Málfríður - 15.09.1995, Síða 31

Málfríður - 15.09.1995, Síða 31
framhaldsskólanna fram í febr- úar, nánar tiltekið þann ellefta. Bárust 135 úrlausnir frá 18 skól- um. Bestum árangri náði Eiríkur Jónsson nemandi í Fjölbrauta- skóla Vesturlands og næstbest- um Hulda Sif Birgisdóttir, Menntaskólanum á Akureyri. Þau hlutu í verðlaun 4 vikna Þýskalandsdvöl í sumar í boði þýskra mennta- og menningar- yfirvalda. I nefndinni, sem ann- aðist Jjrautina að þessu sinni, voru Ursúla Karlsdóttir, Hannes Stefánsson og formaður hennar; Steinar Matthíasson en Elísabet Magnúsdóttir, formaður félags- ins starfaði einnig með henni. Eins og undanfarin ár sóttu 5 kennarar sumarnámskeið í Þýskalandi. Fóru 3 til Lúbeck í boði Deutsche Auslandsgesells- ehaft og 2 voru á vegum Goethe Institut. 22.-24. ágúst var haldið nám- skeið fyrir þýskukennara í sam- vinnu við Endurmenntunar- stofnun Háskóla Islands. Aðal- fyrirlesari á námskeiðinu var Brigitte Petschenik frá Austur- ríki. Flutti hún erindi um skap- andi skrif nemenda og einnig um austurríska þýsku. Aðrir fyrirlesarar voru Dr. Oddný G. Sverrisdóttir, sem fjallaði um væntanlegar breytingar í þýskri stafsetningu og Maja Loebell, sem ræddi um nám og náms- tækni. Námskeiðið sóttu 23 kennarar víðsvegar að af land- inu og þótti það takast vel. 25 ára afmæli félagsins var haldið föstudaginn 3. nóvember að afloknum deildarstjórafundi og rausnarlegu boðið Goethe- stofnunarinnar, þar sem rekt- orar og konrektorar framhalds- skólanna ásamt starfsmönnum þýska sendiráðsins heiðruðu Félag þýzkukennara á Islandi með þátttöku sinni. Núverandi stjórn félagsins skipa: Eiríkur Haraldsson for- maður, Margrét Matthíasdóttir gjaldkeri, Margrét Böðvarsdóttir ritari, Stefanía Arnórsdóttir og Stefán Andrésson. Varamenn eru Alan Rettedal og Ásgeir Eggertsson. Frá félagí frönskukennara Á síðasta aðalfundi félagsins í júní s.l. var skipuð ný stjórn. Formaður er Petrína Rós Karls- dóttir, ritari er Soffía Kjaran, gjaldkeri, Guðný Árnadóttir, meðstjórnendur: Fanný Ingvars- dóttir og Sigrún H. Halldórs- dóttir. Þeir sem gengu úr stjórn voru Solveig Thorarensen, gjald- keri, Grétar Skúlason og Ingunn Garðarsdóttir, meðstjórnendur. Sigrún H. Halldórsdóttir lét af störfum sem ritari en er nú með- stjórnandi. Fulltrúi félagsins í STÍL er Vera Ósk Valgarðsdóttir og tekur hún við af Ingibjörgu H. Hjartardóttur, en Ingibjörg var einnig gjaldkeri STIL. Við þökk- um Ingibjörgu vel unnin störf. í september s.l. var haldinn fundur með Michéle Verdelhan sem hefur ásamt undirritaðri séð um skipulagningu á endur- menntunarstarfi fyrir félags- menn, Franska sendiráðinu og Frönskudeild Háskólans. Sam- starfið hefur gengið vel og náð- ist samkomulag um að endur- nýja samninginn sem verið hef- ur til fimm ára. Um er að ræða fimm ára heildarsamning á milli Franska ríkisins, háskólans í Montpellier og Háskóla íslands, sem felur í sér þrjá þætti. I fyrsta lagi tekur samningurinn til menntunar frönskunema HI, í öðru lagi til endurmenntunar frönskukennara og í þriðja lagi til rannsóknastarfs. Hvað frönskukennurum viðkemur, þá verður áfram um fjárhagslegan stuðning franskra yfirvalda við samskonar námskeið og haldin hafa verið hérlendis með leið- beinendum frá Montpellier að ræða. Efni fyrirhugaðra nám- skeiða verður m.a. tækninýjung- ar í kennslu, frönskukennsla í tengslum við starfstengt nám o.s.frv. Rétt er að geta þess að Lingua býður upp á mikla möguleika, m.a. er fyrirhugað námskeið næsta sumar í París dagana 30.-31. júlí um menn- ingu, kennslu og efnahagslífið í Frakklandi. Námskeið þessi eru styrkt og vert er að hvetja fólk til þess að sækja um, nánari upplýsingar veitir formaður. Félagið færði Þjóðarbókhlóð- unni bókagjöf 30. júní sl. „Le Grand Robert" í níu bindum og átta bækur um málnotkun til varðveislu á lestrarsal safnsins, fjórðu hæð. Formaður félagsins, Petrína Rós, gerði samning við bókaút- gáfuna Örn og Órlyg um að félagsmenn fái 30% afslátt af Frönsk-Islensku orðabókinni sem út kom í haust og félagið var aðili að ásamt franska og ís- lenska ríkinu. Af öðrum fyrirhuguðum störf- um félagsins er námskeiðahald í samvinnu við Montpellier há- skólann í undirbúningi. Petrína Rós Karlsdóttir. Frá félagi enskukennara Haldnir hafa verið níu stjórn- arfundir og þrír félagsfundir. Fjallað var um tölvumál, ritun og leynilögreglusögur. I júníbyrjun var farið í náms- ferð til Washington og urðu menn margs vísari. Fyrirhugað er að fækka nokkuð hefðbundn- um félagsfundum en efna til tölvunámskeiðs um mennta- netið. Einnig er í athugun að fá erlendan fræðimann til að halda fyrirlestur og námskeið. 31

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.