Tölvumál - 01.01.2019, Side 39
39
Þegar sjónvarpið kom héldu menn áfram að gera útvarpsþætti í sjónvarpi.
Sendar voru út myndir af mönnum að tala saman við hljóðnema því menn
áttuðu sig ekki á möguleikum nýja miðilsins. Þegar laserinn kom var lengi
sagt að hann hefði ekkert notagildi - en svo kom geislaspilarinn og breytti
því.
Þegar ísskápurinn kom byrjuðu trúaðir ekki að borða beikon, gömul
heilræði verða að kreddum og þá fyrst gerast hlutirnir hægt.
Frá því að getnaðarvarnir komu á markað fyrir 60 árum hefur verið hægt
að gera það með náskyldu fólki en það er bara ekki gert, af því bara,
alveg sama hvort fólk er trúað. Konur geta keypt sæði í dag en samt
giftast þær áfram.
SJÚKETT
Þegar internetið kom hurfu bankarnir ekki strax, en nú held ég að þeir
séu byrjaðir að rýrna og það verður lítill söknuður af þeim. Þeir hefðu
getað minnkað fyrr, mér að meinalausu.
Háskólarnir munu þurfa að breytast líka. Hver vill vakna til að mæta á
fyrirlestur þegar Khan Academy er komið á netið?
Byltingar eiga sér alltaf fórnarlömb. Dickens skrifaði um börnin í London,
um kolanámufólkið og fátæklinga í stórborgum.
Ríkt fólk mun brátt keyra heim af djamminu í sjálfkeyrandi rafmagnsbílum
og búa í „smart“ borgum með húsum sem skynja eigin steypusprungur.
Koppastaðir úti á landi verða áfram „heimskir“ enn um sinn. Framtíðin
mætir mishratt.
Það var mikið talað um frítímann sem myndi skapast í hinum byltingunum
en hann kom ekki, fólk vinnur enn sem fyrr. Erum við byrjuð að vökva
akrana í Afríku? Nei. Ekki vantar tæknina til þess.
Menn bundust samtökum eftir hinar byltingarnar - samtök verkalýðsins
urðu til eftir iðnbyltingu. Svo urðu samtök verkfræðinga til og lög voru
sett gegn fúski þegar gufukatlar sprungu og drápu lestarfarþega. Núna
springur 737 MAX út af tölvufokki. Tölvunarfræðingar eru einu ólokuðu
svigapari frá því að fá á sig lög. Ef við drepum fleiri fer starfsheitið
„tölvunarfræðingur“ kannski að fá einhverja löglega þýðingu og ábyrgð?
Kannski er það fyrir bestu. Læknar segja upphátt við yfirmenn að þeir
vilji ekki brjóta læknaeiðinn - en hvaða eiða höfum við tölvunarfræðingar
sem halda okkur heiðarlegum?
Viljum við fá „Internet of Things“ heim til okkar sem er gert af fólki sem
gerir ekki faglegar kröfur til sín og lítur jafnvel ekki á okkur sem
viðskiptavininn heldur sem vöruna?
Ég er ekki viss um að opinn hugbúnaður sé svarið. Linux er ekki vel
skrifað, því miður. Linus sjálfur hefur viðurkennt það.
Mér finnst meira spennandi að fylgjast með stjórnmálum en nýjustu tækni
og vísindum núorðið. Hvað varð um að panta vörur frá Bandaríkjunum?
Þeir fluttu allt inn frá Kína og seldu á Amazon en nú er Kína að losa sig
við milliliðinn og AliExpress er orðinn greiðslumiðill. USA var
iðnframleiðsluland, svo urðu þeir neytendaland. Hvað verða þeir næst?
Hersýningin á 70 ára afmæli Kína sýnir hver er að taka við.
Hugmynd Klaus að 4. iðnbyltingunni er að tölvur og tæki séu að breyta
heiminum til hins betra. Það finnst mér svo lítið billegt. Tölvur breyta ekki
heiminum, fólk breytir heiminum. Ef fólk tekur ekki þátt í pólitík er það
ekki neytandinn heldur neysluvaran. Ég vil heldur vera neytandi en allra
helst vil ég vera borgari sem hefur einhverja stjórn á framtíðinni en hangi
ekki heima á netinu í þunglyndi.
UTMESSAN 2020 Í HÖRPU
Föstudaginn 7. febrúar:
ráðstefna og sýning fyrir tölvu- og tæknifólk
Laugardaginn 8. febrúar:
sýning og fræðsla fyrir alla
TAKIÐ DAGANA STRAX FRÁ!
Tilgangur UTmessunnar er að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar og áhrifum
hennar á einstaklinga, fyrirtæki og íslenskt samfélag.
Markmiðið er að sjá marktæka fjölgun nemenda sem velja tæknigreinar í háskólum landsins.
Einnig viljum vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum
daglegs lífs.
Fylgstu með á UTmessan.is - Facebook UTmessan – Twitter UTmessan