Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 11

Málfríður - 15.09.1995, Qupperneq 11
vantar orðabækur eða einfald- Iega meiri tíma til að rifja upp námsefnið. Þó að kennarinn geti auðveld- lega bent á ýmislegt sem nem- andinn þarf á að halda er ekki víst að nemandinn sé sammála honum. Sumir nemendur vilja kannski bara ljúka prófi og vilja þá eingöngu einbeita sér að þeim verkefnum sem koma á prófi eða „gilda“ eitthvað. Nem- endur sjá oft aðeins þörfina á tungumálakunnáttu sem leið til þess að geta lokið ákveðnu prófi (sbr. aðrar greinar?). Þeir sjá ekki að það að læra tungumál ætti ekki að vera takmark í sjálfu sér heldur tæki sem hægt er að nota við ákveðnar kring- umstæður þegar út í lífið er komið. Á ráðstefnunni kom fram að nauðsynlegt sé að taka tillit til hvors tveggja - hvað nemend- ur þurfa og hvað þeir vilja. Hægt er að komast að því hvað þeir vilja með t.d. viðtölum við þá eða með spurningalistum. Oft getur verið um einfalda hluti að ræða, t.d. að nemendum þyki skipta mestu máli að þeir „kunni sig“ innan um jafnaldra sína, þegar fullorðnum þyki eðlilegt að kenna nemendunum að vera kurteisir á erlenda málinu. Kennarinn má ekki gleyma því að hann er ekki af sömu kynslóð og nemendur. Kennarinn getur auðveldlega dottið í þá gryfju að gera því skóna að nemendur sjái heiminn með sömu augum og hann sjálfur. Sonur eins fyrirles- arans hafði komið heim úr skóla einn daginn í öngum sínum vegna þess að hann átti að skrifa ritgerð á frönsku (móður- mál hans er enska) um „mar- tröð“. Það þarf varla að benda á að það var martröð líkast fyrir hann að skrifa um þetta efni sem hann hafði litlar forsendur til að skrifa um. Ekki er þó rétt að reyna að uppfylla allar óskir nemenda í vali á námsefni á kostnað þess að víkka sjóndeildarhring þeirra. Enda er það einn megintil- gangur með menntun og eitt meginhlutverk kennarans að auka þekkingu nemenda. Á ráðstefnunni kom fram að nemendur í Evrópu geri sér al- mennt grein fyrir hve miklu máli skiptir að geta flust á milli landa til að afla sér menntunar eða vegna atvinnu (the need for educational and vocational mobility) og jafnframt að geta nýtt sér menntun sína að fullu. Evrópa er orðin margslungin því að fólk er sífellt að flytjast á milli landa. I dag er Evrópubúi kannski frá Bangladesh og geng- ur í skóla þar sem aðalkennari hans er Ameríkani! Hlutverk kennara Kennarar eru ólíkir innbyrðis rétt eins og nemendur. Það hefur hver sinn persónuleika og hver notar mismunandi aðferðir við að koma efninu til skila. Þeirri fullyrðingu var reyndar varpað fram að kennarar kenni eins og þeim sjálfum var kennt, þrátt fyrir alla kennslufræðina sem þeir hafa lært og þjálfunina sem þeir hafa fengið (the paral- lel principle). Það er hins vegar nauðsynlegt fyrir kennara að hafa í huga hvert er hlutverk hans í kennsl- unni. Kennarinn á að aðstoða nemendur við námið, hann á að örva það ferli sem á sér stað þegar nemendur læra eitthvað nýtt. Það er kennarinn sem á að sjá til þess að nemendur geri sér grein fyrir hvers vegna þeir hafi þörf fyrir að læra viðkomandi tungumál (fjölmiðlar eru sagðir skapa „þörfina" fyrir eitthvert ákveðið tungumál). Því er haldið fram að því meira sem kennarinn talar sjálfur, þeim mun minna læri nemendur. Kennarinn á ekki að fylgja kennslubók eins og blindur þræll, hann verður að aðlaga og breyta, bæta við eða sleppa eftir því sem við á miðað við áhugasvið og getustig nem- enda hans, enda þekkir hann nemendur sína betur en kennslu- bókahöfundar. Auðvitað verður kennarinn einnig að taka tillit til óska og þarfa umhverfisins (for- eldra, atvinnulífs o.s.frv.) í vali sínu á námsefni. I dag er mikil áhersla lögð á sjálfstæði nemenda (learner autonomy). Þetta sjálfstæði fel- ur í sér að nemandinn axli ábyrgð á eigin námi, að hann hafi frumkvæði (að minnsta kosti að einhverju leyti) að því að tileinka sér nýja þekkingu ásamt því að verða fær um að meta sjálfur hvort hann hafi í rauninni lært eitthvað. Með öðrum orðum felur sjálfstæði nemandans ekki aðeins í sér ferlið að læra eitthvað heldur einnig að læra hvernig hann á að fara að því að tileinka sér nýja þekkingu. Nemendur geti því aðeins orðið sjálfstæðir not- endur tungumálsins að þeir hafi lært að verða sjálfstæðir í að nota tungumálið. Sjálfstæðið nemenda á að myndast við sam- skipti þeirra við kennarann og aðra nemendur (kemur ekki af sjálfu sér eins og margir virðast halda). Til þess að geta kennt nemendum að verða sjálfstæðir verður kennari þeirra á sama hátt að hafa lært að verða sjálf- stæður í kennaranámi sínu og/eða á námskeiðum sem hann sækir eftir að námi lýkur. Það þarf að þjálfa færni kennara til að láta nemendur gera meira frekar en að láta kennarann venjast á að vinna alla vinnuna sjálfur. Ekki má kennslan miðast um of við prófið í lokin, það njörvar hana niður og getur komið í veg fyrir að nemendur læri að hugsa sjálfstætt og læri sjálfstæð vinnu- brögð. Kennurum er bent á að þeim hættir til að leiðrétta of oft en hrósa of lítið. Einnig verður að benda þeim á nauðsyn þess að kennari sé nýjungagjarn og skapandi. Öðru vísi koma ekki fram nýjungar né verða endur- bætur á kennslunni. Námskrá Það kom berlega í ljós á ráð- stefnunni að ísland er nokkuð sér á báti hvað varðar nám- skrárgerð. I flestum þeim lönd- um sem við „miðum okkur við“ hefur lengi verið til greinargóð námskrá sem skólunum ber að fylgja. I fáeinum löndum Evr- ópubandalagsins er reyndar miðað við „threshold level“. Gengið er svo langt að fullyrða að ekki sé hægt að skilja á milli námsefnis og námskrár. Löndin innan Evrópuráðsins eiga það öll sameiginlegt að áhersla er lögð á að kenna tjáskiptaað- ferðina (communicative langu- 11

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.