Tölvumál - 01.01.2019, Page 30

Tölvumál - 01.01.2019, Page 30
30 í súrefnismettun, örvökur og svefnstig; eftir skilgreindum greiningarreglum og getur sú vinna tekið allt að 4 klukkustundir. Þó greiningin sé tímafrek þá hefur hún oft ekki næga næmni og takmarkaða getu til að greina orsakir algengra svefnraskana. Í svefnmælingu eru merki eins og hreyfirit, augnrit, heilarit, öndun, súrefnismettun, hjartarit mæld. Merkin eru svo greind af sérfræðingi sem merkir inn svefnstig, örvökur, öndunarhlé, fall í súrefnismettun og fleiri atburði. SJÁLFVIRKNIVÆÐING GREININGA Mikil vinna hefur farið í að búa til sjálfvirkar aðferðir við að greina svefnstig og aðra atburði í svefni. Í fyrstu var reynt að forrita greiningaraðferðir eftir niðurskrifuðum reglum lækna. Sú aðferðafræði reyndist illa þar sem reglur um greiningar eru óskýrar og sérfræðingar þurfa mikla þjálfun til þess að öðlast innsæi í þýðingu merkjanna. Með tilkomu öflugra gervigreindaraðferða hafa orðið til nýjar leiðir til að sjálfvirknivæða greiningar. Þessar aðferðir byggja á því að safna ógrynni gagna, sem þegar hafa verið greind af sérfræðingum, og þjálfa tölvu-algrím til að læra af sérfræðingunum. Árið 2015 var sett á fót sérstakt rannsóknarteymi innan Nox Medical, Nox Research, en það er fjármagnað að hluta til af samkeppnissjóðum á Íslandi og í Evrópu. Vísindafólk Nox Research hafa þverfaglegan bakgrunn úr svefnlæknisfræði, tölvunarfræði, verkfræði og eðlisfræði og þekkingu á lífeðlisfræði. Nox Research starfar með vísindamönnum frá háskólum á borð við Johns Hopkins, Harvard, Yale og Stanford í Bandaríkjunum við að þróa nýjar, sjálfvirkar aðferðir til að greina svefnmælingar og stunda svefnrannsóknir. Þessar aðferðir flýta fyrir og draga fram nýjar upplýsingar úr lífmerkjunum sem nota má til að gera uppgötvanir í svefnvísindum og bæta þannig meðferðarúrræði sjúklinga. Svefnstigagreining er mikilvæg til að geta greint svefnsjúkdóma, en til þess þarf heilaritsmælingu og framkvæmd hennar er bæði flókin og tímafrek. Fyrsta gervigreindar-algrímið sem Nox Research þróaði hafði það að markmiði að greina svefnstig með heilariti. Svefnstig eru lotubundin mynstur af heilavirkni sem greind eru í fjóra flokka: léttur svefn, dýpri svefn, djúpsvefn og draumsvefn. Hvert svefnstig hefur ákveðin tilgang, virkni og einkennandi eiginleika sem sjást í heilariti. Til að sjálfvirknivæða flokkun svefnstiga voru notuð djúp tauganet, sem geta lært að greina flókin munstur og hafa reynst vel í myndgreiningu. Aðferðin hefur verið Nox Medical hefur getið sér gott orð fyrir nýsköpun og framsækni á sviði lækningatækja til svefngreininga. Fyrirtækið er í fararbroddi þróunar og sölu svefnmælitækja og sjálfvirkrar greiningar á lífmerkjum. Rannsóknarteymi Nox Medical vinnur náið með læknum og vísindafólki að því að beita gervigreind. Teymið þróar nýjar greiningaraðferðir sem varpa nýju ljósi á svefnlæknisfræði og geta stuðlað að betri meðferðarúrræðum fyrir sjúklinga. SVEFN, SVEFNRASKANIR OG SVEFNMÆLINGAR Góður svefn er ein af þremur undirstöðum heilbrigðs lífs, ásamt hreyfingu og mataræði. Ýmsir sjúkdómar hafa áhrif á svefn og til eru sjúkdómar sem koma fram í svefni og kallast svefnraskanir. Um það bil 80 svefnraskanir hafa verið skilgreindar en af þeim eru sjúkdómar á borð við kæfisvefn, fótaóeirð og svefnleysi algengastir. Svefnraskanir eru greindar með tækjum sem mæla lífmerki sjúklinga í svefni. Þessar svefnmælingar eru annaðhvort framkvæmdar á sjúkrahúsi eða heima hjá sjúklingnum. Fyrirtæki á Íslandi hafa lengi verið í fararbroddi á heimsvísu í þróun svefnmælitækja og einnig hefur skapast mikil reynsla á sviði svefnrannsókna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Árið 1996 var fyrirtækið Flaga ehf. stofnað á Íslandi. Flaga var fyrsta fyrirtæki í heiminum til að markaðssetja stafræn tæki til svefnmælinga. Fyrirtækið náði miklum árangri og kynnti til sögunnar margar nýjungar á sviði svefnlæknisfræða. Fyrirtækið var selt til erlendra aðila og flutt úr landi árið 2006 og í kjölfarið stofnuðu nokkrir fyrrum starfsmenn Flögu fyrirtækið Nox Medical og héldu áfram að þróa svefnmælitæki. Svefnmælitæki Nox Medical eru notuð í einfaldar mælingar á öndun og súrefnismettun í svefni og ítarlegri svefnmælingar þar sem fleiri lífmerki eru mæld. Lífmerkin sem mæld eru í svefni eru meðal annarra öndun, súrefnismettun í blóði, heilarit, vöðvarit, hjartarit og fótahreyfingar. Hver svefnmæling er um átta klukkustundir að lengd og inniheldur um eitt gígabæti af gögnum. Að mælingu lokinni eru gögnin flutt í tölvu þar sem þau eru rýnd af sérfræðingi. Sérfræðingurinn merkir inn atburði eins og öndunarhlé, fall VÉLMENNIN TAKA YFIR Jón Skírnir Ágústsson, rannsóknarstjóri, Halla Helgadóttir, rannsóknarstjóri og Eysteinn Finnsson, rannsóknarverkfræðingur hjá Nox Medical 30 sek Heilarit Augnrit Hreyfirit Öndun Súrefnismettun Hjartarit Svefnstig

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.