Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 7

Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 7
Benedikt Sigvaldason: LÍTIÐ EITT UM LANDSPRÓFID Eitthvert sinn á árinu 1994 í lok fundar í enskukennarafélag- inu var eins og oftar verið að spjalla um kennslu fyrr og nú, og þar kom fram, að undirrit- aður hafði tekið fyrsta landspróf miðskóla sem haldið var í skól- um landsins vorið 1946. Þá var upp á því stungið, að ég skyldi hripa niður greinarkorn um þessi merku tímamót. Slíkt hafði aldrei hvarflað að mér, og ég tók þetta spjall okkar ekki alvarlega. Á síðustu vordögum hringdi svo til mín Efemía H. Gísladóttir f.h. ritstjórnar Málfríðar og tjáði mér, að henni og meðstjórnend- um hennar væri fúlasta alvara varðandi greinarkornið, og sím- tali okkar lauk með því, að ég lofaði að gera mitt besta. Les- endur þess sem hér fer á eftir bið ég vinsamlegast að hafa hugfast, að um íslenska skóla- sögu almennt hef ég ekkert til málanna að leggja umfram Pétur og Pál, og eftirfarandi fjallar ein- vörðungu um það, hvernig við fyrrverandi skólafélagar á Laug- arvatni upplifðum fyrsta land- sprófið fyrir fimm áratugum og um þær geysilegu breytingar sem fylgdu í kjölfarið. í stríðinu breyttist nánast allt sem nöfnum tjáir að nefna í lífi fólks. Atvinna var allt í einu orð- in næg og lífskjör almennings betri en áður hafði nokkru sinni þekkst hér á landi. Bjartsýnin var hömlulaus og ölvun líkust þrátt fyrir skugga atómsprengj- unnar, því að virkjun kjarnork- unnar gaf fyrirheit (að vísu óraunhæf) um takmarkalausa orku um alla framtíð, og ekki dró lýðveldisstofnunin einu ári fyrir stríðslok úr fögnuði fólks og framfarahug. Það var dýrð- legra að vera ungur á þessum tímamótum heldur en nokkur getur ímyndað sér sem ekki upplifði þau. I kjölfar bættrar afkomu og nýrra hugmynda um framtíðina hlutu óhjákvæmilega að fylgja auknar kröfur um menntun upprennandi kynslóða. Stöðnun kreppuáranna var rofin. I stríðslok var ekki margra kosta völ fyrir þá sem hugðust fara í menntaskóla og ljúka stúd- entsprófi. Menntaskólarnir voru aðeins tveir, Menntaskólinn í .■‘•wuuixr rs S Reykjavík og Menntaskólinn á Akureyri. Sá fyrrnefndi var að því kominn að halda upp á ald- arafmæli sitt, en M.A. hafði að- eins starfað sem menntaskóli frá árinu 1927. Árið 1945 braut- skráðust svo fyrstu stúdentarnir úr framhaldsdeild Verslunar- skóla íslands. Inntaka nemenda í þessa skóla var ströngum tak- mörkunum háð (numerus claus- us), og búseta unglinga í hinum dreifðu byggðum landsins olli einnig erfiðleikum, þegar kom að framhaldsnámi, sem ein- göngu varð stundað í Reykjavík og á Akureyri, en M.A. leysti raunar með heimavist sinni vanda margra dreifbýlisnem- enda. Löggjafanum var, þegar hér var komið sögu, fullljóst að breytinga væri þörf. Stjórnskip- uð nefnd vann árið 1944 að samningu nýrra fræðslulaga, sem komu til framkvæmda 1946. í maí það ár var fyrsta landspróf miöskóla haldið í skólum lands- ins. Landsprófið var undirbúið og metið af hópi landskunnra skóla- og lærdómsmanna, lands- prófsnefnd. Landsprófið var haldið að loknu 3ja ára námi í gagnfræða- og héraðsskólum, en 2ja ára námi í menntaskólunum tveimur. Meðaleinkunnin 6,00 í 8 bóklegum greinum skyldi tryggja nemendum inngöngu í menntaskóla og Kennaraskóla íslands. Þegar landsprófið kom til skjalanna, urðu menntaskól- arnir að 4ra ára skólum í stað 6 ára, svo sem áður hafði tíðkast. Þegar skólamálabylting sú sem hér er fjallað um var í upp- siglingu (1944-1945), var sá sem heldur á penna nemandi í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni. Héraðsskólarnir voru á þessum árum fullskipaðir. Plestir nem- enda þeirra voru úr dreifbýli, en einnig margir úr Reykjavík og öðrum kaupstöðum og kauptún- um. Héraðsskólar veittu á þess- um árum engin sérstök réttindi, en gegndu samt um langa hríð þýðingarmiklu hlutverki, eink- um fyrir dreifbýlisnemendur, sem í mörgum tilfellum áttu fárra eða engra annarra kosta völ um skólagöngu að loknu barnaskóla- námi. Skólar þessir reyndust mjög áhugavekjandi og beindu fjölda nemenda áfram til frekara náms af ýmsum toga. Námið var að mörgu leyti frjálslegt og ger- samlega óstaðlað. Kennarar voru sjálfráðir um námsefni hver í 7

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.