Tölvumál - 01.01.2019, Síða 26
26
spálíkönum (predictive maintenance). Með tilkomu eigin tölvuskýs er
gögnum safnað á öruggan hátt í rauntíma frá Marel vélum og tækjum
staðsettum hjá viðskiptavinum.
SNJALLARA VIÐHALD FYRIRBYGGIR
FRAMLEIÐSLUSTOPP
Marel hefur þegar hafið að umbylta því hvernig viðhaldi á vélum er háttað
með því að greina rauntímagögn sem safnað er um ástand véla og nýta
þau til að spá fyrir um bilanir. Þannig má þjónusta viðskiptavini á snjallari
hátt – fyrirbyggjandi og í fjarsamskiptum. Með gögnum sem streymt er
frá vélum í skýið eru byggð líkön sem spá fyrir um bilanir tækja og íhluta
áður en vandamál koma upp. Margir viðskiptavina Marel vinna mikið
magn afurða á hverjum degi. Stærstu kjúklingavinnslur heims geta t.a.m.
unnið allt að 15.000 kjúklinga á klukkustund með nýjustu og hraðvirkustu
lausnum Marel. Það hefur því miklar og kostnaðarsamar afleiðingar í för
með sér að stöðva framleiðslu vegna bilunar, jafnvel þótt stöðvunin vari
aðeins í skamma stund.
ÚR VIÐBRAGÐSHAM Í FYRIRBYGGJANDI
ÞJÓNUSTUMÁTA
Hefðbundnu viðhaldi í matvælaiðnaðinum er þannig háttað að
viðskiptavinur hefur samband þegar bilun kemur upp og bregst þá
þjónustuaðili við með því að reyna að aðstoða í fjarsamskiptum eða
senda viðgerðasérfræðing á staðinn, en það þýðir oft tímabundið
framleiðslustopp.
Matvælaiðnaðurinn er ekki undanskilinn þeim miklu áhrifum sem fjórða
iðnbyltingin er þegar farin að hafa á heiminn. Marel hefur frá upphafi
byggt hugmyndafræði sína á hugviti, nýsköpun og möguleikum tækninnar
til að auka afköst og gæði. Fyrirtækið hefur því tekið fjórðu iðnbyltingunni
opnum örmum og nýtir nú þegar möguleikana sem ný tækni í gagnavinnslu
og greiningu býður upp á.
Fjórða iðnbyltingin mun án vafa gjörbreyta veruleika okkar. Í raun veit
enginn hvert þær breytingar munu leiða heiminn en það sem við þó
vitum er að möguleikarnir eru nær óþrjótandi. Framfarir í gagnavinnslu
og greiningu, notkun gervigreindar, sýndarveruleika, viðbótarveruleika
(augmented reality) og hlutanetið (Internet of Things, IoT) skapa fjölda
tækifæra til þess að bæta framleiðsluferli. Með stórauknu gagnaflæði
skapast auk þess ótal möguleikar á að breyta gögnum í verðmætar
upplýsingar. Virðiskeðja matvæla er þar ekki undanskilin heldur einmitt
vettvangur þar sem tæknin getur hjálpað greininni að blómstra.
Byltingin sem nú á sér stað helst í hendur við síaukna eftirspurn
matvælaframleiðenda eftir nýjum leiðum til að bæta framleiðslu og auka
innsýn í hana. Framleiðendur standa frammi fyrir vaxandi eftirspurn og
auknum kröfum neytenda um gæði og hagstætt verð. Með betri innsýn
í framleiðslu vilja framleiðendur tryggja rekjanleika og hagkvæmni í rekstri,
draga úr hvers kyns sóun og ná fram betri nýtingu verðmætra hráefna.
Þetta er ekki síst mikilvægt í matvælaiðnaði þar sem oft er við að eiga
takmarkaðar auðlindir. Krafan um að nýta þær sem best og minnka sóun
hefur sjaldan eða aldrei verið meiri.
Starfssemi Marel snertir allar þessar áskoranir. Við leitumst stöðugt við
að nýta bestu tækni sem völ er á til þess að þróa lausnir sem hjálpa
viðskiptavinum okkar í kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnaði við að besta
framleiðslu sína til þess að mæta ströngum kröfum neytenda og aukinni
eftirspurn. Þannig vinnum við að því að umbylta matvælaframleiðslu á
heimsvísu í nánu samstarfi við viðskiptavini um allan heim.
Fyrsta Marel-vogin varð kveikjan að gagnabyltingu í íslenskum
sjávarútvegi. Allar götur síðan hefur Marel byggt á gagnasöfnun og
nýsköpun til þess að auka verðmæti og minnka sóun. Við höfum
undanfarna áratugi lagt mikla áherslu á hugbúnaðarþróun í öflugu
vöruþróunarstarfi okkar. Ávinningurinn af notkun nýrrar tækni á borð við
IoT og skýjalausnir við gagnavinnslu getur verið mikill. Tæknina má nýta
til að auka rekjanleika, hagkvæmni, matvælaöryggi og sjálfbærni og
tryggja að viðskiptavinir nái bestu nýtingu sem völ er á með þeim hátækni-
lausnum og -vélum sem Marel býður.
AUKIÐ GAGNAFLÆÐI Í SKÝINU
Til að nýta með enn markvissari hætti gögnin sem lausnir frá Marel safna
hjá viðskiptavinum víðsvegar um heiminn er næsta rökrétta skref að
byggja upp áreiðanlega innviði í skýinu. Marel vinnur um þessar mundir
að því að þróa sínar fyrstu hugbúnaðarlausnir sem byggja á IoT, með
áherslu á gagnagnótt, gervigreind og snjallara viðhald sem byggir á
SNJALLARI MATVÆLAFRAMLEIÐSLA
MEÐ SKÝJALAUSNUM OG
SNJALLARA VIÐHALDI
GAGNABYLTING Í MATVÆLAIÐNAÐI
Birgitta Strange, vöruþróunarstjóri IoT hjá Marel