Tölvumál - 01.01.2019, Side 31
31
hluti af hugbúnaði Nox Medical síðan 2016. Tauganetið var þjálfað á
hundruðum svefnmælinga og eftir þjálfun var frammistaða þess á pari
við sérfræðinga. Áframhaldandi þróun Nox Research á beitingu
gervigreindar á svefnmælingar hefur gefið af sér aðferð sem greinir
svefnstig með öðrum lífmerkjum en heilariti. Þannig er hægt að einfalda
mælingu og greiningu á svefnriti án þess að missa mikilvægar upplýsingar
um svefninn.
Örvaka er atburður í svefngögnum sem erfitt er að greina. Örvökur eru
stuttir atburðir í svefni þar sem einstaklingur vaknar í nokkrar sekúndur
og sofnar svo aftur án þess að verða þess var. Einstaklingur sem verður
fyrir endurteknum örvökum nær ekki djúpum svefni og vaknar yfirleitt
mjög þreyttur. Sú truflun sem örvökur hafa á svefn getur orsakað ýmis
heilsufarsleg vandamál, svo sem háan blóðþrýsting, og hjartasjúkdóma.
Árið 2018 þróaði Nox Research nýja gervigreindaraðferð til að greina
örvökur í heilariti sem nýtti endurtæk tauganet. Til marks um árangur
Nox Research á þessu sviði, þá var viðfangsefni árlegrar gervigreindarkeppni
2018 á vefsvæðinu PhysioNet að greina örvökur í svefngögnum. Þar
kepptu lið frá háskólum, fyrirtækjum og einstaklingum um að leysa þetta
erfiða og óleysta verkefni í læknisfræði. Lausn Nox Research í keppninni
náði öðru sæti og skákaði þar stórum fyrirtækjum á borð við Philips og
Google-Verily Life Sciences. Til gamans má geta að greining á örvökum
er sambærilegt verkefni og snjalltæki leysa þegar þau hlusta eftir orðum
eins og “Hey Siri” eða “Ok Google”.
NÝJAR UPPLÝSINGAR ÚR LÍFMERKJUM
Ásamt því að sjálfvirknivæða greiningar þá þróar Nox Research nýjar
aðferðir við að greina lífmerki úr svefnmælingum. Markmiðið er að gefa
læknum betri greiningartól og sjúklingum þannig betri meðferðarúrræði.
Eitt slíkt verkefni er unnið í nánu samstarfi við prófessora við Harvard
háskóla. Þar eru verkfræðileg kerfislíkön notuð til að fanga lífeðlisfræði
öndunar. Til þess að ná árangri í slíku verkefni þurfa að koma saman
sérfræðingar í verkfræði, lífeðlisfræði og læknisfræði. Í verkefninu er verið
að þróa aðferð sem spáir fyrir um þrýsting inni í brjóstholi og vöðvakraft
þindar, út frá mælingum á öndunarhreyfingum og loftflæði. Til að mæla
þrýstinginn og vöðvakraftinn beint þurfa lækna að notast við nema sem
þræddur er í gegnum nef og ofan í vélinda eða nálar sem stungið er í
þind sjúklings. Með aðferð okkar má vinna þessar upplýsingar úr einföldum
mælingum á lífmerkjum, sem gagnast til að greina sjúkdóma á nýjan hátt.
GILDI RANNSÓKNA Í FYRIRTÆKJUM
Rannsóknarstarf er einn af lykilþáttunum í starfi Nox Medical. Samvinna
verkfræðinga, lækna og vísindamanna tryggir að framfarir í vísindum
komist í almenna notkun í lækningatækjum og getur umbylt þekkingu í
læknisfræði. Aukin sjálfvirkni í greiningu gefur læknum og
heilbrigðisstarfsfólki meiri tíma til þess að sinna sjúklingum, í stað þess
að stara á lífmerki og merkja inn atburði. Þannig getur þjónusta við
sjúklinga orðið persónulegri og betri á meðan kostnaður við þjónustuna
hækkar ekki.
Verkefnastofa um Stafrænt Ísland sem starfrækt er í Fjármála- og
efnahagsráðuneytinu vinnur að verkefnum sem stuðla að því að gera
opinbera þjónustu skilvirka og notendavæna. Verkefnum stofunnar er
skipt upp í þrjú áherslusvið: Auka og efla þjónustu við almenning og
fyrirtæki, byggja upp og styrkja stafræna innviði og stuðla að auknum
samrekstri hins opinbera.
Landsmenn vilja stafræna þjónustu. Það sýnir m.a. nýleg könnun sem
Fjármála- og efnahagsráðuneytið lét gera meðal almennings um viðhorf
landsmanna til stafrænnar opinberrar þjónustu. Niðurstaðan var að 82,5%
aðspurða voru fylgjandi aukinni áherslu á stafræna opinbera þjónustu.
Yfirmarkmið verkefna Stafræns Íslands er að einfalda samskipti
almennings og fyrirtækja við hið opinbera, spara tíma og gera fólki kleift
að afgreiða erindi sín með stafrænum hætti á einum stað.
Eitt af aðalverkefnum á áherslusviðinu uppbyggingu stafrænna innviða
er innleiðing Straumsins (e. X-Road). Straumurinn er gagnaflutningslag
(þjónustulag) fyrir upplýsingakerfi og tekur til tæknilegs umhverfis,
skipulags og tryggir örugg gagnasamskipti á milli upplýsingakerfa.
STRAUMURINN OG
STAFRÆN OPINBER
ÞJÓNUSTA
Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, verkefnastjóri hjá verkefnastofu um
Stafrænt Ísland
UM HVAÐ SNÝST STRAUMURINN?
Innleiðing Straumsins (e. X-Road) á Íslandi hófst með formlegum hætti í
nóvember 2018 en þá undirritaði Bjarni Benediktsson, fjármála og
efnahagsráðherra, samstarfssamning við Finna og Eista.
Straumurinn er þróaður af Eistum og Finnum og hafa Eistar notað kerfið
síðan 2002. Stofnanir jafnt sem fyrirtæki geta tengst Straumnum og
staðlað þannig samskiptaleiðir á milli upplýsingakerfa og aukið hagræði
í uppsetningu og rekstri.
Straumurinn gerir stofnunum kleift að eiga samskipti við borgara með
mismunandi kerfum eða vefgáttum (skjalastjórnunarkerfi og upplýsingakerfi
stofnana) á mun sveigjanlegri hátt en áður hefur þekkst. Þannig geta
upplýsingar um einstaklinga sem skráðar eru í einu kerfi færst yfir í annað.
Með því minnkar tvíverknaður og ekki þarf að óska ítrekað eftir upplýsingum
frá borgurum sem ríkið býr þá þegar yfir.
Straumurinn gengur út á að tryggja öryggi í gagnaflutningum á milli aðila
og býr yfir fjölþættu öryggiskerfi. Kerfið byggir á sannvottun og auðkenn-
ingu notenda. Öll gagnasamskipti um Strauminn eru dulkóðuð. Kerfið
geymir ekki gögn og hafa ábyrgðaraðilar gagna ávallt fulla stjórn á því