Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Page 2
BIBLÍUDAGURINN 1976
Hið xslenzka Biblíufél-ao: varð 160 ára 10. júlí 1975 . Elzt
er það allra íslenzkra félaga, þeirra er nú starfa. A
sumum aldursskeiðum þess hefur ef til vill þótt gæta
nokkurs hrumleika í hreyfingum þess og afköstum. En
jafnan hefur það sótt í sig veðrið að nýju og getað tekið
góðar skorpur.
Afmæli þess á síðasta sumri var ekki haldið með neinni
stórhátíð. Stjórnin hált afmælisfund og hafði þá sem gest
framkvæmdastjóra Brezka og erl. Biblíufólagsins, Dr. Cryer.
Síðar var ráðstefna.norrænu Biblíufálaganna í Skálholti,
þar sem ágætir fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum ráðu
ráðum sínum í viku. Vonandi ber þessi ráðstefna nokkurn
ávöxt x starfinu hár á landi sem og annars staðar.
Gideonfálagið, sem vinnur sjálfstætt að útbreiðslu
Biblíunnar, en í góðri samvinnu við Biblíufálagið, hált
einnig afmælisráðstefnu í Skálholti skömmu síðar með
þátttöku erlendra manna. Það fálag varð þrítugt á sxðast
liðnu ári.
Nú er hinn árlegi biblíudagur skammt undan, 2. sunnudagur
í níuviknaföstu, 22. febrúar. Sá dagur skal minna á það
hlutverk, sem Hið ísl. Biblíufálag hefur tekið á sig í
þágu kristninnar í landinu: Að gefa út og breiða út
%
Heilaga Ritningu meðal landsmanna. Þetta hlutverk skír-
skotar til allra kristinna manna um samúð og liðstyrk.
Biblíufálagið hefur að undanförnu færst mikið í fang í
útgáfumálum og fest verulegt fá í nýjum og vönduðum
prentunum Biblíunnar. Það þarf því mjög á fjárframlögum
góðra vina að halda. Um leið og eitt verk er af hendi
leyst blasir við tugur óleystra verkefna og eru mörg
þeirra næsta brýn. Ofan á skyldurnar innanlands bætist
svo hin mikla og nærgöngula köllun nútfmans, sem Hið ísl.
Biblíufélag hlýtur að sinna að sínum hluta með systur-
fálögum sínum í öðrum löndum: Að dreifa hinu helga sæði,
kynna Guðs orð, meðal þeirra mörgu, sem ekki hafa átt þess
kost að kynnast því hingað til, koma Biblíunni eða einhverjum
ritum hennar í hendur þeirra milljóna manna, sem nú fyrst eru
að verða læsir á bók. Með ráttu er talað um biblíuhungur í
heimi nútímans. Kirkja Islands þarf að leggja sitt af
mörkum til þess að bæta úr því.