lansking.com/this-is-my-body-of-work. [Sótt: 12-sep-2019]. [13] Vefumsjón, „Opinberunarbók Jóhannesar 13. kafli“, Biblía 21. aldar [14] U. L. C. Monastery, „Mark of the Beast: Are Microchips a Sign of the End Times?“, Universal Life Church Monastery Blog, 07-sep-2017. . [15] J. Kollewe, „Alarm over talks to implant UK employees with microchips“, The Guardian, 11-nóv-2018. Aðgengilegt á: https://www. theguardian.com/technology/2018/nov/11/alarm-over-talks-to- implantuk-employees-with-microchips. [Sótt: 12-sep-2019]

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.