Fréttabréf frá Biskupsstofu - 15.02.1976, Blaðsíða 5
NÝÍ* BISKUPSRITARI
Hinn 15. janúar s.l. rann út umsóknarfrestur um embætti
biskupsritara. Ein umsókn barst, frá sr. Ölfari Guðmundssyni,
sóknarpresti á ólafsfirði. Var hann skipaður frá 1. febrúar
að telja.
Sr. Úlfar Guðmundsson er fæddur í Reykjavík 30. október
1940, sonur hjónanna Guðmundar Grímssonar, húsgagnasmíða-
meistara og Stefaníu Runólfsdóttur. Sr. Úlfar er stúdent
frá Verzlunarskóla íslands, og kandidat frá Guðfræðideild
Háskóla íslands 1972. Hann vígðist til ólafsfjarðar í
marz sama ár og hefur verið þar síðan. Sr. Ólfar er
kvæntur Freyju Jóhannsdóttur og eiga þau tvö börn.
Embætti biskupsritara er ákaflega viðamikið starf. Að
sögn sr. Úlfars er starfið einkum fólgið í daglegum
rekstri skrifstofu biskupsembættisins. Margir sjóðir eru
í vörslu embættisins og lætur nærri að þeir sóu nú um 170
talsins, stærsti þeirra hinn almenni kirkjusjóður og
kristnisjóður. Þá fara um embætti biskupsritara skýrslur
presta til embættisins, reikningar kirkna og kirkjugarða,
og þannig mætti lengi telja.
Biskupsembættið fagnar nýjum starfsmanni og óskum honum
alls góðs í nýju og vandasömu starfi.
I STUTTU MALI
Fréttabréfið hafði samband við þrjá presta, hvern í sínum
landsfjórðungi og leitaði eftir þvx hvaö helzt væri frétt-
naemt. Fyrst hringdum við í sr. Jón Einarsson x Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd og inntum hann frétta af störfum starfs-
háttanefndar kirkjunnar, en sr. Jón er formaður þeirra
nefndar.
- Er nokkuð að frétta af störfum starfsháttanefndar?
- Ja - ég veit ekki hvað ég á að láta uppi um það - og þó,
við erum búnir■að■halda 4 fundi síðan á prestastefnu í vor
með reglulegu millibili - nú síðast í janúar, og stóð sá
fundur í eina 3 daga, og þá gengum við m.a. á fund
kirkjumálaráðherra, nú, þá höfum við sent öllum prestum